Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1995, Page 2
2
ÞRIÐJUDAGUR 19. DESEMBER 1995
Fréttir
Ruddust inn i Búnaðarbankann á Vesturgötu og öskruðu:
Þetta er vopnað rán
Sameiginleg vatnsveita
Þrjú sveitarfélög á höfuðborg-
arsvæðinu; Kópavogur, Hafnar-
fjörður og Garðabær, hafa til at-
hugunar að sameinast um nýja
vatnsveitu, m.a. vegna hækkun-
ar á verði vatns frá Vatnsveitu
Reykjavíkur. Skv. Sjónvarpinu
er um álitlegan kost að ræða.
Djúpstæður ágreiningur
Ríkisstjómin mun í dag fjalla
um þá ákvörðun ESB að túlka
EES-samninginn þannig að hann
nái til viðskipta með sjávaraf-
urðir. Djúpstæður ágreiningur
er um málið milli ESB og EFTA.
Sjónvarpið greindi frá.
Gigtin kostar sitt
Áætluð útgjöld hins opinbera
vegna meðferðar gigtarsjúkiinga
eru um 7 milljarðar eða 20% af
útgjöldum heilbrigðiskerfisins.
Tíminn greindi frá.
Áætlun samþykkt
Alþjóðaflugmálastofnunin hef-
ur samþykkt viðbúnaðaráætlun
flugmálastjórnar fyrir íslenska
flugstjórnarsvæðiö. Til áætlun-
arinnar var gripið í kjölfar upp-
sagna 82 flugumferðarstjóra.
Komugjöld hækka
Komugjöld á heilsugæslu-
stöðvar og til sérfræðinga verða
hækkuð um 17 til 50% sam-
kvæmt tillögum heilbrigðisráð-
herra. Stöð tvö greindi frá.
Tekist á um neyftarlínu
Fyrirhuguð framkvæmd laga
um neyðarlínuna sætti harðri
gagnrýni hjá stjórnarandstöð-
unni á Alþingi í gær. M.a. var
gagnrýnt að einkafyrirtæki skuli
fá aðgang að upptökum á trúnað-
arsamtölum milli fólks og lög-
reglu. Tíminn greindi frá.
Lög um snjóflóðamál
í gær voru samþykkt lög á Al-
þingi sem færa yfirstjórn snjó-
flóðamála frá félagsmálaráðu-
neyti til umhverfisráðuneytis. í
framtíðinni verður það í valdi
Veðurstofu íslands að ákveða
hvenær hættusvæði skuli rýmd.
-kaa
- segir Leifur H. Jósteinsson útibússtjóri
„Þeir ruddust inn með miklum
hávaða og öskruðu: Þetta er vopnað
rán. Ég var staddur inni á skrifstofu
minni baka til og áttaði mig ekki al-
veg á alvörunni í fyrstu.' Þegar ég
svo sá einn mannanna stökkva yfir
skenkinn með hníf í hendi fór ekki
milli mála að hér var alvara á ferð-
um,“ segir Leifur H. Jósteinsson,
útibússtjóri Búnaöarbankans á
Vesturgötu, í samtali við DV.
Leifur sagði greinilegt af öllum
tiltektum mannanna að þeir hefðu
skipulagt ránið vel og farið fag-
mannlega að ef svo mætti taka til
orða. Þó benti margt til að þeir
hefðu hikað í fyrstu fyrir utan bank-
ann áður en þeir létu til skarar
skríða.
Haglabyssumaðurinn
stjornaði
„Þeir hræddu fólkið með látunum
og gengu svo mjög skipulega til
verks. Einn, sá með haglabyssuna,
virtist stjórna aðgerðum og hann
beið fyrir framan skenkinn meðan
hinir tveir fóru inn fyrir og brutu
upp skúffur hjá fjórum gjaldkerum.
Þetta tók varla meira en eina mín-
útu og svo voru þeir á bak og burt,“
segir Leifur.
Hann telur að báðir mennirnir,
sem fóru inn fyrir afgreiðsluborðin,
Stuttar fréttir
Bankaræningjarnir komu á þessum bíl. Hann var síðan skilinn eftir f gangi fyrir utan bankann. I Ijós kom að bíllinn
var stolinn. DV-mynd Brynjar Gauti
hafi verið vopnaðir hnífum. Gjald-
kerarnir náðu ekki að hringja neyð-
arbjöllunum enda óráð að reyna að
óhlýðnast skipunum vopnaðra
manna. Hann hefði hins vegar náð
að hringja og það gerði einnig
Eyjólfur Einarsson sem staddur var
úti.
