Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.1995, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.1995, Blaðsíða 32
I.ANDSSAMBAND ÍSI- RAF\ K.RK I AKA LOKI Á íslensku glímumáli heitir þetta víst að fella Norðmenn á klofbragði! Veðrið á morgun: Skúrir eða slydduél Á morgun verður suðaustan gola og súld með suðaustur- og austurströndinni en norðaustan- gola eöa kaldi annars staðar. Skúrir eða slydduél verða norð- anlands, einkum vestan til, en vestanlands verður þurrt og nokkuð bjart veður. Svalt verður norðanlands eða 1-5 stiga hiti en 5-9 stig syðra. Veðrið í dag er á bls. 36 562*2525 Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í sima 562 2525. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greið- ast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. RITSTJORN - AUGLYSINGAR - ASKRIFT - DREIFING: 563 2700 BLAÐAAFGREIÐSLA OG ÁSKRIFT ER OPW; Laugardaga: 6-14 Sunnudaga: lokað Mánudaga: 6-20 Þriðjudaga - föstudaga: 9-20 BEINN SÍMI BLAÐA- AFGREIÐSLU: 563 2777 KL.6-B laugardags-og manudagsmorgna Viöbrögð Norðmanna: Óttumstaðönn- ur lönd streymi í sildina „Við erum ósammála þessari veiði og okkur líkar ekki að íslendingar og Færeyingar veiði 250 þúsund tonn í Síldarsmugunni. Það er alltof snemmt að segja til um hvort við munum grípa til einhverra ráðstaf- ana en við munum auðvitað ræöa það sem skeð hefur og sjávarútvegs- ráðherra okkar mun funda með rúss- neska sjávarútvegsráðherranum í Ósló síðdegis í dag. Þar verður þetta mál líka til umræðu," sagði Bjarne Mystad, upplýsingafulltrúi hjá norska sjávarútvegsráðuneytinu, í morgun um ákvörðun íslendinga og Færeyinga að veiða 250 þúsund tonn . í Síldarsmugunni. „Við vildum komast að samkomu- lagi um kvóta í Síldarsmugunni og fyrir utan hana fyrir ákveðin strand- ríki því að við óttumst að veiði ís- lendinga og Færeyinga vísi öðrum þjóðum veginn og skip annarra landa komi á svæðið. Veiðin í Síldarsmug- unni gæti þá farið úr böndunum og þess vegna viidum við semja um fisk- veiðistjórnun á svæðinu. Okkur þyk- ir mjög leitt að ekki var hægt að kom- ast að samkomulagi um fiskveiði- stjórnun í Síldarsmugunni og teljum 'ástæöuna skort á samningsviija hjá íslendingum og Færeyingum," sagði Mystad. -GHS Síldarsmugan: Mokveiði í nótt Mokveiði hefur verið í Síldarsmug- unni að undanförnu. Skipin Júpíter frá Þórshöfn og Jón Kjartansson frá Eskifirði eru á leiðinni í land með fullfermi eða um 1.300 tonn hvort skip. Þyrla sækirslas- aðan sjómann Þyrla Landhelgisgæslunnar flaug eftir slösuðum sjómanni skammt út af Snæfellsnesi í morgun. Sjómaður- inn sem var um borð í fiskibáti hafði hlotið áverka þegar þungur hlutur féll á hann. Ekki var ljóst hvort mað- urinn yrði tekinn um borð í þyrluna á hafi úti eða hvort báturinn sigldi til Arnarstapa. -pp BruggaðáNesinu Fíkniefnalögreglan lagði í gær hald á 10 litra af landa, 20 lítra af gambra og bruggtæki í húsi á Seltjarnarnesi. "Meintur eigandi tækjanna hefur ver- ið boðaður til skýrslutöku. -PP Frjalst,óháð