Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.1995, Síða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.1995, Síða 14
14 FÖSTUDAGUR 5. MAÍ 1995 Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Ritstjórar: JÖNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjóri: ELlAS SNÆLAND JONSSON Fréttastjórar: JÓNAS HARALDSSON og GUÐMUNDUR MAGNUSSON Auglýsingastjóri: PÁLL STEFÁNSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar: ÞVERHOLTI 11, blaðaafgreiðsla, áskrift': ÞVERHOLTI 14, 105 RVlK, SlMI: (91) 563 2700 FAX: Auglýsingar: (91) 563 2727 - Aðrar deildir: (91) 563 2999 GRÆN númer: Auglýsingar: 99-6272. Askrift: 99-6270 Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/ Ritstjórn: dvritstj@ismennt.is - Auglýsingar: dvaugl@ismennt.is. - Dreifing: dvdreif@ismennt.is AKUREYRI: Strandgata 25, sími: (96)25013, blaðam.: (96)26613, fax: (96)11605 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: ISAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. Prentun: ARVAKUR HF. Áskriftarverð á mánuði 1550 kr. m. vsk. Lausasöluverð 150 kr. m. vsk., helgarblað 200 kr. m. vsk. Yfir til þín, ísiand! Á sunnudaginn hefst heimsmeistarakeppnin í hand- knattleik. Fullyröa má að þetta er stærsti og viðamesti íþróttaviðburður sem haldinn hefur verið hér á landi og sennilega viðamesti atburður sem íslendingar hafa stað- ið fyrir. Gildir það um fjölda þátttakenda, umfang keppn- innar og þá alþjóðlegu athygh sem hún vekur. Handknattleikur er ekki meðal fjölmennustu eða vin- sælustu íþróttagreina í heiminum en sú íþrótt er einkum stunduð í Evrópulöndum og hefur breiðst út th amiarra heimsálfa og th marks um áhugann sem keppninni fylg- ir, hafa þrjátíu sjónvarpsstöðvar óskað eftir aðstöðu th útsendinga héðan og er tahð að um fimmtíu mihjónir manna muni fylgjast með þeim. Ekki þarf aö fara mörgum orðum um getu okkar manna. Handknattleikur er hálfgerð þjóðaríþrótt og nýt- ur mikiha vinsælda enda hafa íslenskir handknattleiks- menn verið í fremstu röð um árabil. Þeir hafa raunar borið uppi hróður íslenskra íþrótta í seinni tíð og er þá ekki gert htið úr árangri annarra íþróttamanna og kvenna. Aðdragandi heimsmeistarakeppninnar . hefur ekki gengið þrautalaust fyrir sig. Mörgúm fannst mikið í lagt þegar sóst var eftir mótinu hingað th lands. Þá urðu hatrammar dehur um byggingu íþróttahahar sem fuh- nægt gat alþjóðakröfum. Handknattleikssambandið hef- ur búið við langvarandi skuldastöðu vegna útgjalda í tengslum við undirbúning heimsmeistarakeppninnar. Nú síðast hafa sprottið upp vandræði vegna deilna um sjónvarpsrétt, yfirvofandi verkfaha, gistirýmis og jafnvel bjórsölu. Erfiðasti þröskuldurinn var tregða Álþjóða handknattleikssambandsins og efasemdir á þeim bæ um að íslendingar væru færir um að halda keppnina. Ahir þessir erfiðleikar eru að mestu að baki, en ein- mitt vegna þessarar þrautagöngu hlýtur það að vera metnaðarmái íslensku þjóðarinnar að vel takist th. Það er ekki lengur einkamái Handknattleikssambandsins að heimsmeistaramót með þátttöku 24 hða heppnist. Við þurfum að standa að framkvæmdinni með sæmd. Við þurfurn að taka vel á móti gestum okkar, standa undir keppninni fjárhagslega og síðast en ekki síst þarf þjóðin að fylkja sér um sitt eigið hð og hvetja það til sigurs. Það verður mikið handboltafár í sjónvarpi næstu daga. Það verður mikið rætt og ritað um keppnina meðan hún stendur. Jafnvel svo að menn fá sig fuhsadda. En eftir situr að hér er verið að beina athyglinni að íslandi, ekki eingöngu sem íþróttalandi, heldur sem ferðamannalandi og það eru sameiginlegir hagsmunir þjóðarinnar að sú