Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.1995, Síða 6
LAUGARDAGUR 24. JÚNÍ 1995
Stuttarfréttir
Frakkar í leynividræðum
Frakkar viðurkenndu að hafa
átt leynilegar viðræður við Bos-
níu-Serba um lausn friðargæslu-
liða Sameinuöu þjóöanna en neit-
uðu aö hafa gefið nokkuð eftir í
tilraun til að fá þá frelsaða.
Bitdt með Bosníuf orseta
Carl Bildt
ræddi viö Alija
Izetbegovic
Bosníuforseta
en sagði frctta-.
mönnum að
hann hygðist
ekki hætta við-
ræðum við for- ., ,
ingja Bosníu-Serba sem heíja a
borgina.
Skutu eidfiaugum
Múslímskir skæruliðar skutu
eidfiaugum á byggðir í norður-
hluta ísrael, drápu franskan
feröamann og særðu níu manns,
þar af fjóra Evrópumenn.
Markmið þeirra er að eyðileggja
ferðamannaþjónustu ísraela.
Kosiðumvantraust
Rússneska þingið ákvað að efna
til kosninga um vantraust á ríkis-
stjórnina 1. júli
Frakkar kaWir
Frakkar brugðust kuldalega við
þeirri ákvörðun Ástrala að kalla
sendiherra sinn heim frá Frakk-
landi í mótmælaskyni við fyrir-
hugaðar kjamorkuprófanir
Frakka í Kyrrahafi.
Kólumbus fyrr á ferd
Norski ævin-
týramaðurinn
Thor Hey-
erdahl heldur
því fram í nýju
tímaritsviðtali
að Kólumbus
hafi farið til
Ameríku 25
árum fyrr en hann er talinn hafa
fundið hana, þá sem þátttakandi
í dansk-portúgölskum landkönn-
unarhóp.
Grálúðuveiði stöðvuð
Norska sjávarútvegsráðuneyt-
iö bannaði í gær allar grálúðu-
veiðar á Svalbarðasvæöinu. Sex
spænskir togarar höfðu þá veitt
451 tonn á tveimur vikum.
Játa mannfórn'r
Forsprakki grískra djöfladýrk-
enda játaði fyrir rétti að hann og
fylgismenn hans hefðu rænt,
nauðgað og drepið ungar stúlkur
og fórnaö þeim þannig djöflinum
til dýrðar.
Sprenging banarsex
Sprenging í verksmiöju í
Belgrad banaði sex manns.
Reuter/NTB
Douglas Hurd sagði af sér sem utanríkisráðherra Breta
Örlög Thatcher eins og
vofa yf ir höfði Majors
. . , n 1 _1n/\rnn nA 4-il nA fn
Douglas Hurd sagði af sér sem ut-
anríkisráðherra Breta í gær. Afsögn
Hurds var almennt litin sem tákn um
trúnað við John Major forsætisráð-
herra sem á fyrir höndum erfiöa
kosningabaráttu fyrir formannskosn-
ingamar í íhaldsflokknum 4. júlí.
Hurd, sem lýsti yfir eindregnum
stuðningi viö Major í komandi kosn-
ingum, hafði lengi sætt harðri gagn-
rýni hægriarms Ihaldsflokksins sem
viU mun harðari afstöðu til Evrópu-
sambandsins en hann. Hann sagöi
afsögn sína þó ekki tengjast óskum
andstæðinganna um að sjá höfuð
hans á sUfurfati, heldur hugsaði hann
fyrst og fremst um að fjarlægja horn
úr síðu Evrópuandstæðinga og gera
Major um leið auðveldara fyrir ef
hann ynni formannskosningamar og
þyrfti að endurraða í ráöherrastóla.
Yfirlýsing um framboð gegn Major
hafði ekki komið fram þegar blaðið
fór í prentun í gærkvöldi en talið var
líklegt að Norman Lamont, fyrrum
fjármálaráðherra, mundi bjóða sig
fram. í öUu falli þyrfti sterkan mót-
frambjóðanda, sitjandi eða fyrrum
ráðherra.
Margrét Thatcher kom mörgum á
óvart í gær þegar hún sagðist styðja
Major heUshugar. Það var einmitt
Thatcher sem kom Major til valda á
sínum tíma og það kann einníg að
verða skrifað á hennar reikning tapi
hann 4. júlí. Það var ekki síst hörð
gagnrýni hennar í hans garð síðustu
vikur sem blés lífi í óánægjuglæður
í flokknum og áttu síðan þátt í
ákvöröun hans um að segja af sér.
Formannsbaráttu Majors nú ma
líkja viö sams konar baráttu Thatc-
her 1990. Sömu atriðin og felldu
Thatcher á sínum tíma geta fellt
Major nú. TU að vinna formanns-
kosningarnar nægir Major ekki að
fá hreinan meirihluta í fyrstu um-
ferð. Flóknar kosningareglur Ihalds-
flokksins segja að til að fá kosningu
sem formaður þurfi frambjóðandi
ekki aðeins að fá stuöning helmings
þingmanna flokksins, sem eru 327,
heldur hafa 15 prósenta forskot á
þann sem næstur kemur á eftir.
Thatcher fékk tilætlaðan meirihluta
1990 en vantaði einungis fjögur at-
kvæði til að fá 15 prósentum meira
en næsti maður. Thatcher var þá
ráðlagt að segja af sér í stað þess að
verða auömýkt með tapi. Sama kann
að henda Major. Komi hann illa út
úr fyrri umferðinni geta nánustu
samstarfsmenn orðiö hans svörn-
UStUÍjendur. Reuter
Tvöhundruð
kamrar reistír
íkínverskri
Börn, sem »oru Ur é,=l.n»,i Þr»ll,un i «um é Indl.udi, .pn,nin»um bl.d.m.nn. i Wýju-De^
í gær. Börnin voru frelsuð af sérstökum barattuhopi gegn barnaþrælkun.
