Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1995, Blaðsíða 6
6 'i:’ 1
LAUGARDAGUR 9. SEPTEMBER 1995
Svigunum fækkar úr 91 í 13 í lokaályktun Kvennaráðstefnu SÞ:
Fóstureyðingar og kyn-
fræðsla enn í svigum
Aðstoðarmaður
Clintons stingur
af frá árekstri
George Stephanopoulos, að-
stoðarmaður Clintons Banda-
ríkjaforseta, var handtekinn í
Washington aðfaranótt fóstudags
fyrir að stinga af frá árekstri og
vera með útrunnið ökuskírteini.
Tók lögreglumaður eftir því
hvar ökumaður bíls átti í vand-
ræðum með að aka út úr bíla-
stæði og tókst ekki betur til en
svo að hann ók utan í bíl sem
lagt var fyrir framan. Aðstoðar-
maðurinn ætlaði að aka á brott
þegar lögreglan stöðvaði hann og
var handtekinn þegar í ljós kom
að ökuskírteinið var útrunnið.
Hann mun ekki hafa verið ölvað-
ur og er búist við að málið verði
útkljáð meö dómsátt. Þetta er í
annað sinn á nokkrum mánuð-
um að aðstoðarmaður Clintons
lendir í viðlíka uppákomu. í júní
var annar tekinn drukkinn und-
ir stýri á vitlausum vegarhelm-
ingi. Sá stjómar nú rabbþætti á
kapalsjónvarpsstöð og bíður
dóms.
Krefst skaða-
bótamáls gegn
Dönum
Fyrrum sveitarstjómarmaður
í Thule á Grænlandi er afar
ósáttur við að Lars Emil Johan-
sen, formaður heimastjómarinn-
ar, skuli hafa hætt við að kæra
dönsku ríkisstjórnina til mann-
réttindadómstólsins í Strasborg
vegna nauðungarflutninga íbúa í
Thule 1953. Hann ætlar að sér að
sameina íbúa Qaanaaq um að
mæla með því að skaðabótamál
verði rekið fyrir mannréttinda-
dómstólnum. íbúar Qaanaq vom
hraktir frá heimilum sínum í
Thule með nokkurra daga fyrir-
vara og neyddir til að setjast að
140 km í burtu frá heimilum og
veiðislóð.
Deilt um riki-
dæmi Elísabetar
Talsmenn Buckingham hallar
draga í efa útreikninga breska
tímaritsins Buisness Age sem
fullyröir að eignir Elísabetar
Englandsdrottningar nemi 220
milljörðum íslenskra króna og
hún sé þar með langríkasti ein-
staklingur Bretlands. Vilja tals-
menn drottningar fá leiðréttingu
en þeir telja ekki réttmætt að
telja Buckinghamhöll og
Windsorkastala til eigna drottn-
ingar. Segja talsmenn drottning-
ar það samsvara því aö eigna
Clinton Hvítahúsið. Tímaritið
stendur hins vegar við fullyrð-
ingar sínar og segir þær byggja á
ströngum lagalegum rökum.
Árið á undan voru eignir Elísa-
betar aðeins taldar 15,8 milljarð-
ar kr. og hallirnar ekki taldar
með. Reuter
Erlendar kauphallir:
Hámark í London
og Frankfurt
Hlutabréfavísitölur í kauphöUun-
um í Frankfurt og London náðu
sögulegu hámarki sínu í vikunni.
FTSE-100 í London fór í 3557 stig og
DAX-30 fór í 2277 stig. Á báðum
stöðunum gerðist þetta sl. miðviku-
dag. Eftirspum eftir hlutabréfum
tók mikinn kipp. Markaðssérfræð
ingar telja að FTSE-100 geti hækkað
enn frekar næstu daga. Svipað gerð-
ist í WaU Street í New York en þar
fóru fjárfestar að sýna minni fyrir-
tækjum meiri áhuga en oft áður.
Hlutabréfaverð í kauphöllum í Asíu
hefur lítið breyst í vikunni.
