Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1995, Síða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1995, Síða 18
18 LAUGARDAGUR 9. SEPTEMBER 1995 Dagur í lífi Úmars Valdimarssonar blaðamanns fyrir 20 árum: Ekki var það allt fallegt - en mikið var gaman Jónas Kristjánsson horfði á mig alvöruþrunginn og sagði: „Eina leiðin til að þetta geti gengið upp er að þetta verði andskoti gott blað. Þú verður að vera reiðubúinn að leggja mikið á þig.“ Ég var það og var þar með ráð- inn í erlendar fréttir á nýju dag- blaði sem enginn vissi þá fyrir víst hvað ætti að heita eða hvort kæmi yfirleitt út nema í nokkra daga. En það var uppreisnartónn í þessu öllu saman og það hentaði mjög vel á þeim árum. Svo hófust dagarnir og næturnar og oft rann það allt saman. Blaða- mennska á Dagblaðinu sáluga var ekki vinna heldur lífsmáti. Við Helgi Pje byrjuðum á erlendu síð- unum klukkan flmm á morgnana og vorum búnir með þær klukkan átta. Eftir það fórum við í innlendar fréttir þar til blaðinu var lokað um tíuleytið. Þá var farið í að skrifa erlendar greinar og safna ein- hverju í sarpinn fyrir morgundag- inn. Síðdegis var blaðamannafund- ur úti í bæ og ef von var um vín- veitingar fór stundum öll ritstjórn- in í einu - enda skorti ekkert á samkvæmislíf og góðan félagsanda hjá starfsmönnum blaðsins. Ef eitt- hvað stórt var í fréttum var unnið fram á nótt og fyrir kom að menn sofriuðu fram á spónaplöturnar sem áttu að heita skrifborð. Eftir nokkra mánuði af svona vinnu/lífsmáta fórum við út á Hót- el Loftleiðir með konunum okkar og sofnuðum út af í sófanum um níuleytið. í 14 fermetra skonsu Við sátum þétt fyrstu mánuðina. Fréttastofan var í 14 fermetra skonsu í Síðumúlanum og ekki nema 30-40 sentímetrar á miUi arslúðrið eða tala Ula um keppi- nautinn, Vísi garminn, hinum megin við vegginn. Aldrei vafðist það fyrir okkur 'að við vorum miklu betri en Vísir - og hvert tækifæri sem gafst (og miklu fleiri raunar) var notað til að raupa af yfirburðum Dagblaðsins. Vísir og Mogginn voru bara venjuleg flokksmálgögn, sem var það ljótasta sem hægt var að hugsa sér í þá daga, og haUir undir Kerfið og flokkspólitíska spUlingu. Af öUu slíku var DB blásaklaust. Annar eins meydómur hefur aldrei þekkst. Það skorti heldur ekkert upp á að menn tækju sig alvarlega - enda var ekki verið að gera neitt minna en að frelsa íslenskt samfélag úr klóm Kerfisins og rótgróinnar spiUingar. Það var fjölmennt á AU The President’s Men í Austurbæj- arbiói og í framhaldinu gerði rit- stjórinn samnefnda bók eftir Woodward og Bernstein að skyldu- lesningu með þeim orðum að svona ættu blaðamenn Dagblaðs- ins að vinna. Sumar máttu missa sig Auðvitað brást okkur stundum bogalistin í atgangi dagsins. Sjálf- sagt er fleirum okkar farið eins og mér, að muna eftir einni eða tveimur fréttum sem óskandi væri að aldrei hefðu verið skrifaðar. En eftir á að hyggja getum við sagt eins og fyrrum ritstjóri banda- ríska tímaritsins Esquire, sem ný- lega hefur skrifað endurminningar sínar undir heitinu Ekki var það allt fallegt - en mikið óskaplega var gaman! Kveðja, Ómar Ómar Valdimarsson var einn af upphafsmönnum Dagblaðsins fyrir tuttugu árum. Nú rekur hann ráðgjafarfyrir- tækið Athygli. DV-mynd GVA borða. Menn urðu að skáskjóta sér inn í bás - hver með sínum hætti. Jón Birgir Pétursson fréttastjóri var með flottustu sveifluna þegar hann kom inn og hafnaði í sæti sínu og svo sat hann í öllu kraða- kinu í félagi við þrjá blaðamenn aðra, lengst af okkur Braga Sig- urðsson, Ásgeir Tómasson, og Jó- hannes Reykdal útlitshönnuð og tæknistjóra að auki. Þeir sem áttu erindi við einhvern okkar máttu gjöra svo vel að tala við alla í einu - sem auk þess voru að tala í sím- ann, beija á handknúnar ritvélar og skipuleggja saklausa óknytti gagnvart hinum hluta ritstjórnar- innar, sem sat í nokkru stærra herbergi handan við ganginn. Keppinauturinn hinum megin Stöðugur straumur var af fólki inn á ritstjórnina og jarðsamband- ið meira og öflugra en á nokkurri annarri ritstjórn sem ég hef komið nærri. Sumir komu daglega til að spjalla, flytja fréttir, hlusta á bæj- Finnur þú fimm breytingar? 326 Nafn: _ Heimili: Vinningshafar fyrir þrjú hundruð tuttugustu og fjórðu getraun reyndust vera: 1. Erla Björk Gísladóttir 2. Kristinn G. Wium Esjubraut 27 Hátúni 11 300 Akranesi 230 Keflavík Myndimar tvær virðast við fyrstu sýn eins en þegar betur er að gáð kemur í ljós að á myndinni til hægri hefur fimm atriðum verið breytt.. Finnir þú þessi fimm atriði skaltu merkja við þau með krossi á myndinni til hægri og senda okkur hana ásamt nafni þínu og heimilisfangi. Að tveimur vikum liðnum birtum við nöfn sigurvegar- anna. 1. verðlaun: TENSAI ferðaútvarp með kassettu, að verðmæti kr. 4.990, frá Sjónvarpsmið- stöðinni, Síðumúla 2, Reykjavik. 2. verðlaun: Úrvalsbækur. Bækurnar sem eru í verðlaun heita Líkþrái maðurinn og Athvarf öreigans, úr bókaflokknum Bróðir Cadfael, að verðmæti kr. 1.790. Bækumar eru gefnar út af Frjálsri fjölmiðlun. Vinningamir verða sendir heim. Merkið umslagið með lausninni: Finnur þú fimm breytingar? 326 c/o DV, pósthólf 5380 125 Reykjavík

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.