Tólfböm frelsuð úr þrælkun hjá indverskum teppagerðum:
Barin með járnstöf um
„Vinnuveitandinn var vanur að
berja mig með jámstaf þegar ég fyllt-
ist heimþrá og grét. Það var meira
að segja mjög erfitt að fá leyfi til að
fara á salernið. Mér var kennt aö
vefa en refsaö illilega ef ég gerði mis-
tök. Ég var meira að segja barin þeg-
ar ég reyndi að safna kröftum meö
því að blunda af og til,“ sagði Laiwa,
10 ára stúlka sem leyst var úr ára-
langri nauðungarvinnu hjá ind-
verskum teppaframleiðanda í gær.
Baráttuhópur sem berst gegn
bamaþrælkun frelsaði tólf börn úr
þrælkun í teppagerðum héraösins
Uttar Pradesh á Indlandi. Höfðu
bömin verið hneppt í allt að fimm
ára þrælkunarvinnu við teppagerð.
Aðstandandi hópsins sagði nóg að
horfa á börnin til að sjá hve hrylli-
lega meðferð þau höfðu mátt þola.
Var börnunum, á aldrinum 9-14 ára,
annaðhvort rænt eða þau leigð af
foreldrum sínum fyrir tæpar 3 þús-
und krónur.
Baráttuhópurinn, sem frelsað het-
ur 7 þúsund börn úr ánauð á sl. 12
árum, fullyrðir að um hálf milljon
barna sé hneppt í þrælkun í ind-
verskum teppaiðnaði. Yfirvöld segja
þessa tölu stórlega ýkta. Lög banna
barnavinnu á Indlandi, nema 1 heim-
ilisrekstri. Þó er talið að um 90 pro-
sent vinnuafls við vefnað séu bórn
sem þola verði mikið harðræði og fai
aldreifrí. Reuter
Hlutabréf hækka
en bensín lækkar
Minnkandi eftirspum hefur valdið
töluverðri verðlækkun á bensíni og
olíu á heimsmarkaði síðustu daga.
Nemur lækkunin allt að 10% á aðeins
rúmri viku. Olíufélagið hf. fékk nýj-
an farm til landsins sl. fimmtudag
en vegna fyrirliggjandi birgða er ekki
að vænta verölækkunar á innan-
landsmarkaði á næstunni. Þó gæti
komið til lækkunar í næsta mánuði
ef heimsmarkaðsverð heldur áfram
að lækka.
Hlutabréfaverð í helstu kauphöll-
um heims hefur ekki verið hærra í
langan tíma. í Wall Street sló Dow
Jones vísitalan enn eitt metið sl.
fimmtudag vegna væntinga um
vaxtalækkanir á næstunni. Met voru
sömuleiðis slegin í kauphöllunum i
LondonogFrankfurt. -Reuter
Kauphallir og vöruverð erlendis
borg
Borgaryfirvöld í Guangzhou
hafa ákveðlð aö bæta úr karnra-
skortinum í borginni með því að
smíða tvö hundruð stykki og
koma þeim upp á þessu ári. Er
það gert til að stytta biöraðimar
fyrir utan kamrana sem fyrir eru.
Mikill uppgangur er í Guangz-
hou um þessar mundir en aðeins
sex hundruö almenningssalerni
eru fyrir fimm milljónir íbúa, þar
af eina milljón hálfgerðra úti-
gangsmanna sem liafa ekki í önn-
ur náðhús að venda. Kamramir
verða smíðaðir í samvinnu borg-
aryfirvalda og þýsks fyrirtækis
sem sérhæfir sig i saiemismál-
um.
Þýskkonaris
uppfrádauð-
umílíkhúsinu
Þýsk kona á áttræðisaldri, sem
læknar höfðu úrskuröað látna og
sem hafði dvalið í líkhúsinu með
öllum hinum líkunum í tvo daga,
reyndist svo lifandi þegar til kom.
Það var árvökul hjúkrunarkona
sem tók eftir því að hvíta lakið
ofan á „likinu" hreyföist.
Líkamshiti gömlu konunnar
var hins vegar kominn niður úr
öllu valdi og lést hún degi síðar,
að sögn æsiblaösins Bild. Sak-
sóknarar velta nú vöngum yfir
því hvort leggja eigi fram ákæm
í málinu. Læknar sögðu ættingj-
um þeirrar gömlu frá því í síö-
ustu viku að hún hefði látist úr
hjartaslagi,
Offitadýrfyrir
samfélagið
Oífita er ekki aðeins byrði íýrir
þá sem drattast um með auka-
kílóin heldur einnig fyrir samfé-
lagiö. Milli 5 og 10 prósent heil-
brigðisútgjalda á Vesturlöndim
má rekja til ofiitu og sjúkdóma
sem eiga rætur sínar að rekja til
hcnnar; sykursýki, kransæða-
sjúkdóma, blóötappa og ákveö-
ínna tegunda krabbameins. Þess-
ar staöreyndir voru raktar á al-
þjóölegu þingi um offitu í Kaup-
mannahöfn á dögunum.
Það efni ráöstefnunnar sem
vakti mesta athygli var ofiita
barna, en það er sívaxandi vanda-
mál á Vesturlöndum. Kom fram
aö offita í æsku mun hafa alvar-
legar afleiðingar í fór með sér á
seinniæviskeiðum. Rcuter/NTB