Þjóðviljinn - 28.01.1984, Page 14

Þjóðviljinn - 28.01.1984, Page 14
14 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 28. - 29. janúar 1984 Svavar Gestsson: Bægjum frá svartsýnisböli afturhaldsaflanna. Snúum þróuninni til bjartari tíma. Burt með íhaldið úr stjórn landsins. Þjóðviljamynd - Atli. Verum samferda og sigrum afturhaldið sagði Svavar m. a. ílokaorðum sín- um á þessumfjöruga ogfjölmenna kapprœðufundi Þorsteinn íbygginn á svip: Það þarf að berja niður upplausnaröflin í þjóðfélaginu. Þjóðviljamynd - Atli. Þaðer óhætt að segja að Hafnfirðingar og aðrir höfuð- borgarbúar hafi tekið því fagnandi að gefast tækifæri tii að hlýða á kappræðu stjórnmálaforingjanna Svav- ars Gestssonar og Þorsteins Pálssonar í Hafnarfjarðarbíói sl. f immtudagskvöld. Hér átt- ust við forystumenn höf uð- stjórnmálaflokka landsins, þar sem andstæður félags- hyggju og markaðshyggju eiga í hlut. Sú staðreynd að baráttan í íslenskum stjórnmálum snýst einmitt um stefnu Alþýðubanda- lagsins annars vegar og Sjálfstæðisflokksins hins vegar kom einmitt berlega í Ijós í kappræðu foringjanna. Strax upp úr hálfátta í fyrra- kvöld var fólk farið að streyma í bíósalinn í Hafnar- firði og þegar kappræðu- fundurinn, sem Stefnirfélag ungra sjáifstæðismanna í Hafnarf irði í samráði við Al- þýðubandalagið í Hafnarfirði stóð að, var settur á slaginu átta, var bíóhúsið orðið troð- fulltáheyrendum. Þorsteinn Pálsson hóf fyrstu ræð- uhöld kvöldsins og rakti aðgerðir nkisstjórnarinnar í launamálum og árangur þeirra, sem Iýsti sér ma. í að komið hefði verið í veg fyrir stórfellt atvinnuleysi! Nú væri rétti tíminn til að vega og meta aðstæður og árangur og horfa í réttu ljósi á óleyst vandamál sem vissulega væru til staðar. Landsmenn fögn- uðu stefnu og árangri ríkisstjórnar- innar og væru reiðubúnir að ganga áfram þessa sömu braut. Búið væri að skapa festu í þjóðmálum og skapa grundvöll að öryggi. Allar hrakspár stjórnarandstæðinga hefðu ekki ræst. Að vísu væri mörg vandamál ennþá óleyst. Vandi sjávarútvegs stafaði af minnkandi afla og það myndi skapa ákveðin atvinnuvandamál, en ríkisstjórnin væri að setja á fót sérstaka atvinnu- nefnd sem ætti í starfi sínu að taka mið af tillögum ASÍ frá síðasta sumri um uppbyggingu atvinnulífs, þar sem aðaláherslan væri lögð á arðsemi. Ná þyrfti breiðri sam- stöðu. Alþýðubandalagið væri að- eins með niðurrif og nöldur og markmið þess væri að skapa upp- laust og velta mönnum upp úr þeim þrengingum sem samfélagið væri nú að fara í gegnum. Alþýðu- bandalagið segði þjóðinni að hún þyrfti ekkert að leggja á sig til að ná því marki sem náð hefði verið. Það þyrfti að koma í veg fyrir að þessi upplausnaröfl næðu tökum í þjóðfélaginu, sagði Þorsteinn að síðustu. Engin afrek til að hæla sér af Svavar Gestsson sagði að Al- þýðubandalagið hefði fyrir síðustu kosningar lagt fram tillögur um að afstýra þeirri neyð sem fólk væri nú búið að finna fyrir og væri að setja alþýðuheimilin í landinu á hausinn. Það væri ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar sem hefði skapað þessa neyð hjá almenningi. Þessari neyð þyrfti að afstýra. Láglauna- fólk hefði verið látið borga verð- bólguna niður og ríkisstjórnin hefði einnig talið við hæfi að ráðast að kjörum gamla fólksins. Þetta væri ekki afrek til að hæla sér af sem Þorsteinn Pálsson vildi