Þjóðviljinn - 26.08.1988, Síða 15
Róm, yfirgefm borg...
Túrhestarleggja undir sig Borgina eilífu
Það er undarleg reynsla að
vera í Rórnaborg í ág-
ústmánuði. í hverri götunni
eftir aðra er ekki annað að sjá
en endalausar raðir af járn-
tjöldum sem á eru fest papp-
aspjöld með áletruninni „Lok-
að vegna sumarleyfa". Hund-
ar og kettir kúra sig í rólegum
og skuggsælum hornum til að
sleppa undan sólskininu.
Ágúst er hinn hefðbundni
sumarleyfamánuður á Ítalíu, og
þá er verksmiðjum lokað og ein-
ungis örfáir menn eru eftir í opin-
berum skrifstofum, einkafyrir-
tækjum og verslunum. Menn
flýja hópum saman ryk og hita
stórborganna a.m.k. hluta af
mánuðinum, þ.á m. þriðjungur
af þeim þremur miljónum sem
búa í Róm.
En túrhestar halda þó uppi
mannlífinu í borginni eilífu, og
streyma þeir nú þangað að sögn
borgaryfirvalda í enn stærri stóð-
um en áður. Tvær og hálf miljón
túrhesta komu á fyrstu sex mán-
uðum þessa árs, en það er átta af
hundraði meira en á sama tíma í
fyrra. Haft er eftir mörgum
þeirra, að það sé sérlega gaman
að kanna fjársjóði borgarinnar í
friði fyrir hávaða og umferð.
Þótt verðlag sé yfirleitt hærra í
Róm en annars staðar á Ítalíu,
streyma túrhestarnir einkum tií
Borgarinnar, eins og hún var
gjarnan kölluð, og þá ekki síst
ungt fólk. En aðrir Italir flykkjast
þangað líka. „Ágústmánuður er
besti tíminn til að heimsækja
Róm, vegna þess að þá er þar
minni umferð, minna öngþveiti
og færra fólk,“ sagði trésmiður
frá Feneyjum sem var á brúð-
kaupsferð. Sagðist hann vera
ánægður yfir að vera fjarri fjall-
ahéruðum og baðströndum þar
sem hann gæti ekki þverfótað
fyrir sínum eigin löndum, og væri
honum sama um það þótt mörg
söfn og verslanir væru lokuð.
„Róm er svo stór og það er svo
margt að sjá þar, að það skiptir
engu máli, þótt maður sjái það
einungis utan frá í fyrsta skipti.“
Mörg af torgum Rómaborgar
eru yfirfull af bflum mestan hluta
ársins og að verulegu leyti hulin
augum vegfarenda. En alls kyns
óþekktir staðir og sjaldséðir
hlutir koma svo skyndilega í ljós í
ágúst, þegar bflunum fækkar, t.d.
gosbrunnur frá endurreisnartím-
abilinu með marmaramyndum af
dúfum mitt í gamla Gyðinga-
hverfinu. Jafnframt hverfur sú
streita sem fylgir því gjarnan að
skoða helstu byggingar og söfn.
„Við héldum að við þyrftum að
bíða marga klukkutíma eftir því
að komast inn í Vatíkansöfnin,"
sagði bandarísk hjúkrunarkona,
„en við höfum svo til aldrei þurft
að standa í biðröð."
En í kringum Maríumessu 15.
ágúst getur Rómaborg orðið full
róleg, jafnvel fyrir túrhesta.
„Þegar við komum hingað var
borgin tóm, - hún var eins og
draugaborg," sagði hjúkrunar-
konan. Þennan dag kjósa nefni-
lega þeir, sem dveljast annars í
borginni í ágúst, að fara burtu,
jafnvel andlitsteiknararnir á hinu
sporöskjulaga torgi Piazza Na-
vona, sem stendur á stæði róm-
verskrar kappakstursbrautar en
er nú í skugga barokk-kirkju.
Einungis trönurnar eru eftir á
þessum vinsæla túrhestastað.
Þegar hitinn kemst upp fyrir 35
gráður flykkjast túrhestarnir á þá
fáu bari og ísbúðir sem opin eru í
hálf yfirgefinni borginni. „Það
var eíckert að fá til að borða og
engar búðir voru opnar. Þetta var
mjög erfitt,“ sagði stúdent frá
Chicago. „Og við vildum sjá ítali
en ekki túrhestana."
Ein er þó sú tegund ítala sem
verður gjarnan fyrir útlendum
konum, en það eru karlmenn
með veiðihár á sálinni, sem
leitast við að tala til allt sem
kvenkyns er. En ólíkt því sem er á
öðrum tímum ársins, þegar yfir-
fullir strætisvagnar og neðanjarð-
arlestir' eru ákjósanlegur vett-
vangur fyrir alls kyns áleitni og
þjófnað, virðist Rómaborg í ág-
úst vera öruggari en aðrar evr-
ópskar höfuðborgir.
Stræti og torg í miðhluta Róm-
aborgar eru ólgandi af mannlífi
þrátt fyrir árstíðina, því að þar
eru opin veitingahús og kaffihús,
en helmingur kvikmyndahús-
anna er lokaður og svo til öll
leikhúsin, tónleikasalirnir og
næturklúbbarnir. Næturlífið fer
mest fram í útjöðrum Rómar og
er því utan við seilingarfjarlægð
fyrir túrhesta.