„Þetta voru ungir menn þótt erfitt
væri að átta sig á aldri þeirra í sam-
festingunum og með lambhúshet-
turnar. Ég giska á að þeir hafi verið
um eða rétt yfir tvítugt. Þeir voru
mjög vel þjálfaðir sem sést af því að
þeir undu sér yfir afgreiðsluborðin
eins og ekkert væri,“ segir Leifur.
Leifur vill ekki segja hve miklu
hafi verið stolið en þó er ljóst að um
töluverða upphæð var að ræða enda
fjórar gjaldkeraskúffur tæmdar.
Hann sagðist álíta að mennirnir
hefðu valið mánudagsmorgun til
ránsins vegna þess að þá er minnst
mannaferð í bankanum. Hins vegar
gætu verið meiri fjármunir þar
seinnipart daganna en þá væri erf-
iðara um vik að athafna sig vegna
fjölda viðskiptavina.
Búnaðarbankinn við Vesturgötu
er opinn í dag og engar ráðstafanir
gerðar til að herða öryggisgæslu
þar. Leifur sagðist ekki eiga von á
sömu mönnunum tvisvar. Hann
taldi þó álitamál hvort ekki bæri að
gæta öryggis betur í bönkum í fram-
tíðinni. Til þessa hefði verið stefna
að opna afgreiðslurnar en ef ráns-
menn færðu sig upp á skaftið yrði
að setja þar upp meiri hindranir en
nú eru. -GK
Skipuðu okkur að horfa niður í gólfið
- segir Ólafur G. Björnsson
„Þeir skipuðu okkur að horfa nið-
ur í gólfið. Ég fór eftir því og þess
vegna sá ég lítið hvað ræningjarnir
aðhöfðust. Þeir voru þó á ferð og
flugi og með skipanir til starfsfólks-
ins,“ segir Ólafur G. Björnsson,
einn viðskiptavina Búnaðarbank-
ans á Vesturgötu, í samtali við DV.
Ólafur var einn þriggja viðskipta-
vina sem staddir voru í bankanum
þegar þrir grímuklædir og vopnaðir
menn ruddust þar inn um klukkan
hálfellefu í gær.
„Ég var seinn að átta mig á því
sem var að gerast, hélt reyndar
fyrst að þetta væri grín enda ekki
vanur svona uppákomum. Svo sá ég
að þetta var alvara og sat bara, enda
vissi ég að það þýddi ekkert að vera
að hreyfa sig,“ segir Ólafur.
Ólafur sagði að mennirnir hefðu
ekki haft hátt þrátt fyrir umstangið.
Honum og öðrum viðskiptavinum
var heldur ekki ógnað beinlínis þótt
þeim hafi staðið beygur af vopnum
ræningjanna.
„Mönnum dettur í hug eftir á að
það hefði mátt gera eitthvað til að
stöðva mennina en það er auðvitað
eins og hvert annað óráð að hugsa
um slíkt,“ sagði Ólafur.
-GK
Virtust vera menn um tvítugt
- segir Eyjólfur Einarsson sem hringdi á lögregluna
„Af hreyfmgum mannanna virt-
ist mér sem þeir væru um tvítugt.
Það er þó erfitt að átta sig á slíku
enda mennimir með lambhúshett-
ur á höfðum og í vinnugöllum,"
segir Eyjólfur Einarsson listmál-
ari en hann sá bankaræningjana
fara inn í Búnaðarbankann á
Vesturgötunni hringdi á lögregl-
una.
Ég var staddur á gangstéttinni
gegnt bankanum þegar ég sá
mennina koma út úr lítilli Toyotu
og fara inn í bankann.
„Ég sá að einn var með hagla-
byssu og áttaði mig á að hér var
alvara á ferðum. Ég hljóp því inn
til mín og hringdi í lögregluna,“
segir Eyjólfur.
Að því búnu hugðist hann fara
út aftur og ná númerinu á bllnum
en þá voru bankaræningjamir á
bak og burt og höfðu skilið bílinn
eftir í gangi.
„Mér brá illilega að sjá þetta.
Svona gerist bara í bíómyndmn.
