Þjóðviljinn - 24.12.1965, Qupperneq 19

Þjóðviljinn - 24.12.1965, Qupperneq 19
Smásaga eftir Liam O'Flaherty FÁTÆKT FÓLK Sjórinn heyrðist gnauða við ströndina meðan dimma næt- urinnar var að breytast í dög- un, þetta gnöldur nauðaði á hvítum skeljasandi, og hryll- ingskuldi febrúarmorgunsins næddi í lofti, en á sandöld- unni hjá veginum upp af ströndinni var mergð af svört- um draugum, jörðin svaf myrkri hulin. Það spratt mikið af þangi og þara fyrir utan, upp af botninum, rautt, slím- ugt og hált, vaggaðist með sér- hverri öldu sem bar að landi með gjálfri í grárri morgun- skímunni. Patrick Derrane kom hlaup- andi eftir veginum með kvísl reidda um öxl, og það bullaði í agablautum leðurskónum á blautum veginum. Hann skalf allur af kulda. Þegar hann kom út að sand- ströndinni sá hann greinilega þangið, hvernig það sogaðist aftur og fram við hin stöðugu og jöfnu átök hafsins. Hann rak upp lágt, snöggt fagnaðar- óp, og stökk út í flæðarmálið, fæturnir sukku í mjúkan sand- inn upp að öklum. „Lofaður sé guð!“ Febrúar var hálfnaður og honum hafði ekki unnizt að sækja þang og þara til að bera í kartöflugarðinn. Ástæðan var sú að hann hafði legið í inflú- ensu í sex vikur, konan hans var orðin veik af vosbúð og harðrétti, sonur hans fjögra ára lá fyrir dauðanum, enginn eldiviður eftir, hvorki mjöl né mjólk, og hefði það ekki verið fyrir miskunnsemi nágrann- anna, væru þau ugglaust öll dauð .... en samt .... samt varð að gera verkin .... Það varð að safna þangi og þara, og sá kartöflum, vegna þess að vetur fylgir ætíð hausti og haust sumri, og vetr- inum kuldi, sjúkleiki og vos- búð. Svipa fátæktarinnar sveið honum á baki, og rak hann á- fram niður að sjónum gegnum hinn gljúpa sand. Hann gleymdi konu sinni, syni og sultinum, en kepptist við að taka þang og þara á forkinn og bera upp á sandölduna. Hann varð ákafari og ákafari, og hann nísti tönnum af kulda. Hið eina sem hann hafði í huga var ávöxtur jarðarinnar, sem sá skyldi, og hin skelfi- lega svipa hungursins, ógn og skelfing fátækra, sem ætíð bíður þeirra á næsta leiti, minnir á harðræðin sem í vændum eru, og knýr þá til að brjótast gegnum hvert erfiði og hverja þraut. Fleiri komu frá þorpinu, og allir voru að flýta sér, og allir komu þeir niður í flæðarmál. Þeir heilsuðu Derrane og spurðu hvernig syni hans liði. „Og ekki líður honum vel,“ svaraði hann. „Hræddur er ég um að hann sjái ekki gras gróa frarnar." „Ó, miskunni honum María mey,“ sögðu þeir dapurlega. Því fátækir finna til með fá- tækum. Sólin kom upp. Dagsljósið skein um landið, á ströndina og sjóinn. Fuglarnir vöknuðu og fóru að kvaka unaðslega um allt heiðloftið. Rauður þar- inn, breiddist til þerris á sandölduna, glóði eins og blóð sem nýrunnið er úr und og sól skín á, en í baksýn var dökkblár sjórinn, dauðakaldur. Derrane hafði nú náð saman talsverðu magni af áburði í garðinn sinn, tíu hestburðum. Hann sneri heim. En af því að hann var hvergi nærri bú- inn að jafna sig eftir veikind- in. var honum óhægt um gang á veginum. Saltur sjórinn hafði rifið af lærunum á hon- um. Og nú sá hann fyrir sér hve ömurleg heimkoman yrði, sorg og sútir og opin gröf . . . Húsið hans var efst í þorp- inu, það var lágt hús langt, með hvítþvegnum veggjum, stráþakið var snyrtilegt, og eins var um að litast í