Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.1995, Blaðsíða 26
26
LAUGARDAGUR 2. SEPTEMBER 1995
Á toppnum
Lagiö Missing með bresku
hljómsveitinni Everything but
the Girl situr í toppsæti íslenska
listans aöra vikuna í röö. Lagið,
sem er búið að vera í fjórar vik-
ur á listanum, hefur mikið verið
spiiað á útvarpsstöðvum að imd-
anfómu. Everything but the Girl
var stofnuð árið 1983 og hefur
komið með eitt og eitt lag .sem
hlotið hefúr vinsældir. Missing,
sem er frekar rólegt lag, kom fyrst
út fyrir ári en hefúr nú verið end-
urútgefið.
Nýtt
Lagið AU over You, með hljóm-
sveitinni Live, kemur nýtt inn á
listann og lendir í 25. sæti. Hér er
á ferðinni bandarísk rokkhljóm-
sveit sem vakið hefur nokkra at-
hygli en sveitin gaf út sína fyrstu
plötu fyrir um þremur árum.
Þess má geta að Live átti annað
lag á íslenska listanum fyrir
skömmu sem hét I Alone.
Hástökk
Hástökk vikunnar er lagið Let
Me Be the One með hljómsveit-
inni Blessed Union of Souls. Lag-
ið, sem er búið að vera á listan-
um í tvær vikur, var í 39. sæti í
síðustu viku en er nú komið í 14.
sæti. Þaö verður spennandi að sjá
hvort lagið kemst ofar á listann
á næstu vikum.
Goldie
stendur í
ströngu
Goldie heitir maður sem hafið
hefúr svokallaða, jungle" tónlist
til vegs og nokkurrar virðingar.
Og slíkur frumkvöðull sem hann
er hefur hann í mörgu að snúast
og verður þá eitt og annað und-
an að láta. Á dögunum var hann
staddur um borð í flugvél British
Airways sem var um það bU að
fara í loftið. Hringir þá ekki sím-
inn í vasa Goldies og athafnamað-
urinn sá svarar eins og vera ber.
Uppi verður fótur og fit og flug-
freyja skipar honum að slökkva
á símanum enda séu slík tól með
öUu bönnuð um borð í flugvélum
British Airways. Goldie andmæl-
ir og segist ekki hafa vitað af
banninu og heldur samtalinu
áfram enda hugsanlega mikið í
húfi. Flugmaðurinn gerir sér þá
lítið fyrir og snýr flykkinu við og
heldur aftur aö flugstöðinni en
tilkynnir samferðamönnum
Goldies samtímis hver beri
ábyrgðina á töfrnni. Varð mikiU
kurr meðal farþega og lét Goldie
lítið fyrir sér fara. Var dáða-
drengurinn góði síðan dreginn
frá borði; flugmiði hans ógUtur
og eftir frekari mótmæli var
hann settur í ævflangt flugbann
með British Airways.
w I SLIL\SKI LIS' VIIÍIJXA 2.9. ÍIW \ll. 133 95 - 8.9. '95
ÞESSI VIKA s .1 U. f\i ■«| PI* 40
1 _ 1 7 4 MISSING EVERYTHING BUT THE GIRL
2 2 2 7 ‘74-'75 CONNELS
G) 9 . 2 COUNTRY HOUSE BLUR
4 3 8 3 SUPERSTAR ÚR SUPERSTAR
5 5 4 4 ÁSTIN DUGIR UNUN OG PÁLL ÓSKAR
Cfi) 7 17 3 FAT BOY MAX A MILLION
7 4 1 6 ENGU ER AÐ KVÍÐA ÚR SUPERSTAR
<3> 10 11 6 SHY GUY DIANA KING
Ga) 14 19 5 ALRIGHT SUPERGRASS
(m> 13 - 2 VÍSINDASPUNI ÚR ROCKY HORROR
CTt) 15 22 4 YOU ARE NOT ALONE MICHAEL JACKSON
12 6 3 5 TÍÐHNIT ÚR ROCKY HORROR
13 8 6 6 VILLIDÝR SÁLIN HANS JÓNS MÍNS
Gí) 39 2 — HÁSTÖKK VIKUNNAR... LET ME BE THE ONE BLESSED UNION OF SOULS
15 11 5 7 A GIRL LIKE YOU EDWYN COLLINS
16 27 38 3 COLORS OF THE WIND VANESSA WILLIAMS
17 12 9 6 WATERFALLS TLC
18 16 13 6 SAY IT AIN'T SO WEEZER
19 25 27 4 BÍ BÍ TWEETY
20 17 21 3 UPP í SVEIT STJÓRNIN HANS BUBBA MÍNS
(5) 23 30 3 ONLY WANNA BE WITH YOU HOOTIE & THE BLOWFISH
22 20 34 3 FALLINTN LOVE LA BOUCHE
(5) 31 33 3 SEI LA PIU'BELLA DEL MONDO RAF
(5) 36 - 2 BABY, NOW THAT I FOUND YOU ALISON KRAUSS
25 1 ALL OVER YOU ' LIVE
NÝTT
26 19 12 11 HOLD ME, THRILL ME, KISS ME U2
27 24 26 3 RING MY BELL HUNANG
28 30 - 2 MIKIÐ ERTU UÚF GCD
29 NÝTT 1 THIS IS A CALL FOO FIGHTERS
30 21 15 10 l'LL BE THERE FOR YOU THE REMBRANTS
31 40 . 2 BLACK ROSES INNER CIRCLE
(32) 35 35 5 NEVERFORGET TAKETHAT
(33 NÝTT 1 BAD TIME JAYHAWKS
34 18 16 5 IT'S IN HER KISS KIKITUP
35 m 1 THIS TIME l'M FREE DR. ALBAN
36 mm 1 ONTHEBIBLE " DEUCE
37 22 14 5 ALVEG ÆR SIXTIES
38 38 40 3 THE FIRST CUT IS THE DEEPEST PAPA DEE
39 de) NÝTT 1 ALL I NEED TO KNOW FOREIGNER
JlÝTjtí 1 HAPPY JUST TO BE WITH YOU MICHELLE GAYLE
Kynnir: Jón Axel Ólafsson
Islenski listinn er samvinnuverkefni Bylgjunnar, DVog Coca-Cola á Islandi. Listinn er niöurstaða skoðanakönnunar sem er framkvæmd af markaðsdeild DV ihverri viku.
