Þjóðviljinn - 28.01.1984, Side 20

Þjóðviljinn - 28.01.1984, Side 20
20 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 28. - 29. janúar 1984 bæjarrölt Svona eiga sýslumenn Þegar óveður geisar í henm- Reykjavík breytast allar víddir í mannlegum samskiptum. Á sunnudaginn þegar veðrið var nánast bandbrjálað ákvað ég eins og ekkert væri að skreppa suður á Vífilstaði og taka þangað strætó. Ég hef alltaf gáfaður verið. Mér varð hins vegar ljóst á þriðja tím- anum, er ég braust frá heimili mínu á Flókagötu og suður að Þóroddsstöðum en þar er hægt að ná í VífiJstaðavagninn, að þessi för mín væri allt að því út í hött. Ég várð nefnilega nær því orðinn úti á leiðinni. Áköf hríðin lamdi mig án afláts í andlitið og mér varð til happs að sjoppa ein er á miðri leið og þar áði ég svona rétt til að jafna mig. Svo lagði ég í hann á nýjan leik og veðrið fór sífellt versnandi og sá nú vart út úr augum. Ég náði samt skýlinu og þar húkti ég næsta hálftímann ásamt ungum manni með barn sitt sem hafði beðið enn lengur. Hann var að bíða eftir Hafnarfjarðarstrætó og treysti sér vart út úr skýlinu á ný með barn sitt íþessum veðraham. Og þar kem ég að hinum nýju víddum í mannlegum sam- skiptum sem í svona óveðri skapast. Við, sem ella hefðum sennilega ekki yrt hvor á annan, bárum nú saman ráð okkar og spjölluðum um horfurnar, hvort strætó væri kannski hættur að ganga og hvað við ættum þá til bragðs að taka, hvort t.d. það væri ráðlegt að brjótast aftur til ættingja með litlu stelpuna eða hvort við ættum að fara á bensín- stöðina í nágrenninu til að; hringja og spyrja um strætó. Við urðum bestu kunningjar án þess að vita um nafn hvors annars. Eftir langa mæðu sáum við strætó koma skríðandi út úr hríð- inni og það reyndist vera Vífil- staðavagninn, bílstjórinn bar þær fréttir að von væri á Hafnarfjarð- arbílnum þá og þegar. Fáir voru um borð í vagninum, aðeins tveir auk mín, enda óðs manns æði eins og áður sagði að vera á ferða- lagi í þessu veðri. Ég settist beint fyrir aftan bílstjórann sem var bú- inn eins og hann væri að leggja á Holtavörðuheiðina. Hann fór strax að ræða við mig - það eru hinar nýju víddir - og brátt færði ég mig í sætið við hliðina á hon- um. Hann sagði mér að þetta væri 25 ára gamáll bíll og hefði upp- haflega verið á Vestfjarðaleið. Komnar væru keðjur á hann og bíllinn því fær í nánast hvað sem væri. Hríðin var nú orðin svo dimm að hann varð stundum að stoppa til að átta sig á því hvar að vera hann væri. Þetta var orðið hörku gaman eins og í erfiðum fjallatúr og allir bestu mátar í strætó. Eftir langa mæðu seiglaðist bíllinn í hlað Vífilstaða og þar bj óst ég við að verða veðurtepptur til næsta dags. En viti menn. Seinna um dag- inn var mér tilkynnt að gamla Vestfjarðarútan væri enn komin í hlað og þar var vinur minn bíl- stjórinn mættur. Hann tjáði mér að öll umferð væri stöðvuð og þetta væri líklega eini strætis- vagninn á höfuðborgarsvæðinu sem enn gengi. Svona eiga sýslu- menn að vera. Svo hófst heimferðin sem var álíka glæfra- leg og sú fyrri. Við vorum tveir farþegarnir og bílstjórinn ákvað að keyra okkur bara heim til þess að við yrðum örugglega ekki úti. Svona eiga sýslumenn að vera. - Guðjón. Veistu.. ? að elsti kirkjugarðuinn í Reykja-, vík er