Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.1995, Qupperneq 24

Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.1995, Qupperneq 24
32 FÖSTUDAGUR 5. MAl 1995 Sviðsljós Pavarotti er orðinn mjög feitur og á í mestu erfiðleikum með að setjast inn í venjulega fólksbíla. Læknar Pavarottis áhyggjufullir: Að springa úr spiki Læknar óperusöngvarans Lucian- os Pavarottis hafa enn á ný skipað honum að fara í megrun. Þeim líst ekkert á blikuna þar sem kappinn er hreinlega að springa úr spiki. Pa- varotti gerir sér grein fyrir vanda sínum og viðurkennir að hann eigi orðið erfitt með að standa á sviði heila tónleika. Þaö sé of mikið álag á fæturna. En offituvandamálið á sér aðra hlið í lífi stórsöngvarans sem sjaldnar er rætt um. Pavarotti á í mesta basli með að setjast inn í vepjulega fólks- bíla eins og sannaðist eftir tónleika hans í London á dögunum. Þótti grát- broslegt að sjá kappann troða sér inn í bíl með óskaplegum tílfæringum. Það var ekki fyrr en hann hafði ekið risavöxnum líkama sínum fram og til baka, beygt sig og reynt á skrokk- inn og innréttingar bílsins að hann sat nokkurn veginn eðlilega í fram- sætínu. Þá brosti hann líka sínu breiðasta. En undir niöri hefur hann væntanlega verið að plana hvemig hann ættí að komast aftur út. Gatnamót nefnd í höf uðið á Duke Duke Ellington var einhver mesti snillingur djasstónlistarinnar fyrr og síðar og því þóttí borgaryfirvöldum í New York við hæfi að minnast kappans með þvi að nefna gatnamót í borginni eftir honum. Duke Elling- ton Circle, eins og staðurinn er nú kallaður, er við hverfismörk blökku- mannahverfisins Harlems, við norð- austurhorn Miðgarðs, eða Central Park. Fyrirhugað er að reisa átta metra háa styttu af djassjöfrinum við gatnamótin áður en langt um líður. Fimmtíu skólaböm voru viðstödd þegar nýju götuskiltin vom afhjúpuð og þar vom einnig margir fyrirmenn, svo sem djasssöngvarinn Bobby Short og David Dinkins, fyrmm borgarstjóri. Við þetta tækifæri var flutt hið fræga lag Take The A Train, sem Duke Ellington og sveit hans gerðu ódauðlegt. Duke Ellington viö píanóið. Styttan af Duke er eftir mynd- höggvarann Robert Graham. Meiming Kostuleg kvöldstund í vor útskrifast fimm leiklistarnemar úr Leiklistar- skólanum. Bergur Þór Ingólfsson, Halldóra Geirharðsdóttir, Kjartan Guðjónsson, Pálína Jónsdóttir og Sveinn Þór- ir Geirsson eru um það bil að ljúka ströngu námi og lokaverkefni leikársins komið á svið í Nemendaleik- húsinu. Það er ekki líklegt að þau eigi eftír að upplifa það oft á ferli sínum að vinna við frumsamið verk, sérstak- lega sniðið fyrir hópinn, eins og hér gerist. Þorvaldur Þorsteinsson var fenginn til þess að skrifa leikritið, Þór Tulinius er leikstjóri, Stígur Steinþórsson hannar leikmynd og búninga og Valgeir Skagfiörð kryddar sýninguna með skemmtilegri tónlist. Leikgleði og vönduð vinna einkennir frammistöðu hópsins, leikstjómin er þétt og örugg og Þór vinnur á hugmyndaríkan hátt úr efniviðnum. Leikmynd og tónlist hjálpa til að skapa það forkostulega andrúms- loft sem svífur yfir verkinu og smám saman afhjúpast lag fyrir lag það sem undir býr. I Maríusögum er sagt frá kvöldboði á heimili Ste- faníu (Halldóra) og Þráins (Kjartan), sem sjást fyrst á þönum við að undirbúa gestakomuna. Bróðir húsmóð- urinnar, Marteinn (Sveinn Þórir) er þama líka, kom- inn heim frá Svíþjóð til þess að vera við útför nýlátins fóður þeirra systkina. Gestímir eru María (Pálína) æskuvinkona Stefaníu og Marteins og Eggert (Bergur Þór) kærasti hennar sem húsráðendur hafa ekki hitt fyrr. Áður en langt um líður fara graggugir atburðir úr fortíðinni að koma upp á yfirborðið og ljóst er að ekki er allt sem sýnist í samskiptum þessa fólks. Hvörfin í verkinu eru ekki mjög sýnileg, þó að ein uppljóstran skipti sköpum. Persónumar breyta hver af annarri um lit og tónninn í verkinu þyngist. Samspil persónanna er einkar skemmtilega byggt upp og líka er athyglisvert hvemig Þorvaldur byggir upp óvænta atburðarás. Hann skrifar textann í léttum dúr og persónumar eru hver annarri kostulegri í þessu vandræðalega kvöldboði. Útlínur þeirra era skýrar í túlkun leikend- anna og í fyrstu virka þær nærri því staðlaðar. En það býr