Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.1995, Blaðsíða 23
FÖSTUDAGUR 5. MAÍ 1995
31
Snæfellsbær:
Þrír nýir
sumarbú-
staðir á
Lýsuhóli
Símon Sigurmonsson, DV, Göröum:
Margir leggja í langferðir á vor-
in, bæði ferðamenn ogfarfuglar.
Fleiri færa sig um set, þrír fall-
egir sumarbústaðir voru fluttir
langa leið frá Hvolsvelli alla leið
að Lýsuhóli í Snæfellsbæ þann
26. apríl. Þetta var erftð leið,
þurfti að krækja fyrir allar
hengibrýr og torfærur. Bjarni
Vigfússon og Þorgeir Árnason úr
Snæfellsbæ sáu um flutninginn
og tókst hann ágætlega enda eru
þeir félagar vel tækjum búnir.
Hjónin Jóhanna Bára og Agnar
hafa tekið við ferðaþjónustunni
aö Lýsuhóli og reka þar gistiþjón-
ustu og hestaleigu.
Hestaleigan að Lýsuhóli hefur
verið mjög vinsæl á undaníöm-
um árum og hestar þaðan í miklu
áhti. Ábúendur hafa margsinnis
selt gæðinga til Þýskalands og
ferðast þangað og Þjóðverjar
koma mikið að Lýsuhóh.
Vorkoma
undirJökli
Símon Sigurmonsson, DV, Göiöunu
Vorið og veðurblíðan kom í
Staðarsveit nákvæmlega sama
dag og í fyrra, 29. apríl. Hinir
þykku skaflar vetrarins hverfa
óðum á láglendi og ís leysir af
vötnum og lækjum.
Stór fálki hefur veriö hér í
sveitinni í vor og hafa fundist
dauðar ijúpur sem hann hefur
verið að éta.
Tveir emir hafa verið hér einn-
ig. Þeir eru ekki mjög styggir og
hafa margir vegfarendur séð þá
við Lýsuvötnin og nálægt vegin-
um. Einn bóndinn gaf þeim kind-
arskrokk og hafa þeir setið að
honum í ró og næði.
Snæfellsjökull skartar sinu feg-
ursta eftir mikinn snjóavetur og
eru ferðamenn farnir að streyma
upp á hann frá Arnarstapa með
vélsleðum Tryggva, staðarhald-
ara á Snjófelli.
Fréttir
Bæjarráð Akureyrar hafnaði bjórsölu á HM:
Bæjarstjórn líklega
kölluð til aukaf undar
- öruggt talið að meirihluti sé í bæjarstjóm fyrir bjórleyíinu
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Þessi afgreiðsla bæjarráös nær
ekki nokkurri átt. Það þýðir ekki að
vera að taka að sér alþjóðlega keppni
eins og þessa og koma svo með þenn-
an úrelta afdalahugsunarhátt," segir
Þórarinn B. Jónsson, bæjarfuhtrúi
Sjálfstæðisflokksins á Akureyri, um
þá ákvörðun meirihluta bæjarráðs í
gær að heimila ekki sölu á bjór á
leikjum heimsmeistarakeppninnar í
handknattleik á Akureyri.
Sigfríður Þorsteinsdóttir, bæjar-
fulltrúi Framsóknarflokks, gekk við
afgreiðslu málsins til hðs viö fuhtrúa
minnihlutans í bæjarráði, þau Sig-
ríði Stefánsdóttur, Alþýöubandalagi,
og Sigurö J. Sigurðsson, Sjálfstæöis-
flokki, sem höfnuðu bjórsölunni.
Hins vegar vhdu Gísh Bragi Hjartar-
son, Alþýðuflokki, og Þórarinn B.
Sveinsson, Framsóknarílokki, að
leyfið yrði veitt.
Vitað er að meirihluti er fyrir því
í bæjarstjórn að veita leyfið. Bæjar-
ráð benti á í afgreiðslu sinni að loka-
afgreiðsla málsins væri í höndum
bæjarstjórnar en næsti reglulegi
fundur hennar er ekki fyrr en 16.
maí eða skömmu áður en keppninni
lýkur. Því var strax í gær farið að
ræða um að boða til aukafundar í
bæjarstjórn en það verður gert fari
fjórir bæjarfulltrúar fram á fund.
„Ég skil ekki annað en að það verði
kallaður saman aukafundur í bæjar-
stjóminni nú um helgina," sagði Þór-
arinn B. Jónsson. Undir það tóku
fleiri bæjarfuhtrúar sem DV ræddi
við í gær. Veröi máhð tekið fyrir þar
um helgina virðist ljóst að umsóknin
um bjórsöluna á leikjum HM á Akur-
eyri verður samþykkt.
Bjórsölumálið var líka til umræðu í borgarstjórn Reykjavikur í gær og þar var samþykkt að heimila sölu bjórs
laugardalshöllinni á meðan á HM stendur. Hér ræðst þau Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, borgarfulltrúi Sjálfstæðis
flokksins, og Guörún ágústsdóttir, forseti borgarstjórnar, máliö i fundarbyrjun. DV-mynd BG
Sýslumaður
haf nar lík-
Sýslumaður á Hornafirði hefur
neitað því að lík manns verði grafið
upp svo hægt sé að færa sönnur á
faðerni í sérstæðu barnsfaðernismáli
sem komið er upp á Hornafirði og
sagt var frá í DV á miðvikudag.
Málið er sérstætt þar sem bæði
„dóttir" og meintur faðir eru látin.
