Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.1995, Síða 33
LAUGARDAGUR 24. JÚNÍ 1995
41
Trimm
Viljum fá fleiri
hjólreiðamenn
- segir formaður Hjólreiðafélags Reykjavíkur
„Eins og er teljast félagar í Hjól-
reiðafélagi Reykjavíkur 108 en virkir
félagar eru talsvert færri," sagði
Bjarni Svavarsson, formaður þessa
unga félags, í samtali við Trimmsíð-
una. Til þess að vinna að uppbygg-
ingu úr grasrótinni hefur Bjarni sett
á laggirnar þjálfun fyrir unga hjól-
reiðamenn, 16 ára og yngri. Þeir sem
hafa áhuga geta hitt Bjarna á hjól-
hesti sínum við veitingastaðinn
Sprengisand kl. 16 á mánudögum,
miðvikudögum og föstudögum.
Hjólreiöafélag Reykjavíkur var
stofnað í kringum 1980 en lagðist í
dvala og var endurreist fyrir um það
bil þremur árum. Einn af hápunkt-
um sumarsins hjá félaginu er hjól-
reiðakeppni milli Reykjavíkur og
Hvolsvallar sem fram fer laugardag-
inn 1. júlí og verða keppendur ræstir
kl. 8 árdegis við verksmiðjuna Vífil-
fell. Bjarni sigraði í keppninni í fyrra
og stefnir á að verja titil sinn í ár.
„Besti tíminn á þessari leið, sem
er 106 kílómetrar, er 2:50 en í fyrra
var mikill mótvindur og þeir fyrstu
voru 4:15 á leiðinni. Þetta er keppni
sem allir geta tekið þátt í því aö við
bjóðum upp á keppni í mismunandi
vegalengdum. Þannig er hjólað frá
Selfossi til Hvolsvallar eða frá Hellu
og Vík í Mýrdal. Það verður bíll
bæði á undan og eftir keppendum svo
að keppendur sem örmagnast verða
hirtir upp. Skráning fer fram í Sælu-
búð á Hvolsvelli sem stendur að þess-
ari keppni ásamt Hjólreiðafélaginu.
Það hafa jafnan verið um 20 kepp-
endur en við viljum gjarnan fá fleiri
en keppnismenn til þess að taka
þátt.“
Fleiri athyglisverðir atburðir á
dagskrá Hjólreiðafélagsins er ijalla-
hjólakeppni á Hallormsstað 15. júlí
og í tengslum viö hana verður keppt
í götuhjólreiðum á leiðinni Hall-
Bjarni Svavarsson, formaður Hjólreiðafélag Reykjavikur og Islandsmeistari
i hjólreiðum. DV-mynd Sveinn
ormsstaður-Oddsskarð. Þá er hjólað
frá Hallormsstaö gegnum Egilsstaði,
Reyðarfjörð og Eskifjörð og endað í
Oddsskarði sem mun vera 600 metra
hækkun neðan af Eskifirði. Kjörið
fyrir þá sem vantar skemmtilegan
hjólatúr í sumarfríinu. Önnur erfið
keppni er Kambakeppni sem fer fram
30. júlí. Þá er hjólað upp Kambana
úr Hveragerði sem mun vera um 9
kílómetrar og 300 metra hækkun. En
hefur félaginu dottið í hug að efna
til götuhjólreiðakeppni innanbæjar?
„Það er verið að ræða við rétt yfir-
völd um að koma á hjólreiðakeppni
fyrir alla íjölskylduna í Reykjavík
þar sem yrði keppt í 5 kílómetra hjól-
reiðum. Til þess að það mætti verða
þarf að loka leiðinni algjörlega fyrir
umferð því að hraðinn í hjólreiða-
keppni getur orðið býsna mikill.
Þetta er þó ekki alveg komið á
hreint."
Bjarni og félagar hans sem taka
hjólreiðarnar alvarlega æfa sig með
skipulegum þætti allt árið og nota
lyftingar og styrkjandi æfingar á
vetrum og eins hjóla þeir innanhúss
á þar til gerðum rúllum sem gera
keppnishjól að þrekhjóli. Síðan um
leið og verður autt er farið út að hjóla
og skiptast á langar hægar ferðir og
skipulegar sprettæfingar. Hlaup og
skokk er notað til upphitunar. Þegar
álagið er mest hjólar Bjarni 600 kíló-
metra á viku en það gerði hann t.d.
fyrir Smáþjóðaleikana í Lúxemborg
í vor en hann tók þátt í þeim ásamt
félögum sínum.
„Hjólreiöaeign virðist vera mjög
útbreidd á íslandi og við vildum
gjarnan sjá fleiri taka þátt til þess
að auka breiddina í þessu. Eins og
er taka varla þátt í þessum keppnum
nema keppnismenn og því viljum við
gjarnan breyta."
