Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1995, Side 34
LAUGARDAGUR 9. SEPTEMBER 1995
42
imm
- skórnir eru iykilatriði
Kópavogssundið sló í gegn
„Nú fer í hönd mjög góður tími til
þess að stunda fjallgöngur. Það at-
riði sem brýnast er að hafa í huga
varðandi búnaðinn er að vera á góð-
um skóm,“ sagði Andrés Guð-
mundsson, sveitarforingi í Hjálpar-
sveit skáta í Reykjavík, i samtali við
Trimmsíðuna. Andrés og hans
menn hvöttu almenning til þátttöku
í fjallgöngum með því að standa fyr-
ir árlegum Esjudegi á síðasta
sunnudag og var þetta í fjórða sinn
sem dagurinn var haldinn en hann
komst á þegar HSR átti sextugsaf-
mæli 1992. 1400 manns drifu sig af
stað að þessu sinni og gengu á Esj-
una undir leiðsögn og tilsjón félaga
í Hjálparsveit skáta í Reykjavík.
„Þetta eru töluvert færri en í
fyrra en það má fyrst og fremst
kenna veðrinu um,“ sagði Andrés.
Góður tími
til að ganga á fjöll
Haustið, þ.e. september og októ-
ber, er góður tími til að ganga á
fjöll, sérstaklega þegar gefur stillt
veður með svölu og tæru lofti sem
tryggir afar gott skyggni eins og al-
Nú er góður tími til að ganga á fjöli.
gengt er um þessar mundir. Esjan er
bæjarfjall Reykvíkinga og er full
ástæða til þess að hvetja sem flesta
til að drífa sig af stað. Góðir skór,
hlý lopapeysa í bakpoka ásamt vett-
lingum, húfu og kakóbrúsa er
ómissandi búnaður. Gott er að hafa
göngustaf, sjónauka, áttavita og kort
meðferðis og láta vita af för sinni.
Auk Esjunnar má benda á Vífll-
fell, Hengil og Bláfjöll i nágrenni
Reykjavíkur. Akureyringar drífa sig
á Súlur, ísfirðingar upp á Gleiðar-
hjalla, Selfyssingar á Ingólfsfjall,
Akurnesingar á Akrafjall, Hafnfirð-
ingar á Helgafell og Reykjanesbæ-
ingar á Keili. Góða skemmtun.
Hlupu upp fjallið
20 harðjaxlar af báðum kynjum
tóku þátt í kapphlaupi upp á Esjuna
sem fór nú fram í annað sinn. EVrra
Esjuhlaupið var fyrir fjórum árum
en tímarnir eru ekki sambærilegir
þar sem hlaupið nú hófst ekki ná-
kvæmlega á sama stað og hið fyrra.
Sigurvegari í Esjuhlaupinu nú varð
hinn 17 ára gamli Sveinn Harðarson
sem spændi upp fjallið á 33:57 mín-
útum. Anna Viðarsdóttir, önnur
tveggja kvenna í Esjuhlaupinu, sigr-
aði á 45:46 mínútum. Báðar konurn-
ar fengu gullverðlaun því þær voru
hvor í sínum aldursflokknum en
skipt var 1 tvo flokka 0 til 40 ára og
40 ára og eldri. Hin konan heitir
Lilja Þorleifsdóttir og fékk gull í
eldri flokki. Flestir keppenda eða 11
talsins voru eldri en 40 ára.
Fyrstur karla eldri en 40 ára varð
Jóhannes Guðjónsson en hann fór á
34:15 mínútum upp. Einna elstur
karla mun hafa verið Jörundur
Guðmundsson, sem er þekktur
maraþonhlaupari milli fimmtugs og
sextugs, en hann fór upp á rúmum
39 mínútum sem er fjórði besti tím-
inn.
Það sýndi sig síðasta sunnudag að
Kópavogssundið hefur hitt í mark.
650. manns á öllum aldri komu í
sund i Kópavogslauginni og syntu í
kapp við sjálfa sig og aðra. Þetta er
mikil aukning milli ára því í fyrra,
þegar Kópavogssund var þreytt í
fyrsta sinn, voru þátttakendur 444
svo að aukningin er nálægt 40%.
Að meðaltali synti hver þátttak-
andi 2.124 metra sem er svipaö og í
fyrra en samtals syntu þátttakendur
1.378 kílómetra sem er nálægt því að
vera vegalengdin umhverfis Island
eftir þjóðvegi eitt. 74,5% þeirra sem
tóku þátt í sundinu fengu gullpen-
ing sem veittur var fyrir að synda
lengra en 1.500 metra.
Erfitt er að úrskurða hver er sig-
urvegari í sundkeppni eins og þess-
ari en sá sem synti lengst allra var
Ingólfur Steinar Margeirsson sem
svam 25 kílómetra. Ingólfur er rúm-
lega fertugur og synti nú fjórum
kílómetrum lengra en í fyrra þegar
hann sigraði einnig.
Yngstu þátttakendurnir voru:
María Sif Guðmundsdóttir, f.
Ingólfur Steinar Margeirsson sigr-
aði í Kópavogssundinu annað árið I
röð og synti nú 25 kílómetra.
1990, synti 500 metra.
