Þjóðviljinn - 30.12.1988, Blaðsíða 10
LEIPARI
FYRR
Uppreisn og
kúguní
Mið-Ameríku
Um það bil sem Ronald Reagan tók við embætti forseta
Bandaríkjanna fyrir átta árum voru vinstrisinnaðir skærulið-
ar í stórsókn í El Salvador. Þeirgerðu sig líklegatil að steypa
einni af ótalmörgum yfirstéttarklíkum sem setið hafa yfir hlut
manna í löndum Rómönsku Ameríku með fulltingi Banda-
ríkjamanna, enn eitt dæmi virtist ætla að sanna að sú álfa sé
á okkar dögum hið eðlilega heimkynni róttækra byltinga.
Reagan og hans menn voru sama sinnis. Að vísu vildu
þeir aldrei viðurkenna að byltingarhreyfingar í Mið- og
Suður-Ameríku ættu sér rætur og forsendur í aðstæðum í
þessum ríkjum, í hkninhrópandi andstæðum auðs og ör-
birgðar. Þeir sáu á bak við hverja vinstrihreyfingu útsendara
sovétkommúnismans. En hvað sem túlkun leið: valdhafarnir
í Washington ætluðu sér í krossferð gegn vinstriöflum fyrir
sunnan. Þeir ákváðu að veita valdhöfum í El Salvador
aukinn stuðning, Og þeir ýttu úr vör stefnu sem senn mundi
leiða til þess að Bandaríkin kæmu á fót leiguher andbylting-
arsinna sem átti að kollvarpa byltingarstjórn Sandinista í
Nicaragua, sem hafði nokkru fyrr hrakið frá völdum einn
illræmdasta skjólstæðing Bandaríkjanna í þessum heims-
hluta, Somoza.
Hér er hvorki staður né stund til að rekja það sem gerst
hefur síðan. En til að gera langa sögu stutta: vopnuð átök
um pólitíska framtíð Mið-Ameríku hafa um þessar mundir
leitt til þess að bæði Stóri bróðir í norðri, Bandaríkin, og
byltingarhreyfingar í viðkomandi löndum sjálfum, hafa
neyðst til að viðurkenna takmarkanir sínar. Skæruliðar í El
Salvador eru enn öflug hreyfing, en veikari en fyrr. Gagn-
byltingarliðarsem herja á Nicaraguafrá Honduras eru hníp-
ið lið í vanda, en hernaður þeirra hefur valdið gífurlegu tjóni í
mannslífum og í efnahag lands Sandinista. Og Sandinista-
stjórnin hefur um margt vikið frá ýtrustu byltingarkröfum í
stefnu sinni, til þess m.a. að slá á ugg grannríkjanna sem
óttast að átökin breiðist út til þeirra sjálfra.
Ruben Zamora, vinstrisinnaður stjórnmálamaður í El Sal-
vador, sem hefur verið í allgóðu vinfengi við skæruliða þar
en vill nú reyna að taka þátt í væntanlegum kosningum þar í
landi, hefur lýst hinni sérstæðu pattstöðu á þessa leið: „í
fyrsta lagi hefur það sýnt sig, að þrátt fyrir allan yfirgang sem
Bandaríkin geta sýnt á litlu svæði eins og þessu hér, þá er
mögulegt að veita þeim andspyrnu. Reagan getur ekki losn-
að alveg við okkur. í öðru lagi: jafnvel þótt okkur takist að
halda velli hafa bandarísk stjórnvöld næstum því ótakmark-
aða möguleika á því að eyðileggja hvaða áætlanir um þróun
sem við fitjum upp á. Með öðrum orðum: við höfum gert
okkur grein fyrir því, hvaða takmarkanir eru Reagan settar
og hvaða tálmanir við komumst ekki yfir.“
Þessi einkennilega staða á vafalaust eftir að draga langan
slóða á eftir sér í allri Rómönsku Ameríku. Hún slær á
byltingardrauminn sem hefur verið mikið afl í álfunni allt frá
því Fidel Castro og hans menn herjuðu á Batista á Kúbu fyrir
þrjátíu árum og höfðu sigur. Hún slær einnig á þá von spilltra
yf irstétta að þær geti alltaf stutt sig við Sám frænda - Banda-
ríkin eru ekki ósigrandi. Hinar hrikalegu félagslegu and-
stæðureru samarvið sig íflestum löndum Rómönsku Amer-
íku og þar verða á degi hverjum grimm átök milli auðs og
örbirgðar í stærri mæli en við höfum nokkra hugmynd um.
En réttlætiskrafan og andóf gegn henni munu á næstu
misserum ef að líkum lætur leita sér að öðru birtingarformi,
að öðrum farvegi en við höfum hingað til helst átt von á.
ÁB.
