Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.1995, Qupperneq 8

Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.1995, Qupperneq 8
8 LAUGARDAGUR 2. SEPTEMBER 1995 Vísnaþáttur Skarða- Gísli Gísli Gíslason, nefndur Skarða- Gísli, fæddist þann 13. október 1797 í Skörðum. Ólst piltur upp þar með foreldrum sínum og síðan með móður og stjúpföður. Bjó Gísli í Skörðum 1820-53, á Geirastöðum 1853-55 og á Auðnum 1855-56. Gísli var gáfumaður og skáld ágætt. Þannig lýsir Guðmundur Friðjóns- son á Sandi honum. „Hann var meðalmaöur á vöxt og fjörmaður hinn mesti, svartur á hár og hærð- ur mjög, hárið hrokkið og féll í lokkum niður á herðar. Hann var málsnjall maður, grimmur í rödd og hristi lokkana þegar hann mælti. Hann var fremur langleitur í andliti, skarpleitur og andlitið drengilegt, ennið hátt og augu afar- hvöss. Hann var iðjumaður og bjargaðist vel, nokkuð drykkfelld- ur, bókamaður hinn mesti og mjög vel að sér í fornmálinu og bók- menntum þess.“ Yngsti sonur Gísla með fyrri konu hans var Amgrím- ur málari Gíslason. Gísli mun hafa dáiö árið 1859. Eitthvert sinn atyrti Jakob Johnsen, kaupmaður á Húsavík, konu sína og Gísli kvað þá vísu lebáj \ Ég hefi hlýtt á yöar tal ei með sinni gljúpu; oft hef eg gráan vitað val vega að hvítri rjúpu. Þegar Eiölnismaöurinn Tómas Sæmundsson dó kvað Gísli: Landið hló með dýja dans, döfnuðu frjóvar náðir, er Fjölnir dó og faðir hans fari þeir ó-vel báðir. Gísla mun hafa líkað verst stefna Fjölnis í stafsetningarmálum. En ekki mun Sunnanpósturinn þá hafa átt greiðari leið að Gísla. Eitt sinn fékk hann Póstinn að láni og skilaði honum aftur með þessum vísum: Pósturinn hefur starflð strangt, stendst ei sálarhorinn; getur ekki gengið langt sem gemlingur á vorin. Gísli var maður ölkær og einkum í kaupstað. Eitt sinn kom hann út á Húsavík og keypti eða þáði brennivínsstaup og renndi því niö- ur í einu. Johnsen kaupmaður var þar nærstaddur og hafði á orði að aðferð þessi væri svolaleg. Kvað þá Gísli: Hálsinn skola mér er mál, mín því hol er kverkin. Ég mun þola þessa skál; það eru svolamerkin. Gísli tók eitt sinn fram hjá og kvað þá strákur nokkur um hann rætna vísu. Gísli svaraöi á þessa leið: Þú ert að snapa eftir óð; ætli ég tapi krafti þó að hrapi leirug ljóð úr lygnum gapa kjafti? Vísnaþáttur Valdimar Tómasson Sagnir herma að maður færi um í Skörðum eitt sinn að næturþeli og ritaði vísu um Gísla á kamarvegg. Þegar Gísli leit verksummerki kvað hann: Á hann bæn ég litla legg og læt hana vera netta: Krossfestur á kamarvegg kauðinn sé fyrir þetta. Orð fánýtis yrkja hlýt óðs í flýtis-smiðju: Ó að krítin yrði að skít í helvíti miðju. Er maður einn flutti, sem Gísla miður geðjaðist, kvað hann: Burtu hrókur flæmdist flár, forláts tók á bænum; þó að klókur þerrði brár það voru krókódíla tár. Banalega Gísla var löng og þann- ig kvaddi hann veröldina: Voða blandin lífs er leið; loðir standið rýrðar; Hroðin andar skal nú skeið, skoða landið dýrðar. Antik- og teppauppboð þriðjudaginn 5. sept. kl. 20.30 Uppboðshlutirnir sýndir að Faxafeni 5 í dag og á morgun, sunnudag kl. 12-18, mánudaginn 4. sept. kl. 