Þjóðviljinn - 24.12.1965, Page 37

Þjóðviljinn - 24.12.1965, Page 37
asta, fólkið naut þess, að .hirð- in í Napólí hafði á sér ninn mesia glæsibrag, svo að þang- að sóttu auðugir aðalsmenn hvaðanæva úr Evrópu. Allt fylltist af Englendingum. svo að jafnvel mátti ná saman völdum cricketliðum til keppni. Þegar herir Napóleons lögðu undir sig norðanverða ftal- íu, þá afréð Ferdinand að halda liði sínu gegn honum, en hon- um vai'ð hált á því. Hann beið ósigur í orustu í desember 1798 og varð að flýja til Sikileyjar. En Frakkar lögðu undir sig Napólí og stofnuðu Parþenópu- lýðveldið. sem reyndar átti hvorki langa né merkilega ævi. Sex vikum síðar stefndi Ruffo kardínáli hinum illræmda ,.san- fedisti" sínum frá Kalabríu og brytjaði niður hina lýðveldis- sinnuðu sem fagnað höfðu komu Frakka. Ruffo kardínáli hafði stuðning Nelsons flotafoi'ingja, en hann var um þetta leyti mjög vikaliðugur Bour- bonahirðinni, því að Emma Hamilton var f miklu vinfengi við drottninguna. Frakkar tóku Napólí að nýju. og þegar Ferdínand loksins náði ríki sínu aftur árið i815, var hugsunarháttur almennings orðinn mjög breyttur, og kunni Ferdínand ekki önnur ráð við kröfum manna en að halda öi!u niðri með skefjalausri harð- ýðgi. Stjórnarskrá fékkst ekki og hverjum sem mótmælum hreyfði var umsvifalaust varp- að í fangelsi. Eftirmenn tians á konungsstóli. Franz og Ferd- inand annar, voru engu betri, og Bretum og Frökkum blöskr- uðu svo aðfarirnar, um miðja nítjándu öld, að þeir kölluðu sendiherra sína heim og Glad* stone fór hinum hörðustu orðum um stjórnarfyrirkomu- lagið. Þó varð Ferdínand annar til þess að gera fyrstu járn- braut á Italíu og fyrstu stál- smiðju. en óánægjan fór vax- andi og þegar hann gaf að 'ok- um stjórnarskrá árið 1859 þá var það of seint. Garíbaldi var kominn á kreik. Hann hélt s'g- urgöngu sína inn í Napólí 7. september 1860 og steypti Bour- bonum endanlega af stóli og sameinaði Italíu Þannig hvarf þetta konungs- ríki út' sögunni, og mikil höfuðborg varð nú ekki annað en aðalborg eins skika lands- ins. Napólí mátti lækka seg'in og græddi lítið á sameiningu landsins. Iðnaðurinn sem Bour- bonar höfðu efnt til þreifst ekki en Norður-Italía tók forustuna í þeim efnum. Höfnin, sem tð- ur var miðstöð viðskipta við heilt konungsríki, varð nú eft- Irbátur Genúa. Napólf stóð í stað, afskipt og gleymd, en N- Italía tók stórstígum framfór- um. Avíð og dreif um þessa fornu borg má sjá hin og þessi minningarmerki sögunnar. — Hérna er rómverskur múrvegg- ur, þarna klaustur frá tímum Normanna, gotnesk bogagöng, hlið í barokkstíl. Niðurskip- an og byggingarstíll er án sam- ræmis og um samhengi í þróun- inni eða eðlilegt framhald lef- ur ekki verið að ræða, heldur hefur hver öld elt þá tízku sem þá var. Napólíbúar nútímans skeyta lítið um forna sögufrægð. Tími Grikkja, Rómverja, Frakka, Bourbona og jafnvel síðari heimsstyrjöld er fallin í gleymsku. Þeir hafa tamið sér að meta fortíðina lítils og vænta sér lítils af framtíðinni og hugsa mest um líðandi