Þjóðviljinn - 10.07.1982, Qupperneq 12
('í 40í» -- V?/,Fíi!r/fiÓW tVit t’iVi j 1 -.01 liijíflí
12 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin lO.-ll. júli 1982
Jónasarhús
á Akureyri
Stjórnarnefnd Náttúrugripa-
safnsins á Akureyri og forstööu-
maöur þess: Helgi Hallgrimsson,
Arni Jóhannesson, Rafn Kjart-
ansson, Elín Stefánsdóttir, Guö-
mundur Gunnarsson, Jón Sigur-
jónsson og Jóhann Sigurjónsson,
beita sér nú fyrir þvf aö hús veröi
reist yfir safniö, kennt viö Jónas
Hallgrimsson og enda reist til
minningar um hann. t ávarpi frá
stjórninni segir:
■
Þegar skólahúsiö á Mööruvöllum brann var gagnfræöaskólinn fluttur til Akureyrar. En áfram laöaöi
skólinn aö sér náttúrufræöinga, svo sem fram kemur I meöfylgjandi grein.
Húsnœði
Náttúrugripasafnsins
Húsnæöi safnsins hefur þvi
miður ekki verið i samræmi við
þá starfsemi, sem þar fer fram og
hefur það mjög háð vexti þess og
viðgangi. Eins og stendur er þvi
holað niður i gömlu fjölbýlishúsi i
Hafnarstræti 81A, þar sem það
hefur 1. og 4. hæð til umráða,
samtals um 200 ferm. gólfpláss.
Þótt fyrirsjáanleg sé nokkur við-
| bót við þetta húsnæði á næstu ár-
um er ljóst, að þar er ekki um
neina lausn að ræða til frambúðar
á húsnæðisvanda safnsins.
Náttúrugripasafnsnefndin er
þeirrar skoðunar, að ekki sé
seinna vænna að fara að undirbúa
nýja byggingu fyrir þetta merki-
lega fræðasetur, sem vissulega
ætti að vera stolt okkar Norðlend-
inga og Akureyringa sérstaklega,
þar sem það er að heita má eina
sjálfstæða visindastofnunin utan
höfuðstaðarins.
1 þvi skyni hefur nefndin stofn-
að sérstakan byggingarsjóð, i
samráði við forstöðumann safns-
„Allra vísinda indælust”
mund G. Bárðarson, jarðfræöing, I staöfestist hér ævilangt, enda Ey-
Þorkel Þorkelsson eðlisfræðing firðingur (Hörgdælingur) að
og síðar Veðurstofustjðra, Pálma uppruna. Hann hefur haldið
Hannesson, siðarrektor, Steinþór áfram rannsóknastarfi Stefáns
Sigurðsson, jarðfræðing, Trausta | við könnun á gróðurriki landsins
I Jónas Hallerimsson vakti fyrstur manna máls á stofnun náttúrugripa-
| safns á islandi.
Náttúrufræöiá sér lengri hefð i
Eyjafirði en víöast hvar annars-
staðar á landinu. Má rekja upp-
haf hennar til miðrar 18. aldar er
þeir félagar Bjarni Pálsson og
Eggert Ólafsson ferðuðust um
landið til að kanna náttúru þess
og mannllf, en Bjarni var upp-
runninn á Upsaströnd i Eyjafirði.
Jónas Hallgrimsson
Jónas var fæddur á Hrauni i
öxnadal og alinn upp á Steins-
stöðum i sömu sveit. Jónas hafði
brennandi áhuga á náttúrufræði
og gerði sér far um að kynnast
náttúru landsins sem best, enda
leit hann fremur á sig sem nátt-
úrufræðing en skáld. Hann var öt-
ull safnari og vakti fyrstur máls á
stofnun náttúrugripasafns á Is-
landi, og hófst sjálfur handa um
að koma þvi á fót árið 1841, er
hann dvaldi i Reykjavik. Ekki
varð sú hugmynd að veruleika i
það skipti, en til eru enn nokkrir
gripir úr þessu náttúrusafni Jón-
asar.