daqblað FOSTUDAGUR 5. MAI 1995. Þettaerilagi fyrir stof ninn - segir Jákob Jakobsson, forstjóri Hafrannsóknastofnunar „Þetta er innan þeirra marka sem á að vera í lagi að veiða. Þetta er í lagi fyrir stofninn sjálfan ef þær spár rætast sem menn telja réttast- ar. Það eru að koma inn 1 stofnínn tveir góðir árgangar á næstunni," segir Jakob Jakobsson, forstjóri Hafrannsóknastoíhunar, vegna kvóta í Síldarsmugunni. íslendingar og Færeyingar ákváðu í gærkvöldi að gefa út sam- eiginlegan kvóta til veiða í Síldar- smugunni. Kvóti þjóöanna tveggja verður 250 þúsund tonn. Eftir að shtnaöi upp úr viöræðum þjóðanna fjögurra, Islendinga, Norðmanna, Rússa og Færeyinga, í gærkvöldi héldu þjóðirnar tvær áffam að tala saman og náðu niðurstööu. Það vekur nokkra athyglí að með þessu er heildarkvóti á síld úr norsk- íslenska síldarstofninum orðinn 900 þúsundir tonna en Alþjóðahaf- rannsóknaráðið hefur ráðlagt veiði úr þessum stofni upp á 520 þúsund tonn. „Þetta er ákvörðun fyrir eitt ár en það er íhugunarefni hvort þetta er heppilegur kvóti þegar til lengri tíma er litið. Fyrir eitt ár á þetta ekki að gera neinn skaða," segir Jakob. Samkvæmt heimildum DV eiga Færeyingar að fá um fjórðung af kvótanum sem gerir um rúm 60 þúsund tonn eða sem nemur því sama og Norðmenn buðu íslend- ingum. Þar með fá íslendingar í sinn hlut um 190 þúsund tonn eða 40 þúsundum tonna meira en sett var fram krafa um við Norðmenn. -rt Jóhann A. Jónsson: Menn of snögg- ir og haf a sam- iðafsér Ráðherrar eru ekki undanskildir greiðslu þungaskatts eins og sannaðist i gær þegar skráningarnúmerin voru klippt af jeppa Finns Ingólfssonar, iðnaðar- og viðskiptaráðherra. Jeppinn stóð við húsvegg fjármálaráðuneytisins þegar innheimtumenn rikissjóðs rákust á hann og þar stóð hann númeralaus fram eftir degi. DV-mynd GVA „Úr því að við erum að ákvarða okkar hlutdeild sjálfir þá hefðum við átt að ákvarða okkur hlutdeild að lágmarki til jafns og Norðmenn hafa tekið sér. Þeir hafa núna veitt 350 þúsund tonn og það hefði átt að vera lágmarkshlutdeild íslands og Fær- eyja en ekki 250 þúsund tonn. Við náum okkur aldrei upp úr þessu. Þaö verður erfitt fyrir okkur að eiga við samninga um hærri hlutdeild á móti Norðmönnum þegar búið er að gera svona gloríu. Þetta spor núna mark- ar mjög það sem á eftir kemur. Menn hafa verið of snöggir og samiö af 1 sér,“ sagði Jóhann A. Jónsson, fram- kvæmdastjóri Hraðfrystistöðvar Þórshafnar, við DV um samninga íslendinga og Færeyinga. Jóhann sagði að samninganefnd íslands hefði ekki haft nokkurt sam- ráð við útgeröina um Síldarsmug- una. „Það er vítavert því flotinn veið- ir ekkert þennan kvóta næstu daga. Það lá ekkert á. Menn hafa mikiö | talað um Jan-Mayen samninginn frá 1 1980, að hann sé ekki okkur hliðholl- ur. Það hefur ekki verið hægt að taka I hann upp. Ég held að þarna hafi átt i sér stað álíka mistök. Ég bara skil1 ekki svona vinnubrögð," sagði Jó-, hann. Í í i i i i i i i í

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.