Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.1995, Page 36
44
LAUGARDAGUR 2. SEPTEMBER 1995
Sviðsljós
Sjónvarpsstjaman Oprah Winfrey:
Hún lifir fyrir starf sitt
Sjónvarpsstjarnan Oprah Winfrey,
sem er 41 árs, er með auðugustu kon-
um Bandaríkjanna. Hún hefur þó
ekki alltaf verið vel efnum búin því
Oprah ólst upp í mikilli fátækt. Stöð
2 sýnir nú á laugardögum þætti
Oprah en þeir eru sýndir víða um
, heim við miklar vinsældir. í þáttun-
um ræðir Oprah opinskátt við fólk
^ sem hefur lent í ýmsu misjöfnu um
ævina. Sjálf hikar hún ekki við að
segja frá eigin reynslu en hún var
misnotuð kynferðislega þegar hún
var níu ára gömul og síðan send á
heimili fyrir vandræðabörn.
Sagt er að Oprah þéni um 300 þús-
und krónur á hverri mínútu meðan
hún er á skjánum. Hún lét sig heldur
ekki muna um að gefa bestu vinkonu
sinni 80 milljónir í jólagjöf.
Sagt er að Oprah sé drottning
spjallþáttanna. Þættir hennar, The
Oprah Winfrey Show, eru nú sendir
til yfir 70 landa um víða veröld.
Oprah byrjaði með þætti sína árið
1986 en áður en þaö gerðist hafði hún
leikið í kvikmyndinni The Color
^ Purple sem Steven Spileberg leik-
stýrði. Oprah fór með hlutverk Sofiu
í myndinni og hlaut bæði hin virtu
Golden Globe verðlaun og tilnefn-
ingu til óskarsverðlauna fyrir leik
sinn.
Hreinskilin stjarna
Fáar stjörnur hafa veriö jafn hrein-
skilnar um líf sitt og Oprah í gegnum
sjónvarpsþátt hennar. Hún hefur
sagt frá misnotkun, lyíjanotkun og
sjálfsmorðshugleiðingum. Um leið
hefur hún háð erfiða baráttu við
aukakílóin. Þegar hún var þyngst
var hún yfir hundrað kíló. „Eg er
ekkert öðruvísi en þær konur sem
horfa á þáttinn minn,“ segir hún. „Ég
óska mér hins sama í lífinu og þær.“
Þrátt fyrir ævintýralegar vinsældir
í dag hefur líf Oprah ekki alltaf verið
dans á rósum. Hún fæddist utan
hjónabands 29. janúar 1954. Fyrstu
árin sín bjó hún hjá ömmu sinni í
sveit í Mississippi. Þegar hún komst
á skólaaldur var henni kastað á milli
móður sinnar, sem bjó í Milwaukee,
og föðurins, sem bjó í Nashville, Ten-
nessee.
Strangur faðir
„Faðir minn var stangur og kröfu-
harður maður. Hann skipaði mér að
lesa eina nýja bók í hverri viku. Þar
fyrir utan varð ég að skrifa skýrslu
um efni bókarinnar auk þess að læra
fyrir skólann.
Níu ára gömul upplifði Oprah þá
martröð, sem hefur fylgt henni í
gegnum árin, að vera misnotuð kyn-'
ferðislega af nítján ára gömlum pilti
sem átti að passa hana. Síðan var
hún misnotuð af tveimur öðrum
mönnum. „Ég var alltof hrædd til að
verja sjálfa mig,“ segir hún. „Annar
maðurinn var frændi minn en á hinn
hafði ég lagt allt mitt traust."
Unglingsárin voru erfið fyrir
Oprah. Hún laug, stal peningum frá
móður sinni og hljópst að heiman.
Hún var send á vandræðabarna-
heimili en send þaðan aftur vegna
plássieysis. Þá var hún send til föður
síns.
„Pabbi hafði góð tök á mér. Áður
en ég varð sextán ára var ég orðin
vinsælasta stelpan í mínum bekk.“
Oprah fór í háskóla í Tennessee.
Nítján ára gömul var hún yngsta og
jafnframt fyrsta þeldökka konan til
að lesa fréttir á svæðissjónvarpsstöð-
inni. Lífið blasti við henni þegar hún
lenti í vonlausu ástarsambandi.