garðinum, litlir grænir runnar spruttu upp við húsveggina. Það var þrifnaðarfólk, sem þarna átti heima, bæði bóndinn og hús- freyjan. En fátæktin hlífir engu ... í eldhúsinu var eng- inn nema nágrannakona sem sat á stóli fyrir framan móeld, og var að reyna að láta sjóða á katlinum. Hún heilsaði hon- um hvíslandi. „Hvar er Birgitta?" sagði hann. „Hún fór út til að sækja mjólkurleka út í teið. Það er búið að bera á borð í stóru stofunni. Farðu innfyrir. Nú sýður á katlinum. Hún er al- veg að koma.“ En hún leit ekki á hann. Hann stóð kyrr, kom ekki upp orðunum, en horfði á hurðina að herberginu þar sem sonur hans lá. „Er .. . er nokkur breyting?" sagði hann dauflega. Hún hristi höfuðið. „Farðu ekki innfyrir," sagði hún aftur og benti á dyrnar að stóru sofunni. „Ég ætla að fara og sjá hvort . . .“, sagði hann. „Nei, gerðu það ekki,“ sagði hún, og þaut upp af stólnum. „Hann sefur og bú hefur ekk- ert gott af að sjá hann. Farðu og setztu við borðið." Konan kom inn með litla fötu undir svuntunni. Þetta var smávaxin kona kringluleit, með stór blá augu galopin og starandi, eins og hún væri að skoða eitthvað skelfilegt, sem hún skildi ekki. Þau horfðu hvor^ á annað, maðurinn og konan, en hvorugt sagði orð. Þau þurftu þess ekki. Það nægði þeim að horfast í augu, þá vissi hvort um sig hvað hinu bjó í hug, svona einlægt var samlyndi þessara hjóna. Hann gekk inn í stóru stof- una með beygðu höfði. S’ðan fór hann úr hverri spiör. Ekki var á þeim burr bráður. Hún fékk honum þurr föt. Hann fór í þau og settist við borðið. Hún settist ekki, því það var ekki til brauð nema rétt handa hon- um og þó varla. En samt skipti hann brauðinu í jafna hluta og bauð henni annan helming- inn. „Ég vil það ekki,“_sagði hún. „Borðaðu það allt. Ég er ekki svöng.“ Hann horfði á hana feimnis- lega. Hún stóð við borðið og var að drekka te úr bolla, og horfði út um gluggann. Og þegar hann sá hve tekin hún var í andliti, og hve rauðar hendurnar, sem voru svo fall- egar fyrir tveimur árum, kom upp í honum gremja til slíkr- ar veraldar. Guð hjálpi okk- ur! Sá sem brotizt gæti út og brotið af sér hlekkina, brotið allar hindranir, í stað þess að vera harðfjötraður af fátækt, magnþrota, yfirunninn, varn- arlaus, bundinn, bundinn með þessum hræðilegu hungurs- hlekkjum. í stað þess fvlltust augu hans af tárum. Hann reis upp og tók utan um hana. „Borðaðu betta, Birgitta," sagði hann þýðlega. „Á meðan guð leyfir okkur að vera sam- an kemur allt í hendi.“ Hún sneri sér að honum, hjúfraði sig að brjósti hans og fór að gráta. „Hætt.u að gráta, elskan mín,“ sagði hann. „Það er ekki til neins.“ „Fyrirgefðu mér,“ sagði hún og þurrkaði af sér tárin. ,,En ég er orðin alveg uppgefin, og nú á ég að missa hann, litla barnið mitt, hvers vegna á ég að missa liann?" „Hættu, elskan mín. Hættu. Guð er miskunnsamur.“ Hann fór að borða brauðið. Svo fór hann og náði i hestinn sinn og reið út að ströndinni. Hesturinn var viljugur. hann frísaði og bar hátt makkann. en bó skalf hann allur af kulda, en fjörið var vfirsWk- ara, því á vorin færist fiör í hvert dýr, og kæti. Og Pat- rick sat aftur á lend hestsins, þungt hugsandi, hjartað í brióstinu kalt og hart af sorg. að korpa öllu banginu og bar- FrambnM á B5 síðu. JÓLABLAÐ - 19
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.