Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.1995, Qupperneq 32
40
LAUGARDAGUR 24. JÚNÍ 1995
Merming
Ólafur Árni Bjarnason og Nicola Rescigno voru hylltir vel og lengi i
Háskólabíói að loknum stórkostlegum tónleikum. DV-mynd GVA
Stórsigur!
Sinfóníuhljómsveit íslands hélt óperutónleika í Háskólabíói sl. fimmtu-
dag. Ólafur Ámi Bjarnason söng með hljómsveitinni ítalskar óperuaríur,
en stjórnandí var Nicola Rescigno.
Stjómandinn, Nicola Rescigno, á að baki litríkan og erilsaman feril og
hefur hann mjög mikla reynslu á óperusviöinu, enda hefur hann unnið
með mörgum mestu söngvumm samtímans. Nemandi hans, Ólafur Árni
Bjarnason, hefur staðið sig vel og vakið mikla athygli að undanfórnu,
hefur honum og enda verið sýndur margvíslegur sómi, nú síðast var
honum m.a. boðið að halda einsöngstónleika á vegum Marilyn Horne
stofnunarinnar í Stamford í Bandaríkjunum.
Tónleikarnir hófust á forleiknum aö óperunni Cenerentola, eftir Ross-
ini. Verkið er tilvaliö til að „hita upp“ fyrir tónleika af þessu tagi og var
það leikið af ákafa af hljómsveitinni. Ölafur Ámi söng fyrst Questa o
quella úr ópemnni Rigoletto eftir Verdi, en síðan Che gelida manina úr
Tónlist
Áskell Másson
La Bohéme eftir Puccini. Rödd hans er stór og kraftmikil og einnig tær
og mjög fallega hljómandi. Hún er áberandi vel uppbyggð, enda barst hún
tiltölulega átakalítið vel um allan salinn, en það er erfitt í húsi eins og
Háskólabíói. Báðar aríurnar voru sungnar af innlifun og yfirvegun og
með fagurri áferð.
Hljómsveitin lék síöan Intermezzo úr Manon Lescaut eftir Puccini og
var millispilið leikið af þrunginni tilfinningu.
Ólafur Arni söng þá resítatífið Tombe degli ave miei og aríuna Fra poco
a me ricovero sem fylgir í kjölfarið og sýndi hann þar ágætt vald sitt á
Ijóðrænu drama, sem og einnig í aríunni Recondita armonia úr Toscu
eftir Puccini sem á eftir kom.
Forleikurinn að lokaþætti La Traviata eftir Verdi var ágætlega leikinn
en síðan komu þrjár aríur úr sömu óperu: Lunge da lei þar sem Ólafur
skilaði löngum bogunum mjög fallega, De miei bolenti spiriti og 0 mio
rimorso, sem var sungið með miklum tilþrifum. -
Hljómsveitin lék nú forleikinn að Jónsmessunæturdraumi eftir Mend-
elssohn, en hann er einkar viðkvæmur í flutningi. Þrátt fyrir háan aldur
og einfaldar hreyfingar var greinilegt að Rescigno hafði miklu að miðla
hljómsveitinni, enda var forleikurinn leikinn sérlega glæsilega.
Tvær síðustu aríurnar sem Ólafur söng voru úr óperunni II Trovatore,
Ah si ben mio og Di quella pira. Er ekki að orðlengja það að hann end-
aði með miklum bravúr, enda risu áheyrendur allir sem einn úr sætum.
Þessir tónleikar voru stórsigur fyrir Ólaf Árna Bjarnason og er honum
óskað velfarnaðar í erfiðu áframhaldinu.
