Þjóðviljinn - 31.01.1981, Page 1

Þjóðviljinn - 31.01.1981, Page 1
SUNNUDAGS BLADID NODVIUINN 32 SÍÐUR Helgin 31. jan — l.febr. 198Í —25. — 26.tbl. 46. árg. Nýttog stærra — selst betur og betur Verð kr. 5 Sjöunda gos Kröfluelda, siðan þeir byrjuðu i desember 1975, hofst um kl. 14.20 i gær. Er það jafnframt fjórða gosið þar nyrðra á aöeins rumum 10 manuðum. Kröflueldar hafa nú staðiö lengur Myvatnseldum 1724—1729 og eru þetta orðin einhver lengstu samfelldu eldsumbrot i sögu islands. Er blaöamenn Þjoðviljans flugu yfir svæöið kl. 17.00 i gær gaus á 1—2 km langri sprungu við svonefnda Ethóla,en þeir eru við giröinguna á sýslumörkum Þingeyjareýslna. Hraunið rann þa að mestu leyti i einum straumi til noröurs og niður i dæld i Gjástykki. Mest eldvirkni var a miðri sprungunni og eldsúlurnar a annað hundraö metra haar þar. Mikill hraði var a hraunelfunni og var hún komin nær 3 km i norður i gærkvöldi. Mannvirki voru i engri hættu. Að sögn Páls Einarssonar jaröeölis- fræðings, sem var a skjalftavaktinni i Myvatnssveit i gær, var aðdragandi þessa goss með mjög svipuöum hætti og í fyrri gosum Kröf luelda, nema hvað allt gekk hægar fyrir sig. Um 7 timar liðu frá þvi að hrinan höfst þar til hraun braust upp a yfirborðið. Siðdegis i gær virtist heldur draga ur landsigi og skjálftavirknt en gosið var i fullum krafti. Gossaga Kröf luelda er nú þessi: 1. gos: 20. des. 1975, 2. gos: 27 april 1976, 3. gos: 8. sept. 1977, 4. gos: 16. mars 1980, 5. gos: lO.juli 1980, 6. gos: 18.okt. 1980, 7. gos: 30. jan. 1981. — GFr/ká

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.