Þjóðviljinn - 16.10.1982, Blaðsíða 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN
Og þá er þaö þriöji hluti getraunar-
innar sem allir áskrifendur Þjóðviljans
geta tekiö þátt í. Getraunin hófst í
Sunnudagsblaðinu fyrstu helgi í októ-
ber og þeir sem hyggjast taka þátt í
henni sendi svör í lok mánaðarins úr
öllum fimm þáttum hennar (Sunnu-
dagsblööin í október). Þá veröur
dregiö úr réttum svörum og eru
glæsileg verðlaun í boöi eða FERÐ
TIL AMSTERDAM MEÐ ARNAR-
FLUGI. Spurt er úr fréttum Þjóövilj-
ans dagana fyrir hvern sunnudag.
a
sænskar vörur vegna
gengisfellingar
b
mjólk vegna aukinna nií>.
urgreiðslna
c
bensín vegna olíuverð-
lækkunar
Skemmtiferð
í Laka
Jæja heillin, sagði kallinn við
kerlu sína einn góðviðrisdag í
júlímánuði. Nú förum við í
ferðalag á þeim nýja og strauk
splunkunýrri bifreið sem stóð á
hlaðinu. Hvert skal halda?,
sagði ktrling. Hún stóð í bæjar-
dyrunum strýhærð, stuttpilsuð
og í gömlum gúmmískóm af
karli sínum. O, við skulum
skoða Laka, heillin. Það er ekki
svo ýkja langt ferðalag, sagði
karlinn og klóraði sér í
hausnum. Kerling hrökk við,
hún þekkti nú ekki annan laka
en sem fylgir vömb, kepp og
vinstur. Fór þegjandi inn í bfl-
inn. Karlinn settist undir stýri
og ók af stað. Hann var í góðu
skapi og bað kerlu sína að
syngja. Hún væri nú í kirkjukór
og gæti því sungið sálm ef hún
kynni ekkert annað. Kerlingin
hló og sagði að það legðist illa í
sig að syngja sálm á skemmti-
ferðalagi. f>á væri betra að
þegja og horfa á sköpunarverk
guðs. Vegurinn fór síversnandi,
ýmist stórir steinar eða djúpar
holur og bfllinn rétt mjakaðist
áfram.
Þau komu nú að djúpu gili og
gekk sæmilega að komast niður
í það. En karlinum leist illa á að
komast upp úr gilinu því svo var
það stórgrýtt. Hann stígur því
fast á bensíngjöfina. Bfllinn
hoppar og skoppar á steinunum
eins og mús væri að leika sér.
Og upp úr gilinu komst hann. Á
gilbarminum slettist bfllinn
harkalega til en lenti þó mjúk-
lega á gríðarstórum steini sem
var á gilbarminum og þar var
snarbratt niður í urð og grjót.
Karlinn bölvar í hljóði, rekur
kerlinguna út úr bílnum, fer
sjálfur út kerlingarmegin, því
steinninn var við hurðina hans
megin. Karlinn sér að ef bfllinn
fer áfram skemmist hliðin og ef
bfllinn fer aftur á bak, þá lendir
hann ofan í gilinu og kallast
ekki bfll lengur. Það er því eina
ráðið að velta steininum ofan í
gilið en samstundis verður að
aka bflnum áfram annars fer
bfllinn með steininum ofan í gil-
ið. Karlinn skipar kerlingu að
taka af sér sokkaböndin, þau
voru spjaldofin og fín, hnýtir
sokkaböndin saman og þar næst
utan um mittið á kerlingu. Svo
skríða þau bæði upp a þakið
á bflnum og síðan upp á
steininn. Þá fær karlinn kerl-
ingu vasahnífinn sinn, lætur svo
kerlu síga niður með steininum
og segir henni að losa um
steininn með vasahnífnum.
Karlinn sest svo á steininn og
heldur í sokkaböndin sem
bundin eru utan um kerlingu.
Kerling dinglar nú lausu lofti
en nær þó að krafsa frá steinin-
um uns hann losnar mátulega
mikið. Þá togar karlinn í sokka-
böndin og dregur kerlu upp.
Tekur svo af sér axlaböndin og
setur á steininn, hnýtir svo
sokkabönd sem eru bundin
utan um kerlingu í axlabönd og
bendir kerlu á smá grastopp
sem er í snarbrattri urðinni.
Segir henni svo að hoppa með
steininn fram af gilbarminum
um leið og hann aki bflnum
áfram; þegar hún fari fram hjá
grastoppnum skulu hún skera
sundur sokkaböndin með vasa-
hnífnum og losa sig þannig við
steininn og grípa síðan í gras-
toppinn. Kerling gerði eins og
karlinn sagði og þau sluppu vel
úr þessari fyrstu torfæru.
Bína
Amsterdamferð
með Arnarflugi
í boði
Er Alþingi hófst í vikunni urðu breytingar í fjárveit-
inga nefnd. Hverjar?
a
vélknúinn hjartaskurð
hnífur
b
Laserröntgentæki
c
sneiðmyndatæki
Landspftalinn
Landspítalinn fékk nýtt tæki sem talið er að valdi
nánast byltingu
LygasogusamKeppnin sienaur nu sem næst og eru menn
beðnir að dýfa nú penna í blek og segja eina góða, helst þó
ekki lengri en 1-2 vélrituð blöð. Skrifuð annaðhvort undir
nafni eða dulnefni en nauðsynlegt er þó að rétta nafnið fylgi
með ef síðari kosturinn verður ofan á. í lok mánaðarins
verður útnefndur lygalaupur mánaðarins. Sögurnar sendist
Þjóðviljanum, Síðumúla 6, Rvík, c/o Guðjón Friðriksson,
trúnaðarmál. Og hér birtist saga frá Bínu.
Friðjón
Jón Baldvín
a
Frlðjón Þórðarson fékk
sæti í henni í stað Eggerts
Haukdal
b
Jón Baldvin Hannibals-
son fékk þar sæti í stað
Benedikts Gröndal
c
Sverrir Hermannssontók
þar sæti í stað Eggerts
Haukdal
a
menntamálaráðherra í
stjórn Ben Gurions í ísrael
b
forstjóri Louvre-safnsins í
París
hermaður í (sraelsher
a
töpuðu fyrir írum 2:0
b
gerðu jafntefli við A-
Þjóðverja 0:0
c
unnu Færeyinga 5:0
Hvernig fór leikurlnn?
íslendingar léku landsleik í knattspyrnu:
Ákveðnar vörur í íslenskum verslunum lækkuðu
þótt undarlegt megi virðast:
Marfa Jósefscóttir, öðru nafnl Myri-
am Bat-Yosef
María Jósefsdóttir, gyðingur með íslenskan ríkis-
borgararétt, hélt málverkasýningu í Reykjavík.
Hún hefur m.a. unnið sér tii frægðar að vera:
sænsk vara
mjólk
bensín