FréttLr
Sjálfstæðisflokkurlnn klofinn í Hafnarfirði:
Kratarleita
sérað
samstarfsaðila
„Ég hef marglýst því yfir að sam-
starf við Jóhann kemur ekki til
greina. Ég talaði við Ellert Borgar
eftir helgina og bauö honum að vera
meö okkur Valgerði. Hann hafnaði
því ekki fyrr en núna að hann er
kominn í viðræöur við kratana. Það
segir sína sögu og þarf ekki frekari
vitnanna við. Við Ellert Borgar höf-
um starfað ágætlega saman gegnum
árin og því hljóta þetta að vera von-
brigði. Eg get ekki séð annað en að
Sjálfstæðisflokkurinn sé nú opinber-
lega klofinn," segir Magnús Gunn-
arsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins í
Hafnarfirði.
Viðræður um myndun meirihluta
í Hafnarfirði fóru fram í gær að
frumkvæði alþýðuflokksmanna og
er búist við að myndun meirihluta
ljúki í byrjun næstu viku. Jóhann
G. Bergþórsson, bæjarfulltrúi Sjálf-
stæðisflokks, gekk fyrstur á fund
krata og vakti athygli að Ellert Borg-
ar Þorvaldsson, forseti bæjarstjórn-
ar, tók þátt í viðræðunum með hon-
um. Alþýðubandalagsmennirnir
Magnús Jón Árnason og Lúðvík
Geirsson gengu þá á fund krata og I
síðust mættu Magnús Gunnarsson,
formaður bæjarráðs, og Valgerður
Sigurðardóttir bæjarfulltrúi.
Samkvæmt heimildum DV munu
kratar bíða með formlegar meiri-
hlutaviðræður þar til eftir helgi. (
Unnið er að úttekt á fjárhagsstöðu
bæjarins og eiga niðurstöður að
hggja fyrir á mánudaginn. Um helg-
ina ætla forystumenn Alþýðuflokks-
ins í Hafnarfirði að funda um stöð-
una og ræða vænlegasta kostinn til
meirihlutasamstarfs. -GHS/kaa
Viðræður um myndun meirihluta i Hafnarfirði fóru fram að frumkvæði alþýðuflokksmanna i gær. Athygli vakti að I
Ellert Borgar Þorvaldsson, forseti bæjarstjórnar, tók þátt í viðræðunum ásamt Jóhanni G. Bergþórssyni. Magnús
Gunnarsson, oddviti flokksins, segir að Sjálfstæðisflokkurinn sé nú opinberlega klofinn. DV-mynd Sveinn
i
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu
embættisins að Skógarhlíð 6,
Reykjavík, 2. hæð, sem hér seg-
ir, á eftirfarandi eignum:
Baughús 19, hluti, þingl. eig. Gunnar
Smith og Edda Eiríksdóttir, gerðar-
beiðendur Balco hf./AB byggingav.,
Byggingasj. ríkisins, húsbréfadeild,
Gjaldheimtan í Reykjavík, Lífeyris-
sjóður verslunarmanna og tollstjórinn
í Reykjavík, 28. júní 1995 kl. 10.00.
Einholt 6, þingl. eig. Pólar hf., gerðar-
beiðandi Almenna lögfræðistofan, 28.
júní 1995 kl. 10.00.
Gróðrarstöðin Lambhaga v/Vestur-
landsveg, þingl. eig. Hafberg Þórisson,
gerðarbeiðendur Gjaldheimtan í
Reykjavík, Glomma Papp A/S og
Stofalánadeild landbúnaðarins, 28.
júní 1995 kl. 10.00.
Hjaltabakki 30, 2. hæð t.h., þingl. eig.
Ingibjörg Erla Sigurðardóttir, gerðar-
beiðandi Bílaskipti hf., 28. júní 1995
kl, 10.00.
Hrafahólar 6, 2. hæð A + bflskúr nr.
19, þingl. eig. Þór Mýrdal, gerðarbeið-
andi Byggingarsjóður ríkisins, 28. júní
1995 kl. 10.00.____________________
Hraunbær 22, 1. hæð t.v. + geymsla
nr. 1 og herb. nr. I í kj. þingl. eig.