10-18 og þriðjudaginn 5. sept. kl. 10-16. BORG clntik Faxafeni 5 - sími 562 4248 Matgæðingur vikunnar dv Heitreykturvillilax - og hörpuskelfiskur í appelsínusósu Heitreyktur villilax 1000-1200 g laxaflök (sjóbirtingur eða árbleikja) 1 bolli volgt vatn 1-2 msk. púðursykur 1-2 msk. sítrónusafi 1-2 msk. dill rósapipar Hickory-spænir Hickory-spænir eru lagðir í bleyti yfir nótt. Fiskflökin eru skorin í 3-4 sm sneiðar og hver sneið síðan skorin í miðju inn að roði og síðan brotin saman þannig að fiðrildi myndast. Púðursykri, dilli og. sítr- ónusafa er hrært út í vatnið. Göt- óttur álbakki penslaður og fiski- fiðrildin lögð þvert á rákirnar. Þau síðan pensluð rækUega með blönd- unni og heilum rósapipar stráð yf- ir. Votir spænirnir eru lagðir á ál- pappírssneið sem er lögð ofan á kolin í heitt grillið. Þegar farið er vel að rjúka þá er bakkinn með fiskinum settur á og grillinu lokað. Fiskurinn vaktaður og þegar hann er orðinn ljós í gegn þá er hann borinn fram með tortellini og neð- angreindri sósu. Þar eð reykjarbragðið er mjúkt þá fmnst mér best að hafa mjúkar sósur með, kalda að sumri og heita að vetrinum. Köld sósa: hræra saman muldum gráðosti og nokkr- um dropum af Tabascosósu út í dós af 10 prósent sýrðum rjóma. Sigurður skorar á Ingunni Bene- diktsdóttur húsfreyju, glerlista- konu og jógakennara á Seltjarnar- nesi að vera næsti matgæðingur. Hmhliðin Langar mest að hitta Björk - segir Þórdís Arthursdóttir, ferðamálafulltrúi Akraness hitta? Björk Guðmundsdóttur og fylgjast meö henni einn dag. Uppáhaldsleikari: Sigurður Sigur- jónsson. Uppáhaldsleikkona: Meryl Streep. Uppáhaldssöngvari: Diddú. Uppáhaldsstjórnmálamaður: Ekki fundið neinn enn þá. Uppáhaldsteiknimyndapersóna: Andrésína. Uppáhaldssjónvarpsefni: Fréttir og stundum veður (fer eftir spánni). Uppáhaldsmatsölustaður: „Græna sósan“ í París. Hvaða bók langar þig mest til að lesa? Óútkomna bók eftir Guörúnu Eiríksdóttur. Hver útvarpsrásanna finnst þér best? Það fer eftir hvað mig langar að hlusta á. Uppáhaldsútvarpsmaður: Þor- steinn G. Gunnarsson. Hvort horfir þú meira á Stöð 2 eða Sjónvarpið? Ég horfi mjög lítið á sjónvarp og geri því ekki upp á milli stöðva. Uppáhaldssjónvarpsmaður: Sigrún Stefánsdóttir. Uppáhaldsskemmtistaður/krá: „Je Old Trip to Jerusalem, 800 ára krá í Nottingham í Bretlandi. Uppáhaldsfélag í íþróttum: IA. Stefnir þú að einhverju sérstöku i framtíðinni? Að hafa meiri tíma til að spila golf, Hvað gerðir þú í sumarfríinu: Ég ætlaði mér að spila meira golf en lítið varð um frítíma í sumar. Daníel Ólafeson, DV, Akranesi: Þórdís Arthursdóttir, ferðamála- fulltrúi Akraneskaupstaðar, sýnir á sér hina hhðina að þessu sinni. Síðan Þórdís tók við starfl ferða- málafulltrúa hefur ferðamönnum fjölgað ár hvert á Akranesi og mik- il uppbygging átt sér stað í ferða- þjónustu. En hvað er á döfinni í ferðamálum á Akranesi? „Á undanfornum árum hefur verið unnið að grunnþáttum ferða- þjónustunnar, svo sem gistiað- stöðu, afþreyingu, kynningarmál- um og fleiru. Nú er komið að næsta skrefi, það er að segja að ákveða hvaða þætti við viljum leggja meg- ináherslu á