Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1995, Qupperneq 9
ÞRIÐJUDAGUR 19. DESEMBER 1995
9
Oboðnir gestir hjá fyrrverandi Bítli í London
Þjófarnir gripu
í tómt hjá Paul
Innbrotsþjófar létu greipar sópa
um heimili Pauls McCartneys, Bít-
ilsins fyrrverandi, í Lundúnum í
síðustu viku á meðan hann var í
heimsókn hjá Lindu, eiginkonu
sinni, á sjúkrahúsi þar sem hún
hafði gengist undir aðgerð vegna
krabhameins í brjösti.
Paul sagði að einn starfsmanna
sinna hefði komið að þjófunum og
truflað þá við iðju sína. Þeir hefðu
því flúið tómhentir.
„Sem betur fer var ekkert verð-
mætt tekið. Við ætlum að bæta ör-
yggið en það er ljóst að svona nokk-
uð er ekki til að bæta ástandið eins
og á stendur," sagði Paul McCartn-
ey við fréttamenn i gær.
Hann hefúr átt hús þetta frá því á
dögum Bítlanna og í því samdi hann
lagiö She Came in Through the Bat-
Paul McCartney hafði heppnina
með sér. Símamynd Reuter
hroom Window sem fjallar um það
þegar aðdáendur hljómsveitarinnar
brutust þar inn á sínum tíma og
stálu mynd af foður hans.
McCartney sagði að aðgerðin á
Lindu hefði gengið að óskum en
hnútur var tekinn úr brjósti henn-
ar. Hann varaði fréttamenn við því
að hann mundi kæra þá fyrir eftir-
litsnefnd fjölmiðla ef þeir öngruðu
hann og fjölskyldu hans.
„Þetta er sá tími árs þegar vel-
vildin ræður ferðinni. Ég óska
blaðamönnum alls hins besta og ég
vona að þeir gjaldi í sömu mynt. Ef
þeir halda sig ekki til hlés tel ég að
þeir verði fúndnir sekir um áreitni,
eins og sakir standa, og ég lofa því
að ég mun klaga þá fyrir fjölmiðla-
nefndinni," sagði Paul McCartney.
Reuter
Öryggisvörður sendir burt fjölskyldur sem ætlaðu að sækja um vegabréf í New York í gær. Um 260 þúsund ríkis-
starfsmenn urðu að sitja heima sem þýddi lokun fjölda ríkisstofnana. Símamynd Reuter
Fjárlagadeilan í Bandaríkjunum enn í hnút:
Um 260 þúsund ríkis-
starfsmenn frá vinnu
Fjárlagadeilan í Bandaríkjunum
er enn í hnút og urðu 260 þúsund
opinberir starfsmenn að vera heima
í gær þar sem ekki var hægt að
greiða þeim laun. Er þetta í annað
sinn sem ríkisstofnanir hálflamast í
Bandaríkjunum á tæpum mánuði
en á þingi eru menn engu nær sam-
komulagi um jöfhun fjárlagahallans
á næstu sjö árum.
Lokun opinberra stofnana hafði
strax áhrif á verðbréfamarkaði í
New York en vísitölur féllu meira
en þær hafa gert síðastliðin fjögur
ár. Fjármálasérfræðingar höfðu
lengi varað við þessum neikvæðu
áhrifum.
Stuttu áður en verðbréfamarkað-
ir lokuðu í gær hringdi Bill Clinton
Bandaríkjaforseti í Bob Dole og
Newt Gingrich. leiðtoga Repúblik-
ana á bandaríska þinginu, í tilraim
til að fá menn að samningaborðinu
á ný og leysa fjárlagadeiluna.
Bauðst Clinton til að hitta repúblik-
ana án nokurra skilyrða en nefndi
til vara aö hann mundi ganga að
forsendum þeim sem óháð fjárlaga-
skrifstofa þingsins hafði gefið út og
Repúblikanar vildu styðjast við að
því gefnu að heilsugæsluþjónustu
og almannatryggingum yrði hlíft
við niðurskurði. Dole Gingrich mun
ætla að hitta forsetann í dag.
Reuter
Utlönd
Heitasta árið
Árið sem er að líða er það
heitasta á öldinni ef mælingar
alls staðar að af hnettinum eru
skoðaðar. Meðalhiti við yfirborð
jaröar er 0,4 gráðum hærri en á
árunum 1961-1990. Heitasta árið
til þessa var 1990, með 0,36 gráða
hærri hita. Ritzau
Innrammaðar jólagjafir
Listaverkaeftirprentanir
Sérverslun m/innrammaðar myndir
eftir íslenska og erlenda listamenn.
ítalskir rammalistar. Falleg gjafavara.
Innrömmunarþjónusta
Fákafeni 9 - Sími 581 4370
Venjultqtvetóii.jflftr
Jólatilboð:1.9Mr
Venjuleqt vetð: J9é0ft>-
Jólatílboð: 1&.940,
Opiðtil 22:00 Þríðjud-föstud - 8:00 Þorláksmessu -10:00-12:00 Aðfangadag
LuXOR NÝ LÍNA '96
7045
Black Matríx glampalaus skjár, Nicam stereo,
hraðvirkt textavarp, 400 lína upplausn.
Hágæðasjónvarp með
miklum myndgæðum.
Kr. 1 09,900 slgr.
C'mp \ Euro raðgreiðslur
am y til allt að 36 mán.
^/Ís/T Visa raðgreiðslur
til allt að 24 mán.
SKEIFAN 7 - SIMI 533 2500