Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.1995, Qupperneq 23

Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.1995, Qupperneq 23
■ LAUGARDAGUR 2. SEPTEMBER 1995 23 Ástin kviknaði í gegnum tölvu Þórhallur Ásrmmdsson, DV, Sauðárkróki: Ástin á sér engin landamæri, seg- ir einhvers staöar, og á öðrum stað að vegir ástarinnar séu órannsak- anlegir. Ástin hefur orðið mörgum skáldum og rithöfundum yrkisefni, spekingum íhugunarefni og slúð- urberum umtalsefni. Stundum fréttist af því að vegir elskenda hafi legið saman á skemmtilegan og óvæntan hátt, í sumum tilfellum að því er virðist fyrir einskæra til- viljun. Blaðamaður DV hafði spurnir af því að ungur maður á Sauðárkróki hefði komist í kynni við sína heitt- elskuðu á fremur óvenjulegan hátt, nefnilega með aðstoð heimilistölv- unnar. Notkun Internetsins eða Veraldarvefsins hefur verið tals- vert í umræðunni og fréttum síð- ustu misserin og það má næstum segja að Sauðkrækingurinn ungi hafl náð í hina bandarísku kærustu sína á Interneti. Reyndar komst hann í kynni við hana í gegnum gagnabanka á Keflavíkurílugvelli en Internetið kom þeim síðan að góðu gagni eftir að hún fór burt af Vellinum og heim til Bandaríkj- anna. Ástfangnasta parbæjarins Sauðárkrókur er ekki stærri bær en svo að þar þekkjast flestir, að minnsta kosti í sjón. Það hefur ekki fariö fram hjá bæjarbúum í sumar að eitt allra ástfangnasta par bæj- arins í vor og sumar eru Jakob Ragnarsson og hin bandaríska kærasta hans, Judi Coolen frá Massachusetts. Þau eru bæði 23 ára gömul, starfa í sútunarverksmiðj- unni Loðskinni og eru um þessar mundir að gera það upp viö sig hvort þau ætli að koma sér upp heimili hér á landi eða í Bandaríkj- unum. Þau Judi og Jakob tóku ágætlega í það að eiga viðtal við DV en reynd- ar varð Jakob svolítið vandræða- legur þegar blaðamaður minntist á að það færi ekki á milli mála hversu ástfangin þau væru. Jakob er nefnilega ákaflega hlédrægur piltur, einrænn með afbrigðum og hans hefur lítið orðið vart í skemmtana- og félagslífi bæjarins. Því kom það mörgum kunningjum hans á óvart þegar hann einn góð- an veðurdag birtist með kvenmann upp á arminn. Hélt að hann væri 14 ára „Það er alveg rétt að okkar kynni hófust í gegnum tölvu og mér varð fljótlega ljóst að þetta var ákaflega aðlaðandi manneskja sem ég var að spjalla við. Það hefur alltaf veriö til tölva heima og ég hef notfært mér hana eins og mig hefur langað til. Ég fór samt eiginlega ekki að fikta í tölvunni af alvöru fyrr en fyrir fimm árum og það eru ekki nema tvö ár síðan ég fór að nota módem. Þetta er svo sem sáraein- falt, þarf enga snillinga til. Maður er þarna bara að ná sér í forrit og líka er hægt að komast í samband við fólk og spjalla við það. Ég komst í kynni við Judi í gegnum gagna- banka á Keflavíkurflugvelli. Þetta byrjaði rétt eftir jóhn 1993.“ „Einhvern veginn komst það inn í kollinn á mér að Kobbi væri bara 14 ára. En fljótlega eftir að við • - '■■ . ■ . : r V;‘ ^ ' :i-.. ■ ■ 0 :: '.': • ■ .-'/f um saman fyrst ákváðum við að hittast fyrir sunnan,“ segir Jakob. „Jeff, fyrrverandi manninn minn, fór fljótlega að gruna eitt- hvað en ég sagði honum frá Kobba og að hann væri bara 14 ára. Þá fannst honum það allt í lagi og að ekkert gæti gerst,“ segir Judi. Á þessum tíma hafði hjónaband Judi og Jeffs fjarað út og það var ákveðið að þegar þau færu út til Bandaríkjanna vorið 1994 myndi leiðir þeirra skilja. Þau Judi og Jakob héldu sambandinu og hittust nokkrum sinnum og eftir aö Judi fór til Bandaríkjanna í maímánuði 1994 kom hann fljótlega í heimsókn og dvaldi þá í tæpa tvo mánuði. „Ég fór síðan aftur út í desember síðastliðnum og fór þá að vinna í því að koma henni hingað heim til Islands þó svo að hún hafi nú ekki kunnað neitt sérstaklega vel við sig meðan hún var á Keflavíkurflug- velli,“ segir Jakob. ■ „Nei, mér leiddist alltaf þau þrjú ár sem ég var þar. Alltaf rigning og stormur og leiðinlegt veður. Ég kann miklu betur við mig hérna á Sauðárkróki.“ Opinskárri gegnum tölvu Af tölvuáhuga þeirra Jakobs og Judi er það að segja að hann hefur minnkað mikið eftir að þau fóru að dvelja samvistum- enda leyfa hveitibrauðsdagar ekki svo tíma- freka tómstundaiðju. „Ég held að á margan hátt sé gott fyrir fólk að kynnast með því að tala saman gegnum tölvu. Tjáskipt- in verða opinskárri vegna þess að maður þorir að segja ýmsa hluti sem maður mundi aldrei segja aug- liti til auglitis. Og síðan er náttúr- lega alltaf hægt aö skella á ef manni finnst viðmælandinn eða maður sjálfur hafa gengið of langt,“ segir Judi. Judi Coolen og Jakob Ragnarsson við tölvuna sem varð örlagavaldur í lífi þeirra. DV-mynd Þórhallur töluðum saman í fyrsta skipti þurfti ég að ná sambandi við hann aftur og þá sagði hann mér að hann væri 21 árs. Ég trúði honum ekki fyrst því það er nú þannig að mað- ur getur aldrei verið viss um að viðmælandinn sé að segja satt öðruvísi en að ganga úr skugga um það. Það er nefnilega fullt af skrýtnu fólki í tölvuheiminum. En eftir þetta fórum við samt að tala saman og samtöhn urðu lengri og lengri, svo klukkutímum skipti,“ segir Judi. Stefnumót eftirþrjárvikur „Já, það er nú reyndar ekki fljót- virkasta aðferðin við að kynnast fólki að tala saman í gegnum tölvu og reyndar ekki sú ódýrasta heldur þó svo að mér hafi tekist með að- stoð tölvunnar og Internetsins að komast í ódýrt símasamband við Judi eftir að hún var komin til Bandaríkjanna. Við töluðum líka saman í síma og þegar um þrjár vikur voru liðnar frá því við töluð- IM Samkvæmisdansar: Standard og suður-amerískir • Gömlu dansarnir • Tjútt • Barnadansar Holl og góð hreyfing fyrir alla fjölskylduna Innritun í símum 553 6645 og 568 5045 Alla daga kl. 12-19. Kennsla hefst 10 sept. Skírteini afhent í Bolholti 6 laugardaginn 9. sept. kl. 12 - • Fjölskylduafsláttur • Systkinaafsláttur •Allir afslættir gilda aðeins á skírteinaafhendingu 19 Opið hús miðvikud. 6. sept. kl. 18-21. Starfsemi vetrarins kynnt. DWSSKÓLI Jóns Péturs og Köru Umboðsaðili fyrir hina frábœru Supadance dansskó Dansráð fslands Tryggir rétta tilsögn

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.