Þjóðviljinn - 24.12.1961, Blaðsíða 37
Brúðkaupsnótt
Framh. a£ 9. síðu.
ur, cg þannig er því farið um þig og
mig, vegna þess að þú kannt ekki að
haga orðum þínum sæmilega. Hef ég
svikið þig? Hversu má það verða? Hef
ég leitt til þín brúði, sem ekki er ó-
spjöhuð mær og ekki verð þess að
ganga upp hin sjö þrep í fang guðs-
ins? Eða hef ég fengið þér konu, sem
ekki væri heiðarleg, eða vanburða til
líkamans, eða tæki til að væla vegna
sársaukans, sem þú hefur bakað henni,
eða væri þér ekki þjónustusöm og fús
til að láta að vilja þínum í frygð? Hef
ég svikið þig með þvílíkum hætti?“
„Nei,“ sagði Jakob, „ekki með þeim
hætti. Lea er mikil kona til gétnaðar.
En þú hefur blekkt mig og tælt og villt
mér sýn, ég hélt alla nóttina að Lea
yæri Rakel og hef gefið rangri konu
alla sál mína og allt, sem ég átti bezt,
og svíður mér þetta svo, að ég má ekki
mæla. Þetta hefur þú gert mér, varg-
menni!“
„Cg þú kallar þetta svik og líkir mér
án blygðunar við dýr merkurinnar og
illa anda vegna þess að ég gætti lenzku
og iandsiða sem heiðarlegur maður og
gerðist ekki svo djarfur að bjóða helg-
um venjum birginn? Ekki veit ég, hver
siður er í landinu Amurru eða- landi
Gogs konungs, en í voru landi er það
ekki venja, að yngri dóttirin sé manni
geíin á undan hinni eldri, það væri
brot á öllum lögum guðs og manna, og
ég er maður löghlýðinn og gæti virð-
ingar minnar í hvívetna. Þess vegna
gerði ég það sem ég gerði og fórst vit-
urlega þegar þú kunnir ekki fótum
þinum forráð, mér fórst eins og föður
sæmir, sem veit sínar föðurlegu skyld-
ur. Því að þú hefur móðgað mig stór-
lega í ást minni til eldri dóttur minn-
ar, þegar þú sagðir mér: „Lea tendrar
ekki karlmannsgirnd mína“ Áttirðu
kannski ekki skilið ráðningu fyrir það?
Nú geturðu séð, hvort hún hefur ekki
tendrað í þér neistann."
„Ég hef alls ekkert séð!“ hrópaði
Jakcb. „Það var Rakel sem ég faðm-
aði,“
„Já, það kom nú 1 ljós í morgurfsár-
inu,“ svaraði Laban hæðnislega, „en
það er nú mergur málsins, að Rakel
litla þarf ekki að kvarta. Því að Lea
var veruleikinn, en Rakel draumurinn.
Þó hef ég látið þig kynnast draumn-
um þar sem Lea var, og hver sem
það nú verður sem þú faðmar fram-
vegis, þá verður hennar veruleikinn
og draumurinn."
„Ætlarðu þá að gefa mér Rakel?“
spurði Jakob ....
„Að sjálfsögðu", sagði Laban. „Ef þú
vilt hana og greiðir mér svo sem lög
mæla fyrir, þá máttu fá hana“.
Þá hrópaði Jakob:
„En ég ,hef þjónað .þér í sjö ár fyriv
Rakel!“
„Þú hefu.r“, svaraði Laban virðulegur
á svip og fastmæltur, „þjónað mér fyr-
ir dóttur minni. Ef bú vilt fá hina
dótturina, sem ætti ekki að vera mér
óskapfellt, þá verður þú að borga í
annað sinn.“
Jakob þagði
„Ég skal,“ sagði hann loks, „útvega
kaupverð . og - sjá um að þér verði
greiddur mundur. Skal ég taka að láni
eina mörk silfurs hjá mönnum, er ég
þekki og fara með káupskap, einnig
munu sjálfsagt verða. ráð á gjöf, einni
eða • tveimúr, til að. binda við belti
brúðarinnar, þvi að alla þessa stund
hafa mér. óvaent. aukizt .nokkuð álnir
og -.geng ekki lengur með öreign-:svo
sem l>á- er ég. bað dóttur þinnar hið
.íyrsta- skipti'V J ' •
í^Þarná-- mælir ■ þú faftur án ' alínac'1'
-kurtérsiv1: sagði Laban; og hiááti höfuð-rf
ið' vírðálé|át'-%ita&rjgá!
