Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1995, Síða 6
6
ÞRIÐJUDAGUR 19. DESEMBER 1995
Fréttir
Misstu heimili sitt í snjóflóðinu á Flateyri:
Anægð að vera komin
aftur til Flateyrar
- ætlaði ekki að koma svona fljótt til baka, segir Hjördís Guðjónsdóttir
DV; Flateyri:
„Ég ætlaði ekki að koma vestur
aftur, að minnsta kosti ekki í vetur.
Við vorum búin að leita okkur að
íbúð á Suðurnesjum í langan tíma
en fundum aðeins eina sem hentaði
okkur. Leigan á henni var hins veg-
ar svo há að við réðum ekki við
hana. Þegar svo maðurinn minn fór
vestur til að ná í það af dótinu okk-
ar sem heillegast var hugsaði ég
með mér að þetta gengi ekki svona.
Það væri útilokað aö hann væri í
allan vetur við sjósókn frá Flateyri
en ég með bömin fyrir sunnan,"
sagði Hjördís Guðjónsdóttir, íbúi á
Flateyri, í samtali við DV.
Hjördís og fjölskylda hennar
misstu heimili sitt í snjóflóðinu á
Flateyri í haust. Hjördis hafði ásamt
Akranes:
Stöðugt færri
án atvinnu
DV, Akranesi:
„Það er mikill hugur í mönn-
um hér og engin deyfð í atvinnu-
lífinu eins og er,“ sagöi Brynja
Þorbjörnsdóttir, atvinnumála-
fulltrúi á Akranesi, við DV. At-
vinnuleysi í nóvember var 4,7%
af mannafla og er það 1,5%
minna en á sama tíma í fyrra og
mun minna en undanfarin ár.
-DÓ
PIZZA & TOAST
LITLI SÆLKERAOFNINN FRÁ
Lítíll og nettur borðofn
sem getur alla skapaða hluti.
Steikir og grillar, ristar brauð og
bakar kökur. Og nú getur þú
eldað pizzu á hinn eina og sanna
ítalska máta.
Ofninum fylgir sérhönnuð
leirplata (pizzasteinn), sem jafnar
hita og dregur í sig raka. Þú eldar,
án fitu, pizzu, kjöt, fisk o.fl.
PIZZA & TOAST
kostar aðeins
kr. 10.250,- stgr.
TILVALIN JÓLAGjÖF
TIL SÆLKERA
6 gerðir (
I borðofna
á verði frá 9.300,-
jFOnix
HÁTÚNI6A REYKJAVÍK SÍM1 552 4420
Hjördís Guðjónsdóttir ásamt börnum sínum og tengdadóttur. Maður hennar, Magnús Björgvinsson matsveinn, var
á sjó þegar myndin var tekin. DV-mynd Gm.S.
Sérleyfisbifreiðum Keflavíkur breytt í hlutafélag:
Ætlum að verja
réttindi okkar
- segir Guðmundur Steindórsson, trúnaðarmaður félagsins
DV, Suðurnesjum:
„Það stóð til að segja öllum starfs-
mönnum Sérleyfisbifreiöa Keflavík-
ur upp um áramótin. Síðan var fall-
ið frá því um stundarsakir og málið
falið lögfræðingum. Ef við verðum
teknir af þeim kjörum sem við erum
á nú og færðir niður í kjör Bifreiða-
stjórafélagsins Sleipnis, þá lækka
laun okkar um 6-7000 krónur á mán-
uði. Að fara í Sleipni er eins og að
fara marga áratugi aftur í tímann,"
sagði Guðmundur Steindórsson,
trúnaðarmaður SK, í samtali við DV.
Bæjarráð Reykjanesbæjar hefur
samþykkt tillögur almennings-
vagnanefndar bæjarins um að
breyta rekstrarformi SK í hlutafélag
sem verði alfarið í eigu bæjarins og
heQi starfsemi 1. janúar 1996. Bæjar-
ráðsmenn voru ekki sammála
nefndinni að miða uppsagnir starfs-
manna við ákveðna dagsetningu.
Þeir leggja til að það verði hlutverk
nýrrar hlutafélagsstjórnar að taka
ákvörðum um hvernig verði unnið
að þeim málum.
Bæjarstjórn tekur síðan endan-
lega ákvörðun í málinu sem snýr
mest að starfsmönnum - hvort þeim
verður sagt upp og síðan endurráðn-
ir þegar nýja hlutafélagið tekur til
starfa. Það þýðir að starf'smennirnir
14 þurfa að skipta um stéttarfélag.
„Við ætlum að verja réttindi okk-
ar og ekkert annað kemur til greina
en að vera áfram í Starfsmannafé-
lagi Reykjanesbæjar og eftirlauna-
sjóði. Það er skýlaus krafa okkar að
halda okkar hlut óskertum. Við
erum ekki á móti því að félagið sé
gert að hlutafélagi en ef við fórum í
Sleipni verður skerðing á öllum
okkar réttindum. Við viljum að
bærinn leigi okkur til hlutafélags-
ins meðan það er alfarið í eigu bæj-
arins,“ sagði Guðmundur.
„Formsins vegna verður að segja
upp öllum starfsmönnum þegar
svona breytingar verða. Okkur var
falið verkefnið og við reynum að
velja besta kostinn. Breytingamar
eru til þess að auka sjálfstæði fyrir-
tækisins og að forðast það að brjóta
samkeppnislög. Nú hefur fyrirtækið
ákveðna vernd frá bæjarfélaginu,"
sagði Þórunn Benediktsdóttir, for-
maður almenningsvagnanefndar.
