Þjóðviljinn - 26.08.1988, Page 7

Þjóðviljinn - 26.08.1988, Page 7
Ragnarsbakarí á spottprís? Þrýstingur á Ávöxtun sf. aö selja Umsvif fjármögnunarfyrir- tækja hafa veriö í sviðsljósinu að undanförnu, sérstaklega eftir yfirlýsingar Ólafs Ragn- ars Grímssonar um að sum þessara fyrirtækja stæðu tæpt og að nauðsyn væri rannsóknar bankaeftirlitsins á stöðunni. Ávöxtun sf.,fyrirtæki þeirra Ármanns Reynissonar og Péturs Björnssonar, seldi Ragnarsbakarí í Keflavík Björ- gvin Víglundssyni. Kaupin höfðu verið í bígerð um nokk- urn tíma, en svo virðist sem nokkurt pat hafi gripið eigend- urÁvöxtunarsf. þvíkaupin gengu skyndilega upp og nýr eigandi gefur í skyn að þau kaup hafi ekki komið mikið við pyngju hans. Björgvin Víglundsson sem fyrr í vetur keypti byggingafyrirtækið Alviðru, sem staðið hefur að byggingu íbúðasamstæðu í Garðabæ með sama nafni, hefur áður staðið í sölu og kaupum á fasteignum. Á ferlinum eignaðist hann m.a. um 900 fermetra iðnaðarhúsnæði að Smiðshöfða 8. Aðspurður hvort það hús hafi gengið upp í kaupverð Ragnars- bakarís, sagði Björgvin aðeins að það væru margvíslegir hlutir í gangi í svona viðskiptum. Sam- kvæmt heimildum Þjóðviljans hefur sala á þeirri húseign verið í burðarliðnum nú á síðustu dögum og telja heimildir blaðsins líklegt að húsið, sem metið er á 20-30 miljónir króna hafi gengið upp í kaupverð Ragnarsbakarís. Björgvin mun hafa haft húsið í sölu nokkurn tíma, enda offram- boð á iðnaðarhúsnæði og sala mjög treg. Ármann Reynisson, annar eigenda Ávöxtunar sf. sagðist hins vegar ekki þekkja inn á mál Björgvins, þegar hann var spurð- ur hvort Ávöxtun sf. hafi tekið við Smidshöfðanum upp í sölu- verð. Hins vegar sagði hann að tekið hefði margar vikur að ganga frá sölunni á Ragnarsbak- aríi. Menn hafa nokkuð velt vöng- um yfir hvert kaupverð Ragnars- bakarís hafi verið, enda fast- eignamarkaður á Suðurnesjum þröngur og kannski ekki margir sem hafa áhuga á að kaupa bakarí eða fyrirtæki, sérstaklega ekki þau sem hafi verið svo skuldsett sem Ragnarsbakarí var. Björgvin neitaði að bróðir hans, Jón Víg- lundsson bakari sem rekur Ár- bæjarbakarí væri hugsanlegur rekstraraðili að Ragnarsbakaríi. Þar á ofan bætist að ný lög um starfsemi fjárfestingafélaga og verðbréfasjóða er á döfinni, en þau taka fýrir það að forstjórar eða rekstraraðilar slíkra fyrir- tækja geti keypt viðskiptakröfur hjá eigin fyrirtækjum. Pví hafi nokkur þrýstingur verið á þá Ávöxtunarmenn að selja fljótt og sá þrýstingur óx með fjölmiðla- yfirlýsingum Ólafs Ragnars. Enda sagði Björgvin í samtali við Helgarblaðið a<) hann hafi getað gengið inn í þetta „nokkuð auð- veldlega, og ætli Ólafur Ragnar hafi ekki hjálpað mér,“ sagði Björgvin Víglundsson. -phh Bjartir tímar hiá verðbréfasölum Forráðamenn verðbréfasjóða segjast bara verið ánægðir með „upphlaup" Ólafs Ragn- ars Grímssonar. Þannig var ónefnd auglýsingastofa að reyna að fá Armann í Ávöx- tun til að kaupa auglýsingu til birtingar. Ármann sagðist bara ekki þurfa á slíkri auglýs- ingu að halda; svo væri Ölafi Ragnari fyrir að þakka að