Þjóðviljinn - 28.01.1984, Síða 17

Þjóðviljinn - 28.01.1984, Síða 17
Helgin 28. - 29. janúar 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 17 (sígild?) „Krossfesting“ á íslandi! Það er mjög sjaldgæft, ef ekki einsdæmi, að bandarísk rokk- hljómsveit sæki íslendinga heim og spili fyrir þá. En það mun þó gerast 10. og 11. febrú- arnk. þegarhljómsveitin Crucifix heldur hér tvenna tón- leika. Þessirmenningarfulltrúar Bandaríkjanna eru frá San Fra- ncisco, 4 talsins; Chris (trom- mur), Jake (gítar), Matt (bassi) og Sothira (söngur) en hann mun eiga ættir að rekja til Asíu. Þessi hljómsveit hefur nýlega gefið út LP-plötu hjá Corpus Christi, útgáfufyrirtæki Crass í Bretlandi. Plata þessi ber nafnið ,J)ehumanization“ og hefur fengið afar góðar viðtökur og siglir nú hraðbyri upp óháða vinsældali- stann í Bretlandi. Tónlist hljóm- sveitarinnar er ótrúlega kraftmikil pönk sem lætur Dead Kennedys blikna í samanburði. Hið víðlesna bandaríska músíkblað Maximum Rock’n’Roll sagði um tónlist Crucifix að hún væri „óstöðvandi drápshögg sem brenndi allt sem á vegi hennar verður". Textar hljómsveitarinnar fjalla um yfirvofandi sjálfseyðingu alls mannkyns vegna stríðsreksturs, kjarnorkuógnar, mengunar og hungursneyðar. Bent er á að stríðs- rekstur nútímans bitnar fyrst og fremst á óbreyttri alþýðu 3. heimsins. f því sambandi er stríðs- rekstur landa þeirra þeim ofarlega £ huga. í textanum „Indo China“ er fjallað um hernað Bandaríkja- manna í Víetnam og í textanum „Stop Torture“ eru þessar línur: Lítið á El Salvador. Bandaríska stjórnin 'styður slátrara ígervi vinsamlegra rágjafa. Vinalegi nágranninn með blóðuga varninginn, sem býrsig undir að lýsa yfir næsta stríði og notar fjölmiðla tilað rœgja, þvœr hendur sínar og svíkur ogstuðlarað valdníðslu og ofbeldisverkum til að viðhalda óbreyttu ástandi. Crucifix kemur hingað eftir tón- leikaferð um Bretland þar sem þeir hafa kynnt nýju plötuna sína. Tón- leikarnir verða í Félagsstofnun stúdenta 10. og 11. febrúar og hefj- ast kl. 22. Ekkert aldurstakmark verður. Hljómsveitin Vonbrigði mun væntanlega leika á þessum tónleikum en nánari dagskrá verð- ur auglýst síðar. Það er Gramm- útgáfan sem stendur að þessum tónleikum. Forsala aðgöngumiða hefst 1. febrúar í Gramminu, Laugavegi 17. Paul Simon e(i)nn á ferð Paul Simon... Þarf að rekja feril hans í smáatriðum? Þið þekkið hann flest, sætari helm- inginn af hinu ljúfa dúói „Simon & Gar- funkel“ sem á sínum tíma þótti það allra besta í hinni víðfeðmu og spennandi Ameríku, sem þá, á hápunkti hippa- tímans,skartaði nokkrum af sínum hæfileikaríkustu börnum á sviði rokk- „folk“ tónlistar. f sameiningu sungu þeir sig inní hjörtu amerískra „skáta“ og annarra stilltra niðja landsins. Að nokkru leyti „oll-ameríkan“ í fram- komu, áttu þeir til að velta fyrir sér ríkjandi gildismati samfélags síns, en þó Paul Simon á því herrans ári 1983. aldrei beinskeytt né heldur djarflega. Er þetta m.a. talinn lykillinn að frægð þeirra kumpána, það að ganga aldrei of iangt í gegnumrýni: ögra aldrei með- almennskunni. Þeir áttu fjöldann allan af vinsælum lögum og er helst að nefna „Sound of Silence“, „I’m a Rock“, „Mrs. Robin- son“, „Bridge Over Troubled Water“ og „The Boxer“. Paul þótti ávallt