Þjóðviljinn - 15.09.1989, Qupperneq 32
Pulsusalinn í
fjárveitinganefnd
Óli Þ. Guðbjartsson var
fulltrúi Borgaraflokksins í fjár-
veitinganefnd en nú þegar
hann er orðinn dómsmálaráð-
herra þurfti að finna nýjan
kandídat í embættið. Þar sem
þetta er eina launaða nefn-
darstarfið á Alþingi þá þykir
nokkuð gott að komast í
þessa nefnd, auk þess sem
menn geta verið sínum
mönnum og sínu kjördæmi
innanhandar þegar sótt er um
fjárveitingar til þingsins. Nú
hefur þingflpkkur Borgara
ákveðið að Ásgeir Hannes
Eiríksson pulsusali taki við af
Óla Þ. í nefndinni. Ásgeir er nú
eini fulltrúi Reykjavíkur í fjár-
veitinganefnd því auk hans
eiga sæti í nefndinni þau Mar-
grét Frímannsdóttir fyrir
Suðurland, Egill Jónsson
fyrir Austurland, Málmfríður
Sigurðardóttir fyrir Norður-
land eystra, Pálmi Jónsson
fyrir Norðurland vestra, Sig-
hvatur Björgvinsson og
Ólafur Þ. Þórðarson fyrir
Vestfirði, Alexander Stef-
ánsson og Friðjón Þórðar-
son fyrir Vesturland. Nú eiga
því öll kjördæmi utan
Reykjaneskjördæmis fulltrúa í
nefndinni. Samt sem áður er
reykvíska íhaldið ekkert yfir
sig ánægt með fulltrúa kjör-
dæmisins í nefndinni og hryllir
við tilhugsuninni um að þurfa
að leita til pulsusalans tff að
koma málum áleiðis innan
nefndarinnar.B
Lögfræðingurinn
þingflokks-
formaður
En það losnuðu fleiri feit emb-
ætti innan Borgaraflokksins
við myndun ríkisstjórnarinnar.
Júlíus Sólnes var formaður
þingflokksins en er nú orðinn
ráðherra. Var nú ákveðið að
umbuna Guðmundi Ágústs-
syni lögfræðingi tryggðina og
hann gerður að þingfíokksfor-
manni. Þótti það smá sárabót
fyrir að hann fékk ekki
dómsmálaráðuneytið sem
hann sóttist eftir.B
Árbæjarsafn
laust
Um næstu mánaðamót lætur
Ragnheiður Þórarinsdóttir
forstöðumaður Árbæjarsafns
af störfum en hún er að flytja
úr landi. Þetta þykir mjög feitt
embætti hjá safnamönnum,
jafnvel feitara en embætti
þjóðminjavarðar, því emb-
ættinu fylgir gott hús í Árbæn-
um. Þrír aðilar eru einkum
taldir koma til greina, þau
Guðjón Friðriksson sagn-
fræðingur, Þórunn Valdi-
marsdóttir sagnfræðingur og
Gunnlaugur Haraldsson
safnstjóri á Akranesi.B
Kosningalofórð
strax
Það hefur vart farið fram hjá
landsmönnum að Jón Sig-
urðsson iðnaðarráðherra
hefur verið á yfirreið um
landið með Halldóri Ás-
grímssyni sjávarútvegsráð-
herra. Báðir hafa þeir verið að
lofa hinu og þessu upp í ermar
sér. T.d. var Halldór að lofa
Austfiröingum hvalstöð þrátt
fyrir að mjög litlar líkur séu á
að hvalveiðar verði leyfðar
aftur. Jón Sigurðsson er þó
enn stórtækari en Halldór því
hann lofar Eyfirðingum heilu
álveri, þótt enn sé óvíst um
hvort af stækkun álversins í
Straumsvík verður. Það þarf
þó ekki að koma á óvart að
Jón vilji bjóða Norðlendingum
eitt stykki álver því það flýgur
fjöllum hærra að ráðherrann
ætli að flytja sig um set í
næstu alþingiskosningum og
fara fram á Norðurlandi
eystra, þar sem næsta öruggt
sé að Alþýðuflokkurinn fái
ekki þrjá menn kjörna í
Reykjavík. Það rennir stoðum
undir þetta að á fundinum
voru mættir allir toppkratar á
Norðurlandi utan þingmaður-
inn, Árni Gunnarsson.B
Meðvituð
breikkun
Hvernig sem nú á því
stendur hafa viðbrögð við
stækkun stjórnar Steingríms
Hermannssonar ekki verið
sérlega alvöruþrungin.
