Þjóðviljinn - 24.12.1961, Qupperneq 6
henda af mér dreifibréfunum. Mér var
haldið á stöðinni nokkra klukkutíma,
svo kom iögreglufulltrúinn, bölvaði
goða stund og sleppti mér síðan. öðru
sinni kærði okkur kona verkamanns
nokkurs, sem við' hittumst hjá. Hún
var afbrýðisöm út í mann sinn og ætl-
aði að hefna sín á hoaum, en hún
hefur líklega sagt lögregluþjóninum
einhverja bölvaða vitleysu: hann skreið
undir rúm, lyfti gólffjölum, þuklaði á
vösum okkar, — leitaði sem sagt að
vopnum, og fór síðan án þess að hafa
fundið neitt, spurði ekki einu sinni
hverjir við værum.
Á því svæði, sem mér var falið, var
veggfóðurgerð Sladkofs. Ég vingaðist
við vélameistarann Tímofei Iljúsjín,
a>hafnasaman og óvenju þrautseigan
mann. Verkfall var gert á vinnustaðn-
um; ég talaði á fundum og safnaði fé
meðal stúdenta handa verkfallsneínd-
inni.
Mér þótti einnig vænt um trésmiðinn
Vassílí Tsjadúskín. Hvorki hann né
Iljúsjín líktust hið minnsta hinum
þungbúnu verkamönnum bjórgerðar-
innar í Khamovníki, sem ég kynntist
ó bernskuárunum. Býltingarárið 1905
hafði haft sín áhrif, — framvarðar-
sveit verkalýðsins var í mótun. Hinir
nýju vinir mínir kenndu mér að vera
léttur í lund. Þeir bjuggu við ill kjör,
unnu erfiða vinnu, samt gátu þeir allt-
af gert að gamni sínu. Byltingarstárfið
var mér frelsun undan oki lyginnar,
þeim var það að vísu flókið mál, en
fullkomlega eðlilegt, — runnið í mere
og blóð. ■
Ég man kosningu fulltrúa á • flokks-
þingið í Stokkhólmi. Bolsjévikar áttu
að bjóða einum mensjévika á kosninga-
fundi, mensjévikar einum bolsjévika.
Maður hatar alltaf fyrst og fremst þá
sem standa næst manni siálfum. og
líklega hefur mér þá verið sýnu hlýrra
til kadetta en til ménsjévika. Ég fór
á fund mensjévika úr prentarastétt, þar
reyndist mælska mín einskis megnandi.
Síðar var ég sendur á fund tíu eða
fimmtán verkamanna múrsteinsverk-
smiðju nokkurrar. þar sem starfandi
var mensjévikadeild. Af hálfu mensjé-
vika talaði ung og a'.vörugefin stúlka.
sem feimin var við allt og alla, en ég
var mjög ósvífinn, hæddi mensjévika
eftir föngum og sigraði: verkamenn-
irnir greiddu fulltrúa bolsjévíka at-
kvæði. Stúlkan var að gráti komin.
þegar við gengum út saman, ég kenndi
í brjósti um hana, en gat samt ekki
stillt mig um að glotta við: aliavega
hafði ég unnið á tækifærissinnunum.
KROSSGÁTA
JÓLABLAÐSINS
589 króna verðlaun
Tvenn verðlaun verða að
þessu sinni veitt fyrir rétta
ráðningu á krossgátu Jóla-
blaðsins, 300 krónur og 200
krónur. Lausnir þurfa að
hafa borizt til Þjóðviljans
fyrir 15. janúar n.k. Tekið
skal fram að ekki er gerð-
ur greinarmunur á a og á,j
u og ú o.s.frv.
Kaupfélag
Húsavík — Stofnað 1832
Þakkar öllum viðskiptavinum sínum og velunnurum fyrir liðinn
tíma og óskar þeim gæfu og gengis í framtíðinni.
Gleðileg jól
Jóloskérnir á fjölskylduna
Verð, gerðir og gceði
við allra hœfi
Aðalsfrœfi 8, sími 18514
Laugaveg 20, sími 18515
Snorrabrauf 38, sími 18517
16) — JÖLABLAÐ ÞJÖÐVILJANS