Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.1995, Síða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.1995, Síða 23
FÖSTUDAGUR 5. MAÍ 1995 31 Snæfellsbær: Þrír nýir sumarbú- staðir á Lýsuhóli Símon Sigurmonsson, DV, Göröum: Margir leggja í langferðir á vor- in, bæði ferðamenn ogfarfuglar. Fleiri færa sig um set, þrír fall- egir sumarbústaðir voru fluttir langa leið frá Hvolsvelli alla leið að Lýsuhóli í Snæfellsbæ þann 26. apríl. Þetta var erftð leið, þurfti að krækja fyrir allar hengibrýr og torfærur. Bjarni Vigfússon og Þorgeir Árnason úr Snæfellsbæ sáu um flutninginn og tókst hann ágætlega enda eru þeir félagar vel tækjum búnir. Hjónin Jóhanna Bára og Agnar hafa tekið við ferðaþjónustunni aö Lýsuhóli og reka þar gistiþjón- ustu og hestaleigu. Hestaleigan að Lýsuhóli hefur verið mjög vinsæl á undaníöm- um árum og hestar þaðan í miklu áhti. Ábúendur hafa margsinnis selt gæðinga til Þýskalands og ferðast þangað og Þjóðverjar koma mikið að Lýsuhóh. Vorkoma undirJökli Símon Sigurmonsson, DV, Göiöunu Vorið og veðurblíðan kom í Staðarsveit nákvæmlega sama dag og í fyrra, 29. apríl. Hinir þykku skaflar vetrarins hverfa óðum á láglendi og ís leysir af vötnum og lækjum. Stór fálki hefur veriö hér í sveitinni í vor og hafa fundist dauðar ijúpur sem hann hefur verið að éta. Tveir emir hafa verið hér einn- ig. Þeir eru ekki mjög styggir og hafa margir vegfarendur séð þá við Lýsuvötnin og nálægt vegin- um. Einn bóndinn gaf þeim kind- arskrokk og hafa þeir setið að honum í ró og næði. Snæfellsjökull skartar sinu feg- ursta eftir mikinn snjóavetur og eru ferðamenn farnir að streyma upp á hann frá Arnarstapa með vélsleðum Tryggva, staðarhald- ara á Snjófelli. Fréttir Bæjarráð Akureyrar hafnaði bjórsölu á HM: Bæjarstjórn líklega kölluð til aukaf undar - öruggt talið að meirihluti sé í bæjarstjóm fyrir bjórleyíinu Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: „Þessi afgreiðsla bæjarráös nær ekki nokkurri átt. Það þýðir ekki að vera að taka að sér alþjóðlega keppni eins og þessa og koma svo með þenn- an úrelta afdalahugsunarhátt," segir Þórarinn B. Jónsson, bæjarfuhtrúi Sjálfstæðisflokksins á Akureyri, um þá ákvörðun meirihluta bæjarráðs í gær að heimila ekki sölu á bjór á leikjum heimsmeistarakeppninnar í handknattleik á Akureyri. Sigfríður Þorsteinsdóttir, bæjar- fulltrúi Framsóknarflokks, gekk við afgreiðslu málsins til hðs viö fuhtrúa minnihlutans í bæjarráði, þau Sig- ríði Stefánsdóttur, Alþýöubandalagi, og Sigurö J. Sigurðsson, Sjálfstæöis- flokki, sem höfnuðu bjórsölunni. Hins vegar vhdu Gísh Bragi Hjartar- son, Alþýðuflokki, og Þórarinn B. Sveinsson, Framsóknarílokki, að leyfið yrði veitt. Vitað er að meirihluti er fyrir því í bæjarstjórn að veita leyfið. Bæjar- ráð benti á í afgreiðslu sinni að loka- afgreiðsla málsins væri í höndum bæjarstjórnar en næsti reglulegi fundur hennar er ekki fyrr en 16. maí eða skömmu áður en keppninni lýkur. Því var strax í gær farið að ræða um að boða til aukafundar í bæjarstjórn en það verður gert fari fjórir bæjarfulltrúar fram á fund. „Ég skil ekki annað en að það verði kallaður saman aukafundur í bæjar- stjóminni nú um helgina," sagði Þór- arinn B. Jónsson. Undir það tóku fleiri bæjarfuhtrúar sem DV ræddi við í gær. Veröi máhð tekið fyrir þar um helgina virðist ljóst að umsóknin um bjórsöluna á leikjum HM á Akur- eyri verður samþykkt. Bjórsölumálið var líka til umræðu í borgarstjórn Reykjavikur í gær og þar var samþykkt að heimila sölu bjórs laugardalshöllinni á meðan á HM stendur. Hér ræðst þau Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, borgarfulltrúi Sjálfstæðis flokksins, og Guörún ágústsdóttir, forseti borgarstjórnar, máliö i fundarbyrjun. DV-mynd BG Sýslumaður haf nar lík- Sýslumaður á Hornafirði hefur neitað því að lík manns verði grafið upp svo hægt sé að færa sönnur á faðerni í sérstæðu barnsfaðernismáli sem komið er upp á Hornafirði og sagt var frá í DV á miðvikudag. Málið er sérstætt þar sem bæði „dóttir" og meintur faðir eru látin. Deilt er um 40 milljóna króna arf og í stefnu Jóns Oddssonar, lögmanns barna „dótturinnar“, kemur hins vegar fram að litið sé svo á að þar sem þessi umbeðnu gögn séu ekki lögð fram sé við úrlausn