Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1995, Page 23
LAUGARDAGUR 9. SEPTEMBER 1995
menmgzs
Kvartett Frits Landesbergens:
Fljúgandi Hollendingar
Einn erlendra gesta á RúRek er
hollenski víbrafónleikarinn Frits
Landesbergen. Hann kom hingað
ásamt félaga sínum, Marteen van
der Valk, sem Islendingum er að
góðu kunnur frá því að hann bjó
hér og starfaði sem slagverksleikari
með Sinfóníuhljómsveitinni og lék
auk þess djass, meðal annars með
hljómsveitunum Gömmum og Súld.
Á Jazzbarnum í Lækjargötu á
þriðjudagskvöld léku með þeim Ey-
þór Gunnarsson og kontrabassaleik-
arinn Gunnlaugur Guðmundsson
sem reyndar kemur einnig hingað
til lands frá Hollandi þar sem hann
hefur dvalið við nám. Gunnlaugur
lék hér heima með Milljónamæring-
unum og fleiri hljómsveitum. Hann
er nú þegar orðinn eftirsóttur hljóð-
færaleikari ytra.
Það er skemmst frá þvi að segja
að Kvartett Frits Landesbergens vsir
í fljúgandi sveiflu, jafnt Hollending-
ar sem íslendingar, og heillaði sam-
komugesti alveg upp úr skónum.
Landesbergen er alveg magnaður
spilari sem ræður yfir mikilli tækni
þannig að hraöinn og yfirferðin er
oft ótrúleg. En þetta voru ekki bara
Djass
Ingvi Þór Kormáksson
tóm læti í honum heldur eins og yf-
irveguð ákefð sem skilaði sér ekki
síður í ljúfustu ballöðum. Hann er
líka hreint frábær lagasmiður sem
vel mátti heyra í sömbunni „Flipp-
ed Frits“ og „Six to the Bar“, latin-
lagi í 6/8 takti og „Cal’s Mood“ sem
óf sig mjúklega í gegnum raðir af
hljómum. Áhrifin frá meisturum
latin-sveiflunnar, Tjader og Clare
Fischer eru nokkuð greinileg í þess-
um lögum en ekki eru þau verri fyr-
ir það, nema síður sé. Þeir Marteen
höfðu líka samið saman lag tileink-
Hollenski víbrafónleikarinn Frits Landesbergen lék á Jazzbarnum í Lækjar-
götu á þriðjudagskvöld.
að íslandsferðinni, „Thats it“, sem
var í gospelfonkstíl. - En það var
leikið fleira en frumsamið. Ég hef til
að mynda aldrei heyrt flottari út-
gáfu af „Killer Joe“ og gamli vals-
inn hans Thielemans, „Bluesette",
var algjört eyrnakonfekt í hröðum
sambatakti.
í blaðaviðtali fyrir nokkrum
árum lýsti Eyþór Gunnarsson af
hógværð því yfir að hans helsta
áhugamál væri að verða djasspí-
anisti. Hann var þaö þá þegar og
meira að segja góður en nú er hann
tvímælalaust á heimsmælikvarða,
ef það segir einhverjum eitthvað.
Marteen er greinilega ekki
trommari sem situr við settið tíu
tíma á dag en er svo músíkalskur og
smekklegur að unun er á að hlýða.
Og enginn sem heyrði í Gunnlaugi
ætti að vera hissa á því að hann sé
aö gera það gott í útlandinu.
Þessu lauk svo með því að Fritz
settist við aukatrommusett og síðan
hófst . . . ekki einvígi, heldur
kankvíst samtal milli tveggja
trommuleikara. - Frábærir tónleik-
ar.
TAEKWONDO
Byrjendanámskeið
íþrótt fyrir alla!
Kóresk bardaga og sjálfsvarnaríþrótt
Aukin eínbeiting og sjálfstraust og þar
með betri námsárangur
Allar uppl. í síma 896 8560
eða í síma 557 9037 á kvöldin
Kvondódeild ÍR. Skógarsel
I Sa»»»m
laf staaalApt.T99S|Mai. 13a5|jún. 193íi~
VerSbféf
Nauðsynjar
Trygglngor
TeUlWP
Launin Hans
Launin Hennar
100
100
50.000 100.000 100.000 100.000
105.000 105.000 105.000
Skattar.:
HEIMILISLÍNAN
Ódýra heimiliskjálpin!
Hómer er einfaldur og þægilegur „Windows" hugbúnaöur, sérstaklega ætlaöur fyrir heimilis-
bókhaldið. Þú þarft ekki bókhaldsþekkingu til aö nota hann, þú færir aðeins inn upphæö-
irnar og Hómer sér um framhaldið.
Hómer færöu í Búnaðarbankanum á 900 kr. og ef þú ert í Heimilislínunni kostar
hann aðeins 450 kr. Með Hómer veistu hvað þú átt - og hvað þú mátt!
BUNAÐARBANKINN
- traustur heitniib banki