Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1995, Blaðsíða 21
DV LAUGARDAGUR 9. SEPTEMBER 1995
Ragnar Ingvarsson, þjálfari ágústmánaðar, með sigurlaunin.
DV-mynd Brynjar Gauti
Raith Rovers gegn ÍA á þriðjudag:
Skotarnir urðu
fyrir áfalli
Raith Rovers, mótherjar Skaga-
manna í UEFA-bikarnum í knatt-
spymu, urðu fyrir miklu áfalli í gær
þegar ljóst varð að besti varnEU'mað-
ur þeirra, Shaun Dennis, myndi
ekki spila með þeim gegn íslands-
meisturunum á þriðjudaginn.
Dennis er stór og kröftugur mið-
vörður, fyrrum leikmaður með
skoska 21-árs landsliðinu, og ræður
vanalega ríkjum í og við vítateig
Raith. Hann hefur átt við bakmeiðsl
að stríða og fékk í gær úrskurð um
að hann yrði að hvíla í minnst tvær
vikur. Þar með missir hann af
leiknum á þriðjudag, og líklega
einnig af síðari leik liðanna á Akra-
nesi þann 26. september.
Logi fór til
Skotlands í gær
Skagamenn fara til Skotlands síð-
degis í dag en þeir munu dvelja í
Edinborg. Leikurinn fer fram í
bænum Kirkcaldy, sem er um 40
kílómetra norðan við Edinborg,
klukkan 18.30 að íslenskum tíma á
þriðjudag.
Logi Ólafsson, þjálfari ÍA, fór til
Skotlands í gær til að geta fylgst
með Raith spila gegn Glasgow
Rangers í úrvalsdeildinni í dag og
stjórnaði því ekki Skagaliðinu gegn
Fram í 1. deildinni í gærkvöldi.
Útlit fyrir fulla
vál af stuðningsmönnum
Skagamenn fá góðan stuðning á
leiknum í Kirkcaldy því útlit er
fyrir að full leiguvél af áhorfendum
fari til Skotlands á þriðjudaginn.
Þegar DV ræddi við Willum Þórs-
son hjá Samvinnuferðum-Landsýn í
gærmorgun var búið að bóka um
90 sæti af 125 í ferðina. Flogið er
beint til Edinborgar um morguninn
og getur hópurinn því eytt degin-
um þar en flogið er heim strax eft-
ir leik.
Hætta Valsmenn í
Evrópukeppninni?
- spila jafnvel við Rússana í Danmörku eða Lúxemborg
Valsmenn íhuga alvarlega þessa
dagana að hætta við þátttöku í Evr-
ópukeppni meistaraliða í hand-
knattleik. Þeir drógust gegn rúss-
neska herliðinu CSKA Moskva í 1.
umferð og að sögn Brynjars Harðar-
sonar, formanns handknattleiks-
deildar Vals, er kostnaðurinn við að
leika á hefðbundinn hátt, heima og
heiman, hálf önnur milljón króna.
„Það kemur ekki til greina að
tapa slíkum upphæðum á Evrópu-
keppninni, ekki síst þar sem við
skuldum fyrir 1819 milljónir króna.
Það er verið að leita ýmissa leiða,
spila báða leikina úti eða hér
heima, og það er líka verið aö
kanna möguleikana á að spila báða
leikina á hlutlausum velli, annað-
hvort í Kaupmannahöfn eða Lúxem-
borg. Einn kosturinn er líka að
spila báða leikina í Moskvu og
reyna að fylla leiguvél af stuðnings-
mönnum okkar,“ sagði Brynjar í
gær.
Fyrri leikur liðanna á að fara
fram hér á landi 4. október þannig
að ákvörðun í málinu verður tekin
fljótlega.
Hættir Valur í samtökum
1. deildar fálaga
Brynjar segir enn fremur að útlit sé
fyrir að Valur hætti aðild að Sam-
tökum 1. deildar félaga. Valsmenn
eru óhressir með að fá aðeins 80
þúsund krónur í sinn hlut fyrir út-
sendingar í sjónvarpi frá Islands-
mótinu i handknattleik.