Verð á eldsneyti á heimsmarkaði
hefur stigið upp á við síðustu daga
og er um árstíðabundna hækkun að
ræða. Sykur- og kaffiverð er svipað.
-Reuter
Talsmenn Sameinuðu þjóðanna á
kvennaráðstefhunni í Kína fuUyrtu í
gær að töluvert hefði þokast í sam-
komulagsátt um hinn umdeilda heU-
brigðiskaUa í lokaályktun ráðstefn-
unnar. En erflðustu málin, fóstureyð-
ingar, rétturinn tU að neita kynmök-
um, rétturinn tU að ákveða fjölda
bama og fjármögnun heUbrigðisáæU-
unar kvenna eru enn óleyst.
Merwat Tallawy, talsmaður þess
hóps sem fer með heilbrigðiskafla
ályktunarinnar, segir að á ráðstefn-
unni hafi tekist að halda í þann ár-
angur sem náðst hefði á mannfjölda-
ráðstefhu SÞ í Kaíró og gott betur.
Af 91 sviga utan um ýmis umdeUd
atriði við upphaf ráðstefnunnar nú
væru einungis 13 eftir. Tallawy
sagðist þó sjá fyrir að fulltrúar
Stríðandi aðilar í fyrrum
Júgóslavíu náðu samkomulagi um
þau meginatriði sem leiða eiga tU
friðar í Bosníu á tímamótasamn-
ingafundi i Genf í gær. Var þar tek-
ið fyrsta raunverulega skrefið í átt
tU friðar eftir meira en ár án nokk-
urra beinna viðræðna.
Richard Holbrooke, samninga-
maður Sameinuðu þjóðanna, sagði
að samningsaðilamir, Bosníumenn,
Króatar og fyrrum Júgóslavar,
hefðu náð samkomulagi sem væri,
þrátt fyrir takmarkanir, skref í átt
margra landa mundu setja fyrirvara
á endanlegan texta og mundi það
veikja ályktunina verulega.
Svigamir sem eftir eru umlykja
þau mál sem mestur ágreiningur er
um: réttinn tU sjálfsákvörðunar um
barneignir, rétt tU að ákveða fjölda
bama, rétt tU upplýsinga um getn-
aðarvarnir og fóstureyðingar. Þá
em ótalin kynferðisleg réttindamál,
ekki síst rétturinn tU að neita kyn-
mökum. Þá stendur kafli um ábyrgð
foreldra og aðgang hálfstálpaðra
stúlkna að kynfræðslu í mörgum
ráðstefnukonum.
Það em ekki síst fuUtrúar Vatík-
ansins, með rammkaþólsk lönd eins
og Möltu og Argentínu í broddi fylk-
ingar, sem standa vörð um svigana
þrettán en fuHtrúar frá Evrópusam-
til friðar. Hann sagði samningana
tryggja skiptingu Bosníu og sjálf-
stæði hennar en henni væri skipt tU
helminga mUli Serba og bandalags
múslíma og Króata. Hins vegar
tókst ekki að ná samkomulagi um
stöðu Slavoníu, hluta Króatíu, sem
Serbar hafa haft á valdi sínu frá
1991.
Helstu atriði samningsins em að
Bosnía-Hersegóvína verður eitt riki
með núverandi landamærum og al-
þjóðaviðurkenningu. Landinu verð-
ur skipt í tvo hluta þar sem banda-
bandinu, Sviss, Noregi og Ástralíu
vilja þá burt.
Uppistand varð á ráðstefnunni í
gær þegar hópur lesbía drót út
purpuralitan borða með áletmninni
„Réttur lesbía er einnig mannrétt-
indi“ og marglit skUti með sömu
áletmnum. Öryggisverðir Samein-
uðu þjóðanna þustu tU, hrifsuðu
borðann og plakötin og vísuðu lesb-
íunum á dyr. Tvær þeirra neituðu
að yfirgefa salinn og varð að fjar-
lægja þær með valdi.
