Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.1995, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.1995, Blaðsíða 8
8 LAUGARDAGUR 24. JÚNÍ 1995 Sviðsljós Pavlos prins með unnustu sinni, Marie Chantel. Pavlos prins undirbýr brúdkaup Elsti sonur Konstantíns Grikkja- konungs, Pavlos prins, gengur í það heilaga í London í næsta mánuði. Þó svo að faðir hans hafi veriö flæmdur frá völdum 1967 verður brúðkaupið þannig að konungi sæmir. Sú heittelskaða heitir Marie Chantal Miller og er dóttir bresks kaupsýslumanns sem hagnaðist á fríhafnarverslun. Breska konungsfjölskyldan verð- ur viðstödd brúðkaupið auk kon- ungsíjölskyldna Spánar og Dan- merkur. Einnig kemur kóngafólk frá Svíþjóð, Noregi, Belgíu, Lúxem- borg, Liechtenstein og Ítalíu. Ekki þykir ólíklegt að þetta verði fjöl- mennasta samkunda konungbor- inna í London síðan Elísabet Breta- drottning gekk upp að altarinu með Philip prins. Móðursystir Pavlos mun halda hádegisverðarboð um borð í snekkju sinni Daneborg sem lagt verður á Thamesánni. Fyrir brúð- kaupið munu foreldrar brúöarinn- ar halda veislu að Wrotham Park þar sem stiginn verður dans. Eftir kirkjuathöfnina verður gestum boðið í garðveislu við Hampton Court höll. Ungu hjónaleysin hittust fyrir þremur árum í veislu hjá sameigin- legum vinum í New Orleans. Sæti þeirra voru hliö við hlið og þau dönsuðu saman allt kvöldið. Þetta var sem sé ást við fyrstu sýn. Merming________________________________________ Flogið með blás- a ra kvi ntetti nu m Nýlega gaf Chandos-fyrirtækið breska út geislaplötu með leik Blásarak- vintetts Reykjavíkur þar sem þeir félagar leika franska blásaratónlist. Tónlistin er eftir átta höfunda, sem nánast allir voru athafnamestir fyrr á þessari öld. Fyrst eru þrjú smáverk eftir Jacques Ibert. Eftir stuttan inngang blæs Daði leikandi létta melódíu verksins á einkar dansandi veg, og brátt fylgja félagar hans honum í dansinn. Eftir örstuttan hægan þátt kemur síðan annar dans sem leiðir verkið til lykta. Það er nánast erfitt að ímynda sér þessa músík betur leikna, svo frábærlega fara þeir félagar í Blásarakvint- ettinum með hana. Næsta verk er eftir Jean Francaix, Kvintett nr. 1. Er það geysivel skrifuð músík fyrir blásara, ýmist ljóðræn og hæg eða hröð Tónlist Áskell Másson og áköf, en nánast alltaf flngerð og geysierfið í flutningi. Þetta er glæsileg tónlist og flutningurinn á þessari plötu er meistaralegur. Hugljúft verk eftir Darius Milhaud fylgir í kjölfarið og síðan tilbrigði eftir Jean-Michel Damase þar sem fjölbreytt hljómsetningin nýtur sín til fulls í flutningnum. Pastroale eftir Gabriel Pieme byrjar á dæmigerðan hátt með köllum, þar sem skiptast á óbó og flauta og Novelette Francis Paulenc er lítið lag sem rennur ljúflega. Sömu sögu verður að segja um Berceuse úr „Dollý“-svítu Gabriels Faure sem flestir þekkja, svo og Le petit négre eftir Claude Debussy, sem rekur lestina og þar með einnig endahnútinn á tónlist þessarar plötu. Hér er á ferðinni geislaplata með einkar aðgengilegri franskri tónlist í lýtalausum og á stundum snilldarflutningi Blásarakvintetts Reykjavíkur. Hlustendur geta áhyggjulausir svifið á þöndum vængjum Pegasusar, eins og lýruleikarinn gerir á myndinni franian á plötunni. Matgæðingur vikuimar Grillað nautahakk - og súrsaðir grænir tómatar Guðný Anna Ríkharðsdóttir á Reyðarfirði er mat- gæðingur vikunnar að þessu sinni. Hún kveðst hafa mest gaman af því að elda fiskrétti og grilla. Nauta- hakksréttinn, sem hún býður upp á, fann hún í dönsku blaöi en hefur breytt honum smám saman eftir hend- inni. „Súrsuðu tómatarnir eru uppskrift frá móður minni og hafa verið mjög vinsælir. Þeir eru sérstaklega gott meðlæti með lambasteik." Grillað nautahakk 800 g nautahakk 1 laukur 2 hvítlauksrif 1 paprika 1 til 11/2 dl sojasósa 1 egg 3 msk. hveiti 1/2 