Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.1995, Blaðsíða 22
30
FÖSTUDAGUR 5. MAÍ 1995
Smáauglýsingar - Sími 563 2700
Verslun
§ Hjólbarðar
Mjög góöir Amigo bómullargallar á
dúndurgóðu verði, peysa 1.490 kr., bux-
ur 1.190 kr. Litir: blár, rauður, grár og
grænn. Do-Re-Mi, Laugavegi 20, s. 552
5040, og í bláu húsi v/Fákafen, s. 568
3919. Póstsendum.
Spennandi gjafir sem koma þægilega á
óvart. Stórkostl. úrval af titr., ýmsk.
settum, olíum, kremum o.m.fl. á fráb.
verði. Glæsil. litm.listar kr. 500 stk.
Pósts. dulnefn. um allt land.
Rómeó & Júlía, Grundarstíg 2, mán.-
fóst. 10-18, laug. 10-14, s. 551 4448.
Geriö verösamanburö. Asetning á
staðnum. Allar gerðir af kerrum, allir
hlutirtil kerrusmíða. Opið laugard.
Víkurvagnar, Síðumúla 19, s. 568
4911.
Kerruöxlar á mjög hagstæöu veröi,
með eða án rafhemla, í miklu úrvali,
f>TÍr flestar gerðir af kerrum.
Fjallabílar/Stál og stansar hf.,
Vagnhöfða 7, Rvík, sími 567 1412.
UPPB0Ð
Uppboð munu byrja á skrifstofu
embættisins að Strandgötu 52,
Eskifirði, sem hér segir, á eftirfar-
andi eignum:
Dekkjahúsid
Skeifunni 11-108 Reykjavík
Sími 568 8033 - 568 7330
EENERAL
ÖRUGG - ÓDÝR
• 205/75 R 15 stgr...............8.060.
• 215/75 R 15 stgr...............8.720.
• 235/75 R 15 stg8.990..................
• 30 - 9,5 R 15 stgr............11.115.
• 31 - 10,5 R 15 stgr...........11.670.
• 32 -11,5 R 15 stgr...........13.075.
• 33 -12,5 R 15 stgr...........14.390.
Alhliða hjólbarðaþj., bón og þvottur.
Jg BÍiártiisöiii
4x4, fjölskyldugullmolinn. Til sölu er
þessi fallegi fjórhjóladrifni Subaru sed-
an, 1,8, árg '87, sjálfskiptur, ath. ekinn
aðeins 61.000 km. Nánari
upplýsingar gefur Marteinn í símum
91-14505 og 989-23609.
Jeppar
Vinnuvélar
Cherokee Laredo '90, ek. 145 þús. km.
Bíllinn fór í söluskoðun hjá umboðinu
Jöfri og gert var við það sem þurfti.
Fékk fyrstu einkunn, vottorð liggur fyr-
ir. Bíll í sérflokki. Verð kr. 1850.000.
Skipti koma til greina. Gott stgrverð.
Til sýnis og sölu hjá Bílasölunni Höfða-
höllinni, Vagnhöfða 9, s. 674840.
Til sölu malbiks- og steypusög, Partner
1200. Góður staðgreiðsluafsláttur.
Uppl. í síma 551 7703, 587 0637 eða
boðsíma 984-51703.
Strandgata 10, Eskifirði, þingl. eig.
Eskfirðingur hf., gerðarbeiðandi Is-
landsbanki hf., 8. maí 1995 kl. 10.00.
Ásvegur 27, Breiðdalsvík, þingl. eig.
Bílahöllin hf., gerðarbeiðendur Breið-
dalshreppur og Lífeyrissjóður versl-
unarmanna, 8. maí 1995 kl. 10.00.
SÝSLUMAÐURINN Á ESKMRÐI
Áskrifendur
fá 10% auka-
afslátt af smá-
0 Þjónusta
Stigarog handriö, úti sem inni.
Stigamaðurinn, Sandgerði,
símar 92-37631 og 92-37779,
auglýsingum DV
Hríngdu núna
- síminn er 563-2700
Opið: Virka daga kl. 9 - 22,
laugardaga kl. 9 - 14,
sunnudaga kl. 16 - 22.
Athugið! Smáauglýsingar í
helgarblað DV verða
að berast fyrir
kl. 17 á föstudögum
AÍKIII
9 9*1 7*00
Verö aðeins 39,90 mín.
Menning
Endurfundir
tíu listamanna
í Hafnarhúsi
Samsýningar eru jafnan vel til þess fallnar að bera saman bækur eða
leita aö sameiginlegum þræöi. Nú hafa tíu listamenn, sem allir stunduðu
nám viö málunardeild MHÍ 1984-1988, hóað sig saman og sett upp sýn-
ingu sjö árum eftir útskrift. Það er forvitnilegt að skoöa sýninguna í ljósi
endurtekinna yfirlýsinga um dauða málverksins og uppgang naumhug-
ulla innsetninga á kostnað þess. Þaö er þó jafn ljóst að ekki hafa allir
sýnendur stundað málverkiö af jafn miklu kappi þessi ár sem liðin eru
frá skólavistinni. Tiltölulega fáir hafa farið í framhaldsnám en margir
þó stundað listnám á erlendum vettvangi áður eða annars konar listnám
hér heima.
