Þjóðviljinn - 24.12.1961, Page 36
bréf Ragnars yrðu stutt og strjál og
snauð að ástarorðum, en hún gleymdi
því þó ekki, að hann hafði sýnt henni
atlot og sagt að hún væri unnustan
hans. Réttast mundi að bíða heimkomu
hans.
Áður en vorsólin hafði þurrkað upp
blárnar í Ástúninu barst Ingiríði bréf
frá Ragnari, er hafði frá miklum tíð-
indum að segja. Hann kvaðst vera lof-
aður kaupmannsdóttur í Reykjavík og
ætlaði að vinna við verzlun föður
hennar um sumarið, óráðið væri hvort
hann héldi áfram námi.
Ingiríður skrifaði honum um hæl og
sagði, að hvað, sem öðru liði skyldi
hann ljúka við skólann. „Það er skip-
un“, skrifaði hún. Ragnar svaraði ó-
feilinn: „Skipað gæti ég væri mér
hlýtt.“
Una fór einförum og grét, hún gerði
sér ofurlítinn harmleik úr þessu, hún
var á róm'antízkum aldri.
Nú var sem ekkert ræki á eftir með
að koma þeim Sölva saman, Ingiríður
ýjaði ekki að því orði, en Una var
ásthneigð og atlot og ástarorð Ragn-
ars, þó að líkst hefðu meira leik en
alvöru, höfðu undirbúið jarðveginn,
hún átti ekki minnstan þátt í því að
saman gekk með þeim Sölva.
Þau settu upp hringana á jólum með
<góðri veizlu fyrir heimilisfóLk og vini.
Festarmærin var í tinnugljáandi klæð-
ispeysufötum með brúsandi silkisvuntu,
er sló á margbreytilegum og síkvik-
um litbrigðum, þess konar silki var
kallað „sansérað". Slifsið hennar var
úr hvítu silki með flosrósum, hvort
tveggja svuntan og' slifsið var frá
mannsefninu, en frá fóstru sinni hafði
hún þegið að gjöf, í tilefni dagsins,
undurfagra brjóstnál úr skíru gulli.
Henni varð tíðlitið ofan á barm sér og
á græðifingur hægri handar, þar sem
gildur einbaugur glóði. Það var henni
svo ungri mikill vegsauki að bera þetta
tákn ástar og auðnu. Unnustinn átti
hug hennar óskiptan, hún hafði þegar
teigað nautnabikar ástarlífsins í botn
með honum.
— — — Sautján ára ól Una son.
Hjónavígslu þei.rra Sölva hafði verið
hraðað vegna væntanlegs ei’fingja. Þau
urðu sammála um það' hjónin að Ingi-
ríður skyldi velja sveininum nafn.
„Ef til vill ætti ég að rétta sáttar-
hendi yfir móðuna miklu með því að
leggja það til að Ásbóndinn væntan-
legi beri nafn Jóhannesar afa síns. En
það nafn verður að bíða næsta sonar.
örnólfur skal sveinninn heita, svo að
verði það. nafn um aldur og ævi Ási
tengt.“
Nr. 1. 3 lauf 10 stig
3 hjörtu 9 stig
2 hjörtu B stig
2 tíglar 3 stig
Nr. 2 5 tíglar 10 stig
4 tíglar 8 stig
6 tíglar 6 stig
Nr. 3. 3 grönd 10 stig
2 hjörtu 8 stig
Nr. 4. 3 spaðar 10 stig
pass 6 stig
2 grönd 4 stig
Ef þú hefur fengið 35—40 stig, þá
ertu sérfræðingur í spilum.
Ef þú hefur fengið 25—35 ertu ágæt-
ur spilamaður.
Ef þú hefur fengið 10—25 þarftu að
æfa þig töluvert.
Ef iþú hefur fengið minna, þá liggur
bersýnilega eitthvað betur fyrir þér
s.s. tennis, fótbolti eða körfuknattleik-
ur.
tíáttfwiéttiVttMt
'Ocml£Gaís
afáugat/s
Jatoa/'ðer/'a/s
/ pofeÆurh
SKREYTTAR
ÍSTERTUR
úr.vanilluís og súkkulaðiís
þrjár stærðir:
B manna
9 manna
12 manna
ístertur þarf að panta með
2ja daga fyrirvara í útsölu-
stöðum á Emmess ís.
MJÓLKURSAMSALAN
jjgj — JÖLABLAÐ ÞJÓÐVILJANS