Þjóðviljinn - 24.12.1965, Page 94

Þjóðviljinn - 24.12.1965, Page 94
Gata í Gatan krýpur í höm, nöktu gráu baki við morgunkælunni. Hún er gauðslitin af óteljandi fótaförum og hulin ló af ryki. í húsin eru óteljandi brestir og rifur, fullar af fitugu sóti úr reykháfum verksmiðjanna. Rúðurnar eru rykugar og svartar af sóti, sem regnvatnið hefur gert sér geilar í til að renna um. Það leggur þef af húsveggjunum, þef af benzíni og gömlum óhreinindum, og að innan eru húsin gegnsýrð af matarþef og mannaþef. Eymd og neyð seytla út um rifurnar í rúðunum og brestina í veggjunum. Og að húsabaki frýs sorpið í sorptunnunum á veturna og gerjast með mikl- um þef á sumrin, en rotturnar éta sér til óbóta af þessum úr- gangi. í götu þessari, sem er tæp- lega sjö hundruð metrar á lengd, eiga tíu þúsxindir manna heima. Stigarnir í hús- um þessum eru háir og mjóir, og á hverjum palli eru dyr 94 — JÓLABLAÐ með mörgum nöfnum. Hverju húsi fylgir einn, tveir eða þrír eða jafnvel fjórir húsagarðar, og hver háaloftskompa og hver kjallarasmuga virðist álitin vera hæfilegur dvalarstaður og híbýli fyrir mennska menn, því ekkert af þessu stendur autt. I sérhverjum niðdjúpum húsagarðinum eru sorpgeymsl- ur, salerni og þvottasnúrur handa öllum þeim múg manns, sem í húsinu býr. Allan dag- inn kveða við gól og læti í börnunum, en þegar náttar er djúp þögnin rofin af tisti rottuunganna og vart heyran- legu þruski, er þeir taka undir sig_ stökk. Á morgnana eiga fátækling- arnir götuna. Fyrstar koma konurnar. Þetta eru lúnar kon- ur, sem hafa elzt fyrir tímann. Æðarnar á fótum þeirra hafa bilað af áreynslu og sprungið, hnyklast í hnúta. Fætur þeirra eru skemmdir og bæklaðir af of miklum stöðum og gangi í vondum skóm. Hendurnar rauðar og hrjúfar af kulda, vatni og sápu. Bökin bogin og skæld við árangurslaua leit að hinni hægustu stöðu við erfið- isvinnuna. Brjóstin slöpp og sigin, kviðurinn framsettur af of tíðum barneignum ög erf- iði. Síðan koma börnin, og eru að flýta sér í embætti sín, sendisveinaverkið, og það er sama sagan: óharðnaður lík- aminn beygist og afskræmist af því að rogast með þungar byrðar fyrir annað fólk, og af því að vera stöðugt að reyna að hjúfra öxlunum að brjóst- inu til varnar gegn kuldanum. Síðan glymur í vekjaraklukk- unum hjá verksmiðjufólkinu, körlum og konum. Karlmenn- irnir eru lengi að vakna. þeir hnipra sig í rúminu, ýta sér fram úr og stíga fótunum þunglamalega niður á gólfið, sitja hálfbognir á rúmstokkn- um. beriact við nð nudda stýr- urr.Tr ú- ng aka úr sér leifunum af hinum arg- vítuga vinnulúa gærdagsins. Konurnar eru fljótari til, þær eru röskari í hreyfingum, fara fyrr að heiman en karl- mennirnir, því þær eiga eftir að koma börnunum fyrir, ann- aðhvort á dagheimili, barna- garði, skóla eða þá á götunni eða í húsagarðinum. Og þá er dagur er um allt loft, eru margir af íbúum tíu- þúsund manna götunnar á bak og burt. Samt ekki nærri all- ir. Ekki gamalmennin, sem vita ekki hvernig þau eiga að stytta sér stundirnar, svo bæri- legt sé, hálfsvöng og hálfkalt og kvíðin fyrir nóttinni, því þau mega búast við stuttum svefni en langri vöku, með þeirri spurningu að eilífu ó- svarað, hvað orðið hafi af lífi þeirra og erfiði um dægrin löng. En ofar öllum vandamál- um er hið óframúrráðanlega: get ég látið jarða mig á sóma- samlegan hátt? Sumir eru á sveitinni eða almannatrygging- unum, og hjá þeim snýst öll umhugsun um hið sama: nú á ég að láta skoða mig. Að öðru leyti molnar tíminn og grotnar og fólkið molnar og grotnar. Fyrst eftir hádegi standa jafnan nokkrir atvinnu- leysingjar saman í hnapp í porti nokkru. Þarna híma þeir í klukkutíma, reykja og stúta sig á sömu flöskunni. Þeir tala saman hóglátlega og geta fram úr engu ráðið, og samheldni þeirra er heldur óeiginleg og ekki laus við aðgát, ef ekki tortryggni. Við og við heyrist stakur hlátur. Og stundum ljótt orðbragð. Yfir öllum grúfir orðlaus örvænting yfir því að vera ofaukið. Þegar líður á daginn koma ný andlit í ljós. Gráhvít nag- dýraandlit með rottukjálka og músaenni. Mórauðar eða grá- svartar íkornatennur og ein- staka með skarð í vör. Ennin lág og breið og lúta eins og viðbúið sé að þau stangi, en augu undarlega árvökul. Þess- ir menn spila biljarð eða flæki- ast á knæpum og drekka öl og vín, Sumir eru á eintaii og eru að hvíslast á um heitt silfur og þunga teninga, eða hvað sem það nú kann að vera. Sumir standa upp og fara út, snúa sér að stúlkukind sem þar er, með illyrmislegar fyrirskipanir, en hún heldur áfram eftir götunni, hægt og seint eins og áður. Börnin leika sér á götúnni á daginn óíg fram á kvöld, en óðar en bau stálpast fer svipuririn af barna- leikjum, og í stáðirin : korna laumuleikir í skúmaskotum og gættum. Piltarnir sjá teikning- ar á veggjum og inni á salern- um, og þeir taka traustataki á telpunum, fetta þær aftur- ábak og fulhnúa um brjóstin á þeim, stélast með hendurnar fljótt og harkalega undir kjól- faldinn, en bær æna upn yfir Framhald á 95. síðu.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.