Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.1995, Blaðsíða 12
12
LAUGARDAGUR 2. SEPTEMBER 1995
Erlend bóksjá
Metsölukiljur
Bandaríkin
Skáldsögur:
1. Patricia Cornwell:
The Body Farm.
2. Celeb Carr:
The Alienist.
3. Carol Shields:
The Stone Diaries.
4. Barbara Taylor Bradford;
Everything to Gaín.
5. Stephen King:
Insomnia.
8. Tom Clancy:
Debt of Honor.
7. Nora Roberts:
Born in lce.
8. John Grisham:
The Chamber.
9. Jude Deveraux:
Remembrance.
10. Chatherine Coulter:
The Nightingale Legacy.
11. John T. Lescroart:
The 13th Juror.
12. Peter Benchley:
White Shark.
13. Frederick Forsyth:
The Fist of God.
14. Lynne Reid Banks:
The Indian in the Cupboard.
15. Mary Higgins Clark:
Remember Me.
Rit almenns eðlis:
1. Richard Preston:
The Hot Zone.
2. J. Lovell 8t J. Kluger:
Apollo 13.
3. Mary Pipher:
Revtvíng Ophelia.
4. B.J. Eadie 8t C. Taylor:
Embraced by the Light.
5. Thomas Moore:
Care of the Soul.
6. Hope Edelman:
Motherless Daughters.
7. M. Scott Peck:
The Road Less Travelled.
8. Thomas Moore:
Soul Mates.
9. Bailey White:
Mama Makes up Her Mind.
10. Maya Angelou:
I Know why the Caged Bird
Sings.
11. Delany, Delany 8t Hearth:
Having Our Say.
12. Nathan McCall:
Makes Me Wanna Holler.
13. Nichoias Dawidoff:
The Catcher Was a Spy.
14. Laurence Leamer:
The Kennedy Women.
15. A. Toffler & H. Toffler:
Creating a New Civilization.
(Byggt á New Vork Timas Book Review)
Grass ærir
gagnrýnendur
Þýski rithöfundurinn Giinter
Grass er löngu vanur slagsmálum
um bókmenntir og stjórnmál. Aldrei
hefur hann þó lent í öðrum eins
hamagangi og að undanfornu. Flestir
þýskir gagnrýnendur hafa sameinast
gegn honum af einstæðu offorsi.
Tilefni þessarar tilraunar gagnrýn-
enda til að taka skáldsagnahöfund-
inn Grass af lífi er ný skáldsaga, Ein
weiters Feld, sem gengur gegn við-
teknum viðhorfum á þýskri sögu síð-
ustu árá.
Sagan hefur verið auglýst af útgef-
andanum sem skáldsaga aldarinnar
í Þýskalandi og selst eins og heitar
lummur þótt gagnrýnendur hakki
bókina í sig. Fyrsta upplagiö, 100
þúsund eintök, hvarf í hvelli, önnur
prentun, 50 þúsund eintök, er komin
í bókaverslanir og sú þriðja, líka 50
þúsund, er í undirbúningi.
Sló í gegn 1959
Herferðin gegn nýju skáldsögunni
hófst reyndar áður en bókin kom
formlega út. Það var hið kunna
þýska tímarit, Der Spiegel, sem reið
á vaðiö. Á forsíðu tímaritsins birtist
afar umdeild, sviösett mynd þar sem
bókmenntapáfi Þýskalands, Marcel
Reich-Ranicki, er að rífa bókina í
tvennt. Á innsíðum lýsti hann skáld-
söguna gjörsamlega misheppnaða.
Ýmsir aðrir gagnrýnendur hafa látiö
svipuð ummæli falla. Súddeutsche
Zeitung er eiginlega eina stórblaðið
sem hefur hælt sögunni og jafnað
henni við Doktor Faustus, eitt af
stórverkum Thomasar Mann.
Gunter Grass, sem nú er 67 ára,
hefur um árabil verið í hópi áhrifa-
mestu og umdeildustu rithöfunda
Giinter Grass
Ein weítes Feid
Umsjón
Elías Snæland Jónsson
Þýskalands. Hann fæddist árið 1927
í Danzig (Gdansk í Póllandi), gegndi
herþjónustu undir lok síðari heims-
styrjaldarinnar í þýska hernum, bjó
svo í París og víðar eftir stríðið og
stundaði ritstörf: orti ljóð og samdi
leikrit, ritgerðir og sögur.
Það var fyrst með útgáfu skáldsög-
unnar Die Blechtrommel árið 1959
að hann varð þekktur bæði í heima-
landi sínu og víða um heim. Síðan
hefur Grass samiö íjölmargar skáld-
sögur og tekið um leið mjög virkan
þátt í stjórnmálum sem vinstrisinn-
aður og gagnrýninn jafnaöarmaður.
