Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.1995, Side 56
FRÉTTASKOTIÐ
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma
562 2525. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greið-
ast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum
allan sólarhringinn.
RITSTJÓRN - AUGLÝSINGAR - ÁSKRIFT - DREIFING: 563 2700
BLAÐAAFGREIÐSLA 0G
ÁSKRIFT ER 0PIN:
Laugardaga: 6-14
Sunnudaga: lokað
Mánudaga: 6-20
Þriðjudaga - föstudaga: 9-20
BEINN SÍMI BLAÐA-
AFGREIÐSLU: S63 2777
KL. 6-8 LAUGAttDAGS- OG MANUDAGSMORGNA
Beinin í Straumsvík:
Reyndustvera
frá 16. öld
- Þjóðminjasafn varðveitir
Rannsókn er lokið á mannabeinum
sem fundust í Straumsvík í maíbyrj-
un. Fyrstu niðurstöður hafa leitt í
ljós að beinin séu frá 16. öld.
„Það er ljóst að rannsókn málsins
af hálfu RLR er lokið þar sem beinin
tengjast ekki óleystum sakamálum
úr samtímanum," sagði Hörður Jó-
hannesson, yfirlögregluþjónn hjá
RLR.
Þegar beinin fundust var svokölluð
ID-nefnd, sem aetlað er að bera
kennsl á líkamsleifar, kölluð saman
en í henni sitja réttarlæknar og rann-
sóknarlögreglumenn. Að hennar
frumkvæði var ákveðið aö senda
beinin utan til Danmerkur til aldurs-
greiningarrannsóknar. Niðurstaða
hennar er sú að beinin séu frá því
fyrir 1600.
Samkvæmt upplýsingum DV verða
beinin send Þjóðminjasafni íslands
til varðveislu. -np
Lovejoymálið:
Björk sýknuð
Björk var sýknuð fyrir dómi í Bret-
landi í gær af ásökunum um stuld á
höfundarrétti og kröfum vegna þess.
Hér var um að ræða verk eftir laga-
höfundinn Simon Lovejoy á Debut-
plötu Bjarkar. Lovejoy hélt því fram
að Björk hefði stolið hluta af verkum
hans í laginu Crying.
Sir Robin Jacob dómari sagði við
dómsuppkvaðninguna í gær að þegar
lög verði mjög vinsæl verði alltaf til-
hneiging hjá öörum höfundum að
eigna sér þau.
Samkvæmt fréttaskeytum sagði
Björk fyrir dómi að hún hefði í raun
notað Lovejoy sem eins konar einka-
ritara við að vinna eigin hugmyndir
við lagasmíðar.
Fékk net í
skrúfuna
Björgunarbátur Slysavarnafélags-
ins fór í gær til aðstoðar við trillu sem
hafði fengið net í skrúfuna skammt
undan Engey. Kafari fór með og los-
aðinetiðúrskrúfunni. -pp
Varðundirhálfs
tonnsfiskikari
Maður marðist á tá og hæl þegar
500 kíló fiskikar féll á hann. Maður-
inn var að vinna að uppskipun rækju
í Eskifjarðarhöfn þegar óhappið átti
sérstaö. -nn
Ætlaði að borga en var
þá stungið í steininn
„Ég fór niður á lögreglustöð og
ætlaði að greiða inn á sekt. Ég sagði
lögreglumanninum það. Hann
svaraði bara: „Nei, þér verður
stungiö í steininn ef öll sektin verð-
ur ekki greidd upp. Síðan var
ákveðið að ég færi inn í fangaklefa.
Ég sagðist ekki fara inn fyrr en ég
hefði skilað bílnum sem ég var á
og hafði fengið lánaðan hjá Bifreið-
um og landbúnaöarvélum. „Það
kemur okkur ekkert við,“ sagði
lögreglan," sagði Sindri Sigurgeirs-
son, 19 ára, sem var stungíð í tanga-'
klefa á lögreglustööinni viö Hverf-
isgötu í gær þrátt fyrir að hafa
ætlað að greiða inn á sekt sem hann
skuldaði. Honum var ekki sleppt
út fyrr en Gunnar Guðmundsson,
múrari og vinnuveitandi hans,
samþykkti að koma og greiða 115
þúsund krónur.
Sindri fékk dóm í september, 150
þúsund króna sekt vegna ákeyrslu
og gáleysisaksturs. í gær höfðú 35
þúsund krónur veriö greiddar af
sektinni. í byrjun maí gerði hann
greiðslusamning um mánaðar-
greiðslur 9. hvers mánaöar fram í
ágúst en þá yrðu 108 þúsund króna
eftirstöðvar og málið þá „skoðað".
Sindri greiddi 9. mai en ekki 9. júni
og var hann því kominn fram yfir
umsaminn tíma og ætlaði að greiða
júnígreiðsluna í gær.
„Svo fór ég að tala við manninn
og fékk að hringja til Gunnars
vinnuveitanda míns eftir miklar
fortölur við lögreglumanninn. Ég
náði ekki sambandi vð hann en
lagði inn skilaboð á símsvarann
hans. Ég var kominn inn í fanga-
klefa þegar Gunnar fékk skilaboð-
in. Hann kom svo niður eftir og
varð að greiða alla skuldina upp.
Það var illa komið fram við okkur
þama,“ sagði Sindri.
Gunnar sagðist í samtali við DV
ekki skilja harkaleg vimiubrögð
lögreglunnar, sérstaklega í Ijósi
þess að Sindri væri námsmaður -
lögreglan ætti aö frekar að beita sér
þar sem meiri þörf væri á henni.
Þröstur Eyvinds lögreglufulltrúi
sagði í samtali við DV að dómur
hefði gengið í september í máli
Sindra sem heföi kveðiö á um 25
daga vararefsingu, 19 daga fang-
elsi. Þann 8. desember hefði ekkert
gerst í máli Sindra og honum hefði
Gunnar Guómundsson, vinnuveitandi Sindra, tíi vinstri, skrifar ávísun tyrir allri sektinni tii að fá piltinn leystan
úr haldi. Þröstur Eyvinds lögreglufulltrúi er tll hægri.
Sindri Sígurgeirsson, nýkominn úr
fangaklefanum eftir að vinnuvelt-
andi hans kom og bjargaði honum
út með þvi að leggja fram 115
þúsund krónur fyrir ailri sekiinni
sem hann skutdaði.
DV-myndir Sveinn
ítrekað verið sent áskomnarbréf.
2. maí hefði slðan verið gerður við
hann greiðslusamningur, greitt
heíði verið í maí en júnígreiðslan
komin langt fram yfir gjalddaga.
Þröstur sagði að iögreglan reyndi
að hafa skilning á erfiðum högum
námsmanna, sérstaklega ef ljóst
væri að „greiðsluvilji" væri fyrir
hendi. -Ótt
LOKI
Alltaf þægilegir í pólitíinu!
Veðrið á sunnudag
ogmánudag:
Hlýjast á
Austurlandi
Á sunnudag og mánudag má
búast við suðvestanátt um allt
land. Skúrir verða sunnan- og
vestanlands en bjartviðri á Norð-
ur- og Austurlandi. Alskýjað
verður á suðvesturhorninu. Hit-
inn verður mestur á Austurlandi,
18 stig, á meðan hitinn verður
minnstur á Snæfellsnesi og Vest-
fjörðum, 9 stig.
Veðrið í dag er á bls. 61
CESZZ31DÍB
ffl
-Brook H
(rompton t
RAFMÓTORAR
Powbew
SuAurtandsbraut 10. S. 686490.