Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.1995, Qupperneq 48
56
LAUGARDAGUR 24. JÚNÍ 1995
Fréttir
Eins og sést á myndinni er enn mikill snjór á Fjallabaksleiö syðri.
DV-mynd Jón Benediktsson
Flogið yfir hálendið:
LEIKFÉLAG
REYKJAVÍKUR
Rokkóperan
Jesús Kristur
SUPERSTAR
eftir Tim Rice og Andrew
Loyd Webber
Frumsýnlng föstudaginn 14. júli.
Forsala aðgöngumiða hefst mánudaginn
26. júnikl. 15.
Miðasalan verður opin frá kl. 15-20
alla daga og einnig tekið á móti
miðapöntunum i síma 658-8000 frá
kl. 10-12 alla virka daga.
Greiðslukortaþjónusta.
Leikfélag Reykjavikur-
Borgarleikhús
Faxnúmer 568-0383.
Enn töluverð-
ur snjór
og aurbleyta
Jón Benediklsson, DV, Suðurlandi:
Stefán Kjartansson, verkstjóri
Vegageröarinnar, flaug 19. júní yfir
helstu ferðaleiöir á hálendinu. í
Dómadal eru stöku skaflar en lokað
yflr Frostastaöaháls í Landmanna-
laugar. Þessi leið verður væntanlega
opnuð í vikunni.
Mikill snjór er á leiðinni frá Land-
mannalaugum í Eldgjá og ekki fyrir-
sjáanlegt að sú leið verði opnuð í
bráð eða Mælifellssandur. Opiö er í
Veiðivötn og að Þórisvatni en ekki
en mögulegt að opna Sprengisand
fyrr en í fyrsta lagi eftir hálfan mán-
uð því að á þeirri leið er mikil aur-
bleyta og nokkrir stórir skaflar.
Fyrir þá aðila sem selja ferðir ytra
á hálendiö er það vafalaust spenna
hvort búiö veröi að ryðja þessar leið-
ir áöur en feröahóparnir koma.
Gatnaframkvæmdir hafa staðið yfir í Eskihvammi og Birkihvammi i Kopa-
vogi í vetur með tilheyrandi óþægindum fyrir íbúa við götunar. Fyrir 17.
júni voru göturnar svo malbikaöar og kanntsteinar steyptir. Steypan var
vart þornuö og malbikið kólnað áður en símamenn komu og brutu kannt-
steininn upp og grófu sig í gegnum malbikið til að ganga frá köplum. Fór
svo að langlundargeð eins íbúanna brast sem hellti úr skálum reiði sinnar
við blaðamann DV vegna lélegs verkvits þeirra sem að framkvæmdunum
standa. DV-mynd Sveinn
Listasetrið Kirkjuhvoll:
Heimamenn sýna í sumar
Daniel Ólafsson, DV, Akranesi:
Nýlega var opnuð hér á Akranesi
samsýning listamanna sem búsettir
eru á Akranesi. Á sýningunni eru
málverk, skúfptúrar og leirmunir til
sýnis og er opiö alla daga frá kl.
14-16.30 fram í ágúst. Hátt á þriðja
þúsund gestir hafa komið á Kirkju-
hvol frá því opnað var 20. janúar. Þar
af komu um 700 gestir á sýningu
Páls frá Húsafelli.
Hjónáband
Þann 15. apríl voru gefin saman í hjóna-
band í Áskirkju af séra Árr a Bergi Sigur-
björnssyni Ellen Flosadóttir og Bolli
Bjarnason. Þau eru til heimibs í Svíþjóö.
Ljósm. Nærmynd.
Þann 29. apríl voru gefin saman í hjóna-
band í Bústaðakirkju af séra Pálma Matt-
híassyni Hrafnhildur Sigurðardóttir
og Hjalti Garðarsson. Þau eru til heim-
ilis í Dalseli 36.
Ljósm. Nærmynd.
í m'////// wm msssmm /,///,,
Þann 20. maí sl. voru gefin saman í Frí-
kirkjunni í Hafnarfiröi af séra Einari
Eyjólfssyni Laila Björk Hjaltadóttir
og Guðmundur Þór Sigurjónsson.
Þau eru til heimilis að Stekkjarkinn 7,
Hafnarfirði.
Mynd, Hafnariirði.
Leikhús
ÞJÓDLEIKHÚSID
Sími 551 1200
Stóra sviðiö
Norræna rannsóknar-leiksmiðjan
ÓRAR
Samvinnuuppfærsla finnskra
og íslenskra leikara.
ídagkl. 14.00.
Ath. Ekki verða fleiri sýningar.
Smíðaverkstæðið
TAKTU LAGIÐ, LÓA!
eftir Jim Cartwright
kl. 20.00.
