Þjóðviljinn - 30.12.1988, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 30.12.1988, Blaðsíða 3
STAÐGREÐSLA 1989 _ ÚTGÁFA SKATTKORTA Ákveðið hefur verið að skattkort ársins 1988 skulu gilda áfram á árinu 1989. Þó með þeirri undantekningu að skattkort með uppsöfnuðum persónuafslætti gefin út á árinu 1988 falla úr gildi frá og með1.janúar1989. Ný skattkort, sem gilda fyrir árið 1989, verða gefin út til þeirra sem öðlast rétt til þeirra í fyrsta sinn. Nýju skattkortin verða frábrugðin skatt- kortum ársins 1988 á þann hátt að á þeim verður aðeins tilgreint hlutfall pers- ónuafsláttar, auk persónubundinna upplýsinga um launamanninn, en ekki skatthlutfall og upphæð persónuafsláttar eins og áður. Áríðandi er að launagreiðandi athugi, að það skatthlutfall og sú upp- hæð persónuafsláttar sem fram koma á skattkortum útgefnum vegna ársins 1988 falla úr gildi frá og með 1. janúar 1989. Frá og með 1. janúar 1989 ber því launagreiðanda að reikna stað- greiðslu af launum miðað við auglýst skatthlutfall og persónuafslátt og að teknu tilliti til þess hlutfalls pers- ónuafsláttar sem tilgreint er á skatt- korti launamanns. SKATTHLUTFALL STAÐGREIÐSLU Skatthlutfall staðgreiðslu ersameiginlegt skatthlutfall tekjuskatts og útsvars. Fyrir árið 1989 verður skatthlut- fall staðgreiðslu 37,74%. . /-» ^ S*attKort 1938 Kwniub makT °S°m - 2359 rj'1ín rrukj CUMO" 1005« anSK-'->'-^s<toiu ,rá WtassKA rfsr TJÖftj Skýrirtgar I > 5 VOGiun i. skattk 0069 , KO ivxvcxlDw roo'k. ' ‘ ' ' •• Persónuafsláttur ársins 1989 hefur verið ákveðinn 214.104 kr. Mánaðarlegur persónuafsláttur verður þá 17.842 kr. Við útreikning á staðgreiðslu launa- manns á árinu 1989 ber launagreiðanda að nota: 1. Auglýsta upphæð persónuafsláttar fyrir árið 1989 en ekki þá upphæð persónuafsláttar sem tilgreind er á skattkorturn ársins 1988. 2. Hlutfall persónuafsláttar sem fram kemur á skattkorti launamanns. Sjómannaafsláttur ársins 1989 verður 492 kr. fyrir hvern dag sem maðurtelst stunda sjómannsstörf. BREYTINGAR Breytingar sem kunna að verða á upp- hæð persónu- og sjómannaafsláttar síðar á árinu 1989 verða auglýstar sér- staklega, auk þess sem allir launagreið- endur, sem hafa tilkynnt sig til launa- greiðendaskrár RSK, munu fá orðsend- ingu um breytingar á fjárhæðum. Áríðandi er að launagreiðendur fylgistmeð breylingum. RSK RÍKISSKATTSTJÓRI

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.