Dagblaðið Tíminn fjallaði til
dæmis um aðdraganda
stjórnarmyndunarinnar (sem
honum er þó mjög kær ber-
sýnilega) mjög í þeim dúr, að
nú hefði formaður Framsókn-
arflokksins slegið nýtt met,
einskonar nýtt landsmet í
sleggjukasti, með því að
mynda þá alstærstu stjórn
sem hér hefði nokkru sinni
setið.
Til dæmis að taka um al-
vöruleysið má nefna eftirfar-
andi samtal tveggja stjórnar-
liða sem hlerað var á dögun-
um:
- Stjórnin nýja minnir mig
mest á bókartitil.
- Og eftir hvern væri sú
bók?
- Eftir Dag Sigurðarson.
- Eftir Dag?
- Já. Hann gaf einu sinni út
kver sem heitir „Meðvituð
breikkun á rassgati“.B
Lúðvík er...
Þeir sem jafnan sakna lið-
inna tíma þegar menn voru
menn og pólitíkusar pólitíkus-
ar eru fegnir þessa dagana.
Þeir eru fegnir því að sú
aldna kempa, Lúðvík Jóseps-
son, skuli aftur kominn í
sviðsljósið og sveiflar sann-
leikans sverði yfir Lands-
bankastjórum og verður
kannski settur í tugthús fyrir.
Eða eins og segir í kvæði sem
ort var um annan ágætan sós-
íalista:
Sannleikans sonurí fjötra er
felldur...
Ekki er úr vegi að minna í
þessu samhengi á gamla vísu
sem ort var um það leyti sem
Lúðvík hafði forystu í merki-
legum landhelgisstríðum. En
hún er svona:
Lúðvík er Ijóssins erla
Lúðvík er okkar von
Lúðvík er lífsins perla
Lúðvík er Jósepsson..M
íhaldið logar
íhaldið logar um þessar
mundir vegna afstöðu þeirra
manna í bankaráði Lands-
bankans í Samvinnubanka-
kaupunum. Sag^i einn áhrifa-
maður í flokknum að það væri
á hreinu að Pétur Sigurðs-
son formaður bankaráðs yrði
ekki endurkjörinn til þess
starfa næst. Það kann því að
vera að Búlgaríuförin með
Kristni Finnbogasyni verði
Pétri dýrkeyptari en hann
hugði.B
Lífeyrissjóðir
eru samtrjgging!
Samtrygging felst meðal annars í því að þeir sem njóta örorku-,
maka- eða barnalífeyris fá almennt langtum hærri lífeyri en sem
nemur greiddum iðgjöldum til viðkomandi lífeyrissjóðs.
Sumir halda hins vegar að lífeyrissjóðir séu eins konar bankabók,
þ.e. iðgjöldin fari inn á sérreikning hvers og eins sjóðfélaga og
greiða skuli lífeyri eins lengi og innistæðan endist - en ekki lengur!
Um 1700 sjóðfélagar með um 400 börn njóta örorku-og barna-
lífeyris hjá SAL-sjóðunum.
Hætt er við að örorku- og barnalífeyrir yrði rýr ef eingöngu ætti
að miða við greidd iðgjöld bótaþeganna.
Lífeyrissjóðir eru ekki bara bankabók. Peir eru langtum meira!
Lífeyrissjóðir eru samtrygging sjóðfélaga! Mundu það!
SAMBAND ALMENNRA
LÍFEYRISSJÓÐA
- Samræmd lífeyrisheild -