kynning fari vel fram. íþróttir og hand- bolti eru ekki brauðstrit og skipta ekki sköpum í efnahag eða daglegri lífsbaráttu fólks. En íþróttir eru viðfangsefni eins og annað og gefa thverunni líf og ht. Staðreyndin er einnig sú að þær eru afþreying og tilbreyting fíöldans með beinni og óbeinni þátttöku og á vettvangi og ná til miklu fleiri en áður fyrir thstuðlan sjónvarps. Þjóðin verður þess vegna áreiðanlega vel með á nótun- um meðan keppnin fer fram. Það var vel af sér vikið hjá forráðamönnum Hand- knattleikssambands íslands að fá keppnina hingað th lands. Bæjarfélög og þá sérstaklega Reykjavíkurborg hafa gert vel á lokasprettinum og Laugardalshöhin er nánast nýtt og annað hús. Nú er undirbúningnum að mestu lokið og keppnin um það bh að hefjast. Hér eftir mun athyghn beinast að frammistöðu landshðs okkar. Vonandi stendur það undir væntingum. Yfir th þín, ísland. „ , Ehert B. Schram Þegar kosningamar eru að baki og fengist hefur ráðrúm til að spila úr þeim spilum sem fengust við kosningaúrslitin er tímabært að líta yfir kosningaloforðin og taka til við að efna þau. Stöðugleikinn Ef litið er á það stjómarsamstarf sem nú hefur verið innsiglað er ég þess fullviss aö þaö kosningaloforð, sem hæst bar, að haida stöðugleik- anum, verður efnt. Það eru allir sammála um að þessu markmiði verði að ná, annars blasi við gjald- þrot allra skuldsettra heimila í landinu. Stöðugleikinn er einnig forsenda fyrir því að eðlilegt atvinnulíf nái að blómstra og vonir manna um vaxandi nýsköpun verði að veru- leika. „Stjórnunarkerfi sjávarútvegsins þarf að breyta meira i átt til þess að vinnsla sjávaraflans fari fram í landi,“ segir Kristján m.a. í greininni. Að ef na kosn- ingaloforðin Erlend fjárfesting, frí- svæði, stóriðja Aö létta af hömlum og laða er- lenda fjárfestingu til landsins er eitt brýnasta mál þjóðarinnar í dag. Með erlendri fjárfestingu og ný- sköpun í atvinnulífinu gætu skap- ast þeir möguleikar til tekjuöflunar sem þarf til að ná jafnvægi í ríkis- búskapnum. Til að laða erlenda aöila til landsins þarf að vera mik- ill sveigjanleiki í skattaumhveríinu og í orkuverði og allur gangur hraðari. Það er krafa dagsins. Sjávarútvegsmál: Auðlindaskattur gæti orðið nauðsyn Eitt stærsta mál kosningabarátt- unnar var um sjávarútvegsstefn- una og framtíö hennar. Stjórnun- arkerfi sjávarútvegsins þarf að breyta meira í átt til þess að vinnsla sjávaraflans fari fram í landi. Einn- ig er krafa almennings sterk um að þjóðareigninni, fiskinum í sjón- um, verði ekki afsalað til einstakl- inga eða fyrirtækja. A ferðum mínum um Reykjanes- kjördæmi í kosningabaráttunni lagði ég eftirfarandi til svo þessum markmiðum mætti ná: 1. Að tryggja með lagasetningu að fiskistofnarnir, sameign þjóðar- innar, geti ekki gengið í erfðir. Hér er um mjög flókiö og viðkvæmt mál að ræða og löngu tímabært að umræðan um erföaréttinn fari fram innan veggja Alþingis. Að taka gjald fyrir afnot af fískistofn- unum er meira í takt við hugtakið þjóðareign en að þessi sama „þjóð- areign" geti safnast sem eign á hendur fárra einstakhnga og geng- ið í erfðir til niðja þeirra. Til að snúa til baka af þeirri þróun sem nú er í þessu máli gæti verið nauð- synlegt að innheimta auðlindaskatt fyrir afnot af þjóðareigninni og kvótaúthlutunin væri í raun veiði- réttur háöur takmörkunum að þessu leiti. 2. Að allur afli verði settur á Kjallarmn Kristján Pálsson alþingismaður markað og skihð á mihi veiða og vinnslu. Samningar sjómanna gera ráð fyrir því aö hæsta verð fáist ávalt fyrir aflann og hefur krafa samtaka sjómanna verið sú að verðmyndunin fari fram í gegnum fiskmarkaði. Samtök fiskvinnslu- stöðva án aflaheimilda hafa einnig bent á það ójafnræði sem ríkir milh þeirra og fiskvinnsluhúsa sem eiga kvóta. 