Þetta var greinilega þrautskipu-
lagt rán,“ sagði Eyjólfur.
-GK
Afrek Berts er efst á bóksölulista DV:
Hefðum getað selt meira
- ef upplagiö hefði ekki klárast - segir Benedikt Kristinsson, sölustjóri Skjaldborgar
Ein ný á lista
„Við prentuöum í upphafi rúm- kláraðist í nokkrum verslunum í
lega sex þúsund eintök af bókinni síðustu viku, til dæmis í Hagkaupi
og bjuggumst hálfpartinn við því að og Bónusi og því höfum við látið
það myndi duga. Afrek Berts prenta 2.500 eintök til viðbótar,"
Listi HX23 yfir söluhæstu bækur
1. (2.) Afrek Berts - Jacobsson & Olsson
2. (1.) Karlar eru frá Mars, konur eru frá Venus - John Gray
3. (7.) María, konan bak við goösögnina - Ingólfur Margeirsson
4. (5.) Ekkert að þakka - Guörún Helgadóttir
5. (10.) Hin hljóöu tár - Sigurbjörg Árnadóttir
6. (6.) Áfram Latibær - Magnús Scheving
i
7. (8.) Sex augnablik - Þorgrímur Þráinsson
M ' Mi
8. (3.) Útkall, íslenska neyðarlínan - Óttar Sveinsson
9. (4.) Vilhjálmur Stefánsson landkönnuður - William Hunt
10. (-) Ufsilon - Smári Freyr og Tómas Gunnar
sagði Benedikt Kristinsson, sölu-
stjóri hjá Skjaldborg, fyrirtækinu
sem gefur út bókina Áfrek Berts
sem er í fyrsta sæti á bóksölulista
DV.
„Bókin Enn fleiri athuganir
Berts, sem er í sama bókaflokki, var
meðal söluhæstu bókanna í fyrra og
því kemur þéssi mikla sala okkur í
raun ekki á óvart," sagöi Benedikt.
í öðm sæti listans er bókin Karl-
ar eru frá Mars, konur eru frá Ven-
us, eftir John Gray sem var í fyrsta
sæti listans i síðustu viku og þvi
ljóst að hún verður með söluhæstu
bókum á jólavertíðinni.
María, konan bak við goðsögnina
er í þriðja sæti og er því efst hvað
varðar bækur sem eru almenns eðl-
is, en Ingólfur Margeirsson er höf-
undur hennar. „Það sem gleður mig
aðallega er hve bókin hefur verið á
góðu róli og stöðugu á bóksölulist-
um undanfamar vikur, sem bendir
til þess að hún nái góðri heildarsölu
þegar upp er staðið," sagði Ingólfur
Margeirsson, höfundur bókarinnar
um Maríu.
„Ég bjóst reyndar við því að bók-
in ætti góða möguleika á því að
verða ein af metsölubókum ársins,
því saga Maríu er mjög sérstök og
hún sjálf mjög heillandi persóna,"
sagöi Ingólfur.
Bók Guðrúnar Helgadóttur, Ekl
ert að þakka, er í fjórða sæti og Hi
hljóðu tár, sem skrásett er af Sigu
björgu Ámadóttur, er í fimmta sæ
listans. Hún var áður í tíunda sæ
inu. Ein ný bók er á lista D1
Ufsilon eftir ungu piltana Smár
Frey og Tómas Gunnar, en hún er
10. sætinu. Bækurnar Útkall, í;
lenska neyðarlínan og Vilhjálmr
Stefánsson, Landkönnuður hrap
um nokkur sæti á listanum mil
vikna.
Þær bækur, sem komust næst þi
að vera á listanum yfir 10 me:
seldu bækur síðustu viku, eru Mil
vonar og ótta eftir Þór Whiteheai
Pála eftir Isabel Allende og Hraui
fólkið, bók Björns Th. Björnssonar
Bókaverslanirnar, sem taka þátt
sölukönnun DV, eru: Hagkaup;
verslanir í Skeifunni og Kringlunn
á Akureyri og í Reykjanesbæ, E;
mundsson verslanirnar, Penninn
Hallarmúla, Bókaverslunin Sjáva
borg í Stykkishólmi, Bókabú
Brynjars á Sauðárkróki, Bókabú
Sigurbjörns á Egilsstöðum, Kaupf
lag Árnesinga á Selfossi og Bókabú
Kefiavikur í Reykjanesbæ. -í