stund. Landið hefur oft verið hersetið og kúgað, fólkið er hviklynt og óáreiðanlegt í við- skiptum. Ekki eru Napólíbúar niðurbeygðir heldur glaðlyndir, þeir bera mátulega virðingu fyr- ir stjórnsemi og ríkisvaldi. Þegar borgarstjórinn var rekinn árið 1958 fyrir sjóðþurrð, sem nam einum þúsund miljónum króna, höfðu borgarbúar helzt gaman af því hve vel honum hefði tekizt að fara í kringum yfirvöldin í Róm. Þetta var í fimmtánda sinn á fimmtíu ár- um sem stjórnin hafði orðið að afsetja borgarstjórnina í Nap- ólí. Ahugasamur ferðamaður finn- ur í Napólí ýmislegt annað en hina vanabundnu ferða- áætlun um Caprí, Pósítano, Pompeii og mandólínspilið. Hjá almenningi má kynnast hjátrú og ævintýrum, sögum og sögn- um. I hringiðu borgarinnar er margra kosta völ, þar er flóa- markaður, þar er svartimark- aður og dýrimarkaður. Þarna eru andstyggilegustu fátækra- hverfi í allri Evi'ópu. Padro Borelli hirðir munaðarleysingj- ana upp af götunni og kemur þeim fyrir í Urchinahöllinni. Camorra, gamli leynifélagsskap- urinn hefur tök sín á helm- ingnum af allri verzlun í borg- inni. Þarna eru óviðjafnanlegir fjársjóðir af, listaverkum, en einnig mesta glæpabæli á allri Italíu. Utsýnið er dásamlegt, en tugir þúsunda ganga atvinnu- lausir. Sagnfræðingur frá Nap- ólí hefur sagt að óvíst sé hvort fleira sé þar af kirkjum eða hóruhúsum, en víst er margt af hvorutveggja. Fornar grískar venjur móta líf og siði, spænsk og frönsk orð eru enn í mál- inu. (Þýtt og endursagt). BISKUPASÖGUR Sænski erkibiskupinn Nath- an Söderblom, sem dó árið 1931, var með afbrigðum vin- sæll maður. Margar sögur voru sagðar um kímni hans, en eink- um vakti það athygli, að hann brást oft öðruvísi við en aðrir menn mundu hafa gert, þegar eitthvað óvænt bar að hönd- um. Hann var á yngri árum sínum sjómannaprestur í Dun- kirke. Gamall, sænskur sjó- maðui' sagði einu sinni fr’á því, að hann hefði komið til Dunkirke á þeim árum, sem Söderblom var þar, og verið af sérstökum ástæðum dapur í huga. Datt honum þá í hug að ganga í sænsku sjómannakirkj- una, því að þetta var á sunnu- degi. Enginn maður var í kirkj- unni, þegar hann kom inn. og fleiri komu ekki. En eftir all- langa bið kom presturinn messuklæddur. Sjómanninum þótti ekki ólíklegt, að prestur- inn mundi yrða á hann, úr því að hann var einn, ræða við hann litla stund, og fara síðan. En presturinn virtist ekki skeyta því neinu, hvort kirkjan. var þéttskipuð eða tóm. Hann þjónaði fyrir altari og blessaði ,,söfnuðinn“, las bænina, sté í stólinn flutti langa ræðu, og gekk fyrir altarið á ný. Hann sleppti engu atriði úr guðsþjón- ustunni, og að henni lokinni gekk hann út, án þess að yrða á manninn. önnur eins virðing sagði sjþ- maðurinn að sér hefði aldrei á ævinni verið sýnd. Einhverju sinni kom lítil dóttir biskupsins til hans og sagði. , Fólk segir. að ég sé falleg. Er það satt. pabbi?“ Biskupinn svaraði: ,,Já, það er satt. En það gerir ekkert til, ef þú ert góð.“ JÓLABLAÐ - 37
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.