Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1995, Qupperneq 35

Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1995, Qupperneq 35
43 JP'%F LAUGARDAGUR 9. SEPTEMBER 1995 Ljósmyndasýningin World Press Photo '95 hefst í Kringlunni næsta laugardag: Fyrirheit um frelsi og velmegun og örvæntingar- fullt ástand heima fyrir fékk tugþúsundir Kúb- veija til að leggja á haf út í fyrra í tilraun til að kom- ast yfir til Flórída, um 150 km leið. Þegar Kastró Kúbuleiðtogi aflétti ferða- hömlum í ágúst náði flóttamannastraumurinn hámarki. Þá yfirgáfu um 2 þúsund manns Kúbu dag- lega. Flausturslega smíðuð fley af öllum stærðum og gerðum voru notuð og komust sum ekki langt áleiðis. Drukknuðu ótal flóttamenn og urðu há- körlum að bráð. Á mynd- inni hér til hliöar syndir drengur út að báti sem er að leggja frá landi en hann vill kveðja föður sinn og bræður í síðasta sinn. Myndin fékk fyrstu verðlaun í flokki al- mennra fréttamynda í ljós- myndasamkeppni World Press Photo ‘95. Þessa mynd og tugi annarra verðlaunamynda má sjá á ljósmyndasýningunni World Press Photo sem hefst í Jíringluni laugar- daginn 16. september og mun standa til sunnudags- ins 1. október. Sýningin er haldin í samvinnu DV og Kringlunnar. Verðlauna- myndimar voru valdar úr um 30 þúsund innsendum myndum frá tæplega 3 þúsund ljósmyndurum í 97 löndum. Myndunum er skipt í flokka en verðlaun eru veitt fyrir þrjár myndir i hverjum flokki. Þessir flokkar eru: fréttamyndir, myndir af einstökum at- burðum, almennar frétta- myndir, fólk í fréttum, íþróttir, tækni og vísindi, listir, náttúra og umhverfi og daglegt líf. Flokkunum er einnig skipt í flokka stakra mynda og mynd- raða. Þá eru sérstök verð- laun fyrir barnamynd árs- ins. Sumarmyndir og afmæli DB Samhliða World Press Photo sýningunni fer fram sýning á myndum úr Sum- armyndakeppni DV og Hans Petersens. Sunnu- daginn 17. september verða veitt verðlaun fyrir bestu sumarmyndirnar og þær sýndar í sérstökum bás. Frá og með 11. septem- ber verða til sýnis myndir, einnig í Kringlunni, sem sérstaklega eru valdar í tilefni af því að 20 ár eru liðin frá stofnun Dagblaðs- ins, DB. Verða þær myndir til sýnis jafn lengi og mynd- irnar frá World Press Photo. Ungur drengur syndir að báti undan ströndum Kúbu til aö kveðja föður sinn og bræður sem eru að leggja af stað áleiöis til fyrirheitna landsins, Bandarfkjanna. Flokkur: Almennar fréttir. Ljósmyndari: Garo Lachinan, Bandaríkjunum. Vísindamenn eru alltaf að reyna að gera bíla tæknilega fullkomnari, þægilegri og öruggari. Hér sést hópur prufubrúða bíða örlaga sinna í Wolkswagen-verksmiðj- unum í Wolfsburg í Þýskalandi. Flokkur: Vísindi, úr myndröð. Ljósmyndari: Dominik Obertreis, Þýskalandi. Starfsmenn kappakstursliðs Benettons berjast við eld sem kviknaði í bfl Jos Ver- stappens. Hann sat fastur í bílnum þegar bensín sprautaðist um allt og eldur kom upp. Hann slapp naumlega úr eldhafinu. Flokkur: íþróttir, úr myndröð. Ljósmyndari: Arthur Thill, Lúxemborg. Ungur drengur í fangelsi í Sao Paulo f Brasilíu situr í tilbúinni rólu og styttir sér stundir við að horfa út um gluggann hátt á veggnum. Hann er einn sjö milljóna barna í Brasilíu sem lifa á götunni og lenda oft f fangelsi. Flokkur: Fólk í fréttum, úr myndröö. Ljósmyndari: Francesco Zola, Ítalíu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.