meira undir og í sameiningu hafa höfundur, leik- stjóri og leikendur unnið upp stórskemmtilega sýn- ingu sem kemur þægilega á óvart. Umhverfið er ýkt, eins og reyndar svo margt í þessu verki. Sviðsmyndin sýnir stofu þeirra hjóna og ýmsar aðrar vistarverur á heimilinu. Þær era sýnilegar allan timann án þess að vekja sérstaka athygU fyrr en ljósi Persónurnar í Maríusögum eru hver annarri betur unnar. Leiklist Auður Eydal er beint aö þeim. Þetta var mjög vel útfært af Agli Ingibergssyni (lýsing). Myndarskapur húsbóndans, sem dundar sér löngum við handíðir niðri í kjallara, kemur meðal annars fram í heimasmíðuðu hillusamstæðunum, sem þekja alla veggi. Lausnir Stígs Steinþórssonar á sviðsmyndinni eru stórskemmtilegar, eins og til dæmis stóri stofu- glugginn þar sem umferðin úti í Skuggasundi blasir við áhorfendum. Eftir algjöra innlifun og einbeitíngu að leiklistinni í fiögur ár samfleytt er komið að námslokum útskriftar- hópsins. Þau hafa í vetur sýnt sitthvað sem í þeim býr í þeim verkum sem sýnd hafa verið í Nemendaleikhús- inu. Hlutverkin hafa verið ólík og færi gefist á að túlka ólikar persónur. Persónurnar í Maríusögum era hver annarri betur unnar og það verður einkar athyglisvert að fylgjast með þessu unga fólki þegar það mætír til leiks utan veggja Lindarbæjar. Nemendaleikhúsiö sýnir i Lindarbæ: Maríusögur. Höfundur: Þorvaldur Þorstelnsson. Leikstjórn: Þór Tulinius. Leikmynd og búningar: Stigur Steinþórsson. Höfundur tónlistar og umsjón með tónlist: Valgeir Skagfjörð. Lýsing, hljóð og tæknivlnna: Egill Ingibergsson. Sigrún Eldjám sýnir í Norræna húsinu Tríó, kvartettar og kórar Sigrún Eldjárn er afskaplega sérstakur listamaður: myndir hennar virðast oft ekki lúta sömu lögmálum og myndir flestra annarra málara og teiknara. Þær eru í senn einfaldari og flóknari. Þær virðast einfald- ari vegna þess að yfirleitt vinnur Sigrún með einfóld myndform og einfaldar fyrirmyndir og myndir hennar hafa á sér einstaklega hreint yfirbragð - bæði vegna þess hvernig hún beitir litunum og vegna myndbygg- ingarinnar. Myndir Sigrúnar bera oft keim af skýring- armyndum eða myndum sem birtar eru í kennslubók- um. Myndirnar era aftur á mótí flóknar en margt það annað sem við eigum að venjast vegna þess aö innan þess þrönga ramma sem Sigrún setur sér tekst henni að kveikja undarlegustu þverstæður, velta upp illsvar- anlegum spurningum og vekja með áhorfandanum efasemdir um ýmislegt sem honum haíði aldrei dottið í hug að efast um. Málverkin sem Sigrún sýnir núna era allar unnar með olíulitum og margar þeirra eru ýmist samsettar af mörgum flötum eöa falla inn í raðir sem eiga sér sameiginlegt tema og mynda heildir. í öllum myndun- um er fólk en flest er þetta fólk þannig að það verkar fremur á mann sem tákn en sem portrett. Næstum allt þetta fólk era annað hvort konur í peysufötum eða karlar í jakka og með hatt: íslendingar í sunnudagaföt- unum. Á mótí þessu fólki - eða með því - er síðan teflt fram ávöxtum og grænmeti og landslagi að nokkru leyti. Heití myndanna endurspegla þessa einföldu en þrátt fyrir allt flóknu stefnu sem Sigrún er hér að marka sér. Mynd af þremur manneskjum sem standa á skeri heitir „Tríó á skeri“; mynd af hópi fólks á fiallsbrún heitir „Kór á kletti". Þannig undirstrikar Sigrún þá tilfinningu að myndimar séu ekki í raun myndir af fólki, heldur miklu nær einhvers konar dæmi - kannski úr mengjafræðinni. Eitt verka Sigrúnar á sýningunni. Myndlist Jón Proppé Svipaða sögu er að segja af myndum þar sem græn- metí og ávextir koma fyrir: Þótt í myndunum sé fólk taka þær heiti eftir ávöxtunum sem í þeim era. Þann- ig heitir ein mynd „Sjö sítrónur" eftír sítrónunum sem í henni sjást þótt megnið af myndfletínum fari undir annað. Það sem alltaf hefur heiUað við myndir Sigrúnar er einfaldleikinn og hinn einfaldi heiðarleiki sem skín af þeim. Hér hefur Sigrún aftur á móti gengið lengra og náð að gera úr myndunum flóknar gátur sem ekk- ert svar fæst við. Myndmálið sem hún nýtir sér er kunnuglegt og einfalt en það kemur vel fram á sýning- unni að jafnvel í þessu einfalda myndmáli er ýmislegt nýstárlegt - og oft annarlegt - að finna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.