Anna Guðný Einarsdóttir, f. 1990,
synti 500 metra.
Agnar Ingi Traustason, f. 1991,
synti 500 metra.
Elstu þátttakendumir voru:
María B. Björnsdóttir, f. 1916,
synti 1.500 metra.
Ólafur H. Kristjánsson, f. 1913,
synti 2.500 metra.
Aðalsteinn Gíslason, f. 1913, synti
1.700 metra.
Eftirtaldir syntu lengst í sínum
aldursflokki:
71 árs og eldri:
María B. Björnsdóttir, 1.500
metra.
Björn E. Kristjánsson, 7.500
metra.
61 til 70 ára:
Dóra Hannesdóttir, 2.500 metra.
Jörundur A. Jónsson, 10.500
metra.
51 tíl 60 ára:
Pirkko Daöason, 7.100 metra.
Sigurður Geirdal, 9.100 metra.
41 til 50 ára:
Ragna María Ragnarsdóttir, 7.100
metra
Ingólfur Steinar Margeirsson,
25.000 metra.
31 til 40 ára:
Þorgerður M. Kristiansen, 10.000
metra.
Bragi Svavarsson, 18.100 metra.
18 til 30 ára:
Þórunn Kristín Guðmundsdóttir,
8.200 metra.
Stefán Stefánsson, 10.000 metra.
13 til 17 ára:
Birna Hallgrímsdóttir, 15.100
metra.
Kristín L. Guðlaugsdóttir 15.100.
metra
Fannar Rikharðsson, 8.500 metra.
12 ára og yngri:
Arna Björg Arnarsdóttir, 8.000
metra.
Rafn Guðmundsson, 14.000 metra.
Nýr Hlaupari
kominn út
Enn er komið nýtt eintak af
tímaritinu Hlauparanum á blað-
sölustaði og er það þriðja blaðið
á þessu ári og verður ekki annað
en dáðst að atorku ritstjórans
skrefdrjúga, Sigurðar P. Sig-
mundssonar.
Margt forvitnOegt efni er í
blaðinu. Gunnar Páll Jóakimsson
Qallar um lykilæfmgar og hermi-
æfingar, Guðrún G. Eggertsdóttir
og Sigríður Kjartansdóttir skrifa
um þvagleka og líkamsrækt
kvenna og Guðný Lilja Oddsdótt-
ir tekur lesendur á hné sér og
fræöir þá um hnémeiðsl en dokt-
or Óttar Guðmundsson sest á
rúmstokk lesenda og ritar nettan
pistil um hlaup og kynlíf karla.
Torfi H. Leifsson ritar safaríka
grein um vökvajafnvægi og sagt
er frá ýmsum hlaupum sem vak-
ið hafa athygli í sumar og notið
vinsælda. Ekki má gleyma viðtöl-
um við Jón Diðriksson og Ernu
Dögg Þorvaldsdóttur.
Nú er ekki annað að gera en að
taka létta sprettæfingu út í næstu
bókabúð og hremma ferskt ein-
tak af nýjum Hlaupara.
Forsíðumynd Hlauparans er tek-
in í Reykjavíkurmaraþoní.
Markúsarstígurinn
lengist stöðugt
Trimmsíðan hefur heyrt að
meðal hlaupara sé göngustígur-
inn vinsæli, sem liggur utan af
Ægisíðu og inn í Nauthólsvík,
oft kallaður Markúsarstígur.
Með þessu vilja skokkarar og
útivistarfólk heiðra Markús Öm
Antonsson en það var í hans tíð
sem borgarstjóra sem hafist var
handa við þetta þarfa verk.
Margir vita að Markús er sjálfúr
röskur göngugarpur og hefur því
skilning og samúð með þörfum
okkar.
Þetta er dæmi um að stjóm-
málamenn fá oft viðurkenningu
úr óvæntri átt og með öðrum
hætti en þeir ætla. Annað dæmi
um slíkt ömefni er Geirsnefið
við Elliðavog þar sem hundaeig-
endur viðra ferfætlinga sína á
góðviðrisdögum. Geirsnefið heit-
ir eftir Geir Hallgrímssyni sem -
lengi var borgarstjóri í Reykja-
vík.
Það gæti sem hægast verið
keppikefli borgarstjóra aö koma
sér upp óbrotgjörnum minnis-
varða með þessum hætti. Þetta
yfirsást Davíð Oddssyni þegar
hann stýrði borginni og er ekk-
ert örnefni sem minnir beinlínis
á valdatíð hans.
Góðu fréttimar af „Markúsar-
stíg“ em þær að hann færist
stöðugt inn eftir Öskjuhlíð frá
Nauthólsvík og eru komnir
ljósastaurar og klæðning inn að
Fossvogskirkjugarði en síðan
virðist vera ætlast til þess að
stígurinn liggi gegnum garðinn.
Nú er beðið eftir brúnni fogru
yfir Kringlumýrarbraut, sem
tengir stíginn við þann sem ligg-
ur út Fossvog, og þá veröur hægt
að fara i einum áfanga á sam-
felldum stíg utan af Ægisíðu og
upp í Heiðmörk.
Kannski verður brúin góða
skírð í höfúð núverandi borgar-
stjóra og kölluð Ingibjargar-
spöng?