aðsópsmeiri, enda laga- og textasmiðurinn í félaginu og Garfunkel hefur hvílt í skugga hans eftir að uppúr samstarfi þeirra slitnaði, þó fengist lítillega við kvikmyndaleik. Þeir gerðu tilraun til samstarfs að nýju og hófst það með glæsilegum hljóm- leikum í Central Park í New York árið 1981 þar sem hvorki meira né minna en yfir 400 þúsund mættu á staðinn til að hlýða á gömlu kempurnar. En fiski- sagan flýgur. Er sagt að Garfunkel hafi gerst svo leiður á ofurviðkvæmni Pauls við upptöku á ónefndu lagi, þar sem sá síðarnefndi á að hafa brostið í grát trekk í trekk. Kappinn Garfunkel fékk sig fullsaddan og gekk út. Ekki meira um það. Á sólóferli sínum gerðist Paul ívið persónulegri og einlægari. Vilja sumir meina, að sá tími er hann var í samstarfi með Garfunkel hafi verið nokkurskon- ar „lærlingstímabil" fyrir verðandi „meistara" sem Iagasmið. En deili menn um það. Af nokkrum „hit“-laga hans mætti nefna „Mother and Child Reunion”, „Kodachrome” og „50 ways to leave your lover“. Við skulum ekkert vera að geta þess að Paul er ungverskur gyðingur fæddur í vogarmerkinu þann 13. október 1942, í New York borg. Hins vegar er skylt að minnast á nýútkomna breiðskífu hans „Hearts and Bones“ („Hjörtu og bein“) sem þykir öll hin áheyrilegasta. Hvert laganna berja ljúflega hljóðhimnur við- kvæmar (sem nóg hafa fengið af geltu tölvupoppi eða „aggressívu" gervi- pönki) og þó svo sum lög plötunnar beri hærra en önnur eiga þau öll sammerkt að vera þægileg áheyrnar. Textar Pauls hafa löngum þótt per- sónulegir og sumir jafnvel jaðra við Ijóðrænu. Hann syngur um þá hluti sem eru honum hugleiknir það og það skiptið, veltir fyrir sér því sem hann skynjar kring um sig en staðhæfir ekk- ert. Persónuleg reynsla hans er hans einstaklingsbundni heimur og í ein- lægni (stundum jafnvel berskjaldaður) trúir hann hlustanda fyrir tilfinningum sínum og veikleika. Ekki voga ég mér að bera þá félaga saman, John Lennon og Paul Simon, en get ekki að gert að finnast sumt sammerkt í tjáningarmáta þeirra, þ.e. syngja óbilgjarnt um eigið persónulegt upplifelsi, þó svo Paul Simon hafi aldrei orðið svo djarfur að gerast pólitískur í textum sínum. Eitt lag á „Hjörtu og bein“ er til- einkað þrem „stórurn" Jónum. Nefnist það „The late great Johnny Ace“ (Ace Simon og Garfunkel á einhverju sokkabandsári milli 1965 og ’70. getur í þessu tilfelli útlagst sem „sá besti“) og eiga hér í hlut áðurnefndur Johnny Ace, John F. Kennedy og John Lennon. f þessu lagi minnist Paul lítillcga við- bragða sinna er hann fréttir fyrst af morðinu á Lennon. Ókunnur maður gengur að honum og spyr hvort hann hafi heyrt um dauða Johns... og samam rölta þeir daprir í bragði á bar nokkurn, tveir ókunnugir menn sameinaðir í sorg sinni. t Nú er mál að linni, en svona rétt t) lokin er gaman að geta þess (þar sem þetta blað hefur löngum selst útá ætt- fræði...) að í dag er Paul Simon ham- ingjusamlega giftur leikkonunni Carrie Fisher sem betur er þekkt sem „Lilja prinsessa" í Stjörnustríðsmyndunum... herrakuldastígvél brún stærðir 40-46 kr. 2.636 kvenkuldastígvél svört stærðir 36-40 kr. 2.616 Margar aðrar gerðir til frá kr. 1.274 vtsa DOMU Mjög vandaðir kanadískir kuldaskór LAUGAVEGI91

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.