Deilt er um 40 milljóna króna arf og
í stefnu Jóns Oddssonar, lögmanns
barna „dótturinnar“, kemur hins
vegar fram að litið sé svo á að þar
sem þessi umbeðnu gögn séu ekki
lögð fram sé við úrlausn málsins
hægt að líta svo á að DNA-rannsókn
hefði sannað að hinn látni væri faðir
umræddrar dóttur. Dómari getur
einnig ákveðið hvort afla beri gagn-
anna með því að grafa hkið upp.
Máhð verður þingfestl.júní. -pp
Snjóflóð á
Óshlíðarveg
Snjóflóð féll á Óshhðarveg í gær-
kvöld. Flóðið féll ofan á vegskála viö
Steinsófæru og var svo stórt að það
féll fram af munna skálans og lokaði
veginum. Annað flóð féll stuttu síöar
á sama stað og lokaði næstum fyrir
munnann. Um tvo tíma tók að koma
moksturstækjum á staðinn og opna
veginnaftur. -pp
Viðræður um norsk-íslensku síldina 1 vaskinn:
íslendingar og Færeyingar
halda áfram samningum
- Norðmenn óttast ofveiði og hrun að nýju
„Það eru auðvitað mikh vonbrigði
að við skulum ekki hafa náð sam-
komulagi. Við höfðum bundið
ákveðnar vonir við að samkomulag
þessara íjögurra þjóða um shdina
myndi leiöa til þess að aðrar þjóðir
myndu fylgja fordæminu, segir Stein
Owe, skrifstofustjóri í norska sjávar-
útvegsráðuneytinu og formaður
norsku samninganefndarinnar,
vegna slita á viðræðum um veiðar
úr norsk-íslenska shdarstofninum.
Hann vildi ekker segja um það
hversu mikið hefði borið í milli ís-
lendinga og Norðmanna um veiði-
kvóta en segist hafa miklar áhyggjur
af viðgangi norsk-íslenska síldar-
stofnsins.
„Þetta er stofn sem var ofveiddur
á sínum tíma og hrundi. Okkur hefur
tekist að byggja hann upp aö nýju
en nú blasir það við að við gætum
setið uppi með hrun að nýju, segir
Stein Owe.
Samkvæmt heimildum DV vildu
Norömenn lítið hvika frá tilboði sínu
um rúmlega 60 þúsund tonna kvóta.
íslenska sendinefndin aftur á móti
hélt sig við 140 til 150 þúsund tonna
kvóta. Norðmenn vildu ekki hreyfa
sig frá þeirri tölu nema um sem nem-
ur örfáum tonnum og þá með því
skilyrði að samningamir væru á
lokastigi.
„Það bar of mikið í milli varðandi
óskir okkar um kvóta annars vegar
og það sem Norðmenn og Rússar
töldu óhætt að veiða úr shdarstofnin-
um. Viö erum ekki sammála um þær
tölur og teljum að þaö sé áhættulaust
að það verði töluverðar veiðar úr
stofninum í ár. Það er veriö að tala
um bráðabirgðalausn núna í ár og
það hefði ekki skaðað neitt vöxt og
viðgang stofnsins ef við hefðum feng-
ið einhveija góöa tölu fyrir okkar
sjómenn, segir Helgi Ágústsson,
sendiherra og formaður íslensku
sendinefndarinnar.
Halldór Ásgrímsson utanríkisráð-
herra segir aö nú verði teknar upp
viðræður við Færeyinga um sameig-
inlegan kvóta þjóðanna tveggja.
„Það verður haldið áfram að tala
saman mihi þjóðanna og leitað sam-
eiginlegrar niðurstöðu. Ég get á
þessu stigi ekki sagt til um þaö um
hve mikinn kvóta verður að ræða,“
sagði Halldór.
Hæstíréttur mildar dóm yfir kynferðisbrotamanni:
Bar áfengi í pilta
og misnotaði þá
Hæstiréttur mildaöi í gær dóm færði sér aðstööu sina með því að
yfir kynferðisbrotamanni í fimm bjóða drengjunum til sín og veita
mánaðafangelsienmaðurinnhafði þeim áfengi. Hann var í héraði
verið dæmdur í átta mánaða fang- dæmdur fyrir þetta. Einnig var
elsí tyrir Héraðsdómi Suðurlands. liann dæradur fyrir að hafa farið
Maðuriim, sem er 49 ára, var með piltana út fyrir bæirrn og haft
dæmdur fyrir að hafa veitt tveimur í frammi kynferðislegar athafnir.
15 ára piltum áfengi og síðan mis- Hæstiréttur taldi hins vegar var-
notað þá kynferöislega. Dómurinn hugavert, í ljósi þess hve annar
taldi sakborninginn, sem er fjöl- piltanna heföi verið ölvaður í eitt
skyldumaður, hafa notfært sér skiptið, aö telja sannað, með hhð-
vinnuaðstöðu sína og vínhneigð sjón af framburði lians, að maður-
phtanna til að svala afbrigðilegri inn hefði gengið jafn langt og hér-
kynhneigð sinni. aðsdómari taldi og mildaði því refs-
Atvikin áttu sér staö í bæjarfélagi inguna.
á Suðurlandi árið 1993. Þegar kenn- Héraðsdómur komst meðal ann-
ari varð þess áskynja að öörum ars að þeirri niöurstööu að lostugt
phtinum leið mjög illa andlega fór athæfi ákærða í orði og æði virtist
barnavemdamefhd í máliö sem hafa markað djúp spor í viðkvæmt
síðan kærði umræddan mann til tilfmningalíf piltanna. Óhikað hélt
lögreglu. Rannsókn hófst þegar í hann áfengi að drengjunum þótt
stað. hann vissi að þeir ættu við áfengis-
•Ákærði rak veitingahús og not- vandamáiaðstríða. -pp