„Mér fannst ég einskis virði án
þessa manns. Því meira sem hann
hafnaði mér varð ég ástfangnari af
honum. Þá fór ég að huga að sjálfs-
morði. Ég skrifaði bréf til vinkonu
minnar og bað hana að sjá um blóm-
in mín.“
Oprah átti síðan í nokkrum mis-
heppnuðum ástarsamböndum eða
þangað til hún hitti Stedman Gra-
ham (44 ára) en hann var mikil
íþróttahetja. Þau hafa verið saman í
níu ár.
Stundar líkamsrækt
Oprah þarf að stunda mikla lík-
amsrækt daglega til að halda sér í
formi auk þess sem hún þarf að passa
allt sem hún borðar. í fyrra hijóp
Oprah maraþon og í vetur ætlar hún
að vera með þætti sem eiga aö koma
Ameríkönum úr sófanum.
En vinsældir Oprah hafa líka gefið
henni peninga. Hún er með yfir þrjá
og hálfan milljarð í árstekjur. Hún á
sitt eigið sjónvarpsstúdíó, hús í
Chicago, íbúðir í New Mexico, Col-
orado og Indiana. Hún hefur eigin
bílstjóra og einkaþotu.
Oprah hefur þó ekki gleymt úr
hvaða umhverfi hún kemur. Hún er
ákaflega gjafmild við alla sínu nán-
ustu, fjölskyldu og vini. Þá hefur hún
gefið kirkjunni sinni stórar upphæð-
ir. „Lífið er stutt og ég ætla að njóta
hverrar mínútu af því.“ Oprah hefur
ekki haft tíma til að eignast barn og
stofna fjölskyldu. Starfið hefur átt
hug hennar. Hún hefur þó löngun til
þess og hver veit hvenær þessi fræga
sjónvarpskona snýr blaðinu við. Að
minnsta kosti þarf hún ekki að kvíða
peningaleysi. Hún á miklu meiri pen-
inga en hún getur nokkru sinni eytt.
... að hlnn óhamingjusami
Macaulay Culkin (13 ára) hefði
flutt inn til hjónakornanna Micha-
els Jacksons og Lisu Marie Pres-
ley. Culltin sættir sig ekki við
skilnað foreldranna og tók boði
Jacksons um að dvelja hjá hon-
um um hríð.
... að það væri alltaf mikið um
að vera í Graceland 16. águst, á
dánardegi rokkkóngsins. Nú eru
átján ár síðan kóngurlnn lést og
enn þá streymir fólk í stórum
hópum alls staðar að úr heimin-
um að heimili hans í ágúst. Svo
var einnig nú.
...að stórstjörnurnar Tom
Hanks og Steven Spielberg væru
mjög góðir vinir og hittust oft.
Fyrir stuttu fóru þeir í sumarfri
saman og tóku náttúrlega eigin-
konurnar og börnin með. Meðal
viðkomustaða var hin Ijúfa París
og var þessi mynd tekin þar.
... að sést hefði fil Börbru Strei-
sand og Jon Voight koma út af
þekktum veitingastað í London.
Þau eru reyndar gamlir vinir en
slúðurblöðin velta því fyrir sér
hvorf eitthvað meira sé á milli
þeirra.
... að helsta yndi tískukóngsins
Karls Lagerfelds væri tísku-
drottningin Claudia Schiffer.
Reyndar eru þau bæði þýsk en
Lagerfeld hefur umsjón með
þremur stærstu tískuhúsum í
París, þar á meðal Chanel. Hann
ætti að hafa vlt á fegurð.
Dollararnir streyma til hennar
Divine Brown, vændiskonan sem fékk heiminn
til að standa á öndinni þegar frétt barst um þjónustu
hennar við leikarann Hugh Grant, hefur haft nóg að starfa
frá því hún komst í heimsfréttirnar. Ýmsir aðilar hafa boðið
henni störf, m.a. útvarpsstöð, plötuútgáfa og auglýsinga-
fyrirtæki. Divine Brown fær því sjálfsagt eitthvað fleiri
dollara þessa dagana en hún fékk fyrir
greiðann við Grant.