Þjóðviljinn - 30.12.1988, Blaðsíða 19

Þjóðviljinn - 30.12.1988, Blaðsíða 19
Svuntur fiskvinnslufólks hengja haus á snögum sínum þessa dagana vegna lokana komast í snertingu við fisk á næstunni vegna hótana fiskvinnslumanna um að hefja ekki starfsemi að nýju eftir áramótin nema ríkisstjórnin sveifli töfrasprotanum. Mynd: eik. fiskvinnsluhúsa vítt og breitt um allt land og uppsagna starfsfólks. Óvíst er hvort þær 21 saltfiskverkunarstöð engu upp í fjármagnskostnað, en 21 skilaði að meðaltali 21% af tekjum. Engu bjargaö með lækkun launakostnaðar Þrátt fyrir að sýnt hafi verið fram á að gengisfelling ein og sér leysi engan vanda fyrir fisk- vinnslufyrirtækin virðast forráða- menn atvinnugreinarinnar ekki sjá neina aðra lausn á vandanum nema að því undanskildu að launakostnaður verði lækkaður frá því sem nú er. í þeirri baráttu hafa þeir notið fulltingis forsætis- ráðherra og sjávarútvegsráð- herra sem báðir hafa tekið undir viðlagið um að lækka beri launin. Þessu hefur Alþýðusamband ís- lands harðlega mótmælt og bent á að það sé ekki hár launakostnað- ur sem sé að sliga fiskvinnsluna heldur gríðarlegur fjármagns- kostnaður. í nýlegri greinargerð Hag- deildar ASÍ um málið kemur fram að hlutur fjármagns- kostnaðar sem hlutfall af tekjum fiskvinnslufyrirtækja hefur aukist um 60% á þessu ári miðað við meðaltal áranna 1980 - 1987. Á sama tíma hefur launakostnaður, einnig sem hlutfall af tekjum fyrirtækjanna, aukist um 7,5%. Sé hins vegar litið til áranna 1987 og 1988 hefur fjármagnskostnað- ur hækkað um hvorki meira né minna en um 150% á milli þess- ara ára á meðan launakostnaður hefur hækkað aðeins um lítil 4%. Þessar niðurstöður Hagdeildar- innar sem byggðar eru á gögnum frá Þjóðhagsstofnun, undirstrika hversu fráleitt það er að ætla að bjarga fiskvinnslunni með kjara- skerðingu. Þessu hafa fiskvinnslumenn mótmælt og segja að launakostn- aðurinn hafi hækkað mun meira á milli áranna 1987 og 1988 en sem nemur þessum 4%. Þeir halda því fram að launakostnaðurinn hafi hækkað um 16,5% en taka jafn- framt undir að fjármagns- kostnaðurinn sé mikill en segjast ekki geta séð hver hann nákvæm- lega sé úr gögnum Þjóðhags- stofnunar. Þá hafa reiknimeistarar VSÍ komist að þeirri niðurstöðu að ef launin verði ekki lækkuð á næsta ári megi fastlega gera ráð fyrir að allt að 6 þúsund manns verði án atvinnu 1989. Bráðaaðgerðir ríkis- stjórnarinnar Frá því núverandi ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar tók við völdum 28. september sl. hef- ur hún gripið til ýmissa aðgerða til að bæta afkomu útflutningsat- vinnuvega. Verðjöfnunarsjóði fiskiðnaðarins var heimilað að taka 800 miljón króna erlent lán með ríkisábyrgð til greiðslu verð- bóta vegna framleiðslu á freðfiski og hörpudiski á tímabilinu 1. júní 1988 til 31. mai 1989 sem hefur þýtt að vinnslan hefur fengið 5% verðuppbætur á freðfisk. Sjóðn- um var einnig heimilað vegna rækjuvinnslu að ákveða að við- miðunarverð við greiðslu verð- bóta vegna framleiðslu frá 1. júní sl. taki mið af meðalmarkaðs- verði undangenginna 2ja ára. En talið er að heildartap á rækju- vinnslu nemi samtals allt að 500 miljónum króna 1987 og 1988. Atvinnu- tryggingarsjóður Síðast en ekki síst var settur á fót Atvinnutryggingarsjóður út- flutningsgreina og hefur hann þegar skuldbreytt skuldum 20 fyrirtækja fyrir samtals 750 milj- ónir króna en alls hafa 170 fyrir- tæki sótt um aðstoð frá sjóðnum. Sjóðurinn mun fá til ráðstöfunar 2 miljarða á næstu tveimur árum. Af árlegu framlagi ríkissjóðs til Atvinnutryggingarsjóðs munu renna 300 miljónir króna á ári til sjóðsins næstu tvo ár. Einnig mun hann fá 200 miljónir króna árlegt framlag úr ríkissjóði með sér- stakri tekjuöflun. Samtals nema framlög þessi helmingi af ráð- stöfunarfé sjóðsins. Jafnframt verður sjóðnum heimilað að taka 1 miljarð að láni á næstu tveimur árum, annars vegar með Verð- jöfnunarsjóði fiskiðnaðarins að bakhjarli og hins vegar erlendis með ríkisábyrgð. Atvinnutryggingarsjóði er heimilt að hafa milligöngu um skuldbreytingu á allt að 5 milj- örðum króna af lausaskuldum út- flutningsfyrirtækja. Honum