Gagnfræðaskólinn
á Möðruvöllum
| sem stofnaður var 1880, laðaði
til sin nokkra af okkar merkustu
náttúrufræðingum, sem notuðu
sumarfri sin til söfnunar og rann-
sókna á náttúru landsins og lögðu
grundvöllinn að þekkingu okkar á
mörgum sviðum. Ber þar hæst
nöfn þriggja manna, þeirra Þor-
valdar Thoroddsen, Ólafs Daviðs-
sonar og Stefáns Stefánssonar.
Allir unnu þeir þrekvirki i fræð-
um sinum, hver á sina visu; Þor-
valdur i almennri landkönnun og
jarðfræði landsins, Stefán meö
rannsóknum á háplöntugróðri og
Ólafur með ýtarlegri söfnun
mosa, skófa, sveppa og annarra
lægri plantna. Flóru Islands
samdi Stefán á Möðruvöllum og
gaf út 1901 og ritverkið „Botany
of Iceland” byggist að verulegu
leyti á söfnunarstarfi Ólafs Dav-
iðssonar. Þorvaldur Thoroddsen
hefur ritað meira um Island og
náttúru þess en nokkur annar
maður og eru mörg rita hans
grundvallarrit og alkunnug hér á
landi og i grannlöndum.
Gagnfræða- og
Menntaskólinn á
Akureyri
Eftir aðskólinn fluttist til Akur-
,eyrar og nefndist Gagnfræöaskól-
'inn á Akureyri og siðar Mennta-
skólinn á Akureyri, störfuðu þar
einnig sem kennarar ýmsir þjóö-
kunnir náttúrufræðingar, sem
fetuðu dyggilega i fótspor frum-
kvöðlanna á Mööruvöllum. Má
þar sérstaklega nefna þá Guð-
Einarsson, jarðfræðing, og Stein-
dór Steindórsson, grasafræðing.
Þótt sumir þeirra væruhér aðeins
stuttan tima, virðist sú dvöl hafa
orðiðþeim gott vegarnesti, og hér
hófu þeir rannsóknaferil sinn og
ritstörf. Guðmundur rannsakaði
m.a. Tjörneslögin og samdi
grundvallarrit um þau og Trausti
og Þorkell könnuðu isaldarminjar
I Eyjafirði og rituðu um það efni.
Steindór var sá eini af þeim, sem
og ritað fjölmargt um það efni.
Samtimamenn hans, Ingimar
Óskarsson og Ingólfur Daviðsson,
eruog báöir upprunnir i Eyjafirði
jog fengust nokkuð við rannsóknir
þar á fyrri árum þótt þeir stað-
festust annarsstaðar. Þá ber enn
að nefna Ólaf Jónsson, búfræöing,
sem fluttist til Akureyrar 1924 og
átti þar heima siðan, en hann
stundaði landkönnun á öræfum
Þingeyjarsýslu og rannsakaði
skriöur, berghlaup og snjóflóð og
ritaði miklar bækur um öll þessi
efni. Vann hann það allt i fri-
Istundum sinum frá erilsömu em-
[bættisstarfi.
Náttúrugripasafnið
á Akureyri
j er stofnað árið 1951 fyrir for-
j göngu Jakobs Karlssonar o.fl.
Kristján Geirmundsson, sem
lengi hafði fengist við fuglaskoð-
un.og uppsetningu á fuglum, var
: fyrstisafnvörðurþess, en 1963 tók
Helgi Hallgrimsson (þá kennari
við M.A.) við af honum. Hóf hann
þá að stunda náttúrurannsóknir
' og byggja upp rannsóknaaðstöðu
við safnið, meö eflingu rann-
sóknasafna, kaupum á rann-
i sóknatækjum, fræðiritum o.s.frv.
i Um 1970 réðist Hörður Kristins-
son grasafræðingur að safninu,
og átti á næstu árum mikinn þátt i
uppbyggingu þess, til þess er
hann réðst prófessor i nýstofnaðri
náttúrufræðideild Háskólans i
Reykjavik, 1977. Nú eru tveir
fastir starfsmenn við safnið, og
oftast 1-2 aukamenn.