Hefur hann af þeim sökum lengi ver-
ið umdeildur í heimalandi sínu.
Nýlenda
Vestur-Þjóðverja?
Nýja skáldsagan segir frá Theo
Wuttke, austurþýskum sendisveini
sem gerist starfsmaður Treuhand-
stofnunarinnar sem fékk þaö verk-
efni eftir fall Berlínarmúrsins árið
1990 að koma austurþýsku ríkisfyrir-
tækjunum í hendur einkaaðila.
Fall múrsins og þar með kommún-
ismans í austurhluta Þýskalands og
sameining landsins er þannig þunga-
miðja frásagnarinnar. Grass telur að
Vestur-Þjóðverjar hafi innlimað
Austur-Þýskaland í ríki sitt eins og
hveria aðra nýlendu og farið hrak-
smánarlega meö austurþýsku íbú-
ana. Hann setur þessa meðferð í sam-
hengi við þýska sögu, svo sem sam-
einingu Þýskalands á síðustu öld og
innlimun Austurríkis á nasistatím-
anum. Þessi afstaða fellur ekki í
kramið hjá þýskum gagnrýnendum
né pólitíkusum.
Stendur Grass þessa aöför af sér?
Því er vandsvarað nú. En eftir árás-
ina heiftarlegu í Der Spiegel rifjaðist
upp að Reich-Ranicki skrifaði annan
ritdóm fyrir 36 árum þar sem hann
hakkaði í sig nýja skáldsögu og taldi
hana lítils virði. Hann vill vafalaust
gleyma þeim ritdómi nú því þar gerði
hann lítið úr einni merkustu skáld-
sögu eftirstríðsáranna í Þýskalandi.
Jú, einmitt, Die Blechtrommel eftir
Grass.
Metsölukiljur
Bretland
Skáldsögur:
1. Tom Clancy:
Debt of Honour.
2. Anais Nin:
A Model.
3. Oscar Wilde:
The Happy Prince.
4. Italo Calvino:
Ten Italian Folk Tales.
5. Patricia D. Cornwell:
The Body Farm.
6. Graham Greene:
Under the Garden.
7. Anton Chekhov:
The Black Monk.
18. Patricia Highsmith:
Little Tales of Misogyny.
9. Maeve Binchy:
The Glass Lake.
10. Danielle Steel:
Accident.
Rlt almenns eðlis:
1. Vírginia Woolf:
Killing theAngel inthe House.
2. Etizabeth David:
l'll Be with You in the
Squeezing of a Lemon.
3. Marcus Aurelius:
Meditations.
4. Albert Camus:
Summer.
5. Sigmund Freud:
Five Lectures on
Psycho-Analysis.
6. James Herriot:
Seven Yorkshire Tales.
7. Kahlil Gibran:
Prophet, Madman, Wanderer.
8. Paul Theroux:
Down the Yangtze.
9. Camille Pagila:
Sex and Violence, or Nature
and Art.
10. Spike Milligan:
Gunner Milligan 954024.
(Byggt á The Sunday Timas)
Danmörk
1. Jung Chang:
Vilde svaner.
2. Joanna Trollope:
Den spanske elsker.
3. Lise Norgaard:
Kun en pige.
4. Jostein Gaarder:
Sofies verden.
5. Bao Ninh:
Krigens sorg.
6. Ib Michael:
Vanilíepigen.
7. Guneli Gun:
Pá vejen til Bagdad.
(Byggt á Politiken Sondag)
Vísindi
Næringarfræðingar ræða jámþörf mannskepnunnar:
Of mikið jám getur
líka verið hættulegt
Neysluvenjur geta orsakað of mikið járn í líkama mannanna.
Hávaðinn
útilokaður
Vísindamenn við háskólann í
Southampton hafa fundiö aðferð
til aö eyða hávaða úr stereogræj-
um. Uppgötvun þeírra gæti bjarg-
aö þúsundum manna sem ekki
verður svefnsamt vegna tónlist-
arflutnings nágrannanna.
Tækið sem bresku visinda-
mennimir bjuggu til er á stærð
við lítinn geislaspilara. Það nem-
ur óhljóðin sem koma úr græjum
grannans og spilar þau aftur og
sendir til fööurhúsanna. Við það
eyðast þau.
Vísindamennirnír vonast til að
hægt verði að setja hávaðaban-
ann á markað fyrir jólin 1997.
Langminnsta
pumpan
Þýskir vísindamenn i Munchen
hafa búið til minnstu pumpu í
heimi. Hún er sjö millímetrar á
hæð og breidd, búin til úr silíkoni
og getur dælt 14 míkrólítrum af
vökva á sekúndu.