Fjöldi svarenda er á bilinu 300 til 400, á aldrinum 14 til 35 ára af öllu landinu. Jafnframt er tekið mið afspilun þeirra á islenskum útvarpsstöðvum. Islenski listinn birtist
á hverjum laugardegi i DV og er frumfluttur á Bylgjunni kl. 13.00 'á laugardögum. Listinn er birtur, að hluta, i textavarpi MTV sjónvarpsstöðvarinnar. Islenski listinn
tekur þátt i vali “World Chart“ sem framleiddur eraf Radio Express i Los Angeles. Einnig hefur hann áhrifá Evrópulistann sem birtur er i tónlistarblaðinu Music & Media
sem er rekið af bandariska tónlistarblaðinu Billboard.
Yfirumsjón með skoðanakönnun: Hrafnhildur Kristjánsdóttir - Framkvæmd könnunar: Markaðsdeild DV - Tölvuvinnsla: Dódó - Handrit: Sigurður Helgi
Hlöðversson, Ágúst Héðinsson og Ivar Guðmundsson - Tæknistjórn og framleiðsla: Þorsteinn Ásgeirsson og Þráinn Steinsson - Útsendingastjórn: Halldór Backman
og Jóhann Garðar Ólafsson - Yfirumsjón með framleiðslu: Ágúst Héðinsson - Kynnir: Jón Axel ólafsson
BgjÍP
UB40 tapar
málaferlum
Drengirinir í UB40 töpuðu
málaferlunum við Deboruh
Banks frá Birmingham sem hélt
því fram að hún ætti stóran þátt
í texta lagsins fræga, Don’t Break
My Heart frá 1985. Deborah, sem
fengist hefur við ljóðagerð, lét
einn kunningja sinn hafa ljóð á
sínum tíma sem hann kom á
framfæri við UB40. Fyrir það
fékk hann eina miUjón króna og
sagðist myndu gera upp við höf-
undinn. Það gerði hann auðvitað
ekki og því greip Deborah að lok-
um tU þess ráðs að fara í mál við
hljómsveitina. Og nú hefur hún
unnið málið og á von á nokkrum
fúlgum fyrir vikið.
Við semjum
ekki fyrir
England
Audree WUson, móðir Brians
WUson og þeirra WUson bræðra
í Beach Boys, hefúr höfðað mál á
hendur útgáfufyrirtækinu
HarperCollins vegna ummæla
sem frnna má í bókinni Would’nt
It Be Nice - My Own Storie sem
kom út 1991 og fjaUar um ævi Bri-
ans WUson. I bókinni eru ófagr-
ar lýsingar á frú WUson og henni
lýst sem rorrandi drykkjurút
sem hafi látið uppeldi barna
sinna lönd og leið. Audree WU-
son er þriðji meölimur WUson
fjölskyldunnar sem höfðar mál
vegna ummæla í bókinni; hinir
eru Mike Love og Carl Wiíson.
Tríóið Manic
Street
Preachers
Breska hljómsveitin Manic
Street Preachers hefur ákveðið
að halda starfi áfram sem tríó en
sem kunnugt er hvarf Richey Ed-
wards, gítarleikari sveitarinnar,
með dularfuUum hætti í vetur
sem leið og hefur ekkert tU hans
spurst síðan.
Plötufréttir
Tricky er með nýja plötu í
smíðum en hún mun þó ekki
koma út í hans nafni. Skýringin
er sú að hann hefur sett eigið
plötufyrirtæki á laggimar en er
sjálfur enn samningsbundinn
annarri útgáfú. Platan kemur því
út undir nafninu Starving Souls
... Sharkboy sendir frá sér aðra
plötu sína innan tíðar og mun
hún bera nafriið The Valentine
Tapes . . . Sögusagnir um að
breska hljómsveitin James sé að
hætta eru með öUu tilhæfulaus-
ar, segja talsmenn sveitarinnar
og boða samtímis nýja plötu frá
sveitinni um mitt næsta ár... Og
Marc Almond hefur lokið upptök-
um á nýrri pötu, Fantastic Star,
sem kemur út upp úr miðjum
október ... -SþS-