Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.1995, Page 5
LAUGARDAGUR 24. JÚNÍ 1995
5
dv Fréttir
Fullrúar SL afhentu Steinþóru far-
seðilinn i gær. DV-mynd Sveinn
Til Beni-
dorm þrátt
fyrirránið
Fulltrúar Samvinnuferða-Land-
sýnar (SL) afhentu í gær Steinþóru
Sævarsdóttur, sem rænd var 70 þús-
und krónum skammt frá banka við
Laugaveg nýlega, farseðil til Beni-
dorm. Steinþóra átti pantað far með
SL til sólarlanda í sumar og hafði
lagt í ferðasjóð lengi áður en atvikið
átti sér stað. í gær afhentu síðan
Kristján Gunnarsson, fjármálastjóri
SL, og Helgi Pétursson markaðsstjóri
Steinþóru ferðaskjölin og felldu nið-
Ur eftirstöövar greiðslu. Rániö er
hins végar enn óupplýst.
Kal í túnum
íBlöndudal
Þórhallur Asmundsson, DV, Sauðárkróki:
Tún eru illa kalin á nokkrum bæj-
um í Blöndudal í Austur-Húnavatns-
sýslu. Sérstaklega er ástandið slæmt
á bænum Brandsstööum. Þar er talið
að ríflega helmingur túnanna sé
ónýtur vegna kals. Þá eru tún einnig
mikið kalin á tveim bæjum í ná-
grenni Brandsstaða, Höllustöðum og
Austurhlíö.
Jón Sigurðsson, ráðunautur hjá
Búnaðarsambandi A-Húnavatns-
sýslu, sagði að kalið væri aöallega á
smábelti í dalnum. Ástand túnanna
væri skelfilegt á Brandsstöðum. Jón
sagði að menn hefðu einnig áhyggjur
af ástandi túna úti á Skaganum en
þar væri allt seint á ferðinni og því
ekki séð hvernig ástandið væri. Að
öðru leyti virtist Norðvesturland
hafa sloppið nokkuð við kal.
Elliðaárdalur:
Fimm upplýs-
ingaskilti
Sparisjóður Reykjavíkur og ná-
grennis hefur ákveðið, í samráði við
borgaryfirvöld, að setja upp fimm
upplýsingaskilti í Elliðaárdal.
A skiltunum eru þrjú kort. Eitt
kort er af öllum dalnum, annað gefur
upplýsingar um göngu- og skokk-
brautir í dalnum og hið þriðja upp-
lýsir um sögu og umhverfi þess
svæðis sem viðkomandi skilti stend-
urá. -GJ
Athugasemd
Séra Flóki Kristinsson, sóknar-
prestur í Langholtskirkju, vill koma
því á framfæri að hann hafi ekki far-
ið í ársleyfi vegna ágreinings við org-
anista og sóknarnefnd heldur hafi
veriðumnámsleyfiaðræða. -GHS
Frétt um nauðgun:
Leiðrétting
í frétt DV á miðvikudag um dóm
yfir manni í nauðgunarmáli, sem
átti sér stað í Grindavík á síðasta
ári, var ranglega greint frá einu at-
riði í framburði konunnar sem í hlut
átti. Sagt var eftir konunni að maður-
inn hefði fylgt henni heim til sín áöur
en verknaðurinn var framinn. Þetta
er rangt. Maðurinn var ákærður fyr-
ir að hafa brotist inn til konunnar
eftir að hún fór heim til sín. Hlutað-
eigandi eru beðnir velvirðingar á
þessum mistökum.
t
METRO - verslanirnar í Hallarmúla
og Skeifunni eru opnar alla virka daga og
laugardaga og sunnudaga frá kl. 8 - 21.
f
METRÓ - Hallarmúla 4. Sími: 553 3331
METRÓ - Málarinn, Skeifunni 8.
Sími: 581 3500
tA KŒTRO
Miðstöð heimilanna
...þið eruð skráðir eigendur hans,
...fáið hann á staðgreiðsluverði
-og tryggið hann þar sem ykkur hentar best!
Sölumenn bifreiðaumboðanna annast
útvegun lánsins á 15 mínútum.
Allt að 5 ára lánstími*
Allt að 100% lán
*hámarkslán til 5 ára er 65% afbílveröi
-og lánskostnaður í lágmarki.
Glitnirhí
DÓTTURFYRIRTÆKI ÍSLANDSBANKA
Ármúla 7, 155 Reykjavík. Sími 560 88 00. Myndsendir 560 88 10.