í framtíðinni og vinna síðan að settum markmiðum," seg- ir Þórdís. Fullt nafn: Þórdís G. Arthursdóttir. Fæðingardagur og ár: 29. mars 1953. Maki: Hannes Þorsteinsson, golf- vallarhönnuður og líffræðingur. Börn: Þorsteinn og Bjarni Þór. Bifreið: Daihatsu Charade árgerð 1988 (veitir mér vissa öryggis- kennd). Starf: Ferðamálafulltrúi Akraness. Laun: Tímakaupið er ekki hátt. Áhugamál: Ferðamál, ferðalög, golf og góður matur. Hefur þú unnið í happdrætti eða lottói? Nei. Hvað finnst þér skemmtilegast að Þórdís Arthursdóttir. DV-mynd Sigurður Sverrisson gera? Að vinna með skemmtilegu og jákvæðu fólki. Hvað finnst þér leiðinlegast að gera? Að þurfa að fást við óáreiðan- legt fólk sem reyndar kemur ekki oft fyrir. Uppáhaldsmatur: Villibráð. Uppáhaldsdrykkur: Bleksterkt kafti. Hvaða íþróttamaður stendur fremstur í dag? Birgir Leifur Haf- þórsson golfari. Uppáhaldstímarit: Það sem ég er að lesa hverju sinni. Nú er það „Dansk Turisme". Hver er fallegasti maðurinn sem þú hefur séð? Ég sá einn fyrir 22 árum. Ertu andvíg eða hlynnt ríkisstjórn- inni? Pass. Hvaða persónu langar þig mest að „Það er að jafnaði gott að eiga vini. Allavega þangað til þeir ætlast til að skrifað sé niður það sem gert er oftast af fingrum fram (eða bragðlaukum). Ég hefi bæði gaman af því að elda og eta góðan mat, sérstaklega með góðu fólki. Og þar eð vinir mínir eru að jafnaði mestu átvögl reikna ég ríflega í matinn. Af fiski svona 200-250 g/mann og kéti beinlausu 250-300 g/mann. Ríf- legheitin gera einnig þaö að verk- um að unnt er að snyrta hráefnið rækilega ef með þarf,“ segir Sigurð- ur Árnason læknir. Hann gefur hér uppskrift aö hörpuskelfiski í appelsínusósu og couscous í forrétt og heitreyktum villilaxi með tortellini í aðalrétt. Sigurður segir skammtinn ætlaðan fjórum gráðugum eða sex mat- grönnum. „Lykilatriði er að smakka oft meðan á matargerð stendur. Eigin bragðlaukar, sjón og nef eru mikilvægustu eld- húsgræjurnar. Hörpuskelfiskur í appelsínusósu 200-300 g frystur hörpuskelfiskur 2 til 3 msk. olía 1 hvítlauksrif 1/2-1 tsk. masala (tandori) 1/3 tsk. malaður kerfill eða 1 msk. Pastis (anísbrennivín) appelsínuþykkni rjómi salt hvítur pipar Setjið frosinn skelfiskinn í sáldur og hellið yfir hann sjóðandi vatni í 10 sekúndur. Hreinsið fiskinn ef með þarf þannig að hann sé allur jafn þéttur og veljið fiskinn þannig að vöðvarnir séu nokkurn veginn jafnstórir. Snarphitið 2 til 3 msk. af olíu í þykkri pönnu og skerið hvítlauksrifið í smábita og brúnið í olíunni. Minnkið hitann á plöt- unni um helming og hrærið með trésleif masala og kerfli út í. Þegar feitin er orðin rauðbrún er fiskur- inn settur út í, velt og brúnaður skamma stund (ekki sjóð’ann!). Fiskurinn er síðan tíndur upp af pönnunni og settur í skál. Nokkr- um matskeiðum af appelsínu- þykkni bætt út í og síðan rjóman- um. Blandað vel þar til tekur að smásjóða. Fiskinum er svo bætt út í og þegar hann er orðinn vel heitur í gegn er rétturinn tilbúinn. Borið fram með cous-cous sem fæst í öll- um alvörubúðum og á pakkanum sést hvernig það er eldað.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.