í kvöld, uppselt, á morgun, uppselt.
Siöustu sýningar á þessu leikári.
Miðasala Þjóöleikhússins er opin alla daga
nema mánudaga frá kl, 13 til 20 Id. og sud.
Einnig simaþjónusta frá kl. 10.00 virka daga.
Græna línan 99 61 60. Bréfsimi 61 12 00.
Sími 1 12 00 - Greiðslukortaþjónusta.
Andlát
Steinunn Stefánsdóttir andaðist að-
faranótt 23. júní.
Ingvi Ingólfsson, Silfurbraut 8, Horn-
arfirði, lést miövikudaginn 21. júní.
Óskar Þorsteinsson andaðist í
Hraunbúðum, Vestmannaeyjum, 22.
júní.
Guðrún Gunnþórsdóttir lést í Kumb-
aravogi flmmtudaginn 22. júni.
Brandur Tómasson fyrrverandi yfir-
flugvirki, lést á hjúkrunarheimilinu
Skjóli 20. júní.
Magnea Ingibjörg Sigurðardóttir
andaðist á sjúkraheimilinu Skjóli,
Reykjavík, þriðjudaginn 20. júní.
Tapað fundið
Grænn pakki tapaðist
Föstudaginn 16: júni sl. tapaðist grænn
pakki sem innihélt tvenn hársnyrtiskæri
og rakhníf á leiðinni frá Laugavegi að
Ofanleiti. Skilvís fmnandi vinsamlegast
hafi samband í síma 568 8909 eða 552 7170.
Fundarlaun.
Hjól fannst
á Álftanesi
12 gíra fjallahjól fannst á Álftanesi í vik-
unni. Upplýsingar í síma 565 0219.
Safnaðarstarf
Laugarneskirkja: Guösþjónusta í Há-
túni lOb í dag kl. 11.00.
Friðrikskapella: Kyrrðarstund í hádegi á
mánudag. Léttur máisverður í gamla fé-
lagsheimilinu að stundinni lokinni.
Seltjarnarneskirkja: Fundur í æsku-
lýðsfélaginu sunnudagsvöld kl. 20.30.
Tilkynningar
Ferðafélag Islands
Sunnudagur 25. júni kl. 10.30: Náttúru-
minjaganga, lokaáfangi. Djúpavatn -
Selatangar. Kl. 13: Selatangar, fjölskyldu-
ferð. Kl. 08: Þórsmörk. Fyrsta sunnudags-
ferðin í Þórsmörk. Stansað 3-4 klst.
Brottfór í ferðirnar frá BSÍ, austanmegin,
og Mörkinni 6.
Ferming i Möðrudalskirkju
á Fjöllum
sunnudaginn 25. júni kl. 14. Prestur: séra
Bjarni Guðjónsson, Valþjófsstað. Fermd
verða:
Eyrún Huld Haraldsdóttir, Eyvindará,
Egilsstöðum
Vilmar Freyr Sævarsson, Sólvöllum 6,
Egilsstöðum.
Eitthvað fyrir alla
á Miðbakka
í dag og á morgun verður ýmislegt í boði
á Miðbakkanum. í stóru tjaldi, Mið-
bakkatjaldinu, verður fiskmarkaður,
kaffi og tesala upp á gamla mátann og
ýmislegt kynnt sem tengist sjónum. Þá
telst tll nýjunga að hægt verður að kaupa
slægðan fisk upp úr báti.
AIIIR
W II' ls
EE3
9 0 4 - 1 7 0 0
Verð aðeins 39,90 mín.
U
:JLl
4j
5J
6J
u
ðí
°
Fótbolti
Handbolti
Körfubolti
Enski boltinn
ítalski boltinn
Þýski boltinn
Önnur úrslit
NBA-deildin
fl| Vikutilboö
stórmarkaðanna
2 \ Uppskriftir
1 Læknavaktin
2 1 Apótek
3J Gengi
lj Dagskrá Sjónvarps
2 ] Dagskrá Stöðvar 2
3 j Dagskrá rásar 1
4 j Myndbandalisti
vikunnar - topp 20
5 j Myndbandagagnrýni
6 j ísl. listinn
-topp 40
71 Tónlistargagnrýni
8 j Nýjustu myndböndin
9 J Gervihnattardagskrá
5s4æmiiit^hiig
lj Krár
2j Dansstaðir
3j Leikhús
4j Leikhúsgagnrýni
5] Bíó
6j Kvikmyndagagnrýni
lj Lottó
2) Víkingalottó
3 j Getraunir
9 0 4 - 1 7 0 0
Verð aöeins 39,90 mín.