sem þú ættir að fela vandlega í brjósti
þínu og mátt þakka þínum sæla,
að ókunnugir færi þetta ekki í tal og
ávíti þig, en þú ferð með þetta í há-
mæli og birtir öllum heimi svo að
maður má blygðast sín fyrir annars
manns hönd, þvi að sá hinn sami gerir
það ekki. Ég kæri mig ekkert um ó-
væntar álnir þínar og annað sem mér
er raun að. Ekki vil ég þiggja silfur
þitt að mundi og engan kaupeyri vil
ég að brúðargjöf, hver sem hann á, en
ég vil þú þjónir mér fyrir yngri dótt-
ur minni jafnlengi og fyrir hinni fyrri.“
„Vargmenni!" öskraði Jakob og
missti nær alla stjórn á sér. „Svo. þú
ætlar ekk’i að gefa mér Rakel fyrr en
eftir sjö ár?‘‘
„Hver segir það?“ svaraði Laban
kæruleysislega. „Hver hefur svo mikið
sem vikið að því? Það ert þú sem talar
eins og þú sért örvita og líkir mér
strax við vargúlfa, því að eg er faðir
og vil .ekki, að dóttir mín örmagnist
af þrá til karlmanns þangað til hann
er ellihrumur orðinn. Fa.r þú nú til
þíns bústaðar og dvel þar heiðarlega
vikuna alla. Þá skal þér gefin yngri
dóttirin svo lítið beri á og sem bóndi
hennar þjónar þú mér fyrir henni í
önnur sjö ár.“
Jakob þagði hneigðu höfði.
„Þú þegir.“ mælti Laban, ,,og lætur
ekki svo lítið að falla mér til fóta. En
mér er með vissu mikil forvitni á að
vita hvort ég muni fá mýkt hjarta þitt
til þakklætis. Þótt ég standi hér á
skyrtunni í morgunsárinu, rifinn upp
úr rúminu og þótt mér sé svefns þörf
og ræði viðskipti við þig, þá nægir það
sýnilega ekki til þess að vekja í þér
slíka tilfinningu. Ég hef ekki enn getið
þe-ss, að með hinni dótturinni færðu
einnig aðra ambáttina, sem ég keypti.
Því að Silpu gef ég þér með Leu í
heimanmund og með Rakel gef ég þér
Bílu, einnig vil ég skipa svo til um hin
síðari konukaup, að þeir tveir þriðju
hlutar úr mörk silfurs, sem ég ætla
að gefa ykkur, verði taldir með í kaup-
unum. Hefur þú þá fengið fiórar konur
í einni svipan og átt kvennabúr svo
sem konungar hafa í Babel og Elam,
en varst til þessa einn sveinkarl skorp-
inn og einmana."
Jakob þagði sem fyrr.
„Harðlyndi maður,“ sagði hann lok-s
og stundi. „Þú veizt ekki. hvað þú hef-
ur gert mér, þú veizt það ekki og ger-
ir þér þess ekki grein, ég verð víst að
sannfæra mig um það, og þú getur
ekki ímyndað þér það, svo járnkalt
er geð þitt. Ég hef sólundað sál minni
og öllu mínu bezta í ranga konu þessa
nótt, sárt brennur mér um hjarta
vegna hinnar réttu, sem þetta var ætl-
að, og skal. nú stunda Leu til loka
brúðkaupsvikunnar, og þesar hold mitt
er lúið orðið, því að ég er bara maður,
og það hefur fengið fylli sína og -sál
mín orðin várfleys tjí flugs, þá skal
mér auðnast að fá hina réttu, Rakel,
diásn mi'tt. En þú hussar sem svo, að
allt sé gott og blessað. En aldrei verður
það bætt, sem bú hefur gert mér og
Rakel, barni þínu, og svo einnig Leu,
sem situr uooi í rúmj pg grætur vegna
þess að ég hafði hana ekki í huga
rrúnum."
„Á að skilja þetta svo,“ spurði Laban,
„að eftir brúðkaupsvikuna méð Leu
verðir þú ekki framar sá karlmáður,
að þú getir gert hina dótturina frjó-
sama?“
„Að vísu ekki, það banni guðsvar-
aði Jakob.
„Þá er allt hitt heilaspuni," sagði
Laban, „blóðvana þvættingur. Gengurðu
að:þessunfi nýja sáttmálá og skal hann
vera í gildi eða- ekkí-. -með. mér ög
þér?“ ; * ;-y ■ :-i. ■ |
„Já, bóndi, hann skal vera. í gUdi,"
:éd9f;'ög': gekk áfttiÞ á’iíShd': Leu.'
4 ’: t
FORD-P ARSON S i
RÁTAVÉLARNAR
eru ódýrustu bátavélarnar á mark-
aðnuni og bera af í gæðum og ör-
yggi í gangi.
4 OG 6 STROKKA 42 HÖ 56 HÖ 86 HÖ 100 HÖ
FOBD
SVEIIMIM EGILSSONp
FRÁ FINNLANDI
• % V |
Elaðapappír — Bókapappír — Skrifpappír
— Pappi til iðnaðar — Umbúðapappír —
Smjörpappír — Toiletpappír —
Pappírspokar.
S. ÁRNASON & Co.
fíafnarstræti 5, Sími 5-22-14
•4”
,>'■ ií-W ■
*■ ö'5'
:J 1 ití •;
JÓLABLAÐ ÞJj&ÐVILJANS - -m