Sparsemi í stærðum
Ásdís Kalman, Iöunn Thors og Dósla nálgast málverkið út frá persónu-
legum og nánast barnslegum forsendum. Það er erfitt að sjá á verkum
þeirra að þar fari skólaðir listamenn. Slíkt þarf ekki að vera neikvætt,
en hér er viðvaningsbragur því
miður einlægni yfirsterkari í flest-
um tilvikum. Það er helst í verkum
Dóslu að bregði fyrir persónuleg-
um draumkenndum stíl sem skilur
eitthvað eftir. Forsendur Ólafs
Benedikts Guðbjartssonar eru til
muna poppaðri en furðu vekur hve sparsamur hann er á efniviðinn.
Verkin myndu sóma sér mun betur ef þau væru stærri. Ólafur á sýnilega
í basli með að koma til skila flókinni myndskipan á svo litlum fleti. Torfi
Ásgeirsson er að mörgu leyti á sama báti, þó verk hans séu til muna ein-
faldari og meira samræmi á milli tækni og stærðar myndflatarins. Hug-
mynd Torfa að stílfærðu landslagi gengi örugglega betur upp í stærri
útgáfu.
Áferð og birta
Verk Margrétar Sveinsdóttur og Magnúsar Guðmundssonar eru aftur
á móti stór í sniöum. Þau skortir hins vegar talsvert af því sem áðurnefnd-
ar smámyndir hafa; haldgóða myndbyggingu. Borgir Magnúsar hafa að
vísu dágóða byggingu þó bæði verk hans virki líkt og hálfköruð. Verk
Margrétar eiga að byggja á áferð, en sú fyrirætlun misferst gersamlega
vegna giundvallarmisskilnings á verkan ljóss á flötinn. Haldbesta fram-
lag sýningarinnar er hins vegar vel heppnað samspil áferðar og ljóss eft-
ir Guðrúnu Einarsdóttur. Verk hennar eru staðsett á hárréttum stað þar
sem hliðarbirtu sólar nýtur seinnihluta dags. Einkum koma tvö seinni
verkin vel út og minna um margt á vefnað.
Óljós mælistika
Þá eru einungis ónefndar Sesselja Björnsdóttir og Erla Sigurðardóttir.
Sesselja á hér flórar myndir sem sverja sig í ætt við naumhugula náttúrud-
ulúð sem hefur verið talsvert áberandi síðustu misserin. Hér er unnið
skipulega með form í mörgum gegnsæjum lögum og er afraksturinn mjög
eftirtektarverður í tveimur fyrri verkunum, í gegnum hafflötinn og Inn
í mistrið. Erla Sigurðardóttir hefur einbeitt sér aö myndskreytingum og
sýnir hér flórar vatnslitamyndir. Vetrarmyndirnar tvær þykja mér sæta
hvað mestum tíðindum sem myndverk, hæfilega lausbeisluð og afmörkuð
í lit og tæknilega vel útfærð.
Sýnilega er betur athugað hvað sýna skal áður en farið er út í slíkar
samsýningar. Hér er heildin ekki sterk og lítið sameiginlegt með sýnend-
um þó þeir hafi verið samtíða í námi. Það er engum sýnenda greiði gerö-
ur með því að setjast undir svo óljósa mælistiku.
Myndlist
Ólafur J. Engilbertsson
Sveinbjörg
Aiexandersmeð
Carmen
íslenski dans-
flokkurinn
frumsýnir 17.
mai nk. Car-
men og fleiri
dansverk undir
heitinu „Heitir
dansar". Höf-
undur dans-
verksins um Carmen er Svein-
björg Alexanders sem búsett hef-
ur verið í Bandaríkjunum und-
anfarin ár við góöan orðstír. Auk
Carmenar verða sýndir dansar
úr Sólardönsum, Adagietto ogTil
Láru en þessi verk voru sýnd á
menningarhátíðinni Sólstöfum í
vetur.
Meöfylgjandi er tnynd af Svein-
björgu en i frétt á menningarsíðu
DV í síðustu viku birtist óvart
tfiynd af Unni Guðjónsdóttur
dansara. Eru hlutaöeigandi beðn-
ir velvirðingar á myndbrenglinu.