Reykjavíkurmaraþon 20. ágúst:
Gott að hlaupa með öðrum eða í hóp
Það getur verið mjög hvetjandi að
hlaupa með öðrum eða í skokkhóp.
Mörgum reynist erfitt í byrjun að
5. vika. 25/6-1/7
-10 km, hálfmaraþon og maraþon
koma sér út að hlaupa og vantar til- hald sem þig vantar. í skokkhópnum
fmnanlega aöhald. Skokkhópurinn bera menn saman bækur sínar og
getur veitt þér það nauðsynlega að- skiptast á upplýsingum. Auk þess
10km 21 km 42 km
Sunnudagur 10km ról. 22 km ról. 20 km
Mánudagur Hvíld Hvíld Hvíld
Þriðjudagur 6km (hraðaleikur). 10km (Hraðaleikur). 10km (hraðaleikur).
Fyrst2km ról.og Fyrst 2 km ról. og síðan Fyrst 2 km ról. og síðan
síðan2km hrattog 1 km hratt siðan 1 km 1 km hratt, síðan 1 km
loks2km ról. hægt3x og síðan 2km ról. í lokin hægt 3x og siðan 2 km ról. í lokin.
Miðvikudagur 6km Kópavogshlayp kl. 19. Fífuhvamrnj. 12kmról. 15 km ról.
Fimmtudagur Hvíld 8 km ról. 14km ról.
Föstudagur 4 km ról. Hvild 10km ról.
Laugardagur 5kmjafnt 8kmjafnt 8 km jafnt
Samt.: 31 km 60 km 77 km
finnst mörgum skemmtilegra að
hlaupa með öðrum. Margir skokk-
hópar eru starfandi hér í bæ og hefur
trimmsíðan gert þeim skil hér fyrr í
vetur.
Þeir sem fara í hálfmaraþon hlaupa
22 km í þessari viku og er það lengsta
vegalengdin sem farin verður á einni
æfingu. Þessi vegalengd verður þó
farin aftur síðar einu sinni enn. Há-
marksvegalengd á einni æfingu fyrir
fullt maraþon verður 30 km.
Jakob Bragi Hannesson
Þor-
valds-
dalur
'95
Laugardaginn 1. júlí nk. fer
fram eitt sérstæðasta almenn-
ingshlaup á íslandi. Hér er átt við
Þorvaldsdalsskokkið sem nú fer
fram í annað sinn. Þorvaldsdals
hvað?
Jú, Þorvaldsdalur er við vest-
anverðan Eyjafjörð og opnast að
sunnan i Hörgárdal og að norðan
Árskógsströnd. Ræst er við
Fornhaga í Hörgárdal og endað
viö Árskógsskóla efdr 23 kíló-
metra. Allbratt er fyrsta spölinn
eða um 440 metra hækkun á 5
kílómetrum en eftir það hallar
undan með nokkrum frávikum.
Leiðin liggur eftir fjárgötum,
móum og mýrum og reyndar
mega keppendur stytta sér leiö
að vild. Fjórar drykkjarstöövar
verða á leiöinni og keppt verður
i aldursflokkum. Tilkynna skal
þátttöku til skrifstofu UMSE í
síma 462-4477 eða við rásmark.
Það eru Ferðafélagið Hörgur,
Ungmennafélagið Reynir, Björg-
unarsveitin Ströndin og Ferða-
þjónustan Ytri-Vik/Kálfsskinni
sem standa aö þessu óvenjulega
víöavangs-/landslags-/út-um-
holt-og-hóla-skokki.
Þeir sem fóru í fyrra gleyma því
aldrei en misjafnlega hart er und-
ir fæti eða misjafnlega blautt
Þetta er kjörið fyrir þá sem eru á
leiö í friið og langar í eitthvað
virkilega örvandi til að glíma við.
vatns-
mara-
Nýtt á hlaupaskránni er Mý-
vatnsmaraþon 9. júli nk. þar sem
hlaupið verður hringinn í kring-
um Mývatn. Trimmsíðan veit aö
nokkrir harðir hlauparar úr ÖL-
hópnum nafntogaða ætla að
fljúga norður og skokka um-
hverfis vatnið. Eitt af þvi sem
ekki má gleyma er að kaupa
flugnanet eða vargskýlu, eins
slíkt nefnist á máli heimamanna.
Svo er spurning hvort þaö verða
loftkökur í boði á drykkjarstööv-
unum. Ekki má kalla Mývatn
poll svo heimamenn heyri og
muna að syngja Blessuð sértu
sveitin mín - mín megin.
Umsjón
Páll Asgeir
Ásgeirsson
VOLVO 850 SS
Styrktaraðili Reykjavíkurmaraþons
■ ...... , i
er styrktaraðili flugleidir^ 1 Reykjavíkurtnaraþonsins w dSlCS^ mMm ^ RlU5