er einnig heimilt að taka við skuldabréfum frá fyrirtækjum í útflutningsgreinum og gefa út skuldabréf til lánardrottna þeirra og ábyrgist sjóðurinn greiðslu þeirra bréfa með eignum sínum. Lækkun vaxta skilar sér Ráðstafnir ríkisstjómarinnar þar fyrir utan á sviði efnahags- mála voru í meginatriðum fólgn- ar í framlengingu verðstöðvunar til febrúarloka 1989, lögbindingu launa og almenns fiskverðs til 15. febrúar, lækkun gengis um 3%, Iækkun vaxta sem þegar hafa komið til framkvæmda þó aðal- lega með lækkun nafnvaxta og lít- ilsháttar lækkun raunvaxta vegna vantrúar bankakerfisins á stefnu ríkisstjórnarinnar í efnahagsmál- um. Nafnvaxtalækkunin skilaði sér þó strax í minni fjármagns- kostnaði fyrirtækja um hundruð miljóna króna sem komið hefur fram í milliuppgjöri fyrirtækja sem sótt hafa um aðstoð hjá At- vinnutryggingarsjóðnum. Kerfisbreytingar Fyrir utan að skuldbreyta lán- um fyrirtækja sem að mati sjóðs- stjórnar geta staðið undir frekari lánsveitingum, hefur sjóðurinn óbeint beitt sér fyrir kerfis- breytingum hjá þeim fyrirtækjum sem ekki hafa þótt lánshæf þá stundina. Hafa þessar kerfis- breytingar aðallega beinst að samruna fiskvinnslufyrirtækja jafnt innan bæja sem og á milli nágrannabyggðarlaga til að við- komandi fyrirtæki eigi möguleika á fyrirgreiðslu frá sjóðnum. Er þess þegar farið að gæta á nokkrum stöðum á landinu ss. í Þorlákshöfn þar sem fyrirtækin Glettingur hf. og Meitillinn hf. hafa ráðið sérstakan starfsmann til að vinna að sameiningu þess- ara tveggja fyrirtækja. Sömu sögu er að segja frá Ólafsfirði og frá Stöðvarfirði og Breiðdalsvík. Áðurnefndar aðgerðir ríkis- stjórnarinnar voru fyrst og fremst til bráðabirgða og hafa þegar skilað árangri. En til langframa er nauðsyn á langtímastefnu í efnahagsmálum þjóðarinnar og má búast við tillögum þess efnis frá ríkisstjórninni eftir áramótin. Enda ekki vanþörf á þar sem stjórnendur margra fiskvinnslu- fyrirtækja virðast hafa ákveðið að hefja ekki vinnslu á nýjan leik í sínum húsum fyrr en ljóst þykir hvað ríkisstjórnin ætlist fyrir í nýju ári. Uppsagnir í jólagjöf Til að auka þrýsting á stjórnvöld var fastráðningar- samningum fiskvinnslufólks á 19 stöðum sagt upp og borið við hrá- efnisskorti og hagræðingum innan fyrirtækjanna og komu uppsagnirnar til framkvæmda í þessum mánuði. Þar auki var öllu lausráðnu starfsfólki sparkað við fyrsta hentugleika. Heldur kuldaleg jólagjöf það. Samkvæmt könnun Verka- mannasambands íslands hefur einna flestum verið sagt upp fast- ráðningu á Austfjörðum; á Borg- arfirði eystra, Seyðisfirði, Eski- firði, Reyðarfirði og á Breiðdals- vík en ekki á Vopnafirði, Nes- kaupstað og á Höfn í Homafirði. Aðrir staðir sem öllu fiskvinnslu- fólki eða hluta þess hefur verið sagt upp eru: Akranes, Grund- arfjörður, Hólmavík, Ólafsfjörð- ur, Dalvík, Húsavík, Stokkseyri, Eyrarbakki, Þorlákshöfn, Sand- gerði, Grindavík, Keflavík, Pat- reksfjörður og Þingeyri. Óvíst er með öllu hvort fiskvinnsluhús á þessum stöðum hefji starfsemi á nýjan leik eftir áramótin og ef ekki blasir við hrun í mörgum viðkomandi byggðarlaga sem ekki hafa að neinu öðm að hverfa en fiskvinnslu. Útlitið afar dökkt Af framansögðu má ljóst vera að útlitið í fiskvinnslunni í upp- hafi árs 1989 er afar dökkt og ekki hægt að sjá hvernig það leysist í bráð að öllu óbreyttu. Atvinnu- öryggi þúsunda fiskvinnslufólks er í hættu og um leið framtíð fjöl- margra byggðarlaga. Sjómenn bera kvíðboga fyrir næsta ári vegna fyrirsjáanlegs aflasam- dráttar sem þeir segja sjálfir að muni bitna fyrst og fremst á báta- sjómönnum. Þá munu tekjur út- gerðar einnig minnka veralega. Þó er ljóst að afkomu fisk- vinnslunnar verður ekki bjargað með kjaraskerðingu þrátt fyrir hróp og köll þar um, heldur með frekari lækkun fjármagns- kostnaðar og kerfisbreytingum innan atvinnugreinarinnar. Við- búið er að það geti haft einhverja byggðaröskun í för með sér sem verður án efa sársaukafull fyrir marga. -grh Föstudagur 30. desember 1988 NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 19

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.