Kraftur í
Kvennakór
Reykjavíkur
Kvennakór
Reykjavíkur
hélt fyrri vor-
tónleika sína í
Langholts-
kirkju í gær-
kvöld við stór-
góðar undir-
tektir. Seinni
tónleikarnir
fara fram í kirkjunni á morgun,
laugardag, og heflast kl. 17. Efnis-
skrá vortónleikanna er mjög flöl-
breytt. Sígný Sæmundsdóttir
syngur einsöng meö kórnum og
aö auki syngur Gospelhópurinn
ásamt tríói Aðalheiðar Þorsteins-
dóttur. Svana Víkingsdóttir leik-
ur á píanó og stjórnandi kórsins
er Margrét J. Pálmadóttir.
Kvennakór Reykjavíkur var
stofnaöur í byrjun árs 1993 að
frumkvæði Margrétar sem starf-
rækt hefur kórskóla um nok-
kurra ára skeíð. Frá upphaíl
kórsins hafa um 100 konur stund-
að æftngar tvisvar til þrisvar í
viku. Mikill kraftur er í Kvenna-
kórnum um þessar mundir. Hann
hefur komið sér upp æfingaað-
stööu í gamalli blikksmiðju í vest-
urbænum og í sumar mun hann
standa fyrir Landsmóti íslenskra
kvennakóra sem haldið verður í
Reykjavikdagana24. og25.júní.
Ef nilegur f iðlari
Sigurbjörn Bernharðsson fiöluleikari og Kristinn Örn Kristinsson
píanóleikari héldu tónleika í Norræna húsinu sl. laugardag.
Þegar htiö var á efnisskrána varð strax ljóst að hér var ekki ráðist á
garðinn þar sem hann var lægstur: Bach, Paganini, Mozart, Ysaye og
Sarasate.
Tónlist
Askell Másson
Tónleikarnir hófust á Sónötu nr.
3 BWV 1016 fyrir fiðlu og píanó eft-
ir Bach. Sigurbjörn lék verkiö með
nótur og virtist hann nokkuð bund-
inn þeim i leik sínum. Hann hefur
fallega tónmyndun og stöðugan,
öruggan tón. Píanóleikur Kristins var áferðarfallegur og saman sýndu
þeir góðan samleik.
Kaprísur nr. 17 og 24 eftir Paganini fyrir einleiksfiðlu komu næst. Hér
sýndi Sigurbjöm að hann býr nú þegar yfir umtalsverðri tækni og lék
hann þessi erfiöu verk af öryggi.
Rondó í C-dúr, K.373 eftir Mozart var einkar skemmtilega og vel leikið
af þeim félögum og Sónata nr. 1 fyrir einleiksfiðlu eftir Bach, sem fylgdi
í kjölfarið, var geysivel flutt af Sigurbimi, einkum tveir fyrstu þættirnir,
Adagio og Fúga, sem voru skáldlega leiknir. Hinir tveir þættirnir, Sicil-
iano og Presto, náðu kannski ekki eins miklu flugi í túlkun Sigurbjörns,
en Sónata Ysaye fyrir einleiksfiðlu, op. 27, nr. 3, sem á eftir kom, var
hins vegar flutt meö tilþrifum. Ballade, einnig eftir Ysaye, var um margt
skemmtilega flutt af þeim Sigurbimi og Kristni, þótt ekki væri sam-
heldni þeirra með þeim ágætum sem áður hafði verið.
Tónleikunum lauk með því að þeir léku Habaneru eftir Pablo Sarasate.
Var það glæsilegt lokanúmer þessara tónleika, enda frábærlega leikið.
Það skáldlega innsæi sem Sigurbjörn sýndi í tveim fyrstu þáttum einleiks-
sónötu Bachs hreif undirritaðan mest á þessum tónleikum, en Sigurbjörn
sýndi með þeim aö hann á erindi sem túlkandi listamaður og að hann er
nú með okkar efnilegustu fiðluleikumm. Er þessum vönduðu tónlistar-
mönnum óskað til hamingju með þessa tónleika.
Kristján Frank-
línogSigurþór
fengustyrk
Leikararnir Krisflán Franklin
Magnús og Sigurþór Albert
Heimisson fengu nýlega styrki
úr Leiklistarsjóði Brynjólfs Jó-
hannessonar en alls bámst sjóðs-
stjórn 8 umsóknir. Sjóðurinn
verður 25 ára á þessu ári en
Brynjólfur stofnaði hann 1970.
Brynjólfur var einn af ástsælustu
leikurum þjóðarinnar og lék hátt
í 200 hlutverk á sviöi hjá Leikfé-
lagi Reykjavíkur í yfir 50 ár.
HelgiTómasson
ísviðsljósinu
Helgi Tómasson, stjórnandi San
Francisco balletsins, veröur í
sviðsljósinu dagana 9. til 14. maí
nk. þegar haldin verður danshá-
tíð i borginni í tilefni af 50 ára
afmæli Sameinuðu þjóðanna en
sáttmáli þeirra var undirritaður
í San Francisco í júní 1945. Helgi
skipuleggur hátiðina, auk þess
sem tvö dansverk eftir hann
verða sýnd í'hópi verka frá 13
þjóölöndum. Frá þessu er greint
í New York Times.