Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.1995, Side 23
LAUGARDAGUR 24. JÚNÍ 1995
23
Sviðsljós
Islendingasamkoma
í Mosgarði í Flórída
Arma Bjamason, DV, Flórída:
íslendingar í Flórída og vinir þeirra
héldu upp á 17. júní í Mosgarði, und-
urfallegu útivistarsvæði í nágrenni
flugvallarins í Orlando. Veðrið var
ákjósanlegt, ekki „nema“ 25 stiga
hiti og smávegis andvari. Gestir voru
rúmlega áttatiu talsins og fór sam-
koman mjög vel fram.
Gestirnir komu með veitingarnar
með sér en íslendingafélagið Leifur
Eiríksson seldi íslenskar pylsur frá
Bæjarins bestu til ágóða fyrir ís-
lenska þátttakendur í ólympíuleik-
um fatlaðra sem fram fara í næsta
mánuði í Bandaríkjunum.
Efnt var til boðhlaups meðal
yngstu gestanna og stjórnaði því
fyrrverandi ólympíufari, sprett-
hlauparinn Reynir Sigurðsson. Þá
skemmtu krakkarnir sér við aðra
íþróttaiðkun. Danshljómsveit mætti
á staðinn, bandarískt tríó undir
stjórn Bob Bruce, og kunnu gestir
að meta ljúfa danstónlist.
Meðal þeirra sem duglegastir eru að mæta á landamót eru hjónin Ragna og Jim Ellis frá Dunedin sem þarna eru
með dóttur sinni.
______________________Menning
Af velsku söngtrölli
Honum hefur verið likt við ruðningsrisa, skógar-
björn í kjólfötum, rokkarann Meat Loaf og franska
leikarann Géard Depardieu, enda er hann tveir metrar
á hæð, tvíbreiöur og með lokkana niður á herðar. Það
fer því ekki fram hjá neinum þegar velski bassabarít-
ónsöngvarinn, Bryn Terfel (framborið Tairvel), gengur
um garða. En Terfel er ekki einasta stór um sig heldur
tala tónlistargagnrýnendur nú í auknum mæli um
hann sem eina af skærustu söngstjörnum samtímans.
Amerískir gagnrýnendur kalla hann „Taffyrotti" en
„taffy“ er gælunafn fyrir Walesmann. Frumraun Ter-
fels við Metrópólitanóperuna í New York í fyrra var
Hljómplötur
Aðalsteinn Ingólfsson
forsíðufrétt í New York Times en þangað hafa tónlist-
arfréttir ekki ratað síðan Horowitz hóf aftur að spila
opinberlega fyrir tuttugu árum.
Rykti Terfels er að mestu leyti byggt á frammistöðu
hans í „aðeins" þremur óperum, Brúðkaupi Fígarós,
Salóme eftir Strauss og Falstaíf eftir Verdi en hins
vegar má segja að hann hafi verið alla ævina að búa
sig undir þessi hlutverk. Hann er alinn upp í Wales,
þar sem menn taka lagið við öll möguleg og ómöguleg
tækifæri, og við tungumál upp á sjö sérhljóða „sem
gera allan söng opinn og lýrískan" eins og hann segir
sjálfur í nýlegu viðtali. Terfel söng kontratenór fyrir
mútur og var enn fremur fulltrúi Walesbúa í Cardiff-
söngvakeppninni 1989 þar sem við íslendingar höfum
einnig performerað. Það ár fór barítónsöngvari frá
Síberíu, Dmitri Hvorostovsky, með sigur af hólmi en
ferill hans hefur verið öllu skrykkjóttari en Terfels.
Tempruö ákefö
Af lýsingum að dæma nálgast Terfel hvert hlutverk
af feiknarinnar ákefð og innlifun. Meðsöngvarar hans,
einkum og sérílagi söngkonurnar, tala um útgeislun
hans á sviði og þá lofsverðu tilhneigingu hans að taka
ævinlega undir „meö“ öðrum, raddlega sem tilfinn-
ingalega, í stað þess að vera stöðugt að syngja sóló í
margmenni eins og hendir margan stórsöngvarann.
Áheyrendum er hins vegar tíðrætt um hljómmikla og
blæbrigðaríka rödd Terfels og ægivald hans yfir því
instrúmenti.
Helstu kostir Terfels, tempruð ákefðin, tilfmninga-
Bryn Terfel
næmið og raddfeguröin, njóta sín einnig í ljóöasöng.
DG hefur nýlega sent frá sér geisladisk þar sem Ter-
fel syngur nokkur frægustu lög Schuberts. Hér er
sannarlega aö finna mótvægi við fágaöan bel canto
söng Fishers-Dieskau og hins þýska „skóla“ því Terfel
syngur Schubert af sömu ástríðu, innlifun og drama-
tískum áherslum þess sem alinn er upp við velsk þjóð-
lög, án þess að offra nokkru af inntaki skáldtextans:
gæðir inntak hans raunar nýrri merkingu. Áherslu-
breytingar og leikrænir taktar Terfels í sönglögum
Schuberts hafa farið fyrir brjóstið á sumum hrein-
stefnumönnum en svo mikil er sönggleöin að flestir,
þar á meðal sá sem þetta skrifar, hafa hrifist með.
Tónlistaráhugafólk þarf greinilega að fylgiast með við-
gangi þessa velska trölls.
An die Musik
Beriihmte Schubert-Lieder.
Bryn Terfel, barítón
Malcolm Martlneau, píanó
Deutsche Grammophon 445 294-2
Umboó á íslandi: SKÍFAN
Tryggur hópur íslenskra kvenna i Orlando og nágrenni sem mætir alttaf i
saumaklúbbinn. Frá vinstri Marta Kristjánsson, Guðfriöur Sigursteinsdóttir,
Heiða Kristjánsdóttir og Sigriður Helgason ásamt Heiðu barnfóstru.
DV-myndir A. Bj.
Ms. Árnes
Sjóstangaveiði og
skemmtisigling
með skemmtiferðaskipinu Árnesi
kl. 15-18 í dag, laugardag.
Skemmtileg fjölskylduferð.
Allar veitingar um borð.
Farið verður frá Ægisgarði.
Upplýsingar og bókanir í símum
562-8000 og 893-6030.
E. Yngvason, Ferjuleiðir