Fyrsta brennan, sem ég man eftir, var norður í Hegranesi. Hún var ekki tengd Gamlaárskvöldi
heldur Þrettándanum og í sambandi við hana var álfadans. Þar var enginn annar en Stefán
íslandi forsöngvari. Algengara mun þó, a.m.k. í seinni tíð, að brennumar fylgi áramótunum og
þar sem þau eru nú að bresta á þykir hlíða að birta að þessu sinni mynd af áramótabálkesti.
Myndina hér að ofan tók Leifur, þáverandi Ijósmyndari Þjóðviljans, af bálkesti, sem nokkrir ungir
athafnamenn komu sér upp vestur við Ægissíðu fyrir réttum 10 árum. Þetta er ákaflega
myndarlegur og vel hlaðinn köstur og mætti segja mér að þarna hefðu verðandi byggingameist-
arar verið að verki. Þetta hefur verið tilkomumikil brenna og vonandi hefur veðrið verið hagstætt
um kvöldið.
OG NU
Tíu árum síðar var Ijósmyndari Þjóðviljans, Jim Smart, staddur vestur við Ægissíðu og tók þá
þessa mynd. Hér er öðru vísi að verki verið en áður, enda sýnist byggingarefnið stórum lakara. Á
eldri myndinni eru trékassarnir áberandi en hér virðist allskonar pappakassadrasl vera yfirgnæf-
andi. Segirsig sjálft að erfitt er að hlaða áferðafallegan bálköst úr slíku dóti. En hvað um það. Og
nú er bara að biðja um gott veður á Gamlaárskvöld, helst logn og stjörnubjart, enda hið eina
veður, sem hæfir slíku kvöldi.
-mhg
Viljið þið ekki, lesendur góðir, vera nú svo vtenir að senda blaðinu gamlar myndir, sem þið kunnið að eiga í fórum
ykkar? Allar 40-50 ára gamlar myndir og ekki síður þaðan af eldri, eru vel þegnar. Myndunum þurfa að fylgja
nauðsynlegar upplýsingar svo sem um aldur ef hann er kunnur o.s.frv. - Myndina skal senda lil umsjónarmanns Nýs
Helgarblaðs, Pjóðviljanum, Síðumúla 6, 108 Reykjavík. - Við munum að sjálfsögðu senda myndirnar til baka, ásamt
ókeypis eftirtöku. Leitið þið nú í pokahorninu.
Síðumúla 6 -108 Reykjavík
Sími 681333
Kvöldsími 681348
Utgefandi: Utgáfufélag Þjóðviljans.
Ritstjórar: Árni Bergmann, Mörður Arnason.
Umajónarmaður Nýs Helgarblaðs: Sigurður A. Friðþjófsson.
Fróttastjóri: Lúðvík Geirsson.
Blaðamenn:DagurÞorleifsson,GuðmundurRúnarHeiðarsson,
HeimirMár Pétursson, HjörleifurSveinbjörnsson, Kristófer
Svavarsson, Magnús H. Gíslason, Lilja Gunnarsdóttir, Ólafur
Gíslason, Páll Hannesson, Sævar Guðbjörnsson, ÞorfinnurÓmars-
son (íþr.).
Handrita-og prófarkalestur: Elías Mar, HildurFinnsdóttir.
Ljósmyndarar: Jim Smart, ÞorfinnurÓmarsson.
Útlitsteiknarar: Kristján Kristjánsson, KristbergurÓ. Pétursson
Framkvæmdastjóri:HallurPállJónsson.
Skrifstofustjóri: Jóhanna Leópoldsdóttir.
Skrifstofa: Guðrún Geirsdóttir, Kristín Pétursdóttir.
Augiýsingastjóri: Olga Clausen.
Auglýsingar: Guðmunda Kristinsdóttir, Unnur
Ágústsdóttir, Sigurrós Kristinsdóttir.
Símavarsla: Sigríður Kristjánsdóttir, Þorgerður Sigurðardóttir.
BUstjóri: Jóna Sigurdórsdóttir.
Húsmóðlr: Anna Benediktsdóttir
Útbreiðslu-ogafgreiðslustjóri: Björn Ingi Rafnsson.
Afgreiðsla: Halla Pálsdóttir, Hrefna Magnúsdóttir.
Innheimtumaður: Katrín Bárðardóttir.
Útkeyrsla, afgreiðsla, ritstjórn:
Síðumúla 6, Reykjavík, símar: 681333 & 681663.
Auglýsingar: Síðumúla 6, símar 681331 og 681310.
Umbrot og setning: Prentsmiðja Þjóðviljans hf.
Prentun: Blaðaprent hf.
Verð í lausasölu: 70 kr.
Nýtt helgarblað: 100 kr.
Áskriftarverð ó mánuði: 800 kr.
10 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Föatudagur 30. desember 1988
c..íar: . . ».i ót c» .ll