gera. Á sama tíma og kaupið hefði verið keyrt niður hefði öll opinber þjónusta stórhækkað og frá næstu mánaðamótum gæfi ríkisstjórnin allt verðlag á matvöru frjálst. Það má hækka matvöru að vild en kaupið skal áfram skerða. Það hefði átt að forða þjóðinni frá atvinnuleysisvofunni en í dag væru atvinnuleysingjar í landinu um 4000 talsins fyrst og fremst vegna samdráttarstefnu ríkis- stjórnarinnar. Alþýðubandalagið myndi aldrei láta slíkt viðgangast, því atvinnuleysi væri bæði sóun á efnalegum og mannlegum verð- mætum. Sjálfstæðisflokkurinn væri flokkur fyrirtækjanna en ekki fólksins. Uppsagnarbréfin sem streymdu inn á heimili fjölda lands- manna þessa dagana væri órækasti votturinn um stefnu stjórnarinnar. Nú síðast hefðu ráðherrar síðan í hótunum við verkafólk ef þaðvog- aði sér að rísa upp og mótmæla stefnu stjórnarinnar. Svavar benti fundarmönnum á að hér væri að hefjast nýtt tímabil. Fólk léti ekki lengur bjóða sér skömmtunarkjör fyrirtækja stjórn- arinnar. Vikið frá mann- úðarsjónarmiðum Þorsteinn tók aftur til máls og sagði að vissulega hefðu nokkrar hækkanir verið leyfðar á opinberri þjónustu en það væri allt fyrri ríkis- stjórn að kenna. Svavar Gestsson skammaðist fyrir frjálst verðlag á matvöru. Hann hefði sjálfur stigið fyrstu skrefin í þá átt og ætti heiður skilið fyrir. Svavar sagðist vilja leggja ríka áherslu á að núverandi stjórn væri að breyta íslenska þjóðfélaginu í grundvallaratriðum frá því sem verið hefur. Stjórnin væri að víkja frá félagslegri þjónustu yfir í samfélag márkaðs- og auðhyggju. Á sama tíma og peningamenn fengju stórkostlegar ívilnanir í sköttum væri lagður sérstakur skattur á sjúklinga. Búið væri að finna upp nýjan skattstofn sem héti sjúklingar. Nú væri ekki lengur spurt þegar menn legðust veikir: Hvað er að þér, hvernig þarf að líkna þér, heldur hvað áttu mikið af peningum. Stjórnvöld væru að inn- leiða óhefta markaðshyggju gegn þeim mannúðarsjónarmiðum sem gilt hefðu í okkar samfélagi fram til þessa. Gegn þessu yrði að berjast. Lögá starfsmenn ISAL? Þegar hér var komið sögu tóku framsögmenn við að svara skrif- legum fyrirspurnum frá fundar- mönnum. Alls bárust 40 fyrir- spurnir en af þeim voru 10 sérstak- lega valdar og bornar upp á fundin- um. í fyrstu fyrirspurn var spurt um álit Svavars og Þorsteins á ummæl- um iðnaðarráðherra um hugsan- lega yrðu sett lög á starfsmenn Ál- versins. Þorsteinn Pálsson sagði að ekki væri hægt að una því að efnahags- stefna ríkisstjórnarinnar væri brot- in á bak aftur með launakröfum starfsmanna í Straumsvík. Hann sagðist vona að hægt yrði að leysa þessa deilu án þess að gripið yrði til lagasetningar. „Það hafa áður ver- ið sett lög þegar í óefni er komið“, sagði Þorsteinn. Svavar Gestsson sagði að hér væri um algert prófmál fyrir launþega að ræða. Iorðum iðnað- arráðherra fælist hótun til allra ís- lenskra launamanna. Ef menn héldu sig ekki á mottunni yrðu sett á þá lög. Athyglisverðast væri að ráðherra hefði í hótunum áður en vinnudeilan væri hafin. Það væri greinilegt að ÍSAL ætti að brjóta leiðina fyrir efnahags- og kjara- skerðingarstefnu ríkisstjórnarinn- ar. Hér væri um prófmál ríkis- stjórnarinnar gegn öllu launafólki að ræða. Saman í stjórn? Spurt var hvort þeir félagar Svavar og Þorsteinn væru tilbúnir

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.