Auk rannsóknastarfanna hefur
safnið fastar sýningar á náttúru-
gripum, sérsýningar og fyrir-
lestra af og til, og stendur að út-
gáfu á fræðilegum og alþýðlegum
timaritum. Náttúrugripasafnið
hefur þannig að vissu leyti tekið
viö þvi hlutverki, sem Gagn-
fræðaskólinn (Menntaskólinn) á
! Akureyri gegndi áður, að vera
miöstöð náttúrurannsókna á
Norðurlandi. Þetta rannsókna-
hlutverk safnsins hefur nú verið
! viðurkennt m.a. af Rannsókna-
ráði rikisins, sem hefur tekið það
með i ársskýrslu sina, og talsvert
er leitað til safnsins með beiðnir
um ýmiss konar athuganir. Komi
til stofnunar háskóla á Akureyri,
sem nokkuð er umrætt, verður
Náttúrugripasafnið eflaust einn
af hornsteinum hans.
ins og bæjarstjórn Akureyrar,
sem geymdur er i verðtryggðum
■ reikningi i Landsbankanum. Til-
! gangur sjóðsins er að safna fé til
styrktar nýbyggingu fyrir Nátt-
úrugripasafnið á Akureyri og
varðveita þaö. Ráögert er að
reisa fyrirhugað safnhús i nánd
við Lystigarðinn og Menntaskól-
ann, enda er til þess ætlast að það
geti að einhverju leyti notast
þessum þremur stofnunum og
annarri skyldri starfsemi, svo
sem veðurathugunum og jarð-
',skjálftamæli, sem nú er i umsjá
lögreglunnar á Akureyri. Einnig
verði þar gert ráð fyrir
möguleikum til háskólakennslu i
náttúrufræði.
I Jónasarhús
Stefnt er að þvi að safnhúsið
verði byggt á árunum 1985 - 1995
svo að hægt verði að opna það á
150 ára ártið Jónasar Hallgrims-
sonar (1995). Sú tillaga hefur
komið fram að kenna húsið við
Jónasogkalla Jónasarhús.Er þá
haft I huga að húsið geti orðið
einskonar minnisvarði um þetta
ástsæla skáld, og yrði tekið tillit
til þess við teikningu og hönnun.
Einnig mætti fá þangað náttúru-
gripi, sem Jónas safnaði, en þeir
eru flestir geymdir i Kaup-
mannahöfn. Þar mætti og sýna
teikningar hans, handrit o.s.frv.
Jónasarhús á að vera musteri
náttúruvisindanna á Norðurlandi,
þeirra vísinda, sem Jónas taldi
„allra visinda indælust” og helg-
aði mestalla starfskrafta sina. Til
þess að sá draumur megi rætast
verða margir að leggja hönd á
plóginn og gefa i byggingarsjóð-
inn, allteftir efnum og ástæðum.
Hér er tilvalið tækifæri fyrir þá,
sem vilja minnast einhverra
timamóta i ævi sinni eða annarra,
eöa verja eigum sinum skynsam-
legaeftirsinn dag. Félög og fyrir-
tæki ættu einnig að muna eftir
byggingarsjóðnum þegar tæki-
færi gefast. Markmiðið er að
safna svo miklu fé i sjóðinn á
næstu árum, að hægt verði að
hefja framkvæmdir að þremur
árum liönum.
I Náttúrugripasafninu liggur nú
frammi bók ein mikil, sem ætlast
er til að gefendur skrifinöfn sin i.
Einniger áætlað að prenta gjafa-
bréf, sem menn geta keypt og
notað sem kvittun. Sérstök viður-
kenningarbréf verðaafhent þeim,
sem gefa stórar gjafir. Reikn-
ingsnúmer hins verötryggða
sparireiknings i Landsbankanum
á Akureyri er 613137 og þar fá
menn einnig að sjálfsögðu kvitt-
anir fyrir innleggi sinu.
„Bera bý bagga skoplitinn
hvert að húsi heim”, kvað Jónas
forðum. Eins og þessir skoplitlu
baggar býflugnanna geta myndað
heilt vaxkerti þannig geta marg-
ar smágjafir orðið til þess að hús
Jónasar Hallgrimssonar, skálds_
og náttúrufræöings, veröi aö veru- ‘
leika. —mhg
Gagnfræðaskólinn á Möðruvöllum var stofnaður árið 1880. Þar störfuðu m.a. náttárufræðingarnir Þor-
valdur Thoroddsen, ólafur Davfðsson og Stefán Stefánsson.