Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1995, Qupperneq 56

Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1995, Qupperneq 56
FRÉTTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 562 2525. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö í hverri viku greiöast 7.000. Fuilrar nafnleyndar er gætt. Við tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 MUNIÐ NÝTT SÍMANÚMER MUNIÐ NÝTT SÍMANÚMER Baldur Sigbjörnsson, hásetinn sem slasaðist um borð í varðskipinu Óðni: Ég þeyttist um allt dekk „Við vorura að koma vír um borð í Sindra VE og notuðum keðju tO að taka af slaka. Allt í einu slitn- aði keðjan og slóst í fæturna á mér. Þetta var mikið högg og ég þeyttist eins og bolti um allt dekkið," segir Baldur Sigbjörnsson, háseti á varð- skipinu Óðni, í simaviðtali við DV. Baldur slasaðist þegar verið var að koma taug milli varðskipsins og togarans Sindra VE eftir bilun í gír togarans í Smugunni nú í vikunni. í gær var Baldur í aðgerð hjá læknum sjúkrahússins en til stend- ur að flytja hann til Óslóar í dag þar sem sérfræðingar í beinbrotum munu rannsaka hann. Þegar DV ræddi við Baldur í gær var hann nývaknaður eftir aðgerð- ina og sagðist vera nokkuö vankað- ur en samt ekki illa á sig kominn eftir því sem við væri að búast. „Þetta er auðvitað gríðarlegt áfall. Ég geri mér ekki sjálfur grein fyrir hve alvarlegt ástandið er en læknamir hér hafa sagt mér að ég muni ná fullum bata, þótt það geti tekið nokkurn tíma,“ sagði Baldur. Hann er tvítugur Reykvíkingur, einhleypur og hefur verið hálft annað ár háseti hjá Gæslunni. „Mér líður í raun 'og vem vel, hér er sól og blíða og vel um mig hugsáð. Ég er þó enn mikið dasað- ur eftir aðgerðina í dag og það er ekki fyrr en nú að ég átta mig á hvar ég er staddur," sagði Baldur. Ólýsanlegar kvalir Baldur hélt meðvitund eftir keðjuhöggið sem hann fékk. Báðir fætur brotnuðú þó illa og að auki tvö rifbein og viðbein. Honum var gefið morfín eftir slysið og upp frá því man hann lítið af því sem gerð- ist. „Ég var víst fluttur með þyrlu hingað á sjúkrahúsið en eftir því man ég ekkert. Mér leið hrikalega fyrst eftir höggið. Kvalirnar voru hreint ólýsanlegar. Núna finn ég litið til en get líka lítið hreyft mig. Læknirinn sagði að hann hefði sett skrúfur í fæturna áður en þeir vom vafðir. Þannig verð ég fyrst um sinn,“ sagði Baldur. Baldur sagði að veður hefði ver- ið mjög slæmt þegar slysið varð, þungur sjór og 8 til 9 vindstig. Veðrinu mætti að öllum líkindum kenna um hvernig fór. Baldur hef- ur þegar fengið heimsókn frá ræð- ismanni íslands í Hammerfest. „Það var i mér einhver beygur eftir að Baldur fór í Smuguna og ég óttaðist að illa færi. Þetta er erfltt hafsvæði og aldrei að vita hvað gerist," segir Kristín Sigbjömsdótt- ir, systir Baldurs, í samtali við DV. Hún sagði að sér hefði verið illa við að hann færi með Óðni en Baldri varð ekki haggað. Nú er Kristín að velta fyrir sér að fara utan og heimsækja bróður sinn á sjúkrahúsiö í Hammerfest. „Foreldrar okkar eru látnir og ég hef verið eins og móðir hans síð- ustu árin. Nú er erfitt fyrir hann að vera einn við þessar aðstæður, svo fjarri fjölskyldunni," sagði Kristín. -GK Ingibjörg Sólrún til Kína: Mun ekkert liggja á mínum skoðunum „Ég þykist vita að mannréttinda- mál muni bera á góma í þessari heimsókn. Mín skoðun á þeim ligg- ur alveg ljós fyrir og að sjálfsögðu mun ég ekkert liggja á þeim skoð- unum. Ég er ekki að fara til Kina sem fulltrúi kvenna fyrst og fremst heldur sem borgarstjóri í Reykja- vík,“ sagði Ingibjörg Sólrún Gísla- dóttir borgarstjóri í samtali við DV. Þann 22. september hefst opinber heimsókn borgarstjóra Reykjavík- ur til Kína og stendur til 30. sept- ember. Með í för verður 6 manna sendinefnd frá borgarstjórn Reykja- víkur. vK M LOKI Ég held bara að ég verði líka að fara til Kína til að mótmæla! Tígri, lukkudýr Krakkaklúbbs DV, heimsótti Selásskóla í gær og afhenti Fríðu Haraldsdóttur, form. Félags skóla- safnskennara, fyrsta eintakið af íslandsævintýrum Tígra en í bókinni eru sögur 50 ungra höfunda. Skólabókasöfn um allt land munu fá eintak af bókinni en gjöfin er í tilefni af alþjóðlegum degi læsis og 20 ára afmælis Dagblaðsins. DV-mynd ÞÖK Hafnarfjörður: Teknir við tækjastuld Tveir menn hugðust birgja sig upp af tækjum í fiskibátnum Jóni Guðmundssyni í Hafnarfjarðarhöfn í gær. Lögreglan kom auga á menn- ina að verki og hafa þeir setið í fangageymslum í nótt. -GK Stálu mynd- bandi en skildu tækin eftir „Þetta er örugglega bara hreinn fíflagangur. Krakkarnir hafa ekk- ert gaman af að sjá kynningu á ilm- vatni og geta því skilað spólunni aftur án þess að nokkur eftirmál verði af,“ segir Kristín Einarsdóttir hjá versluninni Sigurboganum á Laugavegi. Verslunin sýndi nú í vikunni myndband med kynningu á ilm- vatni úti á götu og hafði þar bæði myndbandstæki og sjónvarp. Spóla úr tækinu hvarf en tækin sjálf voru skilin eftir. Kristín sagði að þetta hefði verið eina eintakið af mynd- bandinu og saknaði hún þess sárt. -GK Veðrið á sunnudag og mánudag: Búast má viö smáskúrum Á sunnudag og mánudag verður fremur hæg austlæg átt. Súld eða rigning með köflum austan til á landinu. Um landið vestanvert verður yfirleitt þurrt og skýjað með köflum en á sunnudaginn má þó búast við smáskúrum. Hitinn verður á bilinu 7_13 stig, hlýjast um landið sunnanvert en kaldast við norðausturströndina. Veðrið í dag er á bls. 61

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.