Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.1995, Qupperneq 35

Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.1995, Qupperneq 35
LAUGARDÁGUR 2. SEPTEMBER 1995 43 Ljósmyndasýningin World Press Photo '94 hefst í Kringlunni 16. september: Alsettur örum eftir Ljósmynd ársins á sýningunni World Press Photo ’94 sem fram fer í Kringlunni, á vegum DV og Kringlunnar, 16. september til 1. október. Myndin af Hútúmanninum unga, sem James Ailan Nachtwey tók á Rauða kross spítala, þykir bera atburðunum í Rúanda dapurlegt vitni. Hann var limlestur með gaddavír reyrðan um höfuð sér en ofbeldisflokkur Hútúa taldi hann vinveittan Tútsímönnum. ógnaröld í Rúanda Ljósmyndasýningin World Press Photo ’94 hefst í Kringlunni laugar- daginn 16. september. Þá mun mynd- in hér aö ofan, sem valin var frétta- ljósmynd ársins í fyrra, veröa til sýn- is ásamt tugum verðlaunaðra ljós- mynda. Sýningin, sem haldin er í samvinnu Kringlunnar og DV, vakti mikla athygli í Kringlunni í fyrra en þar var hún einnig haldin áriö á undan. Verölaunamyndina fyrir árið 1994 á Bandaríkjamaðurinn James Allan Nachtwey. Hún er af ungum Hútú- manni, einu af tugþúsundum fórnar- lamba borgarastríösins í Rúanda. Skærur milli manna af Tútsí- og Hútúættbálkum höföu staðiö í mörg ár þegar upp úr sauð í apríl í fyrra. Þá fórst forseti Rúanda, Hútúmaöur- inn Habyarimana, í flugslysi nærri höfuöborginni. Eftir slysið herjuðu Hútúmenn af milli hörku á Tútsía, sem voru í miklum minnihluta, og á hófsama Hútúa. Afleiðingin varö gíf- urlegur straumur flóttamanna sem flúði skálmöldina. Myndin af Hútú- manninum unga, sem Nachtwey tók á Rauða kross spítala, þykir bera atburðunum í Rúanda dapurlegt vitni. Hann var limlestur með gaddavír reyrðan um höfuö sér en ofbeldisflokkur Hútúa taldi hann vinveittan Tútsímönnum. Örin eru djúp og varanleg. Á sýningunni er líka að finna myndir frá átökum á Haítí, í Tsjetsj- eníu og fleiri svæðum. Einnig er að finna glaðlegar myndir, meðal ann- ars úr íþróttum og daglegu lífi fólks í fjölda landa. Sýningunni World Press Photo er skipt í flokka og eru veitt verðlaun fyrir þrjár bestu myndirnar í hverj- um flokki. Þessir flokkar eru: frétta- myndir, myndir af einstökum at- burðum, almennar fréttamyndir, fólk í fréttum, íþróttir, tækni og vís- indi, listir, náttúra og umhverfi og daglegt líf. Hverjum flokki er síðan skipt í flokka stakra mynda og myndraðir (stories). Þúsundir mynda Alþjóðleg dómnefnd kom saman í febrúar í ár. Við henni blasti ærið verkefni þar sem um 30.000 myndir 2.997 ljósmyndara frá 97 löndum biðu skoðunar. Ljósmyndasýningar á vegum World Press Photo hafa veriö haldn- ar frá árinu 1955. Að baki þeim stend- ur sjóður sem hefur það að mark- miði aö verðlauna bestu fréttamynd- ir hvers árs. Höfuðstöðvar World Press Photo eru í Hollandi en verð- * launaféð kemur frá styrktaraðilum víða um lönd. Sumarmyndirnar og sýningvegna afmælis DB Samhliöa World Press Photo sýn- ingunni fer fram sýning á myndum úr Sumarmyndakeppni DV og Hans Petersen. Sunnudaginn 17. septemb- er verða veitt verðlaun fyrir bestu sumarmyndirnar og þær sýndar í sérstökum bás. Frá og með 11. september verða til sýnis myndir, einnig í Kringlunni, sem sérstaklega eru valdar í tilefni af því að 20 ár eru hðin frá stofnun Dagblaðsins. Veröa þær myndir til sýnis jafn lengi og World Press Photo sýningjn stendur eða til 1. október. „Þaö er áhugavert aö fylgjast með hvert fréttaljósmyndun stefnir. Nú er tími breytinga. Hinir hefð- bundnu miðlar, þar sem myndir okkar hafa birst til þessa, munu áfram verða tU. Það verða varla s vo miklar breytingar á því sviði. En þaö verða not fyrir Ijósmyndir í öðrum miðlum. Kyrrmyndir munu verða meira notaðar á myndbönd- um, geislaskífum og í tölvusam- skiptum. Það eru margvísieg not fyrir kyrrmyndir og það er einnig þörf fyrir þær. Þetta tjáningarform er einstakt og mjög áhrifaríkt Fólk þarf á ijósmyndum aö halda til að skilja hvað er að gerast í heimin- um. Þróunin í fiölmiðlun og margmiölun hefur síðan aukið möguleika okkar,“ segir banda- riski blaðaljósmyndarinn James AUan Nachtwey. Nachtwy hlaut World Press Photo-verðlaunin fyrir bestu fréttamynd ársins 1994. Hann er 47 ára gamail, sjálfmenntaður í Ijós- myndun. Hann nam stjómmála- James Allan Nachtwey. fræði og listir áður en Ijósmyndun- in varð hans aðalviðfangsefni. Þetta er 1 annaö skipti sem mynd eftir hann er valin besta mynd árs- ins hjá World Press Photo en hann hefur áður hlotið margvísleg verð- laun fyrir myndir sínar. Nachtwey ferðast um ailan heim í leit að myndefni og hefur myndað mörg stríö. Hann hefur tekið mikiö af myndum fyrir tímaritið Time og þakkar húsbændum þar á bæ fyrir að hafa gefið sér frjálsar hendur. Þrátt fyrir nám í stjórnmálafræöi segist hann nálgast viðfangsefni á mannlegum forsendum. En áhuga hans á Ijósmyndun má rekja tii námsáranna, þegar Víetnamstríðið geisaði. „Afrakstur fréttaljósmyndara gerðu mér og þjóð minni kleift að horfast í augu viö veruieika striðs- ins á sama hátt og hermennirnir sjálfir. Myndimar mótuðu mjög almenningsálitið og leiddu til kröft- ugra mótmæla gegn stríðinu. Þess- ar myndir opnuðu augu mín fyrir áhrifum ljósmyndarinnar. Þegar ég ákvað að gera ljósmyndun að aöalstarfi fetaði ég í sömu fót- spor,“ segir Nachtway. Hann hefur mikinn áhuga á að vinna meira í Tstjetsemu. Þá vill hann kafa dýpra í viðfangsefni sín og hugar að útgáfu bóka, m.a. um Suöur-Afriku.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.