svokallaður Bæjarfó-' getagarður í Aðalstræti. Þar eru enn nokkrir legsteinar. að minkar komu fyrst til íslands árið 1932; voru þá fluttir inn til loðdýraræktar. að lokið var við fyrstu verka- mannabústaðina hér á landi árið 1932. Það eru verka- mannabústaðirnir við Hring- braut í Rvík. að fyrsti bíllinn fór milli Horna- fjarðar ogReykjavíkuríokt- óber 1932 og tók ferðin hálfan fjórða dag. að fyrsta sjálfvirka símstöðin hér á landi var tekin í notkun í Reykjavík árið 1932 og var þá miklum fjölda símastúlkna sagt upp störfum. að í desember 1933 var miðils- fundi hjá Láru Ágústsdóttur miðli útvarpað í beinni út- sendingu. að fyrsti drátturinn í Happdrætti Háskólans fór fram í mars 1934 og fór athöfnin fram fyrir fullu húsi í Iðnó. að Ólafur Jóhann Sigurðsson var nýorðinn 16 ára þegar fyrsta skáldsagnabók hans kom út. Það var bókin Við Álftavatn sem kom út 1934 eða fyrir réttri hálfri öld. að daginn sem sala á sterkum vínum var aftur leyfð á íslandi eftir bann um árabil fylltust allar fangageymslur í Rvík af ölóðum mönnum. að í tilefni af Alþingishátíðinni 1930 voru gefin út fjölmörg frímerki, mjög vönduð. Seinna kom svo í ljós að fölsuð alþingishátíðarfrí- merki gengu kaupum og sölum um alla Evrópu. að fyrir stríð var Gunnar Gunn- arsson rithöfundur einn mest lesni norræni höfundurinn í Þýskalandi. Komu út á annað hundrað útgáfur af bókum hans þar. að árið 1937 kom einkasnekkja Hitlers, Aviso Grillo, í kurt- éisisheimsókn til Reykjavík- ur. Ekki var þó „foringinn“ innanborðs. sunnudagskrossgatan nr. 408 1 2 3 8- 5 (? 7- <? ) 10 /1 8 ÍZ )3 )S 10 y 17- 10 8 18 H /s~ V )b S V )8 /6 H /6" 2o S <? /3 2/ 22 23 S ) 15 21? II // V /5 S' 26" 2Í> 2? )3 V 8 2? i S? 28 20 // 5 )<r V )8 b S V (í> 1S n 10 J2 22 9 28 28 20 <? )8 2o 22 2b Pp )8 )9 28 5T 21 f J2 S' 9 20 V ) /S /0 / 18 Ib 5 <5? ‘5 ib M V 2? )S 20 ) H 2u /5' 2/ 8 2? / 20 9 20 22 )¥■ V/ 22 18 H /3 13 22 S' V 18 20 // H c? )0 22 20 <2. 20 1/ 20 n 20 V /8 V 2/ / V )8 28 z? S2 )/ S JO V n 2S 2o )3 20 )/ 2 ) 2S- 20 2 )5 3/ 2? H s Kp £ 2? / aábdðeéfghiíjklmnoóprstuíivxyýþæö Setjið rétta stafi í reitina hér fyrir neðan. Þeir mynda þá karlmanns- nafn. Sendið þetta nafn sem lausn á krossgátunni til Þjóðviljans, Síðumúla 6, Reykjavík, merkt: „Krossgáta nr. 408“. Skilafrestur er þrjár vikur. Verðlaunin verða send til vinningshafa. 3 IZ 5 /? 31 Z/ 5 /9 Stafirnir mynda íslensk orð eða mjög kunnugleg erlend heiti hvort sem lesið er lá- eða lóðrétt. Hver stafur hefur sitt númer og galdurinn við lausn gátunnar er sá að finna staflykilinn. Eitt orð er gefið og á það að vera næg hjálp því með því eru gefnir stafir í allmörgum orðum. Það eru því eðlilegustu vinnubrögðin að setja þessa stafi hvern í sinn reit eftir því sem tölurnar segja til um. Einnig er rétt að taka fram, að í þessari krossgátu er gerður skýr greinarmunur á grönnum sér- hljóða og breiðum t.d. getur a aldrei komið í stað á og öfugt. Verð- launin Verðlaun fyrir krossgátu nr. 404 hlaut Guðrún Júlíusdóttir, Vall- holtsveg 7, 640 Húsavík. Þau eru Fýkur yfir hæðir eftir Emily Bronté. Lausnarorðið var Vil- hjálmur. Verðlaunin að þessu sinni er bók- in Heimsstyrjaldarárin á íslandi 1939-1945 eftir Tómas Þór Tóm- asson.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.