Þjóðviljinn - 24.12.1965, Síða 44

Þjóðviljinn - 24.12.1965, Síða 44
Jíhann Brager hefur fundið keltneska þjóðvísu: Einn bóndi átti garð, og hann gróðursetti þar greinarkorn af eplatré, sem fögur laufin bar. Siðan komu þurrkar og sumur löng og heit. Þó sótti hann vatn um langan veg til fjalla. — Þolinmasðin þrautir vinnur allar. En trylltur norðanstormnrinn tréð með rótum sleit. Segðu mér það stúlkan mín, hvort viltu heldur vera iðjusami bóndinn, sem entist til að bera eplatrénu vatnið um sumardægrin heit, eða stormurinn, sem eplatréð upp með rótum sleitP Þá svaraði mœrin: Ég vildi ekki vera vindurinn ólmi, sem tréð með rótum sleit, og ekki heldur bóndinn, sem entist til að bera eplatrénu vatnið um sumardcegrin heit. En, 6, að ég vceri eplatréð í allri fegurð sinni og angan, þar til stormurinn lýkur cevi minni. Jóhann Brager er glaður. Stoss forstjóri er líka glaður, þegar hann fær óviðbúinn pöntun um 500.000 þrílita vörumiða. Þessi keltneska þjóðvísa minnir Jóhann á mið- aldakvæði frá Estramadura og tvær slavneskar vísur nokkru yngri. Eitt kvöld gengur Jóhann. eins og hann er vanur, eftir Vilhelmsstræti á leið til Elsu. Hann ætlar að segja henni frá þessum happafundi. Hann taut ar við sjálfan sig: „— grein- arkorn af eplatré. sem fögur laufin bar —“. Hann rekst á fólk, sem hann mætir. Það er að flýta sér heim frá vinnu sinni. Það hefur verið önnum kafið við prent- vélamar eða búðarborðin, við að selja illa þefjandi loðkápur. Sumir hafa bólgna fætur og hlakka til að setja á sig inni- jskó og hlusta á nýjustu Char- lestonlögin í útvarpinu. Allir ganga auðvitað hægra megin á gangstéttinni, nema Jóhann Bráger. Bjáni er maðurinn, að geta ekki verið réttu megin. Jóhann gengur yfir torgið „— En trylltur norðanstorm- urinn tréð með rótum sleit —“. Þetta er fallegt kvæði. Elsa hefur sjálfsagt gaman af því. Jóhanni skrikar fótur á mis- gengnum skóhælunum. Hann heyrir ekki þjóta í bílhorninu, sér ekki eldrautt stefnuljósið, sér ekki gráðugar risaglyrnur bílsins. Hann tautar: „Ó, að ég væri eplatréð í allri fegurð sinni —“. Og svo varð um- ferðarslys, eins og það er kall- að. Lík Jóhanns Bragers er flutt á lögreglustöðina. Stoss for- stjóri er æstur. Vissulega er Mercedesbíllinn hans óskaddað- ur. En hann hefur tafizt um stundarfjórðung. Hann varð að sýna skilríki sín. Rétt eins og það hefði ekki nægt, að hann segði nafn sitt hérna í Leip- zig! Tvisvar varð hann að undirrita einhverjar skýrslur. Hann hafði unnið svo kappsam- lega í dag, að hann átti skilið að fá að hvíla sig. Og hann- sem var á leiðinni til Hótei Astóría. Ef maðurinn var heym- arlaus, átti hann að líta vel i kringum sig. Hafi hann verið biindur, átti hann að hafa fylgdarhund í bandi, eins og blindingja er siður. Hann hlýt- ur að hafa verið geggjaður. Á nafnspjaldinu stendur líka j,Filosofie doktor". Ojá, sannur heimspekingur! Með hugann uppi í skýjunum. Og ekki er að spyrja að lögreglunni í Leipzig. Bók Jóhanns Bragers, sem aprílblað Fomfræðingsins sagði. að kæmi út innan skamms verður aldrei lokið. I hennar stað koma aðrar bækur, Ekki vantar prentsmiðjur í Leipzig. Elsa fær aldrei að heyra kelt- neska þjóðkvæðið um eplatréð. Satt að segja var hún líka ofurlítið farin að þreytast á ljóðalestri Jóhanns. Villi í Bankanum kann miklu sniðugri vísur, til dæmis: ,,í lyftunni sá ég Frissa í fyrsta sinn.“ Það er nú vísa í Iagi og gott að dansa eftir henni. Mercedesbíllinn urrar á- nægjulega. Eigandinn hefur þvegið gljáandi aurhlffarnar. Glóðaraugu bílsins höggva geislafleygum inn í myrkrið. Jóhann Brager er ekki lengur til. Karlar og Villar spjara sig í umferðinni. í gluggum nætur- sala glitra litríkar líkörflösk- ur. Ljósaauglýsing hátt í göt- unni kynnir nýtt ilmvatn. Stoss forstjóri hefur fengið pöntun um 300.000 miða. Á þeim verð- ur japönsk kona f gullbrydd- um kímonó. Sú Ijóshærða bíð- ur hans á Hótel Astóría. í kvöld verður hún hans. Honum finnst sem renni saman högg bílvélarinnar og hjartsláttur hans sjálfs, Sami þrótturinn. Sami glæsileikinn. Við hverja beygju verða þeir samrýmdari, bíllinn og hann. Klukkustund síðar situr Stoss forst. yfir tæmdri champagni- flösku. Hann rekur upp snöggt hljóð, líkast bílöskri. Stúlkan náfölnar. En f brjósti Stoss forstjóra slær fjörutíu hestafla mótor. Augu hans verða hvöss og köld. Þau eru eins og kast- Ijós — þessi voðasýn, sem birt- ist Jóhanni Bráger á bana- stundinni. Tómasarkirkjan í Leipzig, þar sem Jóhann Sebastían Bach starfaði um árabil sem organ- isti og kantor. Á VEGUM ÚTI
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.