-ÆMK
Akranes:
Félagsíbúðir á
frjálsan markað
DV, Akranesi:
Til athugunar er að selja á
frjálsum markaði þær íbúðir
sem Húsnæðisnefnd Akraness
hefur kauprétt á í félagslega
kerfinu. Að sögn Jóns Pálma
Pálssonar, starfsmanns húsnæð-
isnefndar, er aðalástæðan fyrir
athuguninni sú að ekki virðist
vera eftirspurn eftir félagslegum
íbúðum þessa stundina.
Bærinn verður að kaupa upp
þær íbúðir sem eru í félagslega
kerfinu og ekki hefur tekist að
selja þær þannig að bærinn sit-
ur uppi með íbúðimar og hefur
talsverðan kostnað af þeim. Ef
bærinn selur íbúðimar lægra
verði heldur en áhvílandi lán á
íbúðunum þá tapar bæjarfélagið
peningum. Ef hins vegar að
íbúðirnar era seldar hærra
verði heldur en áhvílandi lán þá
rennur hagnaðurinn til Hús-
næðisstofnunar. -DÓ
Jólalokanir sjúkrahúsanna:
Tíu deildum
lokað á Land
spítalanum
Verulegur samdráttur verður í
starfsemi Ríkisspítala um jól og ára-
mót og óvenjumikill miöað við árs-
tíma/Samkvæmt upplýsingum frá
yfirstjórn spítalanna verða tíu
deildir á Ríkisspítölum alveg lokað-
ar í viku til hálfan mánuð fram í
janúar og dregið verður úr stárf-
semi annarra deilda. Lokunin felst
meðal annars í því að ekki verður
tekið á móti nýjum sjúklingum inn
á spítala.
Á Landspitalanum verður tveim-
ur skurðdeiidum á handlækninga-
sviði lokað, almennri lyflækninga-
deild, sængurkvennadeild, fjórum
litlum almennum deildum á geð-
lækningasviði og barna- og ung-
lingageðdeildinni við Dalbraut.
Dregið verður úr starfsemi hjarta-
deildar í þrjár vikur að hálfu og
fjórðungur rúma á skurðdeild barna
verður ónotaður.
Húðdeildinni á Vífilsstöðum verð-
ur lokað í háifan mánuð en að öðru
leyti verður ekki um svo mikinn
samdrátt aö ræða þar.
Sigríður Snæbjörnsdóttir, hjúkr-
unarforstjóri á Borgarspítalanum,
segir aö 25-50 prósenta samdráttur
verði í starfsemi bráðadeilda spital-
ans yfir jól og áramót en lítill sem
enginn samdráttur verði á langlegu-
deildum. Fáar innlagnir verði á
spítalann fyrir jól.
-GHS
manni sínum, Magnúsi Björgvins-
syni, og börnum orðið að flýja hús
sitt vegna snjóflóðahættu og voru
þau því ekki heima nóttina örlaga-
ríku. En nú er fjölskyldan komin
vestur aftur og flutt í eitt af þeim
sumarhúsum sem komið var upp til
að leysa bráðasta húsnæðisvanda
Flateyringa.
„Mér líkar þetta ljómandi vel og
ég er ofsalega ánægð að vera komin
aftur til Flateyrar. Það er sama hvar
maður er ef fjölskyldan getur öll
verið saman. Reyndar er ég svolítið
kvíðin fyrir þessum sjávarflóðum
sem búist er við um jólin. Ég verð
að játa að ég hef sofið illa að undan-
förnu vegna þessa, einkanlega þegar
hvasst hefur verið,“ sagði Hjördís
Guðjónsdóttir.
-Gm.S.
Tókst ekki
að stöðva
bóka-
markað á
Akranesi
DV, Akranesi:
„Maður er orðinn þreyttur á
samstarfinu við bókaútgefendur
þegar þeir gera okkur þennan
grikk á þessum árstíma. Fata-
verslanir hér á Akranesi hafa
getað stöðvað slíka markaði þeg-
ar þeir hafa verið settir á. Það er
á hreinu að þetta setur strik í
reikninginn hjá okkur i bóksöl-
unni,“ sagði Hallgrímur Jóns-
son hjá Bókaverslun Andrésar
Níelssonar í samtali við DV.
Mikillar óánægju gætir hjá
forstöðumönnum þeirra tveggja
bókaverslana sem starfa á Akra-
nesi vegna bóka- og verkfæra-
markaðar sem var þar um helg-
ina. Bóksalamir, sem reka
verslanir sínar allan ársins
hring, telja að þetta skaði söluna
hjá þeim þegar slíkt er gert á
bestu söludögum ársins hvað
bókum viðkemur.
Þeir reyndu að stöðva mark-
aðinn en fulltrúi sýslumanns
treysti sér ekki til þess þar sem
sá maður sem var með markað-
inn hefur smásöluleyfi á Akra-
nesi. DÓ
Húsavík:
Ný verksmiðja
í rækju-
vinnslunni
DV, Húsavík:
Fiskiðjusamlag Húsavíkur
tók nú um mánaðamótin í notk-
un nýja rækjuverksmiðju sem
mun vera ein sú fullkomnasta á
landinu. Eldri rækjuverksmiðj-
an var í gömlu húsnæði sem
hentaði ekki vel fyrir rekstur-
inn hvorki hvað varðaði stað-
setningu né aðstöðu. Hún var
flutt i nýlegt húsnæði sem var
notaö undir saltfiskverkun og er
allur aðbúnaður þar að sögn
mjög góður. Afkastageta verk-
smiðjunnar getur verið allt að
7-8000 tonn af hráefni á ári.
-AA