„Við erum að tapa verulegum upp-
hæðum á þessum sjónvarpssamn-
ingi og annaðhvort semjum við
sjálfir um okkar leiki eða þá að ekk-
ert verður sýnt frá þeim i sjónvarpi
og fólk verður þá bara að mæta á
leikina til að sjá okkur spila,“ sagði
Brynjar Harðarson.
róttir
21
Ragnar Ingvarsson, þjálfari ágústmánaðar í draumaliðsleik DV:
Spilaði gegn Skaganum
Ragnar Ingvarsson, sem hlaut tit-
ilinn „þjálfari ágústmánaðar" í
draumaliðsleik DV, fékk sigurlaun-
in afhent á fimmtudaginn. Ragnar
er frá Bolungarvík en var í sumar-
fríi í Portúgal þegar úrslitin réðust
og fékk þær ánægjulegu fréttir við
heimkomuna að hann hefði sigrað.
Hann mætti galvaskur í Þverholtið
og tók við verðlaunum sínum, 15
þúsund króna úttekt hjá sportvöru-
versluninni Spörtu.
Ragnar verður tvítugur í næsta
mánuði og knattspyrnan er stærsta
áhugamál hans. „Þegar DV kynnti
draumaliðsleikinn sá ég að þetta
var kjörið fyrir mig og eftir miklar
pælingar sendi ég inn mitt lið,“
sagði Ragnar við DV.
Ragnar er með þrjá Skagamenn í
sínu liði, þá Ólaf Þórðarson, Þórð
Þórðarson og Harald Ingólfsson, og
svo skemmtilega vildi til að í sumar
fékk hann tækifæri til að spila á
móti þeim þegar Skagamenn heim-
sóttu Bolvíkinga og vígðu nýjan
grasvöll í bænum.
„Það var mjög gaman að spila á
móti þeim, enda þótt þeir hefðu
sigrað okkur, 23_3. Ég passaði mig
að sjálfsögðu á því að slasa ekki
„mína menn,“ við skulum segja að
ég hafi farið á móti þeim með virð-
ingu! Við höfum ekki verið með í
deildakeppninni síðustu árin en
næsta sumar ætlum við aftur í 4.
deildina og þá fáum við til baka
marga af okkar mönnum sem hafa
spilað með ísfirðingum síðustu
árin,“ sagði Ragnar Ingvarsson.
VÖRULISTINN Á INTERNETINU: http://www.ri/herji.is/vorur/
Sjonvarpstölvan
486 DX2 / 80 MHZ / 4 MB / 540 MB diskur
Með Trust PCTV Home sjónvarps-/videokortinu og
margmiðlunarbúnaði notar þú tölvuna sem sjónvarpstæki!
„Full color" lltaprentarl
Prentar á glærur
Prentar á boli
30 blaða arkamatari
Tilboðsverá m/
Tilboð vikunnar
GiWlr tll
Heimapakkí l
14.400 Modem, stofngjald og
og stofngjald að Heimabanka
íslandsbanka
Multímedu
hátalarasett
Heímapakki II
Heimapakki l með
486 DX2/80 Trust tölvu
Harðir diskar
270 MB IDE
a otrulegu verði fyrir þig!
Raðgreiðslur
í allt að 36 mán.
Raðgreiðslur
í allt að 24 mán.
HLGREINT VERÐ ER STAÐGREIÐSLUVERÐ MEÐ VSK.
486DX2/80 - 540 MB diskur
4MB minni, 256kb flýtiminni (Cache), 540 MB diskur,
Aukið IDE (Enhanced IDE) - Pentium sökkull (Overdrive
Socket 3) - Tengiraufar, 3 x VESA LB, 4 x ISA - Tvö raðtengi,
eitt hliðtengi, eitt leikjatengi - Orkusparnaðarkerfi
14" SVCA lággeisla litaskjár - Vandað íslenskt hnappaborð,
mús og músarmotta - DOS 6.3 og Windows 3.1 uppsett,
disklingar og handbækur fylgja
NYHERJA
SKAFTAHLÍÐ 24 SÍMI 569 7800
TiTrust
Wrust
internetaskrift í 1 mánuö
TíTrust
COMPUTGP PRODi