málsins hægt að líta svo á að DNA-rannsókn hefði sannað að hinn látni væri faðir umræddrar dóttur. Dómari getur einnig ákveðið hvort afla beri gagn- anna með því að grafa hkið upp. Máhð verður þingfestl.júní. -pp Snjóflóð á Óshlíðarveg Snjóflóð féll á Óshhðarveg í gær- kvöld. Flóðið féll ofan á vegskála viö Steinsófæru og var svo stórt að það féll fram af munna skálans og lokaði veginum. Annað flóð féll stuttu síöar á sama stað og lokaði næstum fyrir munnann. Um tvo tíma tók að koma moksturstækjum á staðinn og opna veginnaftur. -pp Viðræður um norsk-íslensku síldina 1 vaskinn: íslendingar og Færeyingar halda áfram samningum - Norðmenn óttast ofveiði og hrun að nýju „Það eru auðvitað mikh vonbrigði að við skulum ekki hafa náð sam- komulagi. Við höfðum bundið ákveðnar vonir við að samkomulag þessara íjögurra þjóða um shdina myndi leiöa til þess að aðrar þjóðir myndu fylgja fordæminu, segir Stein Owe, skrifstofustjóri í norska sjávar- útvegsráðuneytinu og formaður norsku samninganefndarinnar, vegna slita á viðræðum um veiðar úr norsk-íslenska shdarstofninum. Hann vildi ekker segja um það hversu mikið hefði borið í milli ís- lendinga og Norðmanna um veiði- kvóta en segist hafa miklar áhyggjur af viðgangi norsk-íslenska síldar- stofnsins. „Þetta er stofn sem var ofveiddur á sínum tíma og hrundi. Okkur hefur tekist að byggja hann upp aö nýju en nú blasir það við að við gætum setið uppi með hrun að nýju, segir Stein Owe. Samkvæmt heimildum DV vildu Norömenn lítið hvika frá tilboði sínu um rúmlega 60 þúsund tonna kvóta. íslenska sendinefndin aftur á móti hélt sig við 140 til 150 þúsund tonna kvóta. Norðmenn vildu ekki hreyfa sig frá þeirri tölu nema um sem nem- ur örfáum tonnum og þá með því skilyrði að samningamir væru á lokastigi. „Það bar of mikið í milli varðandi óskir okkar um kvóta annars vegar og það sem Norðmenn og Rússar töldu óhætt að veiða úr shdarstofnin- um. Viö erum ekki sammála um þær tölur og teljum að þaö sé áhættulaust að það verði töluverðar veiðar úr stofninum í ár. Það er veriö að tala um bráðabirgðalausn núna í ár og það hefði ekki skaðað neitt vöxt og viðgang stofnsins ef við hefðum feng- ið einhveija góöa tölu fyrir okkar sjómenn, segir Helgi Ágústsson, sendiherra og formaður íslensku sendinefndarinnar. Halldór Ásgrímsson utanríkisráð- herra segir aö nú verði teknar upp viðræður við Færeyinga um sameig- inlegan kvóta þjóðanna tveggja. „Það verður haldið áfram að tala saman mihi þjóðanna og leitað sam- eiginlegrar niðurstöðu. Ég get á þessu stigi ekki sagt til um þaö um hve mikinn kvóta verður að ræða,“ sagði Halldór. Hæstíréttur mildar dóm yfir kynferðisbrotamanni: Bar áfengi í pilta og misnotaði þá Hæstiréttur mildaöi í gær dóm færði sér aðstööu sina með því að yfir kynferðisbrotamanni í fimm bjóða drengjunum til sín og veita mánaðafangelsienmaðurinnhafði þeim áfengi. Hann var í héraði verið dæmdur í átta mánaða fang- dæmdur fyrir þetta. Einnig var elsí tyrir Héraðsdómi Suðurlands. liann dæradur fyrir að hafa farið Maðuriim, sem er 49 ára, var með piltana út fyrir bæirrn og haft dæmdur fyrir að hafa veitt tveimur í frammi kynferðislegar athafnir. 15 ára piltum áfengi og síðan mis- Hæstiréttur taldi hins vegar var- notað þá kynferöislega. Dómurinn hugavert, í ljósi þess hve annar taldi sakborninginn, sem er fjöl- piltanna heföi verið ölvaður í eitt skyldumaður, hafa notfært sér skiptið, aö telja sannað, með hhð- vinnuaðstöðu sína og vínhneigð sjón af framburði lians, að maður- phtanna til að svala afbrigðilegri inn hefði gengið jafn langt og hér- kynhneigð sinni. aðsdómari taldi og mildaði því refs- Atvikin áttu sér staö í bæjarfélagi inguna. á Suðurlandi árið 1993. Þegar kenn- Héraðsdómur komst meðal ann- ari varð þess áskynja að öörum ars að þeirri niöurstööu að lostugt phtinum leið mjög illa andlega fór athæfi ákærða í orði og æði virtist barnavemdamefhd í máliö sem hafa markað djúp spor í viðkvæmt síðan kærði umræddan mann til tilfmningalíf piltanna. Óhikað hélt lögreglu. Rannsókn hófst þegar í hann áfengi að drengjunum þótt stað. hann vissi að þeir ættu við áfengis- •Ákærði rak veitingahús og not- vandamáiaðstríða. -pp

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.