sjaldan hefði verið meira að gera. Þá var Pétur Blöndal ekki síður ánægður á blaða- mannafundi. Kaupþing tæki sitt fasta innlausnargjald og vegna þess hve úttektir hefðu verið miklar undanfariö hefði Ólafur Ragnar sennilega fært veröbréfasjóðunum um 2-4 miljónir undanfarna daga. Af þessum orðum að merkja hafa innlausnir skuldabréfa undanfarna daga verið á bil- inu 100-200 miljónir króna. Auk þess sagðist Pétur sjá fram á bjarta tíma fyrir verðb- réfasjóðina, þ.e.a.s. ef krepp- an yfirvofandi yrði að veru- leika. Skýring Péturs er sú að á krepputímum aukist innlán almennings mjög. Fólk hafi ekki lengur efni á að eyða í óþarfa eins og bíla eða íbúðir og leggi peningana þess í stað til hliðar. Þannig eykur kreppan á sparnað lands- manna, en eins og menn vita hefur ónógur sparnaður verið helsta mein íslensks efna- hagslífs... ■ fyrir ASÍ Þing Alþýðusambandsins sem haldið verður á næstunni verður að þessu sinni ekki haldið á Hótel Sögu eins og mörg undanfarin skipti, heldur í íþróttahúsi Digranesskóla í Kópavogi. Fjöldi þingfulltrúa er það mikill að Hótel Saga dugir ekki lengur. Eitthvað hafa menn verið að hvíslast á um að mikil áhætta sé tekin með því að flytja þingið í íþróttahús. Síð- ast var þing ASÍ haldið í íþróttahúsi fyrir réttum 30 árum, árið 1958. Það var sögulegt þing sem haldið var í KR-heimilinu í vesturbænum, því í kjölfarið klofnaði bæði sambandið og ríkisstjórnin hrökklaðist frá. Það skyldi þó ekki endurtaka sig í haust. ■ ÓTRÚLEGT EN DAGSATT 100.000 kr. verðlækkun á NISSAN PRAIRIE 2.0 4wd IMú bjóðum við 100.000 kr. verðlækkun á þeim Nissan Prairie 2.0 4WD sem eftireru á lager. Þetta endurtekursig ekki. ÞETTA ER EINSTAKTTÆKIFÆRI. IUISSAN PRAIRIE ER ENGUM VENJULEGUM BÍL LÍKUR. 2,0 lítra vél. Sú stærsta sem þú færð ífjórhjóladrifnum fólksbíl. Aflmikil og skemmtileg. . / Meira rými í Nissan Prairie 4WD en nokkrum öðrum fjórhjóladrifnum fólksbíl. .J Afturhurðirnar eru rennihurðir. Frábær lausn sem auðveldar ótrúlega að komast inn '* íbílinn. 14 tommu felgur sem þýðirað hæð undir Nissan Prairie er meiri en þú geturvænst v af fjórhjóladrifnum fólksbíl. Fjórhjóladrifið er sett á með því að ýta á takka sem er á gírstönginni. Einfaldara t geturþaðekki verið. V 3ja ára ábyrgð. Fullt verð Kr. 890.000.- Kr. 955.000.- Kr. 995.000.- Tilboðsverð í þetta eina sinn er: Fullt verð Kr. 790.000.- Kr. 855.000.- Kr. 895.000.- Greiðslumöguleikar eru nánast óendanlegir, t.d. 25% út og afgangurinn á 30 mánuðum. Tökum flesta nýlega bíla upp í nýja. Verið vel á verði, því hér er einungis um fáa Nissan Prairie 4WD að ræða sem seljast upp á skömmum tíma. Opið laugardag og sunnudag kl. 14.-17. Ingvar Helgason hf. sýningarsalurinn, Rauðagerði sími 91-3 35 60. Nissan Prairie GL Nissan Prairie GLX Nissan Prairie GLX með sóllúgu o.fl. Réttjuliverðer: Nissan Prairie GL Nissan Prairie GLX Nissan Prairie GLX með sóllúgu o.fl. Staðgreiðsluverð Kr. 863.000.- Kr. 926.000.- Kr. 965.000.- Staðgreiðsluverð Kr. 766.000.- Kr. 829.000.- Kr. 868.000.- ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.