Kínverjar anda léttar
Kínverjar önduðu léttar þegar op-
inbera og óháðu kvennaráðstefn-
unni, um klukkstundarferð frá Pek-
ing, lauk í gær. Tugþúsundir
kvenna höfðu gert kínverskum ör-
lag Króata og múslíma ræður yfir 51
prósenti og Serbar 49 prósentum.
Báöir aðUar mega hafa tvíhliða
samskipti við nágrannaríki. Aðil-
amir skuldbinda sig til að halda
kosningar undir alþjóðlegu eftirliti
og virða alþjóðamannréttindi.
Meðan á samningafundinum stóð
létu flugvélar Nató sprengjum rigna
á vígi Bosníuserba og munu halda
því áfram meðan Serbar ógna Sara-
jevo með þungavopnum sínum.
Reuter
yggisvörðum lífið leitt i 10 daga með
frjálslegri og ögrandi framkomu
sinni. Var óháða ráðstefnan flutt frá
Peking tU að heimamenn yrðu ekki
fyrir mótmælum og umræðum um
málefni sem aldrei koma upp á yfir-
borðið í opinberri umræðu í Kína.
Talsmenn óháðu ráðstefnunnar
kvörtuðu yfir mikiUi öryggsigæslu
og hindrunum sem stöðugt voru
lagðar á leið þeirra.
Á sama tíma svömðu Kínverjar
gangrýni HiUary Clinton á stefnu
kínverskra stjórnvalda gagnvart
konum. Sögðu þeir rétt kvenna al-
mennt meiri í Kína en Bandaríkjun-
um. Hömpuðu þeir þá aðallega
þeirri staðreynd að fleiri konur
kysu í Kína en Bandaríkjunum.
Reuter
Stuttar fréttir
Frökkum mótmælt
Mótmælendur í Tokyo fóru í
stærstu mótmælagöngu gegn
kjarnorkutUraunum Fi-akka tU
þessa og söfnuðust saman við
franska sendiráðið.
Jeltsín varar viö stríði
Jeltsin Rússlandsfor seti gagn-
rýndi sprengjuárásir Nató á
Bosníuserba og varaði við því að
áætlanir bandalagsins um að
sækja í austur gætu komið styrj-
öld af stað.
Gíslum hótað lífláti
Skæraliðar I Kasmír hótuðu
að drepa fjóra vestræna gísla
sína yrði ekki farið að kröfum
þeirra í kvöld.
Skemmdir lagaðar
Eyjaskeggjar í Karíbahafmu
hófust handa við að gera við eft-
ir að feUibylurinn Louis hafði
farið um með eyðileggingu.
Setið um Grant
Ljósmyndarar sátu um leikar-
ann Hugh Grant í gær en
orðrómur var á kreiki um að
vændiskonan Divine Brown æU-
aði að hitta hann en hún er
stödd í Englandi. Ekkert varð af
fundum þeirra.
Bakslag í viðræður
Aðalsamningamaður ísraela
um aukna sjálfstjóm araba á
Vesturbakkanum sagði viðræð-
urnar við PLO í uppnámi.
Dæmt vegna fangaflótta
TaUensk kona var úrskurðuð í
14 daga gæsluvarðahald granuð
um aðild að fangaflóttanum
mikla í Kaupmannahöfn á dög-
unum þar sem 9 fangar ílúðu.
Forskot minnkar
Forskot breska Verkamanna-
flokksins á íhaldsflokkinn
minnkar töluvert samkvæmt
skoðanakönnunum. Fylgi hans
hefur hrapað úr 35 í 28 prósent.
Reuter/Ritzau
Börn úr skóla gyðinga í Lyon í Frakklandi yfirgefa skólann undir ströngu eftirliti öryggisvarða. Eftirlit hefur verið hert
mjög í hverfinu eftir að sprengja sprakk þar í fyrradag. Sprengjuótti hefur gripið um sig um allt Frakkland og gæta
öryggisverðir Eiffelturnsins og annarra fjölfarinna staða í París. Símamynd Reuter
Skref stigið í átt til friðar