3. Hert veröi á áróðri fyrir betri umgengni um fiskimiðin og gegn því að afla sé hent. 4. Lagt er til að undirmálsfiskur verði að 50% hluta utan kvóta, svo sá hluti veidds afla komi á land. 5. Lagt er til að 10000 tonnum af þorski verði bætt við kvóta króka- báta á yfirstandandi fiskveiðiári sem verði til að fækka banndögum þeirra á næsta fiskveiðiári. Þetta verði viðbót viö leyfilega heildar- veiði ársins og verði aðeins f þetta eina sinn. Einnig verði banndögum krókabáta breytt í frjálsræöisátt, þ.e. að ekki verði bundið í lögum upp á dag hvenær krókabátar mega fara á sjó og hvenær ekki, óháð veðrum. 6. Lagt er til að aflaheimildum Jöfnunarsjóðs (ex. Hagræðingar- sjóðs) 12000 þorskígildum verði út- hlutað til þeirra báta sem halda uppi vinnslunni í landi og skapa landverkafólki störf. 7. Lagt er til að ónýttar aflaheim- ildir úr hnutvöfölduninni þessa fiskveiðiárs, 7000 þorskígildi, verði bætt við kvótabáta sem stunda línu og handfæri. Til greina gæti komið að hluti þeirra 17000 tonna sem nú er varið í línutvöföldun flyttust varanlega til þessara báta. 8. Lagt er til að svonefnd 100% regla taki ekki gildi um næstu ára- mót eins og gert er ráð fyrir í nú- gildandi lögum um stjórn fiskveiða. Sumt af þessu er þegar komið inn í stjórnarsáttmála ríkisstjórnar- innar og fara þessa dagana fram útfærslur á þeim hugmyndum og vænti ég góös af því. Annaö krefst lengri athugunar og mun ég leggja þau mál fyrir Aiþingi við fyrsta tækifæri. ' Kristján Pálsson „Að létta hömlum og laða erlenda fjár- festa til landsins er eitt brýnasta mál þjóðarinnar í dag. Með erlendri fjár- festingu og nýsköpun í atvinnulífinu gætu skapast þeir möguleikar til tekju- öflunar sem þarf til að ná jafnvægi í ríkisbúskapnum. “ Skoðanir annarra Morgunblaðið er samkvæmt sjálfu sér „Sannleikurinn er auövitað sá, að Morgunblaðið hefur verið og er samkvæmt sjálfu sér. Blaðið studdi stefnu ríkisstjórnar Davíðs Oddssonar á sl. kjörtíma- bili í öllum megindráttum aö fiskveiðistefnunni und- anskilinni og þ.á m. utanríkisstefnu hennar, sem forsætisráðherra er væntanlega jafn ábyrgur fyrir. ... /Mstaða Morgunblaðsins snýst um málefni en ekki persónur. Ásakanir einstakra talsmanna Sjálf- stæðisflokksins um sérstakan stuöning viö Alþýðu- flokkinn eða formann hans fá einfaldlega ekki stað- ÍZt.“ Úr forystugrein Mbl. 3. maí. Umhverfismál - ferðamál „Landiö sjálft er söluvara, hreinleiki þess, nátt- úrufegurö og hrikaleiki. Það fer saman við ímynd landsins aö leggja áherslu á þessa þætti, umhverfis- vernd og sérstöðu landsins við markaðssetningu ferðaþjónustu. ... Umhverfismál geta verið liður í efnahagsstefnu sem styður vð aukinn hagvöxt og hagsæld. ... Aðilar í feröaþjónustu þurfa að móta ferðamálastefnu í samstarfi við stjómvöld." Þorkell Sigurlaugsson i Viðskiptablaöinu 3. maí. Kveðja frá Landsbankastjóra „Bankastjórar njóta talsverðrar virðingar og fólk tekur mark á því sem þeir segja. Með einni undan- tekningu þó og hún er Sverrir Hermannsson. ... Sverrir er einn hæst launaði opinberi starfsmaöur landsins, og svo vfll tfl aö hann er að byrja að fá eftirlaun sín sem alþingismaður og ráðherra þessa dagana. Á þessum tímamótum sendir. hann ekki bara nýjum viöskiptaráðherra kveðju og kallar hann flón fyrir að tala gegn vaxtahækkun bankanna. Kveðjan beinist ekki síður að verkalýðshreyfing- unni, heimilunum í landinu og atvinnufyrirtækjun- um.“ Garri íTímanumS. maí.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.