Pumpa þessi getur komiö að
ýmsu gagni og hún vekur vonir
um að einhvern tíma verði hægt
að búa til gembris fyrir sykur-
sjúka sem gefur frá sér fyrirfram
ákveð magn insúlíns. Sjúklingar
mundu þá losna viö að sprauta
sig og insúlíngjöfin yrði jafnari
og því betri fyrir efnaskiptakerf-
ið.
Umsjón
Guðlaugur Bergmundsson
Járnskortur er mikið og vel þekkt
heilsuvandamál en andstæða hans,
of mikið magn járns, vekur ekki jafn
mikla athygli. Vísindamenn hafa þó
uppgötvað í seinni tíð að of mikið af
járni getur haft í for með sér alvar-
lega kvilla. Vandinn er bara sá að er
ekki með vissu vitað hversu mikið
járn mannskepnan þarf.
Þetta kom fram á alþjóðlegri ráð-
stefnu sem haldin var í Stokkhólmi
nýlega þar sem margir fremstu nær-
ingarfræðingar heimsins komu sam-
an og kynntu niðurstöður rannsókna
sinna.
Margar rannsóknir tóku fyrir
áhrifin af völdum umframjárns. Það
hefur til dæmis sýnt sig að erfðaefni
geta orðið fyrir skaða og að frumur
líkamans geta tapað hæfninni til að
vernda sig gegn eituráhrifum og
áhrifum geislavirkni. Þá eykst hætt-
an á krabbameini og lifrarskemmd-
um. Umframjámið er alla jafna af
völdum erföaþátta en neysluvenjur
geta einnig orsakað það.
Visindamennirnir bentu samt á að
járnskortur væri áfram miklu alvar-
legra vandamál, einkum í fátækum
löndum. Á sama tíma benda flestar
rannsóknir á að auðvelt sé að ráöa
bót þar á með breyttu mataræði.
„Fólk sem borðar kjöt reglulega,
skortir sjaldan jám. En fólk sem lifir
aðallega á kornmeti þjáist oft af
járnskorti," segir Thomas Bothwell,
prófessor viö Witwatersrand-háskól-
ann í Suður-Afríku.
Bothwell leggur áherslu á, eins og
margir aðrir vísindamenn, aö menn
séu ekki alveg vissir hvar skilin milli
of lítils og of mikils járns hggi.
„Þaö er knýjandi þörf á nýjum
viðmiðunarreglum um jámþörfina.
Við vitum ekki hvað er eðlilegt fyrir
ungbörn, fyrir unghnga, eöa full-
orðna menn og konur,“ segir Olle
Hemell, prófessor \dð háskólann í
Umeá í Svíþjóð.
Hann hefur sjálfur rannsakað járn-
þörf hjá ungum börnum og komist
að þeirri niðurstöðu að hún sé mis-
munandi eftir aðstæðum hverju
sinni. Barn sem nærist á móður-
mjólkinni fær allt sitt járn úr henni.
Aftur á móti þurfa börn sem nærast
á þurrmjólk aö fá viðbótariárn.
Hernell bendir þó á að oft sé ung-
börnum sem þurfa meira járn gefið
heldur mikið af því.
Konumar
púla lengur
Konur þurfa að ieggja miklu
meira á sig en karlar ætli þær sér
að brenna umframfitunni. Nancy
Keim, bandariskur næringar-
fræðingur, segir að til að brenna
300 kaloríum verði konur að
stunda likamsþjálfun tvisvar
sinnum lengur en karlar.
Aðrar rannsóknir hafa þó bent
til hins gagnstæða, þ.e. að konur
brenni meiri fitu en karlar. Keim
segir því að frekari rannsókna sé
þörf.
„Ég held aö hið sanna hafi ekki
enn komiö í ljós,“ segir hún.
Rannsókn Keim og félaga henn-
ar bendir til að líkamsrækt stuöh
ekki aö jafh mikilli megrun og
búist var við. Enginn vafi leikur
hins vegar á að líkamsrækt og
minni fæöuneysla en áður eru
megrandi.
Elsti bátur-
inn á safn
Búist er viö að elsti bátur Afr-
íku, 8500 ára gamall eintrjáning-
ur sem liggur undir árfarvegi í
norðausturhluta Nígeríu, muni
sjá dagsins ljós eftir tvö ár. Bátur-
inn verður þá samstundis varð-
veittur í sykri en siöan settur á
safn sem yfirvöld í fylkinu Yobe
eru að láta reisa yfir hann.
Vísindamenn grófu bátinn upp
á siðasta ári og síðan hafa þeir
veríð að leíta Qármagns tO að
hægt væri aö hafa hann til sýnis
í viðeigandi umhverfi.
Vonast er til að mannvistarleif-
ar frá forsögulegum tíma finnist
einnig í árfarveginum.