Signý Halldórsdóttir, gerðarbeiðandi
Byggingarsj. ríkisins, húsbrd., 28. júní
1995 kl. 10.00.____________________
Laufengi 142, hluti, þingl. eig. Elín-
borg Christ Argabrite, gerðarbeiðend-
ur Byggingarsjóður verkamanna og
tollstjórinn í Reykjavík, 28. júní 1995
kl. 10.00._________________________
Laugavegur 163, 1. hæð m.m., þingl.
eig. Austurborg hf., gerðarbeiðandi
Gjaldheimtan í Reýkjavík, 28. júní
1995 kl. 10.00.____________________
Skúlagata 54, efsta hæð í vesturenda,
þingl. eig. Hilmar Hólmgeirsson og
Súsanna Kristín Heiðarsdóttir, gerð-
arbeiðandi Byggingarsjóður ríkisins,
28. júni 1995 kl. 10.00.___________
Stíflusel 4, hluti í íbúð á 1. hæð merkt
1-2, þingl. eig. Högni Jóhannsson,
gerðarbeiðandi Gjaldheimtan í
Reykjavík, 28. júní 1995 kl. 10.00.
Æsufell 2,1. hæð merkt D, þingl. eig.
Ragnhildur ísleifsdóttir og Olafur
Viðar fagjaldsson, gerðarbeiðendur
Byggingarsjóður ríkisins, Lífeyris-
sjóður Sóknar, Lífeyrissjóður mat-
reiðslumanna og Lífeyrissjóður sjó-
manna, 28. júní 1995 kl. 10.00.
SÝSLUMAÐURINN í REYKJAVÍK
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirtöldum
eignum verður háð á þeim sjálf-
um sem hér segir:
Berjarimi 28, 1. hæð t.h., þingl. eig.
Efaaco hf., gerðarbeiðendur Nives
Waltersdóttir og Rafgeisli hf., 29. júní
1995 kl. 17.00.
Bíldshöfði 18, 034)34)2, þingl. eig. Síð-
umúli hf., gerðarbeiðendur Gjald-
hein.tan í Reykjavík, Gjaldskil sf. og
Lífeyrissjóður Austurlands, 29. júní
1995 kl. 13.30.
Bíldshöfði 18, 50% hl. 030202, þingl.
eig. Síðumúli hf., gerðarbeiðendur
Gjaldheimtan í Reykjavík, Lífeyris-
sjóður Austurlands og Lífeyrissjóður
Dagsbrúnar og Framsóknar, 29. júní'
1995 kl. 14.00.___________________
Dalsel 6, jarðhæð 0002, þingl. eig.
Amdís Theodórs, gerðarbeiðandi Sig.
Valdimarsson, 29. júní 1995 kl. 16.00.
Háaleitisbraut 101, íbúð á 4. hæð t.h.
+ bílskúr, þingl. eig. Egill Kr. EgiLs-
son, gerðarbeiðandi Gjaldheimtan í
Reykjavík, 28. júní 1995 kl. 15.00.
Kambsvegur 6, hluti, þingl. eig. Sigríð-
ur Thorstensen, gerðarbeiðandi
Gjaldheimtan í Reykjavík, 29. júní
1995 kl. 15.30.
Logafold 28, þingl. eig. Kristín Reynis-
dóttir, gerðarbeiðendur Byggingar-
sjóður ríkisins, Gjaldheimtan , í
Reykjavík og Verðbréfamarkaður ís-
landsbanka, 29. júní 1995 kl. 16.30.
Vesturbrún 26, þingl. eig. Nýja versl-
unarfélagið M, gerðarbeiðendur
Gjaldheimtan í Reykjavík, Lífeyrissj.
Dagsbrúnar og Framsóknar og Versl-
unarlánasjóður, 29. júní 1995 kl. 15.00.
SÝSLUMAÐURINN í REYKJAVÍK