Meðal þeirra fáu sem hafa ver-
ið á fullu starfi þennan mánuð eru
Vottar Jehóva. Þeir héldu mikinn
fund á íþróttavelli og lýstu þar
þeim miklu refsingum sem synd-
arar ættu yfir höfði sér þegar
heimsendir kæmi. En þar sem
þetta var í ágúst voru flestir synd-
arar víðsfjarri. Reuter/e.m.j.
^ Kennarar!
/ Kynning á nýju námsefni
/
I Kennslumiðstöð Námsgagnastofnunar
29. águst -14. september 1988
Mánudagur 29. ágúst ■ Priðjudagur 30. ágúst
Byrjendakennsla (forskóli - 3. bekkur)
kl. 9.00
* Nýtt námsefni kynnt og gamalt reifað.
* Leiðbeint um notkun námsefnis og ýmissa hjálpargagna.
* Hvað er á döfinni í námsefnisgerð?
Umsjón: Kennaramir Bryndís Gunnarsdóttir, Guðriin Bentsdóttir,
Hafdís Guðjónsdóttir og Matthildur Guðmundsdóttir og
Sigríður Jónsdóttir námstjóri.
Stærðfræði fyrir 7. - 8. bekk
kl.13.00
* Stærðfræði handa grunnskólum fyrir 7. bekk, ný útgáfa af Talnaspegli
ogHomalínu, kynnt.
kl.15.30
* Verkefnasafnið íþróttir og útilíf í endanlegum búningi kynnt.
•»...
Umsjón: Anna Kristjánsdóttir, Kristín Bjamadóttir og Ásgerður
Magnúsdóttir (þrír höfunda Talnaspegils og Homalínu).
Miðvikudagur 31. ágúst
Finin ber
Móðurmál fyrir 5. - 8. bekk
KÍ. 9.00
* Nýtt námsefni kynnt, m.a. Orðhákur 1. og 2. og bækumar Fallorð,
Sagnorð, Smáorð og Nafnakver. -----y 1
* Leiðbeint um notkun námsefnis og ýmissa hjálpargagna^_-
Ný skólaljóð fyrir 4. - 6. bekk
kl. 13.00
* Ný skólaljóð, Ljóðspor, kynnt
* Um aðdraganda og undirbúning að Ljóðsporum
* Ýmsar hugmyndir um aðferðir við ljóðakennslu ræddar
Umsjón: Magnús Jón Ámason (höfundur Orðháks o.fl.),
Véný Lúðvíksdóttir Qiöfundur Nafnakyers) og
Guðni Olgeírssón námstjóri.
Stærðfræði fyrir 7.-8. bekk
kl. 13.00
* Almenn stærðfræði kynnt (bókin er þýdd úr sænsku) .
* Leiðbeint um notkun þessa námsefnis
Umsjón: Hildigunnur Halldórsdóttir og Sverrir Einars'son (þýðendur
bókanna), og Jóhanna Axelsdóttir kennari
Umsjón: Kolbrún Sigurðardóttir, Sverrir Guðjónsson og Þórdís
Mósesdóttir (ritstjórar Ljóðspora), Ámi Ámason frá
Námsgagnastofnun og Guðni Olgeirsson námstjóri
Föstudagur 2. september I Máiiudagur 5. september
Náttúrufræði fyrir 4. - 9. bekk
kl. 9.00
* Kynning á bókinni Heilsubót ásamt verkefnum.
* Fjallað um námsefnið Fmmur og Efni og orka.
* Leiðbeint um kennslu og kennsluaðferðir.
Umsjón: Fanný Gunnarsdóttir kennari, Tryggvi Jakobsson frá
Námsgagnastofnun og Þorvaldur Öm Ámason námstjóri.
kl. 13.00
* Endurskoðað námsefni um Manninn kynnt
Umsjón: Edda Eiríksdóttir og Pétur Garðarsson (tveir höfunda
námsefnisins).
Samfélagsfræði í 7.-9. bekk
kl. 9.00
* Nýtt námsefni, Heimabyggðin - Reykjavík, kynnt.
* Leiðbeint um kennslu og kennsluaðferðir.
Umsjón: Tryggvi Jakobsson ffá Námsgagnastofnun
Danska í 8. og 9. bekk
kl. 15.00
* Nýtt námsefni, Vi bespger hinanden og Pá bespg, kynnt. Greint ffá
tilraunakennslu í 8. bekk.
* Leiðbeint um kennslu og kennsluaðferðir og um notkun ýmissa
hjálpagagna.
Umsjón: Sigurlín Sveinbjamardóttir námstjóri.
Sérkennsla
kl. 15.00
* Nýtt námsefni, m.a. Syngjum með táknum, Myndasafnið og lestrar-
kennsluefnið "Bára og Palli" og "Nói og Lína", kynnt.
* Leiðbeint um kennslu og kennsluaðferðir.
Umsjón: Sylvía Guðmundsdóttir sérkennslufulltrúi
Námsgagnastofnunar og fleiri.
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15