tsk. nýmalaður svartur pipar. Laukurinn og paprikan eru söxuð og hvítlauksrifin marin. Blandað saman við nautahakkið og hveiti, eggi og sojasósu bætt út í. Kryddað með pipar. Látið standa í kæli í eina klukkustund. Síðan eru búnar til kökur eða bollur úr hakkblöndunni sem eru svo grillaðar. Kökurnar eru penslaðar oft með hvítlauksolíu á með- an verið er að grilla þær. Nauðsynlegt er að snúa þeim oft. Bornar fram með góðu salati, bökuðum kartöflum og hvítlauksbrauði. Guðný segir vel hægt að nota það sem til er í ísskápn- um í hakkið þannig að sveppir eða maiskorn geta til dæmis komiö í stað paprikunnar. Súrsaðirtómatar 1 kfló grænir tómatar 4 dl vatn 4 dl borðedik Suðunni er hleypt upp á tómötunum sem verða að vera grænir. Tómatarnir eru svo látnir standa í legin- um til næsta dags. Guðný Anna Ríkharðsdóttir. DV-mynd Emil Thorarensen. Sykurlögur 1 1/2 dl borðedik 1/2 dl vatn 750 g sykur Þegar lögurinn sýður eru tómatarnir settir út í og soðnir í um það bil tvær mínútur. Tómatarnir eru síð- an færðir upp úr og lögurinn soðinn þar til hann þykknar. Tómatarnir eru settir aftur í löginn og suðan látin koma upp. Látið strax á krukku og lokað. Afar ljúfféngt með lambasteik. Guðný Anna skorar á Jónu Ragnarsdóttur vinkonu sína á Reyðarfirði að vera næsti matgæðingur en hún er snillingur í allri matargerð." Eftir helgina má fá uppskriftina í Símatorgi DV. Símanúmerið er 904-1700. Hinhliðin Eiginmaðurinn er uppáhaldsleikarinn - segir Margrét Vilhjálmsdóttir söngkona „Þetta var merkileg og yndisleg upplifun og mikill heiöur aö vera fjallkonan," segir Margrét Vil- hjálmsdóttir leikkona sem brá sér í hlutverk fjallkonunnar 17. júní í Reykjavík. Margrét, sem útskrifaðist úr Leiklistarskóla íslands í fyrravor, hefur nýlokið æfingum í Línu lang- sokk eftir Astrid Lindgren en þessa dagana er hún að æfa í gaman- leiknum Hamfórum eftir Ágúst Guðmundsson kvikmyndaleik- stjóra sem settur verður á svið í Borgarleikhúsinu. Fullt nafn: Margrét Sóley Vil- hjálmsdóttir. Fæðingardagur og ár: 10. mars 1966. Maki: Magnús Jónsson leikari. Börn: Engin. Bifreið: Toyota ’88. Starf: Leikkona. Laun: Ofsalega misjöfn. Áhugamál: Ég hef áhuga á mörgu en þessa stundina eru það fjallkon- ur. Hefur þú unnið í happdrætti eða lottói? Nei. Hvað finnst þér skemmtilegast að gera? Að vera uppi í sveit og helst í sveitinni minni á Langanesi. Hvað finnst þér leiðinlegast að gera? Að strauja. I—'rrntli------; in, iri;.„.------------- Margrét Vilhjálmsdóttir leikkona. Uppáhaldsmatur: Folaldakjöt a la Magnús Jónsson. Uppáhaldsdrykkur: Kampavín og vatn. Hvaða íþróttamaður stendur fremstur í dag? Sigrún Huld Hrafnsdóttir. Uppáhaldstímarit: Tímarit Bjarts og frú Emilíu. Hver er fallegasti karl sem þú hefur séð fyrir utan maka? Pabbi. Ertu hlynnt eða andvíg ríkisstjórn- inni? Andvíg. Hvaða persónu Iangar þig mest að hitta? Núna langar mig mest að hitta Astrid Lindgren. Uppáhaldsleikari: Magnús Jóns- son. Uppáhaldsleikkona: Þær eru svo margar. Það yrði of löng upptaln- ing. Uppáhaldssöngvari: Maddi svarti. Uppáhaldsstjórnmálamaður: Eng- inn sérstakur. Uppáhaldsteiknimyndapersóna: Simpsonfjölskyldan. Uppáhaldssjónvarpsefni: Simpson- fjölskyldan. Uppáhaldsmatsölustaður: Ind- verski veitingastaöurinn á Hverfis- götu. Hvaða bók langar þig mest að lesa? Bókina sem ég ætla að skrifa. Hver útvarpsrásanna finnst þér best? Gamla góða gufan. Uppáhaldsútvarpsmaður: Sá sem les tilkynningar hverju sinni. Hvort horfir þú meira á Sjónvarpið eða Stöð 2? Sjónvarpið. Uppáhaldssjónvárpsmaður: Jón Ársæll. Uppáhaldsskemmtistaður: Heimil- ið mitt. Uppáhaldsfélag í íþróttum: Fram. Stefnir þú að einhverju sérstöku í framtíðinni? Já, að mörgu. Til dæmis að kaupa mér strigaskó. Hvað ætlar þú að gera í sumarfrí- inu? Langanes - Róm.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.