Þjóðviljinn - 24.12.1961, Blaðsíða 4
Il
%
á Nýíundnalandi og við St. Lawrence-
flóann um 1000 en á vorum dögum.
Þes-s má geta, að vínviður er ræktað-
ur á Englandi á miðöldum eða alllangt
norður fyrir 50. breiddarbaug, en sú
ræktun lagðist niður sökum kólnandi
veðráttu. Sama er að segja um vín-
viðarrækt á Norður-Frakklandi.
Menn hafa bollalagt talsvert um
nafnið Vínland, jafnvel talið, að það
sé afbökun úr orðinu Vinlánd =
beililand; sbr. vin = mörk eða hag-
lendi. Þær getgátur eru út í bláinn.
Vilji menn ekki hlíta þeim skýringum,
sem íslenzkar heimildir greina, sökum
þess að þeir Leifur heppni hafi ekki
komizt svo sunnarlega, að þeir hafi
náð til berja, þá liggur næst að ætla,
að nafnið sé skrumauglýsing vestur-
faraagenta (sbr. Kristján Eldjárn:
Gengið á reka 122—123). „Sjaldan voru
drykkjur á Grænlandi“, segir í Fóst-
bræðra sögu5 os er það einhver trega-
blandnasta setning íslenzkra fornrita.
Nafnið Grænland var agnið, sem Ei-
ríkur rauði beitti fyrir íslendinga til
þess að ginna þá til Grænlandsferða.
Sver Vínlandsnafnið sig ekki í ætt til
sonarins? Hvað var sárþyrstum Græn-
lendingum girnilegra en Vínland hið
góða?
Vínland er úr sögunni eftir leiðang-
ur Þorfinns karlsefnis. Snemma á 12.
öld virðast Grænlendingar ekki vita
með vissu, hvar þess sé að leita.
Þar með er ekki sagt, að Grænlend-
ingar eða norrænir menn hafi gleymt
að glatað þekkingunni á löndum Norð-
ur-Ameríku. Við árið 1347 segir svo í
íslenzkum annáium: „Þá kom og skip
af Grænlandi minna vexti en smá ís-
landsför. .. Það kom í Straumf jörð
hinn ytra (þ.e. á Snæfellsnesi). Það
var akkerislaust. Þar voru á 17 menn
og höfðu farið til Marklands, en síðan
orðið hingað hafreka". Samkvæmt
Grænlendinga sögu kanna þeir Leifur
þrjú lönd vestan hafs, Helluland lá
nyrzt, og er talið, að það hafi verið
Baffinsland eða norðurhluti Labrador-
skagans; þá kom Markland, suðurhluti
Labrador eða Nýfundnaland, nema
bæði þau lönd hafi borið það nafn.
Landkönnuðunum hefur ekki verið
ljóst, að Nýfundnaland var eyja. Þar
suður af lá Vínland. Hafi landkönnuð-
irnir fornu náð að norðurtakmörkum
vínviðarins um árið 1000, og landið
hlotið nafn sitt af því, þá hafa þau
landamæri sennilega færzt alllangt til
suðurs á 12. og 13. öld. Verið getur að
einkennisgróður landsins hafi bók-
staflega færzt suðud fyrir griplengd
grænlenzkra sæfara á þessu tímabili,
þótt það hafi legið innan þess svæð-
is á 11. öld. Engum blöðum er um
það að fletta, að landkönnuðirnir
fornu hafa komið til Labrador og Ný-
fundnalands og Markland hefur verið
réttnefni á þessum löndum á norræna
tungu. Einnig bendir sumt til þess,
að vitneskjan um þessi lönd hafi ekki
glatazt með öllu og hún hafi verið
landkönnuðum 15. aldar nokkuð leið-
arljós. Um það atriði hef ég fjallað
í grein í Andvara síðastliðið sumar.
Þótt Vínland hafi horfið úr sögunni
með Þorfinni karlsefni, jafnvel af nátt-
úruíræðilegum orsökum, þá er spurn-
ingunni eftir sem áður ósvarað, hvert
leiðangur hans náði. Helge Ingstad
telur líklegt, að þeir Þorfinnur hafi
slegið tjöldum á Rhode Island, en það
er fylki í Bandaríkjunum suður af
Boston. Sú staðarákvörðun hvílir eink-
um á því, að þar eru kolanámur
(antrasitkol), en antrasitmoli fannst í
bæjarrústum á Sandnesi í Vestribyggð.
á Grænlandi, en þar bjuggu e.t.v. þau
Þorfinnur karlsefni og Guðríður Þor-
björnsdóttir. Engar antrasit-námur eru
á Grænlándi, þess vegna hefur Helge
og fleiri talið, að kolamolinn gæti ein-.
ungis verið kominn að Sandnesi sunn-
an frá Rhode Island = Vínlandi. Nú
er það harla ósennilegt, að Þorfinnur
karlsefni hafi farið að stunda kola-
gröft á Vínlandi. Þess ber a.m.k. að
gæta, að miklar antrasit-námur eru í
Wales, og Bristol var ein mesta sigl-
ingaborg Englands á miðöldum. Ég
veit ekki, hvenær Englendingar hafa
farið að brenna kolum, en þeir verzla
með kol á 15. öld og e.t.v. fyrr. Þó
er mér ekki kunnugt um það, að kol
flytjist hingað fyrr en seint á 16. öld.
Vandamál Vínlandsferðanna verða
ekki afgreidd í stuttri blaðagrein;
einkum er það ekki á færi manns,
sem hefur mjög takmarkaða möguleika
á því að fylgjast með því, sem unn-
ið er að þessum málum í öðrum lönd-
um. Á ítalíu, í Bandaríkjunum og
Noregi eru menn önnum kafnir við að
reyna aö leysa gátu Vínlandsferðanna,
og á næstu árum munum við heyra
ýmislegt um þau fræði. Vonandi tekst
Helge Ingstad að leiða eitthvað í ljós
um dvöl norrænna manna á Nýfundna-
landi. Nyrzti skagi þess lands kemur
talsverf við landfundasögu 15. aldar
(ferðir Cabots), og það á Helge að
vera Ijóst m.a. af ritgerð amerísks
prófessors í The Hispanic American
Historical Review 1956. Á þeim skaga
hafa leiðangursmenn, sem leituðu
norðurleiðarinnar til Asíu eflaust oft
slegið búðum sfnum. Vitað er, að Dana-
og Portúgalskonungur gerðu út landa-
leitarleiðangur til landa Vestan Atlanz-
hafs um 1476 og útgerðarmenn í
Bristot voru farnir að senda skip að
leita landa vestur af írlandi um 1480.
Grænlendingar sigldu einnig vestur til
Marklands a.m.k. 1347. Á skaga þess-
um getur margt leynzt, en það er vafa-
samt, að bar opinberist neitt sem
„sannar“ eitthvað um legu hins eina
og sanna Vínlands.
Námu Grænlendingar hinir
fornu land í Kanada?
I bók sinni um Grænland, sem áður
hefur verið nefnd, styður Helge á ýms-
an hátt betur en áður þá kenningu,
að Grænlendingar hinir fornu hafi
flutzt til Kanada og setzt þar að. Or-
saktr flóttans hafi m.a. verið s.iórán
enskra víkinaa á 15. öld. För hans til
Kanada í sumar mun upphaflega hafa
verið gerð m.a. til þess að finna þeirri
kennineu traustari grundvöll. Ýmislegt
í landnámssögu Kanada bendir til þess,
að þar hafi búið hvítt fólk, þesar
Frakkar komu þansað á 16. öld.
Jacques Cartier hét franskur sæfari d.
1557, sem telst landkönnuður St.
Lawrence-fljótsins í Kanada. f ann-
arri för sinni til Kanada 1535 náði
hann í Indíána og hafði heim með sér.
Indíánahöfðingi sagði honum m.a. frá
landinu Saguenay (í Austur-Kanada),
en bar bió fólk, hvítt eins og Frakkar
og klæddist ullarfötum. Um það segir
hann m.a., að það sé „forneskiulegt
fólk, sem sé á stöðugu fJakki yfir lönd,
ár og fljót“. Gini telur. að ýmislegt
hafi fundizt einmitt við Ontari.o-vatnið,
sem bendi til þess, að þar hafi búið
norrænir menn í fyrndinni, en það
er bezt að fara ekki lengra út í þá
sálma að sinni.
HeJge Ingstad og ýmsir aðrir telia
líkl.egt, að svonefnt Skálholtskort eða
landabréf Sigurðar Stefánssonar skóla-
meistara af Norður-Atlanzhafi frá 1590
hafi að geyma forna sjálfstæða þekk-
ingu á landaskipun á því svæði. Það
mun marklaust, kortið mun gert eftir
samtíma heimildum og íslénzkum
fornsögum. Otreikningar, ssm gerðir
hafa verið samkvæmt korti þessu, fá
ekki staðizt. Það veitir því engar upp-
lýsíngar um legu Vínlands fram yfir
það, sem segir í Grænlendinga sögu.
Viðgerðir 09 leiðréttingar
á áttavitum.
Konráð Gíslason,
Tryggvagötu 6,
Sími 1 5 4 7 5.
OFT VELDUR LITILL NEISTIST
ORU BÁLI • BRVNID FYRIR BO
RNUNUM ADGÁT MED ELD •
OFT VELDUR LITILL NEISTIST
ORU BÁLI. BRYNIÐ FYRIR BO
MED ELD .
0FTVI
FYRIR BO
D ELD.
LITILL NEISTIST
RYNID FYRIR BO
MEÐELD.
ST
ALMENNAR TRYGGINGAR
Pósthússtræti 9 Sími 